Tíminn - 20.03.1986, Síða 12
12 Tíminn
Stjórnmálaskólinn verður starfandi á eftirtöldum dögum:
íslensk haglysing
Fimmtudag 20. mars kl. 20.30.
Fyrirlesari er Þórður Friðjónsson.
Vinnumarkaður
Mánudag 24. mars kl. 20.30.
Fyrirlesari er Bolli Fléðinsson.
Sjávarútvegur
Þriðjudagur 1. apríl kl. 20.30.
Fyrirlesari er Gylfi Gautur Pétursson.
Landbúnaður
Laugardag 5. april kl. 10.00.
Fyrirlesarar eru Guðmundur Stefánsson og Hákon Sigurgrímsson.
Iðnaður
Mánudag 7. apríl kl. 20.30.
Fyrirlesari er Ingjaldur Hannibalsson.
Utanríkismál
Fimmtudag 10. apríl kl. 20.30.
Fyrirlesari er Þórður Ægir Óskarsson.
Opinber þjónusta
Laugardag 12. apríl kl. 10.00.
Fyrirlesarar eru Jóhann Einvarðsson og Guðmundur Bjarnason.
Sveitarstjórnarmál
Mánudag 14. apríl kl. 20.30.
Fyrirlesari er Alexander Stefánsson.
Framsóknarfélag
Þorlákshafnar og Ölfuss
boðar félagsmenn og stuðningsmenn til fundar sunnudaginn 23. mars
í Félagsheimilinu kl. 13.00.
Fundarefni:
1. Ákvörðun um framboðslista fyrir væntanlegar sveitastjórnarkosn-
ingar.
2. Önnurmál.
Undirbúningsnefnd.
FRAMSOKN
TIL FRAMFARA
Skrifstofan í Eiðsvallagötu 6 er opin
virka daga kl. 16.30 - 18.30.
Síminn er 21180
og það er alltaf heitt á könnunni.
Hittumst hress.
Framsóknarfélögin á Akureyri
llllllllllllllllllllllllllll DAGBÓK
Neskirkja
Föstuguðsþjónusta í Ncskirkju í kvöld kl.
20.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Fræðslufundur
Landfræðifélagsins
Þriðji fræðslufundur Landfræðifélags-
ins á þessum vetri verður í dag, fimmtud.
20. mars kl. 20.30 í stofu 103 í Lögbergi,
húsi lagadeildar Háskóla íslands. Arkit-
ektarnir Jóhannes S. Kjarval og Kristján
Ásgeirsson sýna myndir og fjalla um
Laugaveginn í Reykjavík og framkvæmd-
ir á neðri hluta hans. Fundurinn er öllum
opinn.
Verslunarskólinn á Grundarstíg.
„Comeback“
Utskrifaðra
Verslunarskólanema
í kvöld, fimmtud. 20. mars veröur haldin
skemmtun fyrir útskrifaða Verslunar-
skólanema. Skemmtunin veröur í Holly-
wood og hefst kl. 21.00 og stcndur til
02.00. Þar veröur margt til gamans gert til
að rifja upp hinn gamla Verslóanda. Svo
dæmi sé nefnt, )rá verða gamlir verslingar
meö atriði sem slógu í gcgn á sínum tímaá
skemmtikvöldi. Sem sagl, - meiriháttar
fjör í Hollywood og við hvctjum alla
gamla verslinga til að mæta.
„Comeback-hópurinn"
íslenska sjóréttarfélagið:
Hádegisverðarfundur
Hið íslenska sjóréttarfélag gengst fyrir
hádegisverðarfundi á Hótel Loftleföum
(Leifsbúð) á morgun, föstudaginn 21.
mars og hefst hann kl. 12.00. Fundarefni:
Alex Laudrup, sjóréttarlögmaður frá
Kaupmannahöfn og framkvæmdastjóri
Shipowners Clup of Copenhagen, flytur
erindi um nýjustu þróun í málum er varða
farmsamninga („Recent Awards and
Judgements on Important Charterparty
Issues“). Síðan verða umræður um dag-
skrárefnið. Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku.
„Kalda borðið“ á Hótel Loftleiðum erá
kr. 600,-.
Fundurinn er öllum opinn og eru félags-
menn og aðrir áhugamenn um siglinga-
starfsemi, sjóvátryggingar og viðskipta-
málefni hvattir til aö mæta.
Norræna félagið
Ráðstefna um vinabæjamál
Norræna félagið hcfur ákveðið að efna
til ráðstefnu um vinabæjamál á laugardag.
Það er önnur ráðstefnan sem félagið held-
ur um þessi mál, sú fyrri var s.l. vor.
