Tíminn - 05.03.1986, Page 12
12 Tíminn
Miövikudagur 5. mars 1986
Aðalfundur
Ferðafélags íslands
Aöalfundur Ferðafélags fslands veröur
haldinn í kvöld, miðvikud. 5. mars, í Ris-
inu, Hverfisgötu 105 og hefst kl. 20.30
stundvíslega. Vcnjuleg aðalfundarstörf.
Ath. Féiagar sýni ársskírteini frá árinu
1985 við innganginn.
Stjórnin
Góukaffi
Kvennadeildar Skagfirðinga-
félagsins
Kvennadcild Skagfirðingafélagsins er
með Góukaffi og tískusýningu í Drangey,
Síðumúla 35 í kvöld, miövikud. 5. mars,
kl. 20.30.
IHnnHII TOl‘l
Norræna húsið:
Háskólatónleikar í hádeginu
Fimmtu Háskólatónleikarnir á vormisseri
1986 verða haldnir í Norræna húsinu í dag
miðvikudaginn 5. mars.
Elísabet Erlingsdóttir sópransöngkona
syngur lögeftir Arná Thorstcinssón og A.
Dvorák við píanóundirleik Sclmu Guð-
mundsdóttur.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30ogstanda
í u.þ.b. hálltíma.
Úrslit verðlaunasamkeppni
um merki fyrir Kjarnagrauta
í tilefni sýningarinnar Heimilið '85
efndi fyrirtækið Kjarnavörur til hug-
myndasamkeppni um tákn fyrir Kjarna-
grauta sem tyrirtækið framleiöir. Tilgang-
ur samkeppninnar var að fá krakka á öll-
um aldri til umhugsunar um hollan mat.
Margar skemmtilcgar tillögur bárust í
samkeppnina
Niöurstaða dónincfndar fer hér á cftir:
1. verðlaun: Kristbjörg Ágústsdóttir,
Brckkutúni5, Kópavogi
2. vcrðlaun: Garðar Árnason, Kleppsvcgi
50, Rvík.
3. verölaun: Karlotta Jóhanncsdóttir,
Drápuhlíð 20, Rvík.
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES:............ 93-7618
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.... 97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
interRerrt
Dagsektir felldar
niður bókasafnsdaga
Borgarbókasafns 3. tii 9. mars.
Verða þessir dagar að mestu tengdir
opnun nýs útibús Borgarbókasafns í
Gerðubergi. Þar hefst starfsemin þriöju-
daginn 4. mars með ýmis konar kynning-
um. Af þessu tilefni verða dagsektir af
vanskilabókum úr Borgarbókasafni felld-
ar niöur í eina viku.
Bráðlega kemur út litskreyttur bækl-
ingur um bókasafnið og verður honum
dreift á ýmsum stöðum í borginni. í mars
verður útibú Borgarbókasafns viö Hofs-
vallagötu „Hofsvallasafn“ fimmtíu ára.
Pað hefur verið til húsa á sama staö í öll
þessi ár.
Tónlistarsjóður Ármanns
Reynissonar:
3. úthlutun í júní n.k.
Úthlutað verður úr Tónlistarsjóði Ár-
manns Keynissonar í þriðja sinni í byrjun
júní n.k.
Úthlutunarfé sjóðsins ncmur kr.
150.000 og er óskað eftir umsóknum að-
ila, sem hafa tónlist að aðalstarfi og hafa
hug á að semja eða flytja tónverk, innan
lands eða utan.
Stjórn Tónlistarsjóðsins skipa frú Rut
Magnússon, Svcinn Einarsson, fyrrv.
þjóðleikhússtjóri, Bcnedikt Gunnarsson
Íistmálari, Þorsteinn Gauti píanólcikari
og Ármann Reynisson forstjóri.
Þeir sem hyggjast sækja um úthlutun úr
sjóðnum eru beðnir að senda umsóknir,
þar sem gcrð er grein fyrir fyrirhuguðunt
verkcfnum, fyrir I. maí n.k. til Tónlistar-
sjóðs Ármanns Reynissonar, Laugavegi
97, Rcykjavík.
