Tíminn - 15.04.1984, Side 16
16
SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984
Frakkarnir kveðja
veturinn
Frakkarnir
■ Propaganda. Suzanne, Andreas, Claudia, Ralf.
Propaganda, nýjasta
stjarna Zang Tumb
Tuum fyrirtækisins
■ Nýtt fyrirtæki hefur á skömmum
tíma náð fóstfestu í breska tónlistar-
iðnaðinum. Heitir það Zang Tumb
Tuum, og eru aðaleigendur þess þeir
Trevor Horn, sem frægur er af sam-
starfi sínu við Dollar, ABC og Malc-
olm McLaren, en Horn er upptöku-
stjóri að atvinnu, og Paul Morley,
sem er frægastur fyrir skrif sín í
tónlistarblaðið NME. Yfirlýst mark-
mið þeirra var að hræra upp í breskri
tonlist. Þetta tókst þeim að nokkru,
þegar hljómsveitin Frankie Goes To
Hollywood náði efsta sæti vinsældar-
listans með lag sitt Relax og sat þar
i fimm vikur. En breskum útvarps-
mönnum þótti lagið of kynferðislegt,
og var það bannað í öllum útvarps-
stöðvum og í sjónvarpi og er enn.
Zang Tumb Tuum hefur fleira á
prjónunum. Nýlega gáfu þeir út litla plötu
með hljómsveitinni Art Of Noise, og
einnig hafa þeir ráðið þýsku hljómsveit-
ina Propaganda til starfa. Það er eigin-
lega Propaganda sem er aðalefni þess-
arar greinar.
Propaganda er skipuð tveimur stúlk-
um og tveimur piltum, eins og ABBA.
Þetta eru þau Claudia Bruchen, Su-
zanne Freytag, Ralf Dörper og Andreas
Thein. Claudia og Suzanne voru áður í
léttri hljómsveit sem hét Topolinos (ít-
alska fyrir Mikka mús), sem átti lag á
þýskri samansafnsplötu (líklega Neue
Deutsche Welle). Ralf Dörper var hins
vegar í hljómsveitinni Die Krupps, sem
var í svipuðum anda og stál- og loftbora-
sveitin Einsturtzende Neubauten. Síðar
gaf hann út plötu í Bretlandi sem hét
„Eraserhaed."
Síðan hljómsveitin undirritaði samn-
ing við ZTT hefur komið út lítil plata með
henni, sem nefnist Dr. Mabuse. Lagið er
um þýskan karakter, sem kvikmynda-
gerðarmaðurinn Fritz Lang skapaði á
sínum tíma, fyrir valdatöku nasista.
Suzanne Brucher segir: „Við settum Dr.
Mabuse inn í nútímann. Á þessum tíma
var hann viðvörun við fasismanum, en í
þessu samhengi gæti hann verið bissn-
ismaður. Okkur finnst það sorglegt að i
stað evrópskrar menningar hefur orðið
amerísk menning. Það eina sem
fólk veit um Þýskaland er Stríðið, en fyrir
það var mikil listahreyfing í Þýskalandi,
þar voru miklir listamenn, hönnuðir og
kvikmyndagerðarmenn. Propaganda
leitar á þessi miö.“
Ralf Dörper segir: „í Þýskalandi þurfa
allir að vera mjög venjulegir og hefð-
bundnir. Við ætlum að sanna að hægt
sé að hafa frumlegar hugmyndir og
samt verða vinsæll. Við viljum verða
vinsæl í Bretlandi, en jafnframt sýna
Þjóðverjum og þýskum tónlistarfyrirtækj-
um að þýsk hljómsveit geti orðið bæði
vinsæl og góö og haft líka nýja afstöðu
til tónlistar."
Ralf er spurður af því hvort Nena hafi
ekki verið mikil vonbrigði.
„Jú, vissulega. Það eina sem hún
hefur gert er að sýna þýskum hljóm-
plötufyrirtækjum hve auðvelt er að selja
gamlar amerískar og enskar hugmyndir.
Nena er mjög amerísk. En ef það hefur
í för með sér að fleiri þýskar hljómsveitir
komast á samning þá er það gott. Ég
vona aðeins að réttu hljómsveitirnar
veröi fyrir valinu.“
„Stundum finnst mér að við séum alls
ekki tónlistarfólk. Við höfum annað sjón-
arhorn á tónlist. Tónlistarmaður er
náungi sem situr heima hjá sér með
gítar. Við vinnum hins vegar að fullunn-
inni framleiðslu, framleiðslu til að breiða
út hugmyndir okkar. Við sameinum
andstæðurnar - tæknina og pönkhug-
myndafræðina um að gera það sjálfur —
og búum þannig til nýjungar. Brátt mun
verða til ný kynslóð tónlistarmanna,
krakkar sem alist hafa upp við tölvur og
tölvuleiki. Eftir tvö ár munu verða til tæki,
ódýr tæki, sem gera það sama og
fullkomnustu stúdíó gera núna. Hugmynd-
in um tónlistarmanninn er útdauð, það
eru hugmyndirnar sem lifa." -ÁDJ
■ Frakkarnir munu kveðja veturinn
með miklu fjöri og ánægju á Hótel
Borg miðvikudaginn 18. apríl. Ýmsir
Frakkar hafa verið uppteknir upp á
síðkastið, Mikki hefur veriö í stúdíói
meö Baðvörðunum og Geiri, Bjöggi,
Steini og Þorleifur hafa verið að
aðstoða Bubba Morthens með Ný
spor, bæði á hljómleikum og í stúd-
íói. En nú fara Frakkarnir af staö
aftur. Dansleikur verður haldinn í
Tess í Hafnarfirði föstudaginn 13.
(sem sagt búinn) og koma Frakkarnir
síðan fram á rokkhátíð í Garðabæ í
endaðan apríl. Hljómsveitin hyggst
einnig fara í stúdíó fljótlega og
hljóðrita nýtt efni. Óljóst er ennþá
með útgefanda. -ÁDJ
Kukl
Kukl
Tónleikar:
Bnmm
■ Nú í apríl ætlar hljómsveitin Kukl
að halda nokkra tónleika á höfuð-
borgarsvæðinu. Alllangt er síðan
hljómsveitin spilaði á hljómleikum
hér á landi. Þó að hljótt hafi verið frá
þeirra herbúðum hef ur aðgerðaleysið
ekki hrjáð Kukl. Hafa þau spilað á
tónleikum í Englandi í upphafi árs og
þá var tekin upp ný stúdíóplata.
Nefnist sú plata Augað og kemur hún
út í Evrópu í maí.
Tónleikar Kukl í apríl verða þeirra
einu þangað til síðari hluta sumars er
þau halda í hljómleikaferð um alla
Evrópu, svo til. Á tónleikunum nú mun
Kukl spila það efni sem gefur að heyra
á nýju plötu þeirra. Kukl spilar í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg þann 18. apríl.
Laugardaginn 21. apríl halda þau mikla
tónleika í Félagsstofnun stúdenta.
Möguleiki er á að einum tónleikum eða
dansleik verði bætt við yfir páskahelg-
ina.
Gestir Kukls á þessum hljómleikum
verða mismunandi en þar á meðal
verða: Slagverkur, Dá, P.P. Djöfuls ég,
Lojpippos og Spojsippus auk fleiri atriða.
Stefnt er að, að gera alla þessa tónleika
sem eftirminnilegasta á alla vísu og •
gera þetta ár að gleöilegri skemmtun.
Verði verður stillt í hóf.
- ÁDJ