Tíminn - 03.01.1986, Side 4

Tíminn - 03.01.1986, Side 4
4 Tíminn I auðlegð tungunnar er fjöregg þjóðarinnar falið Góðan dag, góðir íslendingar. Gleðilegt nýtt ár. Megi árið 1986 reynast okkur öllum gæfuríkt og gjöfult. Fyrsti dagur ársins hefur þá sér- stöðu umfram aðra tímamótadaga að vera ekki afmælisdagur minninganna heldur fæðingardag- ur framtíðarinnar, næstu 365 daga, þar til áramót renna upp á ný og aftur verður haldið upp á afmæli með nýrri og ferskri einbeitingu. Petta er dagur viljans til að vona. Og ekki þarf að fara mörgum orð- um um, að vonin er manninum hin mesta gersemi í allri framtíðarsýn. Á þessum fæðingardegi getur enginn gert sér að fullu grcin fyrir hvernig framtíðin lftur út, en fyrir allar þjóðir sem eiga sér minningar er það sjálfsögð hugsun að engin framtíð er til án tengsla við fortíð. Við fslendingar búum við þá gæfu að vitund okkar um sameign okkar, söguna, er sterk, svo sterk að hún er meginskýring okkar á því hver við erum og Itvar við erum stödd á jörðinni í gervallri mann- kynssögunni. Allir menn á öllum aldursskeiðum lcita til minninga sinna, vegna þess að hin liðna, sagan, er skýring á andránni. Og svo mikilvæg er manninum saga fortíðar að hann mun vera eina spendýr jarðarinnar sem ekki er fætt með reynslu kynslóðanna, heldur verður að læra hana, og tileinka sér af annarra sögn eða eig- in rannsókn - að minnsta kosti er hann eina veran sem stöðugt skráir samtíð sína framtíðinni til fróð- leiks. Alla tíð hefur manninum þótt hann lifa mikla umbrotatíma. Varla er þó ofmælt að aldrei hafi fs- lendingar lifað slíka umbrotatíma sem nú, þegar hafið kringum okkur, sem einu sinni var okkur bæði vörn og farvegur til annarra þjóða, gegnir ekki lengur því hlut- verki. Þegar tcngsl okkar við um- heiminn færast æ nteir yfir á svíf- andi hnetti í himinhvolfinu, þegar ný tækni hefur leyst náttúruna af hólmi, tækni sem getur orðið til ómældrar farsældar ef rétt er á haldið. En allar nýjungar geta rofið tengslin milli fortíðarogframtíðar. Pví þarf ávallt að halda vöku sinni andspænis þeim, velja þaðsemgott er, hafna hinu. Við höfum nú kvatt ár, sem sér- staklega var tileinkað æskunni. Vissulega cr heimur nútíðarinnar, heimur íslenskrar æsku, ólíkur heimi foriíðarinnar, en svo hefur oft verið. Unglingur með tölvu sína á okkar dögum er ekki með skelfi- legra tæki í höndum cn jafnaldri hans sncntma á þessari öld með símann eða nýjungagjarn bóndi á sinni tíð með sláttuvél. Okkur, sem nú erum á fullorðinsárum má aldrei vaxa ný tækni svo í augum að við teljum okkur hennar vegna ekki geta náð til hinna yngri, sem hafa hana á valdi sínu að okkur virðist fyrirhafnarlaust. Við megum ekki á þann veg láta tæknina grafa gjá milli kynslóða. Samt er tækni nútímans sund- urgreinandi, sundrandi kynslóð- um. Eldri kynslóð þekkir ekki þann heim sem einn er heimur nýrrar kynslóðar og ný kynslóð kannast ekki við þann íteim sem hin eldri var handgengin. Viðþær aðstæður verður okkur vonandi sem aldrei fyrr ljós nauðsyn sög- unnar, brúarinnar milli tímanna, ntilli kynslóðanna. Ljóst er að aldrei má gleymast það sent skáldið góða gerði að heilagri þrenningu okkar „land, þjóð og tunga...