Tíminn - 02.03.1986, Side 12
Sunnudagur2. mars 1986
12 Tíminn
Ásta r póstst i m p i 11
Það var mikið að gera í enska smá-
þorpinu Lover þann 14. febrúar sl.
en þá cr Sánkti Valentínusardagur
hátíðlegur haldinn með Bretum. Er
þá til siðs að menn og konur sendi
elskhugum og ástmeyjum nafnlausa
kveðju á korti. Vegna nafnsþorpsins
Lover rigndi ókjörum af kortum inn
á póststofuna þar og póstmeistarinn,
Lucy Southorn þurfti að stimpla á
1300 kort þennan eina dag, - en um
80 kort hafa verið send frá litla þorp-
inu á ári til þessa. Hún sagði að kort-
in hefðu farið til staða eins og Banda-
ríkjanna, Kanada, Marokkó og S-
Afríku.
Þessi siöur, að senda kveðjur á
Sánkti Valentínusardaginn hefur
eflst síðari árin. Þannig munu kort
hafa selst með afbrigðum vel á ár og
haldið að Bretar hafi eytt til þess
arna 4.7 milljónum punda.
HÚSGÖGN OG
INNRÉTTINGAR co cn
SUÐURLANDSBRAUT 18 OO OíJ
„CABÍNA“ rúmsamstæður
Dýnustærð: Teak 90x200 cm. Beyki 92x191 cm.
Verð með dýnu kr. 19.500.-
SKRIFBORÐ Verð frá kr. 3.600.-
SKRIFBORÐSSTÓLAR Verð kr. 1.980.-
VÍDEOBEKKIR O.FL. O.FL.
TIL FERMINGARGJAFA
Sá gamli
maðurinn
Maríu mey?
Pólska lögreglan sundraði um dag-
inn stórum hóp gamalmenna og
sjúkra sem hafði safnast saman í
garði í smáþorpinu Olawa í suðvest-
urhluta landsins, þar sem maður
n.Qkkur hafði sagt Maríu mey hafa
birst sér þar fyrir nokkrum árum og
sagt sjúka eiga að sækja til staðarins í
lækningaskyni.
Pað var maður á eftirlaunaaldri,
Kazimiers Domanski, sem kvaðst
hafa fengið þessa vitrun og eftir það
hafa heilir skarar lagt leið sína til Ol-
awa. Lögreglan segir nú að íbúar
þorpsins hafi verið farnir að kvarta
undan ágangi gestanna.
Kaþólska kirkjan hcfur rannsakað
málið og segir forsendur hæpnar fyr-
ir því að Domanski hafi séð liina
heilögu mey. Skorar kirkjan á fólk
að láta af átrúnaði ágarðinn í Olawa.
ítölsk sófasett
Fjölbreytt og
falleg áklœði
í ýmsum litum
Verð
59.400. -
HUSGÖGN OG *
INMRÉTTINGAR co cq
SUDURL ANDSBR AUT 18 OO \J%J