Tíminn - 05.03.1986, Qupperneq 3
Miðvikudagur 5. mars 1986
Tíminn 3
Refasæðingar - nýmæli í kynbótum hér á landi:
Sæði frá 3 högnastöðv
um sent um allt land
Frá fréttaritara Tímans í Skagafírði, Ö.Þ.:
Ellefu dýralæknar og frjótæknar
frá stærstu loðdýrafélögum landsins
hafa nýlokið þátttöku í námskeiði í
refasæðingum, sem Samband ísl.
loðdýraræktenda gekkst fyrir á Hól-
um í Hjaltadal. Þetta fólk mun nú á
tímabilinu 10. mars til 1. apríl hefja
refasæðingar í sínum heimahéruð-
um. Slíkt er nýmæli hér á landi og
mjög vandasamt verk.
Aðalleiðbeinandi á námskeiðinu
var Jan Fougner, dýralæknir norska
loðdýrasambandsins, sem verið hef-
ur einn aðal frumkvöðull að refa-
sæðingum í Noregi. Kennsla hans
var einkum fólgin í sæðingum, og
sæðistöku auk meðferðar á dýrunum
við sæðingar.
Undirbúning að námskeiðinu og
bóklega kennslu önnuðust dýra-
læknarnir Kjartan Hreinsson og
Eggert Gunnarsson. Að þeirra sögn
er nauðsynlegt að bændur notfæri sér
þá möguleika til kynbóta sent sæð-
ingar refa bjóða upp á, auk þess sem
aðkallandi sé að sæðingamenn fái
aukna þjálfun. beir Eggert og Kjart-
an luku miklu lofsorði á aðstöðu til
námskeiðahalds á Hólum - sögðu
hana munbetri en t.d. á santbærilegu
námskeiði st-n þeir sóttu í Noregi.
Þrjár högnastöðvar hafa nú verið
stofnaðar hér á landi: Að Þórustöð-
um í Ölfusi, Glæsibæ í Eyjafirði og á
Hólum í Hjaltadal, þar sem nám-
skeiðið fór m.a. frarn. Frá þessunt
stöðvum verður sæði sent til sæð-
ingamanna út um landið. Verða
bæði flytjendur og sæðingamenn að
hafa hröð handtök því líftími sæðis-
ins er að hámarki um 10 klukku-
stundir.
Um 40 högnar, bæði blá- og silfur-
refur. verða í vetur á högnastöðinni á
Hólum. Umsjónarmaður stöðvar-
innar er Álfheiður Marinósdóttir,
sem jafnframt er ráðunautur Skag-
firðinga og Húnvetninga í loðdýra-
rækt.
Líklega dáist hún Katrín Andrés-
dóttir dýralæknir að honum Trítli út
frá nokkuð öðrum forsendum en sú/
sá sem væntanlega á einhverntímann
eftir að vefja sig inn í feldinn af
honum. Katrín var eina konan sem
sótti sæðinganámskeiðið á Hólum.
Tímamynd: Örn I*.
ihtiíífi • «f!i
tí'* aÍt'IllShlfl
luitnsiipi
liiiilil!
EUÍiHl !««KB
Atvinnumálanefnd Laxárdalshrepps:
Þrjár kröfur vegna
fullvirðismarks
Atvinnumálanefnd Laxárdals-
hrepps samþykkti ályktun á fundi
sínum þann 26. febrúar s.l. þar sem
lýst er áhyggjum, vegna útfærslu á
stjórnun sem komið hefur verið á í
mjólkurframleiðslu og harmað
hversu seint á verðlagsárinu fullvirð-
ismark bænda var ákveðið. Bent er á
að stjórnvöld verði að axla hluta af
ábyrgðinni á því hvernig málum er
komið með því að milda áhrif regln-
anna. Atvinnumálanefndin setti í
því sambandi fram þrjár kröfur. í
fyrsta lagi að stjórnvöld kaupi um-
framframleiðslu fyrstu fimm mánuði
verðlagsársins, í öðru lagi að viðun-
andi fullvirðismark verði veitt þeim
sem hafa staðið í uppbyggingu til
mjólkurframleiðslu á allra síðustu
árum, og í þriðja lagi að þeint sem
ekki hafa áhuga eða getu til að rísa
undir kröfum unt nútímalega mjólk-
urframleiðslu verði gefinn kostur á
að hætta henni þannig að búmarkið
nýtist öðrum.
HARÐFENNIÁ
LAGHEIÐI
Á föstudaginn var hætt snjó-
mokstri á Lágheiði milli Fljóta og
Ólafsfjarðar en mokstur á hciðinni
hófst á fimmtudag. Þrír snjóblásar-
ar voru notaðir til verksins. Gekk
mjög hægt vegna þess hversu snjór-
inn var frosinn, en undanfarna vet-
ur hefur verið mjög mikið harð-
fenni hér nyrðra. Ljóst þótti að
mokstur tæki mun lengri tíma en
áætlað var í upphafi, auk þess sem
tæki vegagerðarinnar unnu ekki á
því svelli og þeim klaka sem nú er.
Óvíst er hvenær önnur tilraun
verður gerð til að opna heiðina.
Síðustu tvær vikur hefur talsvert
verið farið um Lágheiði á jeppunt
sem hafa getað þeyst yfir á hjarni
og er þá ekið talsvert frá núverandi
vegarstæði sem er algerlega ókeyr-
andi. Nú er þessi möguleiki á að
stytta vegalengdina milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar um 170 km
úr sögunni í bráðina vegna mikillar
hláku unt helgina, en hægviðri og
frost hafði haldist allan febrúar-
mánuð.
