Tíminn - 03.01.1986, Page 20
Mismiklir möguleikar
■ Möguleikar þeirra landsliða sem lenda í
þriðja sæti í sínum riðlum að kornast í 16 liða
úrslit heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu
eru mismiklir að því er breska blaðið Sunday
Times skýrir nýlega frá.
Pau lið sem lenda í fyrsta og öðru sæti í
undanriðlunum sex í keppninni, sem fram fer í
Mexíkó næsta sumar, fara öll sjálfkrafa í 16
liða úrslitin. Þá eru fjögur liðeftir og koma þau
úr hópi þeirra sex liða scm verma þriðja sætið í
undanriðlunum.
Sjá nánar á íþróttasíðuni í dag, bls. 10 og 11.
Tímimi
300% hækkun flugvallaskatts:
DREGUR ÚR
FERÐALÖGUM
TIL ÍSLANDS
■ Ferðamálaráð kallaði
saman skyndifund stjórnar
sinnar í gær vegna 300%
hækkunar flugvallaskattsins
svokallaða. Mun brottfarar-
skattur flugfarþega til og frá
íslandi hækka úr 250 kr. í 750
kr. frá 1. mars. í ályktun
stjórnarinnar er fjármála-
ráðhcrra beðinn um að
endurskoða þessa margföld-
un flugvallaskattsins, jafn-
franrt því að vinnu-
brögðunum er harðlega
mótmælt.
Kjartan Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Fcrðaskrif-
stofu ríkisins, sagöi við Tím-
ann í gær að svona stökk-
breyting upp á 300% ætti eft-
ir að skaða feröamannaiön-
aðinn vcrulega og myndi
hafa veruleg áhrif á álit
þeirra aðila sem skipta við ís-
lendinga um ferðamanna-
iþjónustu.
Ferðaskrifstofur hér á
landi hafa sent verðupplýs-
ingar til viðskiptaaðila er-
lendis og standast þær upp-
lýsingar ekki lengur. Sagði
Kjartan að svona flugvalla-
skattur þekktist hvergi á
Vesturlöndum, heldur væri
hann mun lægri þar sem
hann er. í Bandaríkjunum cr
skatturinn um 150 kr.
í fréttatilkynningu frá
Ferðamálaráði segir, að
þetta muni draga verulega úr
heimsóknum erlendra ferð-
amanna til landsins og einnig
úr ferðum íslendinga til ann-
arra landa.
Þá er bent á að með sam-
þykki lánsfjárlaga hafi lög-
bundnar tekjur Ferðamála-
ráðs verið skertar um 30
milljónir. Þetta er gert á
sama tíma og ferðaþjónusta
er sú atvinnugrein sem er í
hvað mestum vexti á land-
inu.
Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, taldi mjög ólíklegt
að orðiö yrði við þeirri ósk
Ferðamálaráðs, að endur-
skoða þessa skattheimtu.
Sagði hann að allur kostnað-
ur af flugþjónustu væri bor-
inn uppi af almannafé og ætti
þessi skattheimta að standa
undir þeim kostnaði. Sagði
hann að þetta gjald hefði
verið óbreytt í mörg ár og
skipti varla sköpum um
hvort fólk ferðaðist hingað
eða héðan.
Ástæðan fyrir því að erfitt
er að endurskoða þetta, er
að í fjárlögum er gert ráð fyr-
ir 100 milljón króna tekjum
af flugvallaskattinum.
Vörugjald á sætabrauö:
Bakarar baka
vandræði
■ Bakararætlaséraðgrípa
til aðgerða og baka stjórn-
völdum vandræði, vegna
þeirrar ákvörðunar
fjármálaráðherra, að leggja
24% vörugjald á sætabrauð
og kökur.
Landssamband bakara-
meistara hélt félagsfund í
gær og verður með annan
fund í dag og verður þá tekin
ákvörðun um til hvaða að-
gerða verður gripið. Jóhann-
es Björnsson, formaður
Landssambandsins, sagði
við Tímann í gær, að þessi
vörugjaldsálagning hefði
komið þeim mjög á óvart,
einkum þar sem fjármála-
ráðherra hafði gefið bökur-
um þær upplýsingar fyrir
mánuði, að ekkert yrði úr
þessari álagningu. Sfðan
barst bökurum bréf í gær,
þar sem tilkynnt var um
þessa álagningu frá og með
nýársdegi, eða degi eftir að
álagningin átti að koma til
framkvæmda. Sagði Jóhann-
es þetta forkastanleg vinnu-
brögð, en eðlilegra hefði ver-
ið að ræða þetta við bakara
áður en af þessu yrði.
Bjóst Jóhannes við því að
innflutningur á kökum
myndi aukjist mjög í kjölfar
þessa og yrði þetta til þess að
samdráttur yrði í kökufram-
leiðslu á landinu og starfs-
fólki í bökunariðninni fækk-
aði, en nú vinna um 700
manns við bakstur.
Áætlað er að fjármálaráð-
herra nái inn um 100 milljón-
um með þessu vörugjaldi.
Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, sagði við Tímann,
að heimild fyrir þetta vöru-
gjald væri búin að vera í lög-
um í tíu ár, og væri því hér
bara um framkvæmd á gild-
andi lögum.
Vörugjald þetta mun hafa
einhver áhrif á vísitölu fram-
færslukostnaðar, en Hösk-
uldur gat ekki sagt hversu
mikil. Sagði hann að sæt-
abrauðið hefði mun minna
vægi en annað brauð í vísi-
tölunni. Höskuldur var
spurður að því hvort þetta
væri ekki sérkennileg tíma-
setning með það í huga að
samningar eru lausir og þetta
yrði varla til að liðka fyrir
þeim.
Svaraði hann því til að hér
væri um stjórnmálalegt mat
að ræða og því annarra að
svara því.
Tíma-mynd: Róbert.
■ Alls voru brotnar 28 rúður í Höllinni og nágrenni. Mesta mildi þykir að enginn skyldi slasast alvarlega.
Eins og myndin ber með sér standa oddhvöss glerbrot út í allar áttir.
Tugþúsunda tjón á áramótadansleik í Laugardalshöll:
„Þetta ball hefði
ekki átt að leyfa“
■ Tuttugu og átta rúður
voru brotnar í Laugardals-
höll og nágrenni, eftir ball
sem Stuðmenn héldu í Höll-
inni. 2500unglingar, margir
hverjir undir áhrifum
áfengis voru gæslulausir
inni í Höllinni og lögreglu-
lið það sem gæta átti mann-
fjöldans fyrir utan réði ekki
við neitt. Tólf manna lög-
reglulið átti að sj á um að allt
færi fram með ró og spekt.
Hluti liðsins varð þegar
óvirkur við eftirlit, þar sem
flytja þurfti fjölda unglinga
á slysadeild, í fangageymsl-
ur og til síns heima.
Gísli Þorsteinsson aðal-
varðstjóri var á staðnum. í
samtali við Tímann sagði
hann að þetta ball hefði
ekki átt að leyfa. Þá sagði
hann að gæsía innandyra
hefði ekki verið eins og lof-
að var í fyrstu.
„Við hefðum þurft að
vera 30-40 til þess að ráða
vel við þennan fjölda,“
sagði Gísli.
Fyrir utan öll rúðubrotin
var mikið um önnur
skemmdarverk. 40-50 stól-
ar úr stúkunni voru eyði-
lagðir. Stóllinn er metinn á
860 krónur. Salernin fóru
ekki varhluta af gleðskapn-
úm. Tvö salerni voru brotin
og allir ljósakúplar voru
brotnir þar.
Stuðmenn héldu ballið og
bera því mestan skaða af
skemmdunum. Þeir
tryggðu Höllina hjá Sjóvá,
fyrir upphæðina húndrað
þúsund krónur. Sigurður
Pétursson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá Sjóvá
sagði í samtali við Tímann
að þar væri einungis um að
ræða glertryggingu.
Alls voru seldir 2108 mið-
ar á ballið, og áætlar lög-
reglan að alls hafi verið um
2500 manns, flestir ungling-
ar, í Höllinni og fyrir utan.
Mikil ölvun var og talsvert
um meiðsli.
Fjórir unglingar voru
handteknir.
Steindórsmálið í borgarstjórn:
Afgreitt á einni mínútu
■ Tugir leigubifreiðastjóra
voru viðstaddir fund borgar-
stjórnar Reykjavíkur síð-
degis í gær. Það tók borgar-
fulltrúa einungis þrjár og
hálfa mínútu að afgreiða þau
þrjú mál sem voru á dagskrá
þ.á.m. fundargerð borgar-
ráðs frá 27. desember um
rekstur hinnar svokölluðu
Steindórsstöðvar.
Það er fyrirtækið Sendibíl-
ar sf. sem sótti um það til
borgaryfirvalda að fá fram-
lengingu á rekstrarleyfi fyrir
um 50 litlar sendibifreiðar á
Steindórsplaninu við Hafn-
arstræti 2. í fyrstu hafnaði
borgarráð umsókninni en
samþykkti síðar að veita
leyfið. Þetta gerðist 27. des-
ember sl. Þessi framlenging
til eins árs kom svo á dagskrá
borgarstjórnar í gær og var
samþykkt samhljóða.
Mikillar reiði gætti meðal
þeirra leigubifreiðastjóra
sem voru viðstaddir fundinn.
í máli nokkurra þeirra kom
fram að enn einu sinni væru
yfirvöld að hafa að engu dóm
í undirrétti og hæstarétti þess
efnis að Sendibílum sf. væri
óheimilt að annast fólks-
flutninga, því það væri al-
mannavitneskja að aðstaðan
í Hafnarstræti væri til þess
notuð. Þá heyrðust spádóm-
ar á þá leið að harka kynni að
hlaupa í deilu leigubifreiða-
stjóra við starfsmenn Sendi-
bíla sf. þegar liði að vori og
minni verkefni yrðu til skipt-
anna.