Tíminn - 05.03.1986, Blaðsíða 1
f H _ STOFNAÐUR1917
I í11111111
RAUSTIR
MENN
25050
SCnDIBiUISTÖDin
SAKADÓMUR Reykjavíkur kvaö
upp dóm í svoköiluðu Fréttaútvarpsmáli, í
gær. Ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson
og Ellert B. Schram, ásamt framkvæmda-
stjórum DV þeim Sveini R. Eyjólfssyni og
Heröi Einarssyni voru dæmdir í sekt og varö-
hald til vara. Sektin hljóðar upp á 25 þúsund
krónur á mann, ella sæti þeir 20 daga varö-
haldi. Þá var tækjakostur útvarpsins geröur
upptækur. Þeir félagar ráku útvarpsstööina
ásamt fleiri DV-mönnum í BSRB verkfallinu
haustiö 1984.
Verjandi fjórmenninganna mætti í Saka-
dóm Reykjavíkur í gærdag, þegar klukkuna
vantaði fimmtán mínútur í tólf, og hlustaði á
dóminn. Þaö var Jón Abraham Ólafsson
sakadómari sem kvaö upp dóminn. Verjandi
í málinu var Þóröur S. Gunnarsson. Hinir
dæmdu veröa aö greiða málskostnað, 60
þúsund krónur.
Ekki hefur veriö tekin ákvörðun um áfrýjun
í málinu.
NAFN MANNSINS sem saknaö er
af Ás RE 112 er Skúli Kristjánsson. Hann er
eigandi bátsins og smíðaði hann sjálfur.
Varðskipið Óöinn var á slysstaðnum í gær,
en ekki var hægt aö koma viö þyrlu gæslunn-
ar sökum veðurs. Nokkrir loönubátar leituöu á
svæðinu í gær. Þávoru gengnarfjörurog sáu
björgunarsveitarmenn úr Grundarfirði ásamt
fleirum um þá leit.
MENNTSKÆLINGAR í Mennta-
skólanum við.Sund vinna að mestum hluta
meö náminu. í könnun á vinnu nemenda sem
gerö var í haust kom fram aö 38% nemenda
í 1. bekk stunduðu launavinnu, 55% nem-
enda í 2. bekk, 66% nemenda í 3. bekk og
70% nemenda í 4. bekk. Þar af unnu 11 %
21-40 stundir á viku. Einnig kom fram í
könnuninni aö meirihluti nemenda kýs frekar
að læra heima en nota skólann til vinnu utan
kennslustunda.
RÍKISSAKSÓKNARI hefur sent
beiðni til rannsóknarlögreglunnar á Akureyri,
um að frekari rannsókn á máiefnum Sjallans
fari fram. Rannsóknarlögregla á Akureyri
verst frétta af málinu en segir umfjöllun fjöl-
miðla hafa gefiö óráunhæfa mynd af umfangi
málsins.
BRESK HJÓN á áttræðisaldri flúöu
nýlega til Frakklands til aö bjarga tveim hund-
um sínum frá breskum yfirvöldum.
Hjónin, sem heita Edmond og Sheila
Chapman, segja ofsóknir yfirvalda gegn
hundunum hafa byrjað í janúar í fyrra eftir aö
dómstóll í heimabæ þeirra í Cornwall skipaöi
þeim aö Ióga Jake og Elsu sem ásökuö voru
um aö glefsa í vegfarendur.
Þegar þau neituöu aö hlýöa þessu var
þeim skipað aö greiöa daglega tvö pund (120
kr.) í sektirþartilhundarnirhyrfu. Þau ákváöu
þá að flýja Bretland frekar en að segja skilið
viö hundana og eftir aö hafa kannao íbúöa-
verö í S-Afríku og Portúgal fluttu þau til
franska smáþorpsins Dordogne.
Hegðun hundanna eftir flutninginn er sögð
til fyrirmyndar en þorpspósturinn kveöst samt
gæta fyllstu varúðar gagnvart þeim.
HINN 24. FEBRÚAR síðastliðinn
var haldinn aöalfundur Félags íslenskra
leikara í leikhúskjallaranum.
Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem
mótmælt er samningamálum ASÍ, VSÍ og
VMSS þar sem farið er þess á leit við ríkis-
valdiö aö niðurskurðurfari fram í ríkisgeiran-
um.
Aö fenginni reynslu vita leikarar aö slíkur
niðurskuröur bitnar fyrst og fremst á
menningar,- mennta- og heilbrigðismálum.
Telja þeir aö af slíku sé nóa komið.
Vilja þeir að peningar veröi frekar notaðir til
menningarmála en feröalaga_ ráö-
herra. Einnig var kosin ný stjórn á fundinum
og skipa hana nú eftirtaldir: Arnór Benónýs-
son formaður, Sigríöur Þorvaldsdóttir vara-
formaöur, Kristbjörg Kjeld gjaldkerfi, Sigurð-
ur Karlsson ritari og Viðar Eggertsson með-
stjórnandi.
KRUMMI
.. .þeir segja að Danir séu
hættir við að láta handrit-
in af hendi.
Iceland Seafood Co.