“ Oft er sagt aö heimilið sé horn- steinn þjóðfélagsins og vissulega er það svo. En heimilið á okkar dögunt er öðruvísi hornsteinn en nokkru sinni fyrr. Fyrir fáurn ára- tugum voru svotil öll íslensk heimili jafnframt vinnustaðir kynslóðanna, yngri sem eldri. Par gengu allir til sinna verka. Þar var hvort tveggja í senn griðarstaður- inn og vinnustaðurinn. Með iðn- byltingu og tæknivæðingu ger- breyttust hlutverk heimilisins. Atvinnulífið fluttist burt og með atvinnulífinu sá hluti fjölskyld- unnar sem mest hvíldi á, fyrst heimilisfaðirinn, síðar móðirin, - og þá afi og amma. Um leið og samskipti kynslóð- anna á heimilinu breyttust, fór að gæta sterkar en fyrr tilhneigingar til sundurgreiningar á tilveru kyn- slóðanna. Atvinnulaus börn og unglingar heima fyrir kölluðu á nýja þjónustu, nýjan skilning um- hverfisins. Og um leið var farið að líta á þau sem sérstæðari verur en fyrr, sem sérstakan hóp neyt- enda. Sáskilningurblasirviðaug- um hvert sem litið er í dag. Mér er sagt að nú eigi fjölmörg íslensk börn erfitt með að gera sér ntynd Áramótaræða forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur af foreldrum sínum á vinnustað, einfaldlega vegna þess að þau hafa aldrei séð pabba og mömmu viðverksín. Mérereinnigsagtað sumir íslenskir unglingar eigi í þrengingum með að tjá sig, því að við þá sé lítið talað nema gegnum útvarp og sjónvarp. Og í þeim samræðum er aðeins annar aðil- inn virkur, - Itinn er óvirkur þiggjandi. Samtal og skoðana- skipti eiga sér ekki stað á þann veg. En sé mönnum vandinn ljós er hægt að stefna að því að bæta úr, og það gerir hver og einn sjálf- ur best með eigin metnaði. Auðvitað eru unglingar öðru- vísi en fullorðnir. Til allrar ham- ingju! Auðvitað hafa þeir annan skilning á tilveru sinni en þeir sem þegar hafa aflað sér miklu víð- tækari lífsreynslu. Svo hefur allt- af verið, og þannig á það að vera. Unglingurinn með hvassa gagn- rýni sína á hegðun fyrri kynslóða er engin nýlunda heldur endur- tekning sögunnar. Hins vegar kann okkur nú að vera meiri þörf en fyrr á að rísa gegn þeim sundr- andi skilningi sem að hefur verið vikið. Að leggja þess í stað áherslu á það sem tengir kynslóð- irnar saman og sýnir að við erum öll í eðli okkar eins, tilheyrum sama mannkyni. Öll getum við verið sammála um að fátt tengi kynslóðir þessa lands betur saman en sú tunga sem er stolt okkar. í auðlegð tungunnar sjálfrar, íslenskunnar og samhengis hennar, er fjöregg þjóðarinnar fólgið. Þær tæknibyltingar sem yfir okkur hafa dunið á skömmum tíma hafa vitanlega leitt til mikilla breytinga í orðaforða okkar og allri málnotkun. Aldrei fyrr hefur reynt sem nú á þanþol tungumáls- ins, á hæfni þess til endurnýjunar. Aldrei fyrr hefur blasað við jafn- ntikil hætta á að samhengið í mál- sögu okkar gæti rofnað. Því skal þó ekki gleymt að hér hefur þegar verið unnið mikilvægt starf. Orðasmíð og nýjungar í máli hafa orðið okkur þjóðaríþrótt og í samfélagi þjóðanna getum við verið stolt. Hins vegar má okkur ekki gleymast að tengja þráðinn til fortíðarinnar. Sá þráður einn er þess megnugur að varðveita þjóðarsál okkar og lifandi tján- ingarmiðil hennar, íslenska tungu. Því án tungunnarerum við ekki þjóð meðal þjóða. Og með því að vera sjálfstæð þjóð með öðru vísi tungu og öðru vísi menningu en aðrir, höfunt við eitthvað