Nýttlíf
1. tbl. 9. árgangs af Nýju lífi er nýkomið
út. Forsíðustúlkan er Þórdís Erla Ágústs-
dóttir og er æviágrip hennar viö hlið efnis-
yfirlits á bls 3. María Guðmundsdóttir tók
forsíðumyndina. Ritstjóraspjall er fremst
í ritinu eftir Gullveigu Sæmundsdóttur rit-
stjóra. Hún segir þar að Nýtt líf sé gefið út
í stærra upplagi en nokkru sinni fyrr.
Einnig ræðir ritstjóri um dóm Hæstaréttar
að neita útgáfufyrirtæki blaðsins að nota
nafnið LÍF á þeim forsendum aö þaö væri
of líkt nafni bandaríska tímaritsins LIFE.
Aö síöustu scgir í ritstjóraspjalli;.Alla
vega er erfitt að trúa því að málkennd ís-
lendinga sé svo brengluö að þeir geri ekki
glöggan greinarmun á orðunum LÍF og
LIFE hvað svo sem æðsti dómstóll lands-
ins tclur um það mál.“
Efni blaðsins er fjölbreytt, þar er viötal
viö stórsöngvarann Eirík Hauksson
„Tókst aö grenja út bítlahár.“ Steinunn
Sigurðardóttir ræðir við Manuelu Wiesler
í Vínarborg „Prengingarnar eru hluti af
mér“ er fyrirsögnin. Þá cru ýmsar greinar:
Áhrif AIDS í HoIIywood, Er gagnrýni
marghöföa þurs? grein um listgagnrýni
cftir Vigdísi Grímsdóttur, Hugarreik eftir
Pétur Gunnarssono.fl. Einnigerugreinar
um bókmcnntir, kvikmyndir, leikhús og
tónlist, tísku og snyrtingu.handavinnu og
mat o.fl. Margar.myndir prýða ritiö, sem
er prentað á góöan pappír. Útgefandi er
Frjálst framtak hf. Prentun er unnin í
ODDA hf.
Bændur
Notaðar búvélartil sölu, sími 99-1940.
Þvottavél til sölu
á góðu verði, tekur 8 kíló.
Einnig fótanuddtæki.
Upplýsingar í síma 18614 á kvöldin.
(Tímamynd Sverrir)
<•»
Fólk sem á „slides'.'-myndir getur nú
fengið þær yfir á videóspólur. Þetta cr
ódýrara en menn gera sér grein fyrir.
Hrafn Gunnlaugsson notaði þessa tækni í
mynd sinni „Hrafninn flýgur".
Fyrirtækiö Gullfingur er til húsa á
Snorrabraut 54 í Reykjavík.
Rafmagn, vatn, hitaveita
Ef bilar rafmagn, hltaveita eða vatnsveita má
hringja í þessi simanúmer:
Rafmagn: l Reykjavik, Kópavogi og Seltjarn-
arnesi er sími 686230. Akureyri 24414, Keflavík
2039, Hafnarfjörður 51336, Vestmannaeyjar
1321.
Hitaveita: Reykjavlk simi 82400, Seltjarnarnes
simi621180, Kópavogur 41580, eneftirkl. 18.00
og um helgar i síma 41575, Akureyri 23206,
Keflavík 1515, en eftir iokun 1552. Vestmann-
aeyjarsími 1088 og 1533, Hafnarfjörður 53445.
Simi: Reykjavik, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Ak-
ureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist i
síma05
Biianavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-
veita o.fl.) er í síma 27311 alla virka daga frá kl.
17.00 til kl. 08.00 og á helgum dðgum er svarað
allan sólarhringinn. Tekið er þar við tilkynningum
á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum,
þar sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð
borgarstofnana.
Leið 7 um Suðurhlíðar
Frá og með l. mars munu vagnar á leið
7:
Lækjartorg - Bústaðir leggja lykkju á
lcið sína um Bústaðaveg og aka niður
Suðurhlíð að hliði Fossvogskirkjugarðs.
Þar snúa þcir við og aka sömu leið til baka
og síðan áfram austur Bústaðaveg.
