Tíminn - 03.01.1986, Síða 7

Tíminn - 03.01.1986, Síða 7
Föstudagur 3. janúar 1986 Tíminn 7 ■ Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. anna. Ef til vill gefur hlýnandi sjór meira svigrúm til að auka aflann. eins og margir reyndir sjómenn halda fram. Ef svo reynist, er sjálf- sagt að nýta það til hins ýtrasta. Ekki veitir af í þcirri þröngu stöðu, sem er. Góðir íslendingar, Líklcga þykir ykkur ég ræða um of um erfiðleika og e.t.v. gæta svart- sýni, sem ekki eigi við um áramót. Rétt er. að efnahagsmálin hef ég áður heldur forðast við þetta tæki- færi. t>ví valdi ég þann kostinn að ræða þau nú, að mér þykir lítið hafa unnist á því ári, sem er að líða. Það er hins vegar bjargföst sannfæring mín, að; „umbætt og glaðari framtíð sú veröld sem sjáandinn sér" ' eins og Stephan G. Stephansson segir, sé því fjær sem lengur tekur að ná tökum á efnahagsmálum íslensku þjóðarinnar. Svartsýnn er ég þó ekki, þegar til lengri tíma cr litið. Á liðnu ári hef ég sannfærst um það betur en nokkru sinni fyrr. hvílíkiróhemju möguleik- ar eru í okkar ágæta landi. Þeir virð- ast allstaðar vera, í hugviti unga fólksins, sent haslar sér völl í ýmiss- konar hátækniiðnaði, stóraukinni tækni og hagræðingu í fiskiðnaði, sem framsýnir menn á þeim sviðum leitast við að framkvæma, í nýjum bú- greinum, og síðast en ekki síst, í notkun á heitu og hreinu vatni og sjó til fiskeídis. Satt að segja virðast möguleikarn- ir svo miklir og áhuginn svo mikill, % j 60 t Verðlagsþróun á íslandi, erlendar skuldir og þjóðarframleiðsla 1945 -1985 Hlutfallslegar verðbreytingar á milli ára fhægri skali)x. Erlendarskuldir i hlutfalli við landsframleiðslu (vinstri skali) 1945 1950 1955 1960 1965 1970 1975 1980 Breytingar þjóðarframleiðslu 1945-1985 erlend lán verið tekin til neyslu eða óarðbærrar fjárfestingar. Með öðr- um orðum, allt of oft höfum við lifað um efni fram. Svipað má segja um hinar tíðu gengisfellingar. Ef menn vilja, geta þær að sjálfsögðu verið tæki til þess að bæta afkomu útflutningsatvinnu- veganna, en þegar þeim fylgir jafn- harðan hækkun verðlags og launa, leiða þær aðeins til aukinnar verð- bólgu og enn meiri erfiðleika. Þegar vaxandi erlendar skuldir og verðbólga fara saman, sýnir reynsl- an, að við ekkert verður að lokum ráðið. Ýmsar þjóðir, sem eru í raun ríkar af náttúruauðlindum, standa ábarmi gjaldþrots. Erlendar skuldir þeirra og verðbólga hafa vaxið svo gífur- lega, að öll bönd hafa brostið. Ég kynntist í sumar lítillega einni slíkri þjóð. Þar finnast í jörðu næst- um allir þeir málmar, sem nýtanlegir eru, þar er olía, landbúnaðarhéruð ágæt og fiskur mikill fyrir ströndum landsins. Samt sem áður virðist gjaldþrot blasa við. Hvernig má slíkt gerast? Fjár- málaspilling virtist á allra vitorði og viðurkennd. Mútur eru reglan og hver sem getur flytur fjármagn sitt úr landi. Auðurinn hefur safnast á fárra hendur, en fjöldinn býr við hörmu- legafátækt. Átvinnuleysi ergífurlegt og stór hluti þjóðarinnar ólæs og óskrifandi. Þegar ég skoða þróun mála hér á landi, fæ ég ekki varist þeirri hugsun, að skammt hafi verið í ógöngur engu minni en þær, sem ýmsar skuldugar verðbólguþjóðir eiga nú við að stríða. Það sem fyrst og fremst hefur bjargað íslendingum er