Tíminn - 20.03.1986, Qupperneq 16
Sykurlausar
Hálstoííur
ÞRÓTTARAR tryggöu sér
bikarmeistaratitil í blaki í gærkvöldi er þeir
lögðu Stúdenta að velli í mjög sveiflu-
kenndum leik 3-1. Þróttarar voru sterkari
en blakið ekki uppá hið besta. Þessi lið
þurfa að mætast aftur á morgun í öðrum
ieik sínum um íslandsmeistaratitilinn í
blakinu. Ef marka má leikinn í gær er
ómögulegt að spá um úrslit.
Eurovision:
Pálmi, Eiríkur og Helga
- flytja Gleðibankann í Björgvin
Pálmi Gunnarsson, Eiríkur
Hauksson og Helga Möller
hafa verið valin til að flytja
„Gleðibankann" í söngva-
keppni sjónvarpsstöðva í
Björgvin 3. maí n.k.
Við val flytjenda var hugað
að ýmsu og meðal annars var
tekið tillit til frammistööu
söngvaranna við flutning lag-
anna í sjónvarpi. Auk þeirra
sem urðu fyrir valinu var leit-
að til fjölmargra annarra
söngvara um flutning, og
voru meðal þeirra: Edda
Heiðrún Backman, Egill
Ólafsson, Eyjólfur Kristjáns-
son, Ragnhildur Gísladóttir,
Richard Scobie og Sigríður
Beinteinsdóttir. Einnig var
tekið tillit til ábendinga um
Dúkkulísurnar, Megas, Lísu
Pálsdóttur, Söngflokkinn
Hingað til, Sif Ragnhildar-
dóttur, Bergþóru Árnadótt-
ur, Stuðmenn og Rikshaw.
Sumir þessara listamanna
gáfu ekki kost á sér og aðrir
sáu sér ekki fært að taka þetta
að sér, en af þeim sem til
greina komu urðu Pálmi,
Eiríkur og Helga fyrir valinu
eins og áður segir. Peirra bíð-
ur nú mikið verkefni, sem
mun standa yfir í eina tvo
mánuði, og felst í tónlistar-
flutningi. myndbandaupp-
töku og alhliða landkynn-
ingu. Að lokinni keppninni 3.
maí má búast við áframhald-
andi starfi á vegum þess aðila
sem hefur með hljómplötuút-
gáfu í sambandi við keppnina
að gera.
Magnús Eiríksson, höf-
undur „Gleðibankans" hefur
samþykkt val flytjenda fyrir
sitt leyti. bG
ELDINGAR
SPRENGDU
SÍMAKERFIÐ
Eldingum sló niður í grennd
við Vatnsendahæð í nágrenni
Reykjavíkur í fyrrinótt. Síma
sambandslaust varð frá
Reykjavík og víða út á land.
Viðgerð hófst fljótlega og
komst á samband við hina
ýmsu landshluta aftur, þegar
leið á daginn. Viðgerð var að
mestu lokið undir kvöldmat í'
gær.
Eldingavarar eru á símakerf-
inu, en að sögn Ólafs Tómas-
sonar framkvæmdastjóra
tæknisviðs hjá Pósti og síma
gagna þeir ekki þegar eldingar
koma niður jafn nálægt strengj-
um í jörð og gerðist á miðnætti
á þriðjudag.
Ólafur sagði að strengirnir
sjálfir hefðu ekki skaddast,
heldur endabúnaður sem hann
nefndi útjöfnunarnet. Hann
sagði tjónið ekki stórkostlegt,
en talsverð vinna væri samfara
því að gera við svo vel væri.
Ólafi var ekki kunnugt um
að endurvarpskerfi útvarps og
sjónvarps hefði laskast þegar
eldingunum sló niður.
Veðurstofu íslands bárust
tilkynningar um eldingar frá
Vestmannaeyjum í gærmorg-
un. en annars virðist sem ekki
hafi orðið vart við eldingar
utan Reykjavíkur aðfaranótt
miðvikudagsins.
- ES
Kaupfélag Svalbaröseyrar:
Fékk 50 milljónir
frá Sambandinu
- ásíöastaári
hessuni glæsilega hóp hefur verið falið að safna atkvæða-innistæðum á Gleðibankann í Björgvin 3. maí n.k. F.v. Eiríkur Hauksson,
Magnús Eiríksson, Pálnii Gunnarsson og Helga Möller.