Þesser vænst. að þessi breytingkomi að
notum fyrir Suðurhlíðabúa auk þeirra,
scm eiga erindi í Fossvogskirkjugarð,
öskuhlíðarskóla og Heyrnleysingjaskól-
Unnið að úrbótum á
vistun öryrkja
Á undanförnum árum hafa orðið mikl-
ar umræður um á hvern hátt sé hægt að
leysa vandamál þeirra öryrkja, sem eiga
sakir andlegrar og líkamlegrar fötlunar -
aðallega af völdum slysa - örðugt um vistun
á þeim stofnunum, sem fyrir eru.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið hefur skipað nefnd, sem er fengið
það hlutverk að gera úttekt á þessu vanda-
máli og jafnframt að gera tillögur til úr-
bóta, með það í huga að reynt verði að
leysa málið sem næst heimabyggð, en ekki
á sérstakri sjúkradeild. Ætlast er til aö
nefndin skili tillögum þaö tímanlega aö
hægt veröi aö standa undir kostnaði úr
Framkvæmdasjóði fatlaðra þegar á næsta
ári. í nefndinni eru:
Ingimar Sigurðsson lögfræðingur, for-
maður, Ingibjörg R. Magnúsdóttir deild-
arstjóri, Haukur Pórðarson yfirlæknir,
Björn Önundarson tryggingayfirlæknirog
Ásgeir B. Ellcrtsson, yfirlæknir
Bækur og blöð í tonnatali á
Bókamarkaðnum
Bókamarkaöurinn 1986, sem Bókavarð-
an gengst fyrir að þessu sinni, verður á
Hverfisgötu 46 í stórum salarkynnum og
byrjaði á mánudag. Parna býður Bóka-
varðan til sölu íslenskar og erlendar bæk-
ur í öllum grcinum fræða og vísinda og
skáldskaparrit af öllum gerðum. Einnig
verða scld blöð og tímarit, gömul og ný.
Parna verða íslenskar skáldsögur, þýddar
skáldsögur, ferðabækur, landlýsingar,
kvæði rímur, riddarásögur, íslensk fræði
o.fL o.fl.
Á öllum íslcnskum bókum á markaön-
um veröa aðeins tvö verð - 50 og 100
krónur - og verða boðnir til sölu milli 15
og 20 þúsund bókatitlar á því verði.
Markaður þessi stendur alla vikuna og
um næstu helgi frá kl. 9.00-21.00 daglega
og alla næstu helgi verður opið á sama
tíma.
Sigurður Valgeirsson, nýr eigandi aö
Eigendaskipti að Roða
prentsmiðju og stimplagerð
Nýlega uröu eigendaskipti að ROÐA,
prentsmiðju og stimplagerð. Hverfisgötu
49.
ROÐA. (Tímamynd Árni Bjarna)
Nýfeigandinn, Sigurður Valgeirsson,
mun reka fyrirtækið á sama hátt og verið
hefur. Sigurður mun leggja áherslu á
vandaða vinnu og góða þjónustu.
Hjá ROÐA fer fram öll smáprentun og
hægt er að fá þar allar gerðir af stimplum.
„Gúmmíkarlarnir“ í Borgartúni.
Nýtt hjólbarðaverkstæði:
Gúmmíkarlarnir hf.
Nýlega var opnað nýtt hjólbarðaverk-
stæði, Gúmmfkarlarnir hf. að Borgartúni
36 í Reykjavík.
Eigendur og starfsmenn fyrirtækisins
eru Jóhannes Vilhjálmsson, Davíð S.
Árnason, Knut Vesterdal. Úskar J.B.
Jónsson og Magnús Snæbjörnsson. Þeir
störfuðu allir hjá Hjólbarðastöðinni sf.
áður.
Gúmmíkarlarnir hf. bjóða upp á ýmsar
nýjungar, m.a. bæjarþjónustu, þar sem
þeir koma og veita fólki aðstoð, cf þörf
krefur, útkallsþjónustu utan opnunar-
tíma og einnig bjóða þeir viðskiptavinuni
upp á kaffi í rúmgóðri setustofu, meðan
beðið er eftir að bíllinn verði tilbúinn.
