Tíminn - 13.04.1986, Síða 8

Tíminn - 13.04.1986, Síða 8
8 Tíminn Sunnudagur 13. apríl 1986 ÞRIÐJI BESTI TENNISLEIKARI í HEIMI í KVENNADEILDINNI, ANDREAJAEGER. LJÓSM: RICHARD DARCEY/ WASHINGTON POST KONAí JERÚSALEM SVARAR FYRIR SIG AÐ FORNUM SIÐ. UÓSM: JODI COBB/ NAT. GEORG. MAG. - LJÓSMYNDIR BANDARlSKRA MYNDATÖKUMANNA AÐ KJARVALSSTÖÐUM í gærkvöldi var formlega opnuð ljósmyndasýning að Kjarvalsstöðum á vegum Menningarstofnunar Bandaríkjanna og Ljósmyndasafns- ins. Þetta er í annað sinn sem Menningarstofnunin og Ljósmynda- safnið standa í sameiningu að-sýn- ingu af þessu tagi, en í fyrra voru sýndar Ijósmyndir Margaret Bourke White. Var sú sýning geysivel sótt, en liana sáu um 3000 manns á aðeins hálfum mánuði. Að þessu sinni eru til sýnis verð- launamyndir fréttaljósmyndara Hvíta hússins í Washington. „Samt sem áður er hér ekki ein- ungis um fréttaljósmyndir að ræða, heldur einnig kyrrlífsmyndir, íþróttamyndir, myndasyrpur og fleira", sagði fvar Gissurarson í viðtali, en hann er forstöðumaður Ljósmyndasafnsins og hefur umsjón með sýningunni ásamt Leifi Þor- steinssyni, ljósmyndara. Á hverju ári verðlaunar Félag fréttaljósmyndara Hvíta hússins þá Ijósmyndara í þeirra röðum scm hafa skarað fram úr á árinu. Þá er haