Tíminn - 05.03.1986, Side 5

Tíminn - 05.03.1986, Side 5
Miðvikudagur 5. mars 1986 Tíminn 5 Morðið á Palme: Atvinnumaður á ferð? Stokkhólmur-Reuter Byssumaðurinn sem myrti Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar á stræti Stokk- hólmsborgar síðastliðið föstu- dagskvöld var atvinnumorð- ingi sem flúði í bíl frá morð- staðnum. Þetta sagði Hans Holmer yfirmaður Stokkhólmslögregl- unnar á blaðamannafundi í gær. „Vopnið sem notað var til að myrða Palme í miðbæ Stokkhólms á föstudagskvöld- ið, sú staðreynd að hann var skotinn í bakið og hin vel undirbúna áætlun við morð- staðinn benda til þess að hér hafi atvinnumaður verið á ferð,“ lét Holmer hafa eftir sér á fundinum. Holmer sagði einnig að gangandi lögreglumanni sem kom aðvífandi að morðstaðn- um hafði næstum tekist að handsama morðingjann en hann hefði komist uppí bíl sem síðan var ekið á miklum hraða frá drápsstaðnum. Kallað var til blaðamanna- fundarins vegna ásakana um að lögreglan hefði klúðrað leitinni að morðingjanum. Leigubílstjóri einn sem ná- lægur var sá morðingjann fara inní bifreið sína og hefur gefið lögreglunni upp skráningar- númer hennar. Holrner sagði hins vegar að einhver óvissa ríkti um hvort hið uppgefna númer væri rétt og vildi af þeim ástæðum ekki veita nán- ari upplýsingar um bifreið morðingjans. Lögreglan leita fleiri en morðingjans sjálfs. Hún telur að minnsta kosti einn mann hafi beðið hans í bifreiðinni sem síðan var ekið á miklum hraða í burtu frá morðstaðn- Fara þessir á „atvinnubiðlistann“ bráðlega? Fyrirtæki fer á hausinn í Kína um. Ekkert „I dag“ í dag Lundúnir-Reuter Ný tækni gaf fyrsta breska litdag- blaðinu líf. Blað hins nýjafjölmiðla- kóngs Eddie Shahs kom út í gær. Hins vegar komu erfiðleikar í sam- bandi við meðferð litmynda í veg fyrir að prenta tækist þær t,4 mill- jónir eintaka af blaðinu „í dag" (To- day) sem Shah hafði gert ráð fyrir. Að vístu vantaði ekki upp á nenta um 3(X3.000 eintök en það varð samt til þess að blaðib varð fljótlega uppselt snemma um morguninn í miðborg Lundúna. Einnig komu erfiðleikarn- ir í veg fyrir að þetta 44 síðna dag- blað næði útbreiðslu nógu snemma í helstu stórborgum landsins. f>ar sem blaðið loksins kom var það fljótlega uppselt enda voru ein- tökin ekki mörg. Bretar sáu fljótt að setja mætti upp skondnar tilkynning- ar í sambandi við nafn blaðsins og á mörgum blaðsölustaðanna þar sem upplagið hafði selst upp stóð: „Ekk- eit í dag í dag“. Feking-Reuter Að sögn tímaritsins Peking Rcvi- ew mun verksntiðja ein í borginni Shenyang í Norð-austur Kína verða fyrsta fyrirtækið þar í landi til að fara opinberlega á hausinn síðan komrn- únistar tóku völd árið 1949. Kínversk stjórnvöld munu hafa aðvarað stjórnendur áðurncfndrar verksmiðju í ágúst á síðasta ári og sagt þeim að koma ntálum sínum á hreint. Það hefur stjórnendunum ekki tekist og gjaldþrot er því fram- undan. Tímaritið sagði eignir verksmiðj- unnar, sem ekki var nafngreind, fara á uppboð til að hægt væri að borga upp skuldir. Starfsmenn munu fara á atvinnuleysislista sem að vísu þekk- ist ekki undirþví nafni í Kína, þarer svoleiðis fólk sagt vera „að bíða eftir vinnu“. í grein timaritsins var Shenyang sögð vera fyrsta borgin í Kína þar sem svo „djörf" ákvörðun er tekin en líklegt þykir að fyrstu lög um gjald- þrot fyrirtækja í landinu verði sam- þykkt á þessu ári. Gjaldþrotamál er annars nqkkuð viðkvæmt málefni í Kína þar sem stjórnvöld hafa ávallt helgað sig fullri atvinnu meðal þegnanna. Opinberar tölur sýna hins vegar að dulítið er um aðvinnuleysi. Sant- kvæmt lista cr birtist fyrir helgi bíða nú 3,6 milhónir borgarfólks eftir vinnu. Spánn: Að vera eða ekki að vera í NATO - um það snýst þjóðar- atkvæðagreiðslan í næstu viku Madrid-Reuter Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun sem gerð var á Spáni mun meirihluti kjósenda þar í landi vera hlynntur áframhaldandi aðild Spán- ar að NATO. Þjóðaratkvæða- greiðsla fer fram um málið þann 12. mars næstkomandi. Skoðanakönnunin var gerð af Gallupstofnuninni og kom þar í Ijós að 34% kjósenda vildu