forn arfleifð, manndómur og almenn menntun fjöldans. Þetta eru þeir kostir, seni gert hafa okkur kleift að skapa á skömmum tíma ótrúlega góð lífskjör. Að þessu leyti er ástand hér á landi gjörólíkt því, sem er hjá flest- um þeim þjóðum, sem gjaldþrot við blasir. Þetta gerir gæfumuninn. Það var skilningur almennings ogalmenn þátttaka. sem gerði stjórnvöldum kleift að snúa landinu af braut óðaverðbólgu og erlendar skulda- söfnunar. Mikið hefur þegar áunn- ist, verðbólga hefur lækkað stórlega og erlendar skuldir aukist lítið síð- ustu tvö árin. Því fer þó víðs fjarri, að björninn sé unninn. Því miður hefur á árinu 1985 að- eins tekist að halda verðbólgu í skefjum. Erlendar skuldir hafa jafn- framt heldur aukist, þótt hægar sé en áður var. Fyrir þessum slaka árangri eru ýmsar ástæður. Sumar eru erlendar, einkum fall dollarans og hækkun Evrópugjaldmiðla. Það hefurvaldið hækkun vöruverðs, en á sama tíma minni tekjum flestra útflutningsat- vinnuvega. Aðrar ástæður eru innlendar. Sem fyrr höfum við spennt bogann um of og eytt meiru en við öflum. Með launaskriði hafa tekjur aukist langt umfram það, sem atvinnuvegirnir þola. Þetta hefur auk þess valdið óþolandi launamismun. Þeir sem við ýmsar undirstöðugreinarstarfa, hafa setið eftir. Ekki dettur mér í hug að draga úr hlut stjórnvalda í lélegum árangri á liðnu ári. Mikill halli á fjár- lögum á stóran þátt í þeirri ofþenslu, sem verið hefur. Ég er einnig þeirrar skoðunar, að um of hafi verið látið undan kröfum um gengissig. Að sjálfsögðu getur gengi aldrei verið stöðugt í verðbólgu, en það má ekki síga svo mjög, að það haldi við eða jafnvel auki verðbólgu. Auk þess kemur það atvinnuvegunum að eng- um notum, ef það leiðir til aukins kostnaðar á öllum sviðum. Af því höfum við langa og bitra reynslu. Við getum ekki búið við verð- bólgu, sem er að nokkru marki hærri en í helstu viðskiptalöndum okkar og skuldir við útlönd verða að lækka á næstu árum. í ár greiðum við erlend- um fjármagnseigendum 5,800 millj- ónir króna í vexti. Það fjármagn verður ekki notað til kjarabóta eða nauðsynlegra framkvæmda. Leiðin úr þessum vanda , þegar til lengri tíma er litið, er innlendur sparnaður og aukin framleiðsla. Ég efa ekki, að það muni takast. Hins vegarerégjafn sannfærðurum, að það verður ekki þrautalaust. Við höfum lengi vanist því að byggja hús og stofna fyrirtæki með ódýru fjár- magni og litlu sem engu eigin fé. Það er ekki unnt lengur, og þeir sem hafa lagt út f slíkt á síðustu árum, munu eiga í erfiðleikum á meðan þessi breyting er að verða. Því er óhjá- kvæmilegt að veita um tíma hús- byggjendum og ýmsum atvinnuveg- um aðstoð eins og frekast er unnt. Á það hefur verið og mun verða lögð áhersla, en það verður að gera án þess að kveikja verðbólgueldinn að nýju. Stjórnvöld munu á árinu 1986gera sitt til þess að árangur náist. Það mun m.a. verða gert með miklu aðhaldi í fjármálum ríkisins. Ekki mun verða hvikað frá því markmiði, að ríkissjóður verði halla- laus og erlend lántaka hans ekki um- fram afborganir. Það mun valda samdrætti og, því miður, einnig valda þvf, að ýmsir aðilar, sem hafa notið góðs af þenslunni munu verða í erfiðleikum. Ekki verður bæði hald- ið og sleppt. Aðhaldssamri gengisstefnu