Borgfirðingabók
Ársrit Sögufélags Borgarfjarðar
3.*4. árg.
I ávarpi fremst í bókinni scgir Brynjólf-
ur Gíslason f.h. ritnefndar m.a.: „Borg-
firðingabók kemur nú út í 3ja sinn. Þetta
hefti er nokkuðáeftiráætlun ogannállinn
tekur hér yfir árin 1982-’83."
Tvö ljóð eru eftir Þorstein frá Hamri:
Gunnlaugur Ormstunga og Gluggað í
Gunnlaugssögu. Á fjöruleiðum heitirfrá-
sagnaþáttur eftir Ara Guðmundsson.
Frumherjar i vegagerð í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslum heitir grein eftir Elís
Jónsson. Ferðalýsing eftir Jón Egilsson
frá Steinum segir frá ferð hans landveg frá
Steinum í Stafholtstungum norður í
Laugaskóla í Þingeyjarsýslu 1926. Vísna-
þáttur er eftir Odd Kristjánsson, Stein-
um. Endurprentuö er grein cftir Jósef
Björnsson, Svarfhóli, sem birtist í Lesbók
Morgunblaðsins 1941. Hún nefnist: Guð-
mundur Magnusson í Stóru-Skógum.
Undirfyrirsögn er Alþýðukveðskapur
fyrir 100 árum. Ýmsar frásagnir frá fyrri
tímum eru í ritinu, svo sem „Slys í Réttar-
kvörn," en það skcði við Þverá 1875. Þá
eru sögð tíðindi úr héraði 1982-1983 og
mannslát. Sögð eru tíðindi af fram-
kvæmdum í vegamálum í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslum, Landbúnaður og starf-
semi Búnaðarsambands Borgarfjarðar,
Fréttapistill úr Norðurárdalshreppi og
Hvalfjarðarstrandarhreppi þar sem sagt
er frá árferði, heyfeng, byggingum, breyt-
ingum á svcitarstjórnum o.fl. Forsíðu-
mynd er úr Hvalfirði, en Ijósm. Ólafur
Jónsson Kaðalsstöðum. Bókin er unnin í
Prentverki Akraness h.f.
BORGFIRUINGABÓK
Jón Ingi Friðriksson
Nýtt fyrirtæki:
Gullfingur
Nýlega var stofnað fyrirtækið Gullfing-
ur. Forsvarsmaður fyrirtækisins er Jón
lngi Friðriksson. Þetta fyrirtæki hefurupp
á að bjóða ýmsa tæknivinnu, svo sem
klippingar á filmum. hljóðsetningu og
upptöku.
Minningarkort
Landssamtaka hjartasjúklinga
Minningarkort Landssamtaka hjarta-
sjúklinga fást á eftirtöldum stöðum.
Reykjavík - Skrifstofu Landssamtak-
anna, Hafnarhúsinu, Bókabúð ísafoldar.
Versl. Framtíðin, Reynisbúð, Bókabúð
Vesturbæjar. Seltjarnarnes - Margréti
Sigurðardóttur, Nesbala 7. Kópavogur -
Bókaversl. Veda. Hafnarfirði - Bókabúð
Böðvars. Grindavík - Sigurði Ólafssyni,
Hvassahrauni 2. Keflavík - Bókabúð
Keflavíkur. Sandgerði - Pósthúsinu
iSandgerði. Selfossi - Apótekinu. Hvols-
velli - Stellu Ottósdóttur, Norðurgarði 5.
Ólafsvík - Ingibjörgu Pétursdóttur,
Hjarðartúni 36. Grundarfirði - Halldór
Finnsson, Hrannarstíg 5. ísafirði - Urði
Ólafsd., Versl. Gullauga, Versl. leggurog
Skel. Vestmannaeyjum - Skóbúð Axels
Ó. Akureyri - Gisla J. Eyl. Víði,.8.
Blönduósi-Helgu A. Ólafsd. Holtabr. 12
Sauðárkróki - Margréeti Sigurðard.
Raftahlíð 14.
VKSKIT
SÖCt'H I VÓSHOKÓ VKI I VKD VK
-V4. óra.