Tíminn - 04.04.1986, Síða 7
Föstudagur 4. apríl 1986
Tíminn
Þórarinn Þórarinsson:
Lýsing trúnaðarráðs Dagsbrúnar
á nýsköpunarstjórninni 1944-1946
Lítiö minnisblað handa Þresti Ólafssyni og Svavari Gestssyni
Sá atburöur hcfurgcrst. ;iö fram-
kvæmdastjóri Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar í Réykjavík. Þröst-
ur Ólafsson, hefur hvað eftir annað
hvatt til þcss, að Alþýðubandalag-
ið, Alþýðuflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi ríkis-
stjórn. Þröstur hcfur fært það máli
sínu helst til stuönings. að svipuð
stjórnarsamvinna hafi reynst
verkamönnum sérlcga vcl á árun-
um 1944-1946.
Svavar Gestsson hefur tekiö
undir þessi ummæli Þrastar með
hangandi hendi. Hann segist aö
vísu viðurkcnna. að nýsköpunar-
stjórnin, sem fór meö völd á árun-
um 1944-1946, hafi verið „góð
stjórn” (Þjóðviljinn 27. mars
1986). en þá hafi forustumenn
Sjálfstæðisflokksins verið.betri en
nú. Gerist núverandi stjórnendur
Sjálfstæðisflokksins svipaðir for-
ustumönnum flokksins í tíð ný-
sköpunarstjórnarinnar sé allt í lagi
að cndurnýja samvinnu umræddra
flokka.
Þar sem þeir Þröstur og Svavar
voru lítt vaxnir úr grasi í váldatíð
nýsköpunarstjórnarinnar, þykir
rétt að upplýsa þá um hvcrt var álit
Dagsbrúnarmanna á hcnni á sínum
tíma. Það var ekki í samræmi við
þá sögukenningu sem þeir Þröstur
og Svavar halda fram nú um ágæti
hennar.
Hinn fjórða janúar 1946, þegar
nýsköpunarstjórnin var búin að
sitja að völdum á annað ár. var
haldinn fuiKÍur í Dagsbrún, þar
sem var lagt til að félagið scgði upp
kaupsamningunt. Það var trúnað-
arráð Dagsbrúnar. sem lagði þetta
til og lét fylgja tillögu sinni all
ítarlega grcinargerð, sem birt var í
blöðum. í upphafi hcnnar er rakið.
að verkamenn hafi fengið vcruleg-
ar kauphækkanir á stríðsárunum,
cn þær virðast hafa nýst verka-
mönnum illa eftir að nvsköpunar-
stjórnin tók við. í greinargeröinni
scgir:
„Samt scm áður hcfur það komið
í ljós, að þrátt fyrir þessa grunn-
kaupshækkun vcitist þcim verka-
mönnum. sem ciga við lægsta
grunnkaupið að búa, æ erfiðara að
framfæra fjölskyldur sínar.
Það. sem þó hcfur gert það auð-
veldara en ella, cr hin mikla eftir-
vinna. sem verkamcnn hafa orðið
að vinna en slík cftirvinna er í engu
samrænti við viðurkenndan og
samningsbundinn rétt til að geta
lifað af átta stunda vinnudegi.
Samtímis þcssu er sú staðrcynd
Ijós. að núvcrandi vcrslunar- og
innflutningshættir koma hart niður
á þcint (sem og öllum almenningi),
þar sem fáeinir einstaklingar gfæða
árlcga ótaldar milljónir. löglcga og
ólöglega, sem tcknar eru úr vasa
verkamanna og annarrar alþýöu og
veldur stórkostlegri og áframhald-
andi rýrnun á launntckjum laun-
þcga.
Vérkamönnum er og sú stað-
reynd ljós. aö fjölmargir launþcgar
og annað alþýðufölk sætir afarkost-
um húsnæðisokurs og húsnæðis-
vandræöa. cr eign einn drýgsta þátt
í því að gera framfærslu rcykvískra
verkantannafjölskyldna miklu
kostnaðarsamari en annars staðar
á landinu.
Þá er verkantönnum cinnig sú
staöreynd Ijós, að margir reykvísk-
ir verkamenn og aðrir launþegar
eiga við óþolnndi kjör að búa á
sviöi fæöissölumála. sem rýra tekj-
ur þeirra langt uml'ram það, sem
áður hel'ur þekkst ogsem er tilfinn-
anlegast l'yrir þá verknmenn. sem
búa við lágt grunnkaup."