(Örn - Skagafirði)
Þingsályktunartillaga:
FRÍVERSLUN VID
BANDARÍKJAMENN
Gerð fríverslunarsamnings við
Bandaríkin er efni þingsályktunartil-
lögu sem Gunnar G. Schram hefur
lagt fram í sameinuðu Alþingi. Tillag-
an gerir ráð fyrir.að ríkisstjórnin láti
fara fram könnun á gerð fríverslun-
arsamnings við Bandaríkin með
hliðsjón af því hver viðskiptalegur
hagur af slíkum samningi yrði fyrir
íslenska atvinnuvegi og útflutnings-
starfsemi.
í greinargerð að tillögunni segir
m.a: „1 stórum dráttum má segja að
ávinningurinn af gerð fríverslunar-
samnings við Bandaríkin yrði eftir-
farandi: 1) Tollar á íslenskum fram-
leiðsluvörum yrðu lækkaðir og felld-
ir niður. Sú upphæð nam 129 mill-
jónum króna árið 1984 á gengi 31.
júní. 2) Samkeppnisaðstaða ís-
lenskra útflytjenda á bandaríska
markaðnum mundi mjög batna
gagnvart öðrum þjóðum. 3) Banda-
rískar vörur mundu lækka í verði hér
á landi. 4) Möguleikar mundu skap-
ast á samvinnu erlendra og íslenskra
fyrirtækja til framleiðslu hér á landi til
útflutnings, bæði til Bandaríkjanna
og Evrópu (EFTA- og EBE-land-
anna). 5) Viðskiptatengsl og efna-
hagssamvinna íslands og Bandaríkj-
anna mundi vaxa í verulegum mæli“.
-SS
Aöalfundur Verzlunarráðs íslands:
Franskur fyrirlesari
Á morgun, fimmtudag, mun
Verzlunarráð íslands halda aðal-
fund. Auk hefðbundinna aðal-
fundastarfa mun Jacques G. Mais-
onrouge, fyrrverandi forseti al-
þjóðadeildar IBM, halda erindi um
alþjóðaviðskipti og fjárfestingu.
Talsverður fengur er í hr. Mais-
onrouge sem fyrirlesara, en hann
hefur um árabil verið í forsvari fyrir
IBM og gegnt mörgum ábyrgða-
störfum innan fyrirtækisins. Jafn-
framt hefur hann átt þátt í stjórnun
margra annarra stórfyrirtækja s.s.
„Roussel-Uclaf og Moet Henn-
essy" og „Air liquide". Hr. Mais-
onrouge hefur fcngið margvíslegar
viðurkenningar fyrir störf sín í at-
vinnulífinu og að menningarmál-
um og hefur m.a. gefið út bókina
„Manager International" sem fjall-
ar um starf hans hjá IBM ásamt því
sem þar er að finna ýmsar leiðbein-
ingar um markaðsmál og stjórnun
fyrirtækja.
Aðalfundur Verzlunarráðs (s-
lands vcrður haldinn að Hótel Sögu á
morgun, og hefst kl. 10.15.
-BG
A.F.S. SAFNAR FJÖLSKYLDUM
Skoðanakönnun
framsóknarmanna
á Patreksf irði
Framsóknarmenn á Patreksfirði
verða með skoðanakönnun vegna
framboðslista flokksins þar 9. mars
n.k.
Rétt til þátttöku í skoðana-
könnuninni hafa allir framsóknar-
menn á staðnum auk stuðnings-
manna flokksins.
Eftirtaldir gefa kost á sér í könn-
uninni:
Erla Hafliðadóttir, Jensína Krist-
jánsdóttir, Jónas Ragnarsson, Ólaf-
ur Sæmundsson, Rósa Bachman,
Sigurður Viggósson og Snæbjörn
Gíslason.
Vikuna 1.-8. mars efna A.F.S..
skiptinemasamtökin á íslandi, til
fjölskylduöflunar. Eins og nafnið
bendir til er tilgangur vikunnar að fá
fjölskyldur um allt lánd til að opna
heimili sín fyrir árs- og sumarnem-
um, erlendum.
A.F.S. á íslandi sendir út þrefalt
fleiri nema en þeir taka á móti að
sögn forsvarsmanna félagsins og er
ein aðalástæðan fyrir því hve illa það
hefur gengið að útvega heimili.
Einnig sögðu þeir að fólk virtist gera
sér rangar hugmyndir um hvernig
það ætti að koma fram við skipti-
nemana því þeir hjá A.F.S. leggja
áherslu á það að komið sé fram við
skiptinemann eins og einn af heim-
ilisfólkinu.
Við ætlumst ekki til að farið sé að
ferðast með nemann út um allar
trissur eins og fólk virðist halda,“
sagði Eiríkur Þorláksson fram-
kvæmastjóri A.F.S. á Islandi í sam-
tali við Tímann. Eiríkur sagði einn-
ig: „Það eina sem við förum fram á
við fjölskylduna er fæði og húsnæði,
vasapeninga og annan kostnað sjá-
um við um.“
-Þ.I.
Stjórn A.F.S. frá vinstri: Ása
Richards, Jónheiður Valgeirsdóttir
formaður og Eiríkur þorláksson
framkvæmdasjtóri.
Tímamynd: Sverrir.