framlengja aðild Spánar að NATO en landið gerðist aðili að varnarbandalaginu árið 1982. Hins vegar er munurinn ekki mikill því heil 29% virðast vera á móti aðildinni. Margir virtust vera hlutlausir í málinu og samkvæmt könnuninni munu 32% kjósenda sitja heima þeg- ar atkvæði verða greidd. Um 5% að- spurðra sögðust ætla að skila auðu. Heldur virðist því stjórn sósíalistá vera að sækja á í málflutningi sínum. Stjórnin hefur hvatt landsmenn til að veita áframhaldandi aðild atkvæði sitt en skoðanakönnun í febrúar sýndi að 9% meirihluti kjósenda var þá andvígur aðildinni. Samtök vinstrimanna, kommún- ista og friðarsinna hafa mælt gegn aðildinni en hægrimenn í stjórnar- andstöðu hafa beðið fólk að greiða ekki atkvæði. Mannréttindasamtökin Aninesty Intcrnational beina nú spjótum sínum að Suður-Afríku. Þar er af nógu að taka í sambandi við mannréttindabrot. Amnesty og S-Afríka: Mannréttindabrot aukast Asía: Hótel í hættu Lundúnir-Reuter Samkvæmt skýrslu einni munu sum helstu hótelin í Asi'u eiga í veru- legum fjárhagsörðugleikum á kom- andi árum. Ástæðuna má yfirfæra á mjög aukið framboð á hótelrými - sem mun fara langt framúr þeirri til- tölulegu litlu aukningu í fjölda gesta. Skýrslan birtist í ferðamannarit- inu „New Magazine“ og þar eru Tokyo og Hong Kong sagðar vera einu borgirnar á þessum slóðum þar sem framboð og eftirspurn á hótel- rými haldist líklega í hendur næstu árin. Aftur á móti munu hóteleigendur í Singapúr, Thailandi og Indónesíu ekki eiga sjö dagana sæla ef marka má niðurstöður skýrslunnar. Þar mun eftirspurn eftir hótelherbergj- um ekki aukast í samræmi við her- bergjaframboð og allir munu stór- tapa. Samkvæmt skýrslunni nærri tvö- faldast framboð á hótelrými á árun- um milli 1984 og 1990 í Kuala Lump- ur og Singapúr og eykst um þriðjung í Hong Kong, Bangkok og Jakarta. Lundúnir-Reuter Mannréttindasamtökin Amnesty International hefja í dag baráttu gegn auknum mannréttindabrotum í Suður-Afríku. Samtökin munu byrja á því að senda bréf til P. W. Botha forseta landsins þar sem útlist- aðar eru leiðir sem fara þarf til að vernda almenn mannréttindi. Raunar hafa samtökin, sem aðset- ur sitt hafa í Lundúnum, oft skrifað Botha og stjórn hans um atriði eins og fangelsisvistun stjórnmálaand- stæðinga án réttarhalda, pyndingar og dauðarefsingu í Suður-Afríku. Ný hyggjast samtökin hins vegar hefja alþjóðabaráttu þar sem „mannréttindabrot eru nú daglega tíðkuð í landinu og hafa aukist veru- lega á síðasta ári“, eins og segir í bréfi samtakanna til fjölmiðla. { skýrslu sem Amnesty hefur sent frá sér um ástandið í Suður-Afríku eru meira en 800 dauðsföll sögð tengjast auknum mótmælum gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda á tímabilinu frá september 1984 til nóvember 1985. Á þessu tímabili var einnig þúsundum manna haldið föngnum af stjórnmálalegum ástæð- um án þess að réttarhöld færu fram í máli þeirra. Samtökin endurtaka í bréfi sínu til Botha áhyggjur vegna frétta um út- breiddar og skipulagðar pyndingar á pólitískum föngum. Að minnsta kosti tólf einstaklingar létust í vörslu lögreglunnar á tímabilinu janúar 1981 til nóvember 1985. Amnesty segir um 100 einstakl- inga vera hengda á ári hverju í Suð- ur-Afríku. Mest af þessum aftökum eru vegna morða en dauðarefsing- unni má einnig beita í sambandi við aðra alvarlega glæpi s.s. nauðganir, svik við öryggi landsins og sum póli- tísk afbrot. Mannréttindasamtökin hafa farið fram á að óháðir aðilar rannsaki fréttir unt að menn á vegum stjórn- valda hafi drepið, tekið til fanga ell- egar ráðist á fólk sem gagnrýnt hefur stjórnina í landinu. Einnig vilja sam- tökin láta hefja rannsókn á fullyrð- ingum um að lögreglan hafi drepið fólk sem hafði það eitt unnið til saka að taka þátt í mótmælaaðgerðum gegn aðskilnaðárstefnu stjórnvalda. Amnesty Internationaí hafa um 500.000 meðlimi um víða veröld. Samtökin hafa ýmislegar aðgerðir á prjónununt til að þrýsta á stjórn Suð- ur-Afríku til að virða mannréttindi og fara að alþjóðalögum í sambandi við þau.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.