Tíminn - 03.01.1986, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. janúar 1986
Tíminn 5
ÚTLÖND
Stórveldin sýna
myndræna slökun
Washington-Moskva-Rcuter
Sri Lanka:
Bandaranaike
vekur friðarvon
Hún fær aftur full borgararéttindi
Colombo-Reuter.
■ íbúar Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna fengu óvæntan nýársglaðn-
ing á nýársdag þegar bandarískar
sjónvarpsstöðvar sjónvörpuðu ný-
ársávarpi Gorbachevs Sovétleið-
toga og sovéska sjónvarpið sýndi
sjónvarpsávarp Reagans Banda-
ríkjaforseta.
Nýársávörp leiðtoganna voru ekki
almennt auglýst í sjónvarpsdag-
skrám en samt er talið að tugir og
jafnvel hundruð milljóna manna hafi
hlýtt á boðskap þeirra. Sjónvarps-
áhorfendur, sem fréttamenn höfðu
samband við lýstu almennt yfir
ánægju með ávörpin sem eiga sér
ekkert fordæmi.
Leiðtogarnir forðuðust að mestu
ágreiningsatriði í ávörpum sínum,
sem stóðu í fimm mínútur, og lögðu
höfuðáherslu á eigin friðarvilja.
Þrátt fyrir þetta myndræna merki
um slökun spennu í samskiptum risa-
veldanna er ekki talið að bandarísk
eða sovésk stjórnvöld muni hvika frá
stefnu sinni í heimsmálum. 1 ára-
mótaleiðara sovéska blaðsins
Prövdu er þannig harkaleg árás á í-
hlutun Bandaríkjamanna í málefni
annarra ríkja sem sögð er höfuð-
orsök „svæðisbundinna vandamála"
í Nicaragua og annars staðar í heim-
inum.
■ Sirima Bandaranaike
áöur en hún var svipt
borgararéttindum 1980 fyrir
valdniöslu. Nú hafa stjórn-
völd í Sri Lanka náðað hana í
von um að hún geti lagt
eitthvað af mörkum til þjóð-
areiningar í þessu stríðs-
hrjáða eyríki.
■ FyrstaembættisverkJuniusarJa-
yewardene forseta Sri Lanka á nýja
árinu var að náða frú Sirima Banda-
ranaike fyrrverandi forsætisráðherra
og veita henni full borgararéttindi,
þ.á.m. rétt til að taka þátt í stjórn-
málum.
Bandaranaike, sem er 65 ára, var
forsætisráðherra á Sri Lanka 1960 til
1965 og 1970 til 1977. Hún var rekin
af þingi og svipt borgararéttindum til
sjö ára 1980 eftir að dómstóll dæmdi
hana seka um valdníðslu á meðan
hún gegndi embætti forsætisráð-
herra.
Almennt er búist við því að hún
taki nú aftur sæti á þingi fyrir hönd
Alþýðuflokks Sri Lanka þar sem
stjórnarskráin heimilar stjórnmála-
flokkum að biðja þingmann að víkja
úr sæti sínu fyrir öðrum.
Miklar vonir eru bundnar við að
Bandaranaike komi til með að gegna
mikilvægu hlutverki við lausn þjóð-
ernisátaka á milli Sinhalese, sem eru
í meirihluta og þjóðarbrots Tamila.
Skæruliðar Tamila hafa að undan-
förnu gert margar blóðugar árásir á
Sinhalese-íbúa landsins en skærulið-
arnir krefjast sjálfstæðis héraða þar
sem Tamilar eru fjölmennastir.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um innan stjórnkerfisins á Sri Lanka
lagði Rajiv Gandhi forsætisráðherra
Indlands hart að Jayewardene for-
seta Sri Lanka að gefa Bandaranaike
upp sakir.
1 fyrstu pólitísku yfirlýsingu sinni
eftir sakaruppgjöfina krafðist
Bandaranaike þess að þegar í stað
yrði efnt til almennra kosninga á Sri
Lanka.
Belgía:
Áramótaflótti
úr fangelsi
Brussel-Reuter
■ Nokkrir fangar í ríkisfangelsi í
Arlon í suðvesturhluta Belgíu not-
uðu tækifærið við 'nýársfagnað
fanga og fangavarða til að brjótast út
í frelsið.
Að sögn lögreglunnar léku þrettán
strokufangar enn lausum hala í gær.
Fangar í fangelsinu voru alls 117
talsins en meirihluti þeirra vildi ekki
taka þátt í fangelsisflóttanum þótt
strokufangarnir hefðu yfirbugað
fangaverðina og lokað þá inni.