Kaupfélag Svalbarðseyrar
fékk greiddar 27 milljónir úr
sameiginlegum sjóðum sam-
vinnuhreyfingarinnar á siðasta
ári og auk þess tók Sambandið á
sig ábyrgðir fyrir kaupfélagið
Hagkaup er
leyfislaust
Verslunin Hagkaup í Skeif-
unni hefur verið rekin án
verslunarleyfis frá árinu 1976,
er verslunarleyfi frá árinu
1969 rann út.
Árið 1974 leituðu forsvars-
menn Hagkaups til Iðngarða
hf. eftir meðmælum með
áframhaldandi verslunarleyfi
í Skeifunni. Iðngarðar hf.
fyrirtæki sem stofnað var um
iðnfyrirtæki í Skeifunni veitti
meðmæli með verslunarleyf-
inu, þrátt fyrir að starfsemin
væri ekki í anda skipulagning-
ar svæðisins.
Málið fór aldrei lengra að
sögn Jóns Ásbergssonar for-
stjóra Hagkaups. Hann sagði
að endurnýjun verslunar-
leyfisins frá því 1976 hefði
aldrei verið samþykkt í borg-
arstjórn. „Úr því að ekki hafa
verið gerðar athugasemdir frá
borginni öll þessi ár, þá held
ég að við höfum ekki frum-
kvæði að því,“ sagði Jón í
samtali við Tímann í gær.
-ES
Lægsta veröiö í Kostakaupi og Kjötmiðstööinni:
Stórmarkaðir ekki
endilega ódýrari
Stórmarkaöurinn og Mikligarður ódýrustu markaðirnir
„Athyglisvert er að mark-
aðsverslanirnar koma ekki eins
vel út úr þessari verðkönnun og
oft áður,“ sagði verðlagsstjóri á
fréttamannafundi í gær. En við
verðkönnun í 50 verslunum á
dæmigerðum mat- og hrein-
lætisvöruinnkaupum 4ra
manna fjölskyldu í einn mánuð
kom í Ijós að stórmarkaðirnir
dreifðust upp og niður allan
listann innan um stærri hverfis-
jbúðir.
Ódýrasta verslunin reyndist
Kostakaup í Hafnarfirði. í 2. til
5. sæti komu Kjötmiðstöðin á
Laugalæk, Stórmarkaðurinn á
Skemmuvegi, Fjarðarkaup í
Hafnarfirði og Mikligarður.
Fintm dýrustu verslanirnar
voru: Sunnubúðin dýrust, þá
Vörðufell í Kópavogi, Kjöt-
höllin Háaleitisbraut, SS Hafn-
arstræti og Kron við Dunhaga.
Af stærri verslunum má
nefna að Garðakaup var í 9.
sæti, Hagkaup í 14., Hólagarð-
ur í 17., Vörumarkaðurinn við
Eiðistorg 20., SS-Glæsibæ 22.,
Víðir í Mjóddinni 31., JL-hús-
ið 36. og Vörumarkaðurinn
Ármúla í 41. sætið af 50 versl-
unum.
Munurinn á ódýrustu vörun-
um af samtals um 60 tegundum
var frá 20.800 til 26.100 kr. eða
26%.
-HEI
sem námu 25,2 milljónum
króna. Þetta kemur frant í yfir-
lýsingu Sambands íslenskra
samvinnufélaga vegna þeirra
ummæla stjórnarformanns
Kauþfélags Svalbarðseyrar í
sjónvarpinu að SÍS hafi ekki
staðið sem skyldi að baki félag-
inu í fjárhagsörðugleikum
þess.
í yfirlýsingunni segir að
skuldir félagsins við Sambandið
hafi í upphafi árs 1985 verið
3,847 milljónir en í lok þess 27,
217 milljónir, auk þess sem
Sambandið sé í ábyrgð fyrir
afurðalánum að upphæð 18,5
milljónir. Til viðbótar afsalaði
Sambandið sér veðrétti sínum í
kjQtbirgðir félagsins að upp-
hæð 6,7 milljónir til að hægt
væri að taka svokölluð stað-
greiðslulán og borga bændum
fullt verð.
Helstu ástæður þess að skuld
félagsins jókst við Sambandið
voru þær að félagið greiddi
ekki niður afurðalán af kinda-
kjöti sem Sambandið var í
ábyrgð fyrir, félagið greiddi
ekki vöruúttektir sínar þar til
Sambandið stöðvaði afhend-
ingar á vörum í lok ársins nema
gegn staðgreiðslu. Til að félag-
ið gæti slátrað sl. haust féllst
Sambandið á að ábyrgjast af-
urðalán þrátt fyrir mikil vanskil
á eldri lánum. Sambandið
greiddi laun starfsmanna í slát-
urtíð, greiddi 2 milljónir til
áburðarverksmiðjunnar og svo
framvegis.