Tíminn - 02.03.1986, Page 4
Hér er Haukur kominn þar sem hann viil helst vera; innan um krakkana frjálslegu.
Sunnudagur2. mars 1986
4 Tíminn
Póstverslunin Pan gerir
INNRASA SKEMMTISTADIN A
Fólk klætt í örsmáar leðurtutlur skemmtir áhorfendum með dansi, svipuhöggum og
handjárnum.
„Hjálpartæki kynlífsins“ renna út eins og heitar lummur að sögn innflytjenda.
250 manns tilbúnir að taka þátt í sýningunni fyrir 3000 kr. á kvöldi.
„Þetta er markaður sem hefur verið í svelti frá landnámi," sagði
Sæmundur Haukur Haraldsson, sem sumir eru farnir að kalla sex-kóng
íslands, þegar hann útskýrði velgengni fyrirtækis síns.
Haukur stofnaði ásamt Guðmundi Ásmundssyni póstverslunina Pan
fyrir nokkrum mánuðum. Það fyrirtæki sérhæfir sig í innflutningi og sölu
á því sem þeir kalla hjálpartæki kynlífsins, en það eru þær vörur sem
flestir hafa séð erlendis í svokölluðum Sex Shops. Þrátt fyrir að stutt sé
síðan þeir auglýstu vörur sínar segir Haukur að móttökurnar hafi verið
glimrandi og þeir hafi vart undan eftirspurn.
Eftir þessar undirtektir hafa þeir félagar ákveðið að færa sig uppá
skaftið og hyggja nú á innrás á skemmtanalíf höfuðborgarinnar. Hún
hófst um síðustu helgi í Sigtúni, sem frægt er orðið og heldur áfram um
þess á Upp og Niður.
„Ég var að pæla í að fara út í þetta fyrir fimm árum, en þá bannaði konan
mín mér það,“ sagði Sæmundur Haukur Haraldsson sem hefur nú látið
drauminn rætast, enda skilinn við konuna.
Þegar blaðamaður hitti Hauk að
máli á síðarnefnda staðnum stóð þar
yfir æfing hjá sýningarflokki fyrir-
tækisins. Haukur stóð út á miðju
dansgólfi og leiðbeindi fimm ung-
mennum íklæddum örsmáum leður-
tutlum skreyttum krómgöddum.
Atriðið var ekki enn fullmótað og
rætt var um hvenær hver ætti að
dansa þvert yfir gólfið og hver ætti að
nota svipu og hver handjárn.
•Ekkert af þeim hafði áður skipu-
lagt slíka sýningu en þau virtust hafa
bæði vilja og trú til að treysta sér til
þess. Haukur virtist njóta sín vel og
geislaði af gleði, eini fullklæddi mað-
urinn á gólfinu.
„Úúúhh, I love you, úúúhh I love
you, baby“ ómaði úr hátölurunum.
Nú var komið að því að skipta um
búninga fyrir æfingu á næsta atriði og
Haukur klappaði stelpunum á
rassinn, fékk sér vatnsglas á barnum
og labbaði yfir í básinn til blaða-
manns.
„Þetta á eftir að slá í gegn,“ sagði
hann og var auðsjáanlega ánægður
með krakkana. „Það er búið að festa
okkur hér fjögur kvöld í viku næst
þrjá mánuði og síðan verður við líka
í einkasamkvæmum. Þrátt fyrir að
við höfum ekkert auglýst þá hefur
þetta spurst út og síminn hefur verið
rauðglóandi."
Þar sem blaðamanni hefur frá
barnæsku verið innrætt lutherskt-
siðgæði spurði hann Hauk hvort ekki
hafi gcngið illa að fá fólk til að koma
fram í þessari múnderingu.
„Við settum eina auglýsingu í
Dagblaðið og það sóttu 192 stelpur
um og 54 strákar. Þetta var fólk á öll-
um aldri, til dáimis var eins 48 ára
gömul kona sem sendi inn unisókn
og ég á eftir að nota hana seinna í
vetur. Það er enginn hörgull á fólki
sem er nógu frjálslegt og hresst til að
taka þátt í svona löguðu.
Við munum nota mikið af þessu
fólki og getum verið með margar
sýningar samtímis út um allan bæ.
Þetta er bara rétt byrjunin. Hérna
verðum við með fjögur módel á
fimmtudögum, sex á föstudögum,
átta á laugardögum og fjögur á
sunnudögum og kannski alltaf ný
módel í hvert skipti. “
Nú komu krakkarnir út úr bún-
ingsherberginu í nýjum fatnaði;
strákarnir f einhverskonar pung-
sokkum einum fata og stelpurnar
gegnsæjunt nærum og örlitlu blúnder-
íi að ofan. Haukur stökk á fætur,
náði sér í annað vatnsglas og var rok-
inn út á gólfið.
Vilhjálmur Svan annar eigandi
Upp og Niður var kominn til að fylgj-
ast með æfingunni. Hann var spurð-
ur að því hvort hann hefði trú á því
að þessi sýning ætti eftir að verða
vinsæl.
„Já, ég er viss um það,“ sagði
hann. „svo framarlega að þetta verði
ekki drepið niður. Það er svo mikið
til af kellingum á íslandi og það er
ótrúlegt hvað þær geta haft mikil
áhrif. Pakistanska söngkonan var til-
dæmis kæfð bara af því hún var öðru-
vísi.
En það er komin mikil þreyta í
skemmtanabransann og við erum til
dæmis eina diskótekið sem er opið í
miðri viku. Veitingamenn verða að
fara að taka höndum saman og
brydda upp á nýjungum. Það er orð-
ið dálítið einkennilegt ástand þegar
fólk er farið að nota sjónvarp sem
skemmtun."
Haukur lét nú krakkana um út-
færsluna á atriðinu og kom með
nýtt vatnsglas í básinn.
„Við verðum líka með sérstök
„ladies-night", sagði hann og hreifst
af hugmyndinni. „Þá verður bara
kvenfólki hleypt inn og einungis
strákar sem sýna. Þá held ég að verði
nú fjör."
Og verður leyfilegt að tippsa,
spurði blaðamaður mynnugur atriða
úr kvikmyndum þar sem karlar döns-
uðu innan um heilu og hálfu sauma-
klúbbana og konurnar kepptust við
að stinga dollaraseðlum ofaní mittis-
skýlurnar.