að gefa sem er ööruvísi. Alls þess sem því tengist ber okk- tir að gæta vel - láta ekki taka það frá okkur, af því að annars staðar séu ntenn vanireinhverju öðru... Eitt af sérkenum okkar íslend- inga er nafnahefð okkar. Við höf- um haldið fast við þann gamla sið að heita skírnarnöfnum okkar og vera dætur og synir feðra okkar. Alls staðar þar sem við erum skráð er það fyrst og fremst með skírnarnani, í þjóðskrá, símaskrá eða íslenskum æviskrám. Meðal annarra þjóða eru hins vegar ætt- arnöfn aðalnöfn manna og eru það þeirra siðvenjur. Nú hættir okkur við að gangast möglunar- laust undir það að afsala okkur þessum þætti í sjálfstæði og þjóðareðli. Á ráðstefnum með erlendu fólki, á flugfarseðlum og í erlendum gistihúsum, meira að segja á flugfarseðlum sem gefnir eru út á heimavettvangi heitum við ekki lengur Jón og Guðrún heldur Sigurðsson (komma) Jón, eða Jónsdóttir(komma) Guðrún. Og nú má spyrja, af hverju meg- um við ekki þar vera eins og hér heima, Guðrún Jónsdóttir og Jón Sigurðsson? Ekki er úr vegi að við höfum það sem nýársheit að leiðrétta þennan misskilning meðal erlendra manna og kenna þeim að virða sið sem oft hefur orðið efni í frásögu af sterkum þjóðareinkennum. Sú tunga sem við lærðum ung við móðurkné er vandmeðfarinn arfur. Rætur hennar liggja í fortíð, í horfinni menningu. Krónan breiðir sig yfir fjöl- hyggjuheim nútímans. Næringin milli róta og krónu fer um æðar sögunnar og án hennar verður laufskrúðið dauflegt og litsnautt. Á fyrri tíð var órofa samhengi í þróun tungunnar tryggt vegna þess að heimilin voru jafnframt vinnustaðurinn. Þá þurfti litlar áhyggjur að hafa af því að ungl- ingarnir töluðu annað mál en for- eldrarnir. Með breytingum sem orðið hafa, hefur hið mállega uppeldi þjóðarinnar raunveru- lega færst út af heintilinu og inn í skólana. Þess vegna verðuraldrei ofbrýnt fyrir okkur mikilvægi þess uppeldisstarfs sem þar fer fram og kann að vera það sem skilur milli feigs og ófeigs í sögu okkar á næstunni. Þess vegna á ekki við neinn betur að gera en kennarana, sem hafa axlað þá ábyrgð með okkur foreldrum að koma börnum okkar til manns. Við lifum á erfiðum tímum, er oft sagt. í viðtali sem nýlega birt- ist við hinn heimskunna enska rit- höfund Harold Pinter komst hann m.a. svo að orði: „Víst má túlka veruleikann á marga vegu. En samt er hann alltaf einn. Og ef ( þessi veruleiki er sá að þúsundir ntanna sé verið að pynta til dauða á þessu andartak og hundruð þús- unda megatonna af kjarnorku- sprengjum bíði þess að vera skot- ið á þessu augnabliki, þá er það svo, og það er ntergurinn málsins. Við verðum að horfast í augu við það.“ Að horfast í augu við raun- veruleikann felur það í sér að tak- ast á við hann. Gleðjast yfir því sem gott er og hafna því sem við viljum ekki að yfir okkur dynji. Hinn kunni vísinda- og lær- dómsmaður, landi okkar Wolf- gang Edelstein, hefur um langt árabil unnið með íslenskum börnum og unglingum og kannað viðhorf þeirra til samtíðarinnar og umhverfis. Könnun hans hefur leitt í ljós að mikill fjöldi ís- lenskra ungmenna lifir í stöðug- um ótta við tortímingu. í þess konar veruleika er okkur mikil þörf á von, von um betri heim, von um varanlegan heimsfrið. Og okkur er mikil þörf á því, kyn- slóðum