Tíminn - 15.04.1984, Side 12
12
SUNNUDAGUR 15. APRIL 1984
r
►
Eftir Jónas Guðmundsson, hagfræðing
■ Walter Mondale og Jesse Jackson vilja hér báðir í senn beina spurningu til Gary Hart.
A kappræðufundi með
Mondale, Hart og Jackson
Fjórir tækjavagnar frá CBS sjónvarpsstöðinni gáfu glöggt
til kynna á mánudagsmorgun að eitthvað merkilegt væri í
aðsigi. Og það leið ekki á löngu þar til fréttin barst út um
skólasvæðið: forsetakandidatar Demokrataflokksins höfðu
þegið boð um að koma hingað í Columbia eftir tvo daga til
kappræðna um landsmál, heimsmál, og eigið ágæti -
kappræðna sem sjónvarpað yrði um öll Bandaríkin.
Heimafólk - og sömulciðis þessi bréf-
ritari Tímans - tóku þessum tíðindum
sem vinningi í happdrætti. Allir áttu
svosem aðgang að næsta þrotlausu et'ni í
blöðum, tímaritum, útvarpi og sjón-
varpi, um þá líflegu kosningabaráttu
sem Demókratar höfðu haldið uppi
síðustu vikurnar, cn ekkert af því
jafnaðist á við það tækifæri sem nú
bauðst; nú gátu menn a.m.k. virt þessar
hetjur betur fyrir sér milliliðalaust, og í
besta falli orðið vitni að atburði sem
markaði spor í kosningabaráttuna.
bcssi sjónvarpsumræða var að vísu
ekki sú fyrsta, heldur sú sjötta, sem efnt
var til frá því að forkosningarnar komust
á dagskrá; en þetta var sú fyrsta sem ein
af stóru sjónvarpsstöðvunum annaðist,
og einnig sú fyrsta frá því að fjöldi
frambjóðenda datt niður í þrjá. Nú yrðu
því fleiri áhorfendur en áður, og áreynsl-
an fyrir hvern frambjóðenda meiri. En
það var fleira sem jók mikilvægi kapp-
ræðunnar. Innan fárra daga - 3. apríl -
færu New York forkosningarnar fram,
stærstu forkosningarnar til þessa; New
York sendir 250 fulltrúa á flokksþingið í
San Fransisco í sumar, ríflega tíunda
hluta þess sem þarf til að hljóta útnefn-
ingu flokksins.
Sigur í New York - og í Pensylvaniu
viku seinna - gat hæglega leitt til lykta
það þrátefli sem Gary Hart og Walter F.
Mondale höfðu teflt að undanförnu,
gefið öðrum hvorum þeirra sigurbyr í
öðrum fylkjum. New York gaf Jesse
Jackson cnnfremur citt af hans bestu
tækifærum til að sanna pólitíska eðlis-
þyngd sína.
Pað var því ekkert undarlegt að allir
frambjóðendurnir þrír voru mættir á
réttum tíma í Columbia-bókasafnið á
miðvikudagskvöld.
Árásir á víxl
Umræðan hófst með dálítið undar-
legum játningum. Stjórnandi hennar,
Dan Rather frá CBS, hafði beðið þre-
menningana að nefna sínar veikustu
hliðar. Mondale, sem frá því að hann
byrjaði sína kosningabaráttu hefur talið
sér mest til ágætis alla þá reynslu sem
hann hefur aflað sér, hélt því nú fram að _
sér ylli mestum erfiðleikum hvað hann
hefði verið lengi í pólitík. Jackson, sem
hlotið hefur lof fyrir áhrifamikla ræðu-
mcnnsku og litríka framkomu, taldi sér
ganga verst að túlka þann málstað sem
hann bcrðist fyrir. Það var eins og menn
vildu allt í einu snúa hlutunum við;
svörin hafa líklega átt að tákna að
■ Gary Hartá sér verulegar sigurlíkur í baráttunni.
Fréttaritari Tímans í Bandaríkjunum segir frá
orðaviðskiptum frambjóðendanna í bókasafni Columbiaháskóia,
en sjónvarpsstöðin CBS efndi til umræðnanna