Tíminn - 16.02.1986, Side 13
Sunnudagur 16. febrúar 1986
Tíminn 13
HEFDBUNMN
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÖÐS
BJÓÐAST NÚ
MEÐ AJU AD
9% ÁRSVÖXTUM,
FULLRI
VERDTRYGGINGU,
MISLÖNGUM
BINDfTÍMA OG
ÖRYGGI SEM
ENGINN ANNAR
GETUR STÁTAÐ AF
Yaxtahækkun.
Vextir af verðtryggðum spariskírteinum ríkis-
sjóðs hafa nú verið hækkaðir verulega. Skír-
teinin eru því áfram einhver arðbærasta sparn-
aðarleið og öruggasta fjárfesting sem völ er á.
Hefðbundin spariskírteini.
Hefðbundin spariskírteini ríkissjóðs hafa notið
mikilla vinsælda á liðnum árum, og nú hafa
skilmálai þeirra og kjör enn verið bætt til
muna.
Lánstíminn er lengst 14 ár, en þú getur valið
milli þriggja, fjögurra eða sex ára binditíma,
og hækka vextirnir eftir því sem binditíminn
er lengri. Veljir þú þriggja ára binditíma eru
ársvextir 7,0%, fjögurra ára bréf bera 8,5%
vexti og sex ára bréf 9,0% vexti.
Að binditíma liðnum er þér heimilt að
innleysa skírteinin og þá getur ríkissjóður
einnig sagt þeim upp. Segi hvorugur aðilinn
skírteinunum upp, bera þau áfram ofangreinda
vexti til loka lánstímans.
Verðbætur, vexti og vaxtavexti færðu
greidda í einu lagi við innlausn.
Vaxtahækkunin kemur bæði þér og
ríkissjóði til góða.
Það er ótvíræður hagur allra landsmanna að
sameiginlegt framkvæmdafé okkar íslendinga
komi frá okkur sjálfum fremur en erlendum
lánardrottnum - jafnvel þótt vextir á þessum
lánum okkar á milli séu háir. Þess vegna getur
ríkissjóður boðið landsmönnum ofangreind
úrvalskjör á spariskírteinum sínum.
Með kaupum á spariskírteinum ríkissjóðs
færðu því í senn mjög góða ávöxtun á fé þitt
- án allrar áhættu, og um leið kemur sparnaður
þinn þjóðarbúinu öllu til góða.
Sölustaðir spariskírteina ríkissjóðs eru:
Seðlabanki Islands, viðskiptabankarnir, spari-
sjóðir, nokkrir verðbréfasalar og pósthús um
land allt.
RIKISSJOÐUR ISLANDS
Þegar þú velur sparifé
þínu sparnaðarleið er
fleira sem skiptir máli en
háir vextir.