mun einnig verða fylgt. Atvinnuvegirnir mega ekki gera ráð fyrir því, að sér- hverri kostnaðar hækkun innanlands verði einfaldlega mætl með því að fella gengið. Þeir verða einnig að gera kröfu til sjálfra sín. Með að- haldi, aukinni framleiðslu og hag- ræðingu, má ná miklum árangri. Það hafa einstakir atvinnurekendur sýnt. Á þessu ári hefur kaupmáttur tekna hækkað verulega. Að sjálf- sögðu hefur þetta stuðlað að meiri viðskiptahalla, eins og reyndar mikil verslun nu fyrir jólin hefur sýnt. Ef árangur á að nást á næsta ári, má kaupmáttur lítið aukast, en hann á hcldur ekki að þurfa að lækka. Að skaðlausu mætti hann jafnframt fær- ast nokkuð til þeirra, sem lægri laun- in hafa, frá hinum, sem betur búa. Allt væri það, sem ég hef nú rakið, stórum auðveldara, ef líklegur væri umtalsverður hagvöxtur á næsta ári. Því miður er því ekki spáð. Vöxtur þjóðarframleiðslunnar er aðeins tal- inn verða um 2 af hundraði. Það er langtum minna en var eftir fyrri sam- dráttarskeið. Þessu veldur fyrst og fremst að fiskstofnarnir eru taldir of veikir til þess að auka megi aflann umtalsvert. Staðreyndin er hins veg- ar sú, að þessi litli hagvöxtur veitir afar lítið svigrúm til þess bæði að við- halda kaupmætti, draga úr erlendum skuldum og bæta stöðu atvinnuveg- að gæta þurfi þess að fara ekki of geyst. Allt bendir t.d. til þess, að fiskeldi gcti á fáum árum oröið ein megin máttarstoð hins íslenska efna- hagslífs. Slys mega ekki hindra, að svo verði. Með því sem er að gerast, með nýjum atvinnugreinuni og nýrri tækni, fullyrði ég aðgrundvöllurhef- ur veriö lagður að nýju framfara- skeiði, þrátt fyrir þrönga stöðu. Þannig mun okkur takast að greiða hinar erlendu skuldir og ná á ný eigi lakari lífskjörum en þær þjóðir njóta, sem lengst eru komnar, og það sem mikilvægast er, að draga úr hinum örlagaríku sveiflum í íslensk- um þjóðarbúskap. Allt byggist þetta þó á því, að jafnvægi náist í efna- hagsmálum með stöðugu gengi og án verðbólgu. Það verður því að takast - til mikils er að vinna. Ekki verður ofsögum af því sagt, að við lifum á miklum umbrotatím- um. Þjóðin er ekki aðeins að brjótast úr viðjum verðbólgu og erlendra skulda og byggja þess í stað á inn- lendum sparnaði og ráðdeild og að hasla sér völl í nýjum atvinnugrein- um,.heldur hefur mannlíf allt gjör- breyst á undanförnum árum með breyttum heimi. Með gífurlegum framförum á sviði samgangna og fjarskipta crum við orðin, og verðum í vaxandi mæli, óaðskiljanlegur hluti af þessum heimi, hvort sem okkur líkar betur eða ver. Ég skil það reyndar vel, að mörgum líki ver hinir breyttu tímar. Sjálfur sakna ég margs, sem horfið er. Slík hugsun er þó til lítils. í ár ferðaðist yfir þriðjungur ís- lendinga til útlanda. Þegar ég var í menntaskóla, voru þeir unglingar fáir, sem höfðu komið til annarra landa. Nú munu flestir á þeim aldri hafa kynnst öðrunr þjóðum. Eftir fáein ár munu flest heimili geta séð fjölmargar, erlendar sjónvarps- stöðvar. Þannig aukast samskiptin stöðugt. Að sjálfsögðu hefur þetta haft mikil áhrif, bæði góð og ill. Ég efast þó mjög um, að íslensk æska standi að baki æsku fyrri ára. Almenn menntun er t.d. meiri en áður var og unga fólkið víðsýnna. Því verður þó ekki neitað, að reykingar og