Ráðstefnan veröur haldin á Blönduósi
og hefst á laugard. Á ráðstefnunni munu
menn skiptast á hugmyndum og ábend-
ingum um nýjungar í starfseminni og
leggja grundvöll að eflingu þessa þáttar
norrænna samskipta.
Steinsteypufélag islands:
Ráðstefna um viðhald
steinsteyptra mannvirkja
Steinsteypufélag Islands stendur fyrir
ráðstefnu um viðhald steinsteyptra mann-
virkja, sem nú er orðið sérhæft og afmark-
að svið í íslenskum byggingariðnaði. Gíf-
urleg verðmæti eru í húft og um þetta
vandamál á að fjalla á ráðstefnunni, sem
hefst á Hótel Loftleiðum föstudaginn 21.
mars kl. 13.15 í Kristalsal. Ráðstefnan er
öllum opin, en þátttaka tilkynnist í síma
40098 eða 686711.
Framsögumenn verða:
Hákon Ólafsson, forstjóri Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðarins. Mun
hann ræða um „Steypugerð í framtíðinni
og stefnu steypurannsókna".
John D N Shaw mun ræða um „Efni til
steinsteypuviðgerða" (flutt á ensku).
Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur,
flytur erindi er nefnist „Hlutverkaskipting
í viðgerðarvinnu framtíðarinnar".
Vífill Oddsson, verkfræðingur, fjallar um
„Greiningu skemmda og hvernig varast
megi þær".
Ormar Þór Guðmundsson, arkitckt, ræð-
ir um „Sjónsteypu frá sjónarhóli ark-
itekts".
Að loknum framsöguerindum verða
pallborðsumræður og almennar umræð-
ur. Fundarstjóri verður Gunnar Torfa-
son, verkfræðingur, formaður Stein-
steypufélags íslands.
Ráðstefnunni slítur Óttar P. Halldórs-
son, prófessor.
Leikfélag Mosfellssveitar:
SVÖRT K0MEDÍA
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í
Hlégarði í kvöld, fimmtud. 20. mars kl.
20.30, leikritið „SVÖRT KOMEDÍA''
eftir Peter Shaffer í þýðingu Vigdísar
Finnbogadóttur. Leikstjóri er Bjarni
Steingrímsson. 15 manns taka þátt í sýn-
ingu þessari, sem er fyrsta verkefni félags-
ins á þessu ári. Önnur sýning verður
sunnud. 23. mars og þriðja sýning mið-
vikud. 26. mars.
Thomas Sanderling er stjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í kvöld.
Szymon Kuran fiðluleikari.
Fimmtudagstónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar
Frumf luttur verður Fiðlukonsert
eftir Karol Szymanowski
í kvöld, fimmtud. 20.mars kl. 20.30
verða haldnir 12. Fimmtudagstónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabí-
ói. Stjórnandi erThomas Sanderling, sem
er Sovétmaður, en hefur verið búsettur í
Þýskalandi. Einleikari á fiðlu er Szymon
Kuran. Hann er Pólverji, en hcfurstarfað
sem annar konscrtmcistari Sinfóníu-
hljómsveitar fslands síðan haustið 1984.
Hann frumflytur hér á landi Fiðlukonsert
nr. 1. op. 35 eftir pólska tónskáldið Karol
Szymanowski. Önnur verk á cfnisskrá eru
: Sinfónía nr. 8 eftir Beethoven og Forspil
að óperunni „Meistarasöngvurunum” eft-
ir Wagner.
Fiðlukonsertinn varskrifaðurað beiðni
pólska fiölusnillingsins Paul Kochanski og
hann samdi kadensuna. Konsertinn er í
einum þætti og var sanúnn árið 1916 en
ekki frumfluttur fyrr en árið 1922, vegna
þess að byltingin í Rússlandi og fyrri
hcimsstyrjöldin komu í veg fyrir fyrirhug-
aðan flutning 1917. Verkið er mjög róm-
antískt en á sama tíma undir sterkum
áhrifum impressjónisma, sem var ríkja
stefna í franskri tónlist á þessum tíma. en
Karol Szymanowski bjó lengi í París og
kynntist þar tónlist Debussy og Ravel.
Burtfararprófstónleikar
í Tónlistarskólanum
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur
burtfararprófstónleika fimmtudaginn 20.
ntars kl. 18.00. í sal skólans að Skipholti
33. Anders Josephsson bariton syngur lög
eftir: Dvorák, Mcndelssohn, Becthoven,
Jórunni Viðar, Poulenc, Sibelius, og
Verdi. Selma Guðmundsdóttir lcikur
með á píanó. Kennari Anders er Elísabet
Erlingsdóttir.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Ný plata frá Skífunni
Toppsætin
Skífan hefur gefið út safnplötuna
Toppsætin, sem inniheldur 14 lög, þar af
þrjú íslensk. Þau eru flutt af Bubba,
Stuðmönnum og Magnúsi Þór.