Einn strokufanganna var dæmdur
í 20 ára fangelsi fyrir morð.
Nígería slakar á
gjaldeyrisreglum
Lagos-Reuter.
■ Nígeríustjórn kynnti í gær nýjar
gjaldeyrisreglur sem eru mun frjáls-
ari en þær sem hingað til hafa gilt þar
í landi.
Samkvæmt nýju reglunum fá
bankar leyfi til að versla með erlend-
an gjaldeyri á markaðsverði undir
eftirliti seðlabankans. Gengi gjald-
miðils Nígeríu, naira, á þessum
frjálsa markaði verður háð mark-
aðnum en opinbert gengi naira gagn-
vart dollar er nú rúmlega fjórum
sinnum hærra en viðgengst á svört-
um markaði.
Kalu Kalu fjármálaráðherra Níg-
eríu segir að stjórn Nígeríu muni
reyna að semja við lánardrottna sína
um frestun á endurgreiðslum lána
þannig að Nígeríumenn þurfi ekki
að greiða nema sem svarar 30 prós-
ent af útflutningstekjum sínum í
vexti og afborganir.
Samkvæmt núvcrandi samningum
eru Nígeríumenn skuldbundnir til að
greiða sem svarar 42% af útflutn-
ingstekjum sínum á þessu ári í vexti
og afborganir.
Norður-Kórea
fær kiarnorku
Tokyo-Reuter:
■ Norður-kóresk fréttastofa hefur
skýrt frá því að Sovétmenn hafi lofað
að aðstoða við smíði kjarnorkuvers í
Norður-Kóreu.
Kang Song-San forsætisráðherra
Norður-Kóreu undirritaði sam-
komulagið um smtði kjarnorkuvers-
ins ásamt Nikolai Ryzhkov forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna í Moskvu
annan í jólum.
Norður-Kóreumenn hafa hingað
til ekki haft nein kjarnorkuver eða
kjarorkuvopn en mikið er af banda-
rískum kjarnorkuvopnum í Suður-
Kóreu og Suður-Kóreumenn fá stór-
an hluta raforku sinnar frá kjarn-
orkuverum.
Asnar á ösnum
Nýja Delhi-Reuter:
■ Lögreglan í Nýju Delhi notaði
nýja aðferð til að refsa fylliröftum
sem voru með skrílslæti og asnahátt á
nýjársnótt. Þeir verstu voru dregnir
skjálfandi þunnir út úr fangageymsl-
um lögreglunnar á nýjársdag og látn-
ir ríða ösnum um götur Nýju Delhi.
Andlit fylliraftanna voru svert og
hendur þeirra bundnar. Sumir báru
skilti sem á stóð „Þetta verða örlög
þorpara 1986“.
Talsmenn lögreglunnar í Nýju
Delhi segja að fleiri asnagöngur
verði haldnar á þessu ári með ill-
ræmdum þrjótum og þorpurum.
slíkar göngur hafa tíðkast um nokk-
urt skeið í þorpum til sveita en þetta
er í fyrsta skipti sem stórborgarþorp-
arar í Nýju Delhi eru niðurlægðir
með þeim.
Bílstjórar borga
sig inn í Bergen
Fyrsti vegatollur inn í v-evrópska borg
Bergen-Reuter
UTLOND
Umsjón: Ragnar
Baldursson
■ Bílstjórar, sem aka inn í norsku
borgina Bergen, verða frá og með
deginum í gær að greiða vegatoll við
borgarmörkin.
Borgaryfirvöld í Bergen segja að
tollurinn, sem er fimm norskar
krónur(tæpl. 30 ísl. kr.) á bílstjóra,
sé einstakur í Vestur-Evrópu. Engin
önnur vestur-evrópsk borg taki gjald
af ökumönnum sem aki inn yfir borg-
armörkin.
Tollurinn er rukkaður í sex toll-
skýlum sem reist hafa verið við allar
umferðaræðar inn í Bergen. Hann
verður notaður til að standa straum
af vegalagningu í Bergen og til að
bæta umhverfi borgarinnar.
Samkvæpit skoðanakönnun, sent
norskt blað gerði í Bergen, eru tveir
af hverjunt þremur borgarbúum á
móti vegatollinum og sumir bílstjór-
ar hafa hótað því að neita að greiða
tollinn og stöðva þannig umferð við
tollhliðin.
FÖSTUDAGSKVÖLD
0PIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 20 í KVÖLD
Frá áramótum verður
opið:
á föstudögum til kl. 20
álaugardögum kl.9-16
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best
Jón Loftsson hf.
Hringbraut
121 Sími 10600