Slík var Ivsing trúnaðarráðs
Dagsbrúnar á kjörum reykvískra
verkamanna í janúar mánuði 1946.
eða nær hálfu öðru ári eítir að
nýsköpunarstjórnin kont til valda.
Verkamenn höfðu ekki fengið
hlutdeild í hinum mikla stríðs-
gróða, sem verið var að eyða á
valdaskeiöi nýsköpunarstjórnar-
innar. Hann rann í hlut heildsala
og annarra kaupsýslumanna með-
an verkamenn bjuggu við versn-
andi kjör af völdum vaxandi dýr-
tíöar.
Dagsbrúnarfundurinn sam-
þykkti því nær einróma þá tillögu
trúnaöarráðsihs að segja samning-
unum upp og var það síðar staðfest
í allsherjaratkvæðagreiðslu með
1298 atkvæðum gegn 388. Nokkru
síðar var tilkynnt, að verkfall yrði
hafið frá og með 22. febrúar. ef
samningar um grunnkaupshækkun
hel'ðu ekki tekist fyrir þann tíma.
Að kvöldi ltins 21. febrúar hélt
Dagsbrún fund. Engir samningar
liöfðu náöst. en fyrir lágu tilmæli
l'rá ríkisstjórninni um að fresta
verkfallinu í þrjá daga. og voru
þau studd al' miklum meirihluta
stjórnar Dagsbrúnar og samninga-
nefndar. Verkamenn báru ekki
það traust til ríkisstjórnarinnar, að
hyggilegt væri að fallast á tilmæli
hennar. Fundurinn felldi þau með
369 atkvæöum gegn 269. Verkfalliö
hól'st því á tilsettum tíma og stóð í
viku. Þá var samiö unt 8'X. grunn-
kaupshækkun.
Guöjón B. Baldvinsson:
Málefni aldraðra
Verkefni fólksins
Þau eru mörg verkefnin, sem
hæfa öllum að fást við, hvað sem
aldri líður. Eigum við að líta á eitt
þeirra litla stund? Fyrst skulum við
gera okkur Ijóst að samstaða er
alltaf meira virði en einangrun.
Sundurgreining er varasöm og þó
einkum ef draga á fólk í dilka.
Dæmi. Aðskilnaður eftir Iitarhætti.
Heimilislíf fóiks
Ótrúlegur fjöldi fólks, flest á
síðasta æviskeiði sínu, bíður eftir
heimili, vistun á á heimili sem
veitir umönnun, aðhlynningu og
skjól fyrir óþægilegu ölduróti um-
heimsins.
Þrátt fyrir það sem gert hefur
verið af hálfu samfélagsins og af
samtökum fólksins, vantar enn til-
finnanlega húsrúm á öllum stigum
umönnunar fyrir aldna þjóðfélags-
þegna.
Skortur á sjúkrarúmum handa
þeim, sem enn geta þó að meiru
eða minna leyti bjargað sér, virðist
sárastur. Og er þá einkum átt við
iþann landshluta, sem kallaður er
Stór-Reykjavíkursvæðið eða Stór-
Hafnarfjarðarsvæðið o.s.frv. eftir
því úr hvaða byggðarlagi sá gaman-
sami er kominn.
Samtök fólksins
Nokkur samtök fólksins tóku
saman höndum um að mynda
skjól, skjól fyrir dálítinn hóp af
þessum öldnu meðbræðrum, sem
þarfnast hjálpar vegna versnandi
heilsufars. Þarna var skapað tæki-
færi til samvinnu allra þegna þjóð-
félagsins.
Samvinnu sem myndast af því
Og því skyldi þurfasvo
náin tengsl til þess að
finna fyrir þeim kulda-
hrolli, sem færist frá
kærulausum meðborg-
urum, sem yppta
öxlum, þegar leitað er
samúðar
hugarfari, þeirri kennd sem réðí
forðum viðbrögðum „miskunn-
sama Samverjans“.
Margar eru þær steinvölurnar,
margar einingar byggingarefnis og
ærið mörg handtökin, sem þarf að
borga, áður en unnt er að koma
fyrir hvílurúmum og hjúkrunar-
gögnum.
