Tíminn - 04.04.1986, Qupperneq 5

Tíminn - 04.04.1986, Qupperneq 5
Tíminn 5 Föstudagur4. apríl 1986 ÚTLÖND llllllllllllilllllllllllllllllllllllllll Eitrað vín á Italíu Fimmlánhafa láttö Iffið - Lögreglan hefur handtekið þrjá menn í viðleitni sinni til að komast að rótum vandans Taranto, Ítalíu-Rcutcr Vínframleiðandi frá S-Ítalíu var í gær handtekinn og sakaður um að hafa verið viðriðinn eitrun á víni sem orðið hefur 15 ítölum að bana. Þessi handtaka er einn liðurinn í þeirri viðleitni lögreglunnar á Italíu til þess að komast að uppruna þessa vágests. Sá sem handtekinn var er sá þriðji Breska útvarpið BBC er nú að undirbúa sérstakt fréttasjónvarp sem sent verður um allan heim. Verður líklega um að ræða tvo hálftíma fréttaþætti sem sendir verða hingað og þangað um gervi- hnött og síðan áfram með kapalkerf- um eða sendum. í dag sendir BBC fréttir í útvarpi til 150 landa á 37 tungumálum og áheyrendur eru áætlaðir um 120 í röð vínframleiðenda og dreif- ingarmanna á víni sem handtekinn er í tengslum við þetta mál. Það sem veldur þessari eitrun er tréspíritus sem settur er í vínið til bragðbætis og til að auka geymsluþol. Eitur þetta getur valdið blindu og dauða ef um mikið magn er að ræða. Mál svipað þessu kom upp í Þýskalandi og Austurríki á síðasta ári. milljónir. Stjórn BBC hefur skipað ncfnd til að gera úttekt á kostnaði og öðrum liðum sem varða þessar sjón- varpsfréttasendingar og á nefndin að skila skýrslu um málið fyrir ágústlok. „Við viljum fara að kanna þetta mál alvarlega og viljum fara af stað með sjónvarp til að halda Bret- um í forystu í alþjóðlegum frétta- sendingum" segir Austcn Kark einn af framkvæmdastjórum BBC. Kekkonen er orðinn 85 ára og fékk undanþágu frá verkfalli ríkis- starfsmanna í Finnlandi fyrir tvo þjóna sína. Verkfalliö í Finnlandi heldur áfram: Þjónar Kekk- onens fengu undanþágu Helsinki-Kcuter Tveir þjónar fyrrum forseta Finnlands, Urho Kekkonen, fengu í gær undanþágu frá verk- falli ríkisstarfsmanna í Finnlandi til að sjá um Kekkonen. sent nú er orðinn 85 ára gamall. Hinsveg- ar hefur allt starfslið núverandi forseta, Mauno Koivisto, lagt niður störf. Koivisto flutti sig í gær úr forsetahöllinni í gistihús í eigu ríkisins í úthverfi Helsinkiborgar og varð að aka þangað sjálfur þar sem bílstjóri hans er cinn þeirra sem lögðu niður vinnu. Ríkis- starfsmennirnir krefjast allt að 20% launahækkana, þar af 6% beinnar hækkunar, og ýmissa leiðréttinga í viðbót til jafns við aðra launþega í Finnlandi. Verkfallið hefur lamað sam- göngur í Finnlandi, aðallega lest- arferðir f og við Helsinki og flug hefur farið úr skorðum. 15000 manns hófu verkfall á þriðjudag og eftir tvær vikur bætast 40.000 við, ef deilan leysist ekki fyrir þann tíma. BBC með sjónvarp um allan heim: Bresk forysta í fréttasendingum London-Reuter . Þrjúhundruð ára stríði að Ijúka: Stríðið sem aldrei var háð - Hollendingar semja frið við Scillyeyjar eftir um 300 ára „stríð“. London-Rcuter Sendiherra Hollands f Englandi ntun á næstunni heimsækja nokkrar smáeyjar undan strönd Englands til að undirrrita friðarsáttmála við eyja- skeggja. Þannig er mál með vexti að Hollendingar lýstu yfir stríði við Scillyeyjar fyrir 335 árum síðan eftir að eyjaskeggjar rændu hollenskt kaupfar. Ekkert varð úr orustum á milli Hollendinga og íbúa eyjanna en heldur var aldrei saminn friður þeirra á milli. Einum af ráðamönnum eyjanna þótti fyrir nokkru ráðlegt að skrifa til Hollendinga og spyrja þá að því hvort ekki væri rétt að semja frið. Svarið var jákvætt og mun sendiherra Hollendinga í London því skreppa til eyjanna og skrifa undir plagg þess efnis. „Þetta stríð hefur nú verið hálfgerður brandari í mörg ár“ sagði ráðamaður eyja- skeggja Roy Duncan. „Það hefur þó orðið til þess að fólk hér á eyjunum hefur hugsað dálítið um sögu sína og er það vel“ bætti Duncan við. Hollendingar hafa ekki þurft að fara alvopnaðir til bresku eyjanna í heil 300 ár og gott betur. Norskur nemi rænir dönskum kaupsýslumanni Norskur námsmaður hefur viður- kennt rán á dönskum kaupsýslu- manni á miðvikudag. Norðmaður- inn, sem er 21 árs gamall fór inná skrifstofu tryggingafélags og ógnaði framkvæmdastjóranum með byssu og heimtaði 1,5 milljónir dala inn á bankareikning í Bandaríkjunum. Að sögn lögreglu gerði fram- kvæmdastjórinn, sem heitir Peter Christoffersen, ráðstafanir til að féð yrði lagt inná reikninginn og síðan tók ræninginn hann með sér út á Kastrupflugvöll þar sem þeir fóru um borð í flugvél til New York. Á meðan hafði starfsfólk Christoffersen, sem hafði séð afrit af kröfubréfi ræningjans, látið lögregl- una vita, og hún handtók ræningjann í flugvélinni, rétt áður en vélin átti að fara í loftið. Ræninginn var óvopnaður þegar hann var handtekinn. Hann virtist hafa skipulagt ránið upp á eigin spýtur. laðbera vantar í eftirtalin hverfi. Leifsgötu Leitin Laugaveg Tíminn SIÐUMÚLA 15 S 686300 I I I I I I I I I I I || F býður þér þjónustu sina við ný- byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis Vi& sögum i stelnsteypu fyrlr dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum - bæ&i i vegg og gólf. Ennfremur kjarnaborum vi& fyrir lögnum i veggl oy gólf. Þvermál boranna 28 mm til 500 mm. Þá sögum vi& malbik og ef þú þarft a& láta fjarlægja reykháfinn þá tökum við það að okkur. Hifir leitast við að leysa vanda þlnn fljótt og vel, hvar sem þu ert búsettur á landinu. Greiðsluskilmálar við allra hæfi Fífuseli 12 109 Reykjavík sími91-73747 Bílasími 002-2183 KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN I e i i I i i i i i Laust embætti sem forseti íslands veitir í viöskiptadeild Háskóla íslands er laust til um- sóknar embætti prófessors í sölufræði og mark- aðsmálum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist fyrir 1. rrlaí n.k. Menntamálaráðuneytið, 1. apríl 1986. Blaðbera vantar í Gárðabæ í eftirtalin hverfi: Tún, Mýrar, Móaflöt, Holtsbúð. Umboðsmaður Tímans, sími 53758. Laus staða Laus er til umsóknar staða lektors í franskri málfræði og málvísindum við heimspekideild Háskóla íslands. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 1. maí 1986. Menntamálaráðuneytið 1. apríl 1986

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.