landsins, að geta rétt hver annarri höndina, tekist sameigin- lega á við að byggja okkur brú, milli fortíðar og framtíðar, beint athygli okkar og kröftum að því sem sameinar okkur, en ekki sundrar, geta gengið til liðs við vonina og trúna á hin góðu öfl til- verunnar á nýju ári. Ég óska landsmönnunt öllunt gleðilegs árs. Föstudagur 3. janúar 1986 ÚTLÖND Norðmenn æstir í enn meiri olíu Osló-Reuter ■ Káre Kristiansen olíu- og orku- málaráðherra Noregs segir nauðsyn- legt fyrir Norðmenn að auka enn fleiri olíulindir á næsta áratug. Norðmenn urðu fyrir miklum von- brigðunt í seinustu viku þegar Norsk Hydro birti niðurstöður olíuleitar á svæði í Norðursjó sem áður hafði verið talið eitt auðugasta olíusvæði Norðmanna. í ljós kom að lítil sem engin olía var á svæði en aðeins nokkuð af gasi sem ekki er eins hag- kvæmt að vinna. Olíuframleiðsla Norðmanna er nú um 850.000 tunnur á dag en síðar á þessu ári er stefnt að því að auka hana upp í eina ntilljón tunna og samkvæmt opinberum áætlunum á olíuframleiðslan að vera orðin 1,5 milljón tunnur á dag árið 1987. Olíuframleiðsla úr þeim lindum, sem nú er vitað um, fer svo að minnka upp úr 1990 svo að þá verða Norðmenn að taka nýjar olíulindir í notkun eigi framleiðsla þeirra að haldast stöðug. Káre Kristiansen segir Norðmenn binda miklar vonir við olíuleit út af ströndum Norður- Noregs og miðhéraða landsins. Þingmenn hand- teknir með 20 kg af heróíni Port Louis-Reuter ■ Hollenska lögreglan handtók síðastliðinn föstudag fjóra ferða- langa frá Afríkuríkinu Mauritaníu eftir að 20 kíló af heróíni fundust í farangri þeirra á Schipol-flugvelli í Amsterdam. Við yfirheyrslur kom í ljós að fjórmenningarnir voru allir þingmenn á þinginu í Mauritaníu. Aneerood Jugnauth forsætisráð- herra Mauritaníu hefur skýrt frá því að Mauritaníustjórn muni ekki biðja um að mcnnirnir verði framseldir en þeir voru með diplómatavegabréf. Forsætisráðherrann sagði í gær að það væri skammarlegt að þingmenn skyldu flytja dauðann milli landa. „Eg hef enga samúð með nokkrum þeirra, sem þingmenn er ætlast til þess að þeir séu fulltrúar hagsmuna almennings. Þeir eiga ekki skilin þingsæti sín.“ Þingmennirnir fluttu heróínið með sér frá Bontbay á Indlandi. Þeir hafa neitað að viðurkenna að þeir hafi vitað um heróínið. Bretland: Skrifstofuástir bitna á afköstum London-Reuter ■ Samkvæmt skýrslu, sem birtist í breska hagstjórnartímaritinu Per- sonnel Management. hefur að undanförnu orðið mikil auking á „skrifstofuástum", þ.e. ástarsam- bandi starfsfólks á skrifstofum. í könnununni voru 76 fram- kvæmdastjórar spurðir hvort þeir hefðu ástarsaniband við samstarfs- fólk á skrifstofunni og hvort þeir vissu um aðra sem ættu í slíkum ást- arævintýrum. Þriðjungur aðspurðra viðurkenndi að þeir héldu sjálfir við einhvern á skrifstofunni og að meðaltali vissu þeir unt sex ástar- ævintýri meðal samstarfsmanna sinna. Því er haldið fram í niðurstöðum könnunarinnar að aukinn fjöldi ást- arsambanda á skrifstofum stafi af fjölgun framagjarnra kvenna. Skrif- stofuástirnar eru sagðar slæmar fyrir afköst þar sem einbeitni minnki, meira sé blaðrað í vinnutíma og ást- arsamkeppni valdi togstreitu sem sé slæm fyrir andrúmsloftið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.