vaxandi notkun áfengis mcðal unglinga er áhyggjuefni, og sérstaklega notkun fíkniefna. Sjálfsagt er að taka þá föstum tökum, sem gera sér slíkt að féþúfu, og stórauka löggæslu, sektir og hegningar. Líklegustu leiðina til árangurs tel ég þó vera fræðslu og að veita unglingum góða aðstöðu til starfa og heilbrigðra athafna og útrás fyrir rnikla lífsorku, t.d. í íþróttum og útivist. Sem betur fer eru þeir til- tölulcga fáir, sem fallið hafa fyrir freistingunum. Hinir eru langtum fleiri, sem eru heilbrigðir á sál oglík- ama. Það leyndi sér t.d. ekki hjá þcim hópi unglinga, sem ég fékk tækifæri til að ræða viö í sjónvarpssal nýlega. Ég óttast ekki um framtíð þessarar þjóðar í slíkum liöndum. Nú tíðkast að tileinka árogjafnvel áratugi ákveðnum þjóðfélagshóp- um. Það er gert til þess að bcina at- hygli manna og viðleitni sérstaklega að velferð slíkra aðila. Það ár, sem er að líða, er ár æsk- unnar. Það vcrkefni að búa vel að æsku landsins, andlega og líkam- lega, er ef til vill það mikilvægasta, sem sérhver kynslóð gerir. í því felst framtíðin. Konum var tileinkaður heill ára- tugur, sem nú er lokið. Víða um heim eru konur einskonar undirok- uð stétt. Svo er sem betur fer ekki hér á landi. Ég þckki engan Islend- ing, sem ekki telur sjálfsagt, að kon- ur búi við sömu kjör og karlmenn. Á þetta mun þó nokkuð skorta enn. Það ersannfæring mín, að á næstu árum hverfi allur slíkur munur. Stöðugt fleiri konur afla sér menntunar,'sem mun gera þær full- komlega jafn færar til að gegna flest- um þeim störfum, sem karlmenn fyrst og fremst sinna nú, og sumum jafnvel betur. Frá konum verður þó aldrei tekið móður-og húsmóður- hlutverkið, sem er að niínu mati það mikilvægasta, sem mönnum er falið. Engin gjöf var mér betri gefin en að eiga góða móður. Að því býr maður- inn alla ævi. Það sama munu flestir íslendingar, sem betur fer, geta sagt. Ekkert verður æsku þessa lands betra gcfið en gott hcimili, góð fjöl- skylda. Með hinum miklu þjóðfélags- breytingum eykst hraðinn og spcnn- an mcð hverju ári. Hér á landi cr þó, sem betur fer, víða unnt aö leita kyrrðar og friðar langt frá anistri og önn dagsins, jafnvel í næsta nágrenni byggðar. Síöastliðið sumar gekk ég á Hornbjarg. Veður var dásamlegt, sólskin, hlýtt og kyrrt.. Því ævintýri, sem fyriraugu bar, verðurekki lýst. ( bjarginu söng kór milljón bjarg- fugla. Þrátt fyrir það ríkti friður og kyrrð. Þannig hefur það verið um aldir, nema byggðin er horfin. Fyrir fáum árum gekk ég í sex tíma um hlíðar Botnssúlna í nágrenni Reykjavíkur í fallegu veðri. Það ríkti ómælanleg kyrrð og fegurð. Einnig þarna, svo nálægt fjölmenn- inu, var allt óbreytt, þrátt fyrir gjör- breyttan heim. íslendingar, Heimurinn mun breytast og mannlífið með. Að sjálfsögðu er okkur skylt að gera það sem við get- um til að stýra breytingunum þannig, að mannlífið verði sem best, en að koma í veg fyrir þær getum við aldrei né viljum. Landið mun þó breytast seint. Stórir hlutar þess munu lengi standast tímans tönn og varðveita sínar dásemdir. Það skulum við eiga fyrir okkur sjálf. Þangað má lengi leita friðar. Ég þakka íslendingum ölluni liðið ár. Megi nýtt ár færa þjóðinni frið og farsæld.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.