Ymsir eiga ættingja sem þurfa
umönnun, nákomna ættingja sem
bíða sjúkrahúsvistar, aðrir hafa
þurft að horfa á eftir vinum eða
vandamönnum yfir landamærin
milli lífssviða, án þess að nauðsyn-
leg umönnun fengist á vegum sam-
félagsins.
Og hví skyldi þurfa svona náin
tengsl til þess að finna fyrir þeim
kuldahrolli, sem færist frá kæru-
lausum meðborgurum, sem yppta
öxlum þegar leitað er samúðar.
Þeir munu fleiri sem betur fer,
er fúslega leggja fram sinn skerf,
sína fórn, litla eða stóra eftir
ástæðum, en alltaf vott um
mannúð. Það er auðvelt að koma
framlagi sínu á réttan stað. Pen-
ingaframlög má greiða inn á hlr.
nr. 14676 við Landsbanka fslands
eða á hlr. 6800 við Sparisjóð vél-
stjóra.
Kynslóöin, sem nú er
kölluð öldruð, hefur
byggt upp þessa borg,
þetta þjóðfélag, án
þess væru ekki félög,
ekki fyrirtæki, ekki
stofnanir í blóma, engir
peningar
Miðaldra kyuslóðin spyr, hvað
get ég gert til að tryggja foreldrum
mínum húsaskjól, þegar of stór
íbúð þeirra íþyngir bæði líkams-
kröftum og efnahag, er erfið eða
ófullnægjandi. Við heimtum að-
gerðir af hálfu samfélagsins til að
búa öldnum borgurum húsaskjól
við hæfi síðustu æviárin. Samfélag-
ið bregst misjafnlega við kröfum
okkár, en margt hefur verið gert og
er gert í höfuðborgini, þó að
enn skorti rnikið á að fullnægt sé
þörfinni. Efagjörn sjáum við ekki
fyrir endann á því að svo verði.
Hvað getum við gert til að flýta
fyrir? Einstaklingar og samtök hafa
áður tekist á við það verkefni að búa
öldruðum samastad. Við sjáum
elliheimilin Grund og Ás í Hvera-
gerði, Hrafnistuhcimili sjómanna-
samtakanna, Heilsuhæli Náttúru-
lækningafél. í Hvcragerði svo talin
séu þekkt dænii. Svo sjáum við
framtak samfélagsins í nafni n'kis-
ins og borgarinnar þar sem B-álma
Borgarspítalans stendur að ytra
byrði, cn fátæk að innviðum.
Eru einstaklingarnir hættir að
hreyfa hendi til að flýta fyrir? Nei.
Svo er ekki. Fólkið á sterk samtök,
sem fást við ýmis hagsmuna- og
menningarmál. Nokkur þeirra
telja rétt að virkja afl og áhuga
þegnanna sem sjálfhuga einstakl-
inga tengda böndum samúðar og
miskunnsemi, og sjálfseignarstofn-
unin Skjól var stofnuð og gengur
ótrauð til verks.
Nágrannabæjarfélag byggði sína
Sunnuhlíð með atorku og áhuga
íbúanna, hvað skyldi þá vera of-
verk Reykvíkinga?
Samtökin Skjól eru mynduð á
grunni mannúðar og miskunnsemi,
og hafa bjartsýnina sem vopn í
sóknarbaráttu sinni. Bjartsýni á
hug fólksins í þessari borg, hjálp-
fýsi þess og stórhug. Þar sem
einstaklingarnir leggjast á eitt, þar
munu og stofnanir þess, félög og
fyrirtæki leggja fram liðsinni eftir
getu og hugarfari.
Við þekkjum söguna um pen-
ingaleysi, en við þekkjum líka
söguna um miskunnsama Samverj-
ann og við eigum að þekkja boð-
orðið um að heiðra föður og
móður. Kynslóðin, sem nú er köll-
uð öldruð hefur lagt fram krafta
sína; byggt upp þessa borg, þetta
þjóðfélag, án þess væru ekki félög,
ekki fyrirtæki, ekki stofnanir í
blóma, engir peningar.
Enginn fer með aurana sína eða
krónurnar yfir landamærin milli
lífheima, en þessi hverfula eign
getur á engan hátt ávaxtast betur
en í því skjóli, sem veitt er öldnum
og einmana, öryrkjum og þroska-
heftum. Vegna þess að dýrmæt-
asta framtak mannsins er að þjóna.
Guðjón B. Baldvinsson.