MIKIL S0LUAUKNING
f BANDARÍKJUNUM
„Við hefðum getað selt veru-
lega miklu meira magn ef ekki
hefði verið vegna vöruskorts,"
sagði Guðjón B. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Co. dótturfyrirtækis Sambands-
ins í Bandaríkjunum í sanitali
við Tímann í gær. „Það er skort-
ur á mikilvægum tegundum, s.s.
ýsu, og við höfum orðið af veru-
legri sölu þar, það er alger skort-
ur á karfa, það er skortur á
ufsablokk, og það er skortur á
rækju, hörpudisk og grálúðu,"
s.agði Guðjón ennfremur.
Engu að síður varð umtals-
verð söluaukning hjá Iceland
Seafood í Bandaríkjunum í fe-
brúar en í þeim mánuði nam
heildarsalan 14,3 milljónum
dollara, sem er3 milljónum doll-
ara meira en í febrúar í fyrra.
Eins og komið hefur fram áður í
Tímanum, var sala í janúar sú
besta í sögu fyrirtækisins og
febrúarmánuður er annar besti
sölumánuður í sögu þess. Sam-
tals fyrir þessa tvo mánuði nam
heildarsöluaukningin frá því í
fyrra 8,8 milljón dollurum eða
360 milljónum króna eða
43,5%.
Sundurliðuð var salan þannig,
að í janúar og febrúar seldust
fiskréttir fyrir 15,7 milljón doll-
ara en það er verðmætaaukning
um 32% og magnaukning upp á
22%.
Af frystum l'lökum seldist
þessa tvo mánuði fyrir 10,1 mill-
jón dollara sem er 56% verð-
mætaaukning en magnaukning-
in var um 50%.
Af skelfiski seldist í janúar og
febrúar fyrir 2,8 milljön dollara
sem er u.þ.b. þreföldun að verð-
mæti en magnaukningin var
372%! Ástæðan fyrir því að
magnaukningin er meiri en verð-
mætaaukningin í skelfiski liggur
í breyttri samsetningu vörunnar,
í fyrra var meira af humri (verð-
mætari vara) en hin mikla sölu-
aukning var einkum í hörpudiski
og pillaðri rækju.
Guðjón B. Ólafsson sagði í
gær að skýringin á þessari sölu-
aukningu fælist í tvennu. Annars
vegar hefðu viðmiðunarmánuð-
irnir janúar og febrúar í fyrra
ckki veriö mjög góðir þó þeir
hafi ekki verið mjög slæmir
heldur. Hins vegar fælist skýring
í því að íslendingar væru að
auka markaðshlutdeild sína í
Bandaríkjunum.
„Það virðist ætla að haldast
áfram nokkuð sterk eftirspurn.
Hins vegar er ekki hægt að gera
ráð fyrir að yfir 40 prósenta sölu-
aukning haldi áfram mjög lengi
en það bendir allt til þess að þeg-
ar upp verður staðið verði sölu-
aukning á þessu ári miðað við
árið á undan,“ sagði Gujón að
lokum. -BG
Færri
þjónar
- ódýrara vín?
Sclja veitingamenn á íslandi
áfengi of dýrt? Víða hefur þróunin
orðið sú á veitingastöðum að fag-
lærðir þjónar heyra til fortíðinni og
ungar stúlkur í peningaþörf hafa
leyst þá af hólmi.
Ofan á hámarks álagningu á
áfengi er lagt þjónustugjald. Það
gjald cr samkvæmt kjarasamningi
framreiðslumanna og veitinga-
manna og ncmur fimmtán prósent-
um. Gjaldið er ætlað til þess að
greiða með laun faglærðra
framrciðslumanna.
Þar sem starfsstúlkur vinna í stað
þjóna rcnnur þjónustugjaldið
óskert í vasa veitingamanns. Þjón-
ar eru ekki hressir með þetta og
telja að sér vegið.
„Ég tel forsendur þjónustu-
gjaldsins brostnar þegar fram-
reiðslumenn eru ekki lengur á veit-
ingastöðunuin," sagði Óskar
Magnússon fyrrverandi formaður
þjónafélagsins í samtali við Tím-
ann í gær.
Ólafur Walter Stefánsson í
dómsmálaráðuneytinu sagði þetta
mál vera á milli þjóna og veit-
ingamanna, en benti jafnframt á að
gjaldið væri unifram hámarks-
álagningu á áfengi og væri ákvarð-
að samkvæmt sérstökum reglum.
Verði þjónustugjald fellt niður á
veitingastöðum, þar sem engir fag-
lærðir þjónar vinna, mun það þýða
um tíu prósenta lækkun til neyt-
enda.
„Ég tel eðlilegt að það sé verð-
mismunur á milli þeirra staða sem
bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu
og þeirra sem gera það ekki. Við
bjóðum uppá betri þjónustu, hvort
sem er á bar eða í sal. Allt er þetta
af sama meiði því ef við getum bor-
ið vínið sæmilega fram hljótum við
að geta skilað matnum af okkur
líka. Hvar sem er í heiminum
borga menn minna fyrir að setjast
inn á gangstéttarbar en á Savoy,“
sagði Vilhelm Wessmann veitinga-
maður á Hótel Sögu, sem hefur
fjöldann allan af faglærðum þjón-
um á sínum snærum. -ES