Tíminn - 02.03.1986, Síða 22
22 Tíminn
Sunnudagur2. mars 1986
skemmta
og hvílíkt púl!
Bette Midler lét í sér heyra að fólk
hrökk upp. Hún talaði frjálslega
um konubrjóst, bæði sín eigin og
annarra, sagði klúra brandara og
söng sig upp í slíka viðkvæmni að
hún gekk af sviðinu hágrátandi.
Já, það er erfitt verk „að
skemmta sér“!
Madonna að taka a moti gesum i
tilefni frumsýningar á sjónvarps-
þætti. Það skiptir ekki máli þó að
hún láti ckki sjá sig, eftirvæntingin
hefur bætt þann missi upp!
Ætli fólk hins vegar að leita uppi
Playboy Club, er hætt við að það
fari fýluferð. Klúbburinn hefur
nefnilega bæði skipt um stað og
nafn. Nú heitir hann Empire Club,
en þar ráða enn ríkjum Hugh og
Christie Hefner og fáklæddar kan-
ínur þjóna viðskiptavinum eins og
áður.
Og þegar sérstaklega mikið
stendur til má taka á leigu sjálfa
Metrópólitanóperuna. Það vargert
fyrir skemmstu þegar haldin var
stórsamkoma til styrktar AIDS
rannsóknum og umönnun sjúkl-
inga sem hafa tekið þennan hræði-
lega sjúkdóm. Skemmtikraftarnir,
allir frægir og ómótstæðilegir, gáfu
vinnu sína og gestum gafst kostur á
áð sitja í 4!á tíma og njóta þess að
sýna sig og sjá aðra fyrir litlar 250
dollara. Allt fór ósköp þægilega og
eðlilega fram. Það var ekki fyrr en
í furðuhattapartíinu nutu allirsín,
en samkeppnin um hver bæri
skrítnasta höfuðfatið var geysi-
lega hörð.
Enn þekkjast partí þar
sem viðeigandi þykir að
mæta í betri fötunum. í
fagnaði sem haldinn var
til heiðurs Sidney Lumet,
þótti Paul Newman og Al
Pacino sjálfsagt að bera
þverslaufur við smóking-
ana sína.
Feðginin Hugh og Christ-
ie Hefner eru búin að fá
nóg af að reka Playboy
klubba. Þau hafa skipt um
nafn á klúbbnum sínum í
New York, en kanínuhug-
myndin er svo góð að þau
halda henni. Nú eru það
bæði karl- og kvenkanín-
ur sem ganga þar um
beina.
Boy George og Marilyn
Drengurinn George þekktist
varla, hafði lést einhver ósköp, en
Ceciliu Peck leist mjög vel á hann
í þessu nýja gervi. Marilyn ætlaði
að kynna nýja plötu, sem Boy Ge-
orge pródúseraði fyrir hann. Þeg-
ar til kom söng hann aðeins eitt
lag og flæktist svo í míkrófón-
snúrunni, á leiðinni út.
Whoopi Goldberg hefur skotið
upp á stjörnuhimininn með
geysilegum hraða eftir að hún
lék í nýjustu mynd Steven Spiel-
bergs The Color Purple. Hún er
ein þeirra sem verður að láta sig
hafa það að vera alls staðar með
í öllu.
New York búar kunna vel að meta
gott og gamalt evrópskt blátt blóð
og rjúka upp til handa og fóta ef
slíkt rekur á fjörur þeirra. Hér bar
vel í veiði, einn ríkasti aðalsmað-
ur Þýskalands, Johannes prins af
Thurn og Taxis og kona hans
Gloria þáðu matarboð og
skemmtu sér vel, eins og sjá má.
„Prinsessan minnir mig mest á
Ninu Hagen," varð einum gest-
anna að orði.