Nafn safnplötunnar er mjög táknrænt
því að topplögin 2 á vinsældalista Rásár 2,
„How will I know'' með Whitney Houston
og „System Addict" með Five Star, eru á
þessari plötu. Þar að auki hefur safnplat-
an Toppsætin að geyma topplögin 3 á
bandartska vinsældalistanum: "Kyrie"
með Mr. Mister, „How Will 1 Know" með
Whitney Houston og „Sara" mcð
Starship. Einnig náði lagið „That’s What
Friends Are For" með Dionne & Friends
toppi bandaríska vinsældalistans fyrir
nokkrum vikum.
Fimmtudagur20. mars 1986
Geðhjálp:
Fyrirlestur um dáleiðslu
Geðhjálp heldurfyrirlestur um klíniska
dáleiðslu i kvöld, fimmtud. 20. mars 1986.
Jakob Jónasson, geðlæknir, flytur erind-
ið, sem hefst kl. 20.30 á Geðdeild Land-
spítalans í kennslustofu á 3. hæð. Fyrir-
spurnir. umræður og kaffi verða eftir
fyrirlesturinn. Allir eru velkomnir. Að-
gangur cr ókeypis.
Stjórn Geðhjálpar.
Upplýsingar um
ónæmistæringu
Þeir sem vilja fá upplýsingar varðandi
ónæmistæringu (alnæmi) geta hringt í
sima 622280 og fengið milliliðalaust sam-,
band við lækni. Fyrirspyrjendur þurfa
ekki að gefa upp nafn. Viðtalstímar eru
kl. 13.00-14.00 á þriðjudögum og fimmtu-
dögum, enþessá milli ersímsvari tengdur
við númerið.
Ægir
Annað tölublað ÆGIS, tímarits Fiski-
félags íslands er komið út. Hér er á ferð-
inni afmælishefti, cn þann 20. febrúars.l.
varð Fiskifélagið 75 ára.
í þessu hefti kennir ýmissa grasa, og má
þar nefna grein eftir Ásgeir Jakobsson um
aðdragandann að stofnun Fiskifélagsins.
Er sú grein prýdd fjölda gamalla Ijós-
mynda sem áhugavert er að skoða. Af
öðru efni má nefna afmælisávarp fiski-
málastjóra, Þorsteins Gíslasonar, grein
eftir Helga Ólafsson hagfræðing, um
tæknivæðingu frystihúsa auk fastra liða.
Ritstjóri Ægis er Birgir Hermannsson.
VERA
Málgagn kvenfrelsisbaráttu
Nú er ný VERA komin út og þar með
hefst fimmti árgangur þessa kvennablaðs.
I þessu blaði bcinist athyglin að
menntun, einkum þó fullorðinsfræðslu og
endurmenntun. Fjallað er um öldunga-
deildirnar og um Námsflokkana, en kon-
ur hafa reynst mikill meirihluti ncmenda í
þessurn stofnunum. Viðtal er viö skóla-
stjóra Námsflokka Reykjavíkur,
Guðrúnu Halldórsdóttur, viðtöl eru við
húsmæður sem settust á skólabekk. fjall-
að er um styrki og námslán o.fl.
Viðtöl eru við einstæðar mæður f Kópa-
vogi um það hvernig þær brutu niður
múra einangrunar og sagt cr frá huldu-
konu í íslenskri myndlist, Þóru Péturs-
dóttur Thoroddsen. fæddri árið 1848.
„Fjármál og fjársvik settu svip á þingið"
er fyrirsögn þingfrétta Veru, en á borg-
armálasíðunum er gerð grein fyrir stcfnu
Kvennaframboðs varðandi fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir þetta ár. Margt
fleira efni er í blaðinu.
Áskriftarsími er 22188 og er hægt að
gerast áskrifandi Itvenær sem er sólar-
hringsins. Heimilisfang blaðsins er
Kvennahúsið við Vallarstræti, 101
Reykjavík og þar er tekið á móti les-
endabréfum eða öðru efni.
Mynd á forsíðu: Anna Fjóla Gísladótt-
ir, sem lauk sveinsprófi í Ijósmyndun
1983. Hún tók þátt í Ijósmyndasýningunni
Augnablik, sent tengd var Listahátíð
kvenna í haust og hefur cinnig tekið þátt í
samnorrænni sýningu. Guðrún Ólafsdótt-
ir er ábyrgðarm. blaðsins og hún cr einnig
í ritnefnd, sem skipuð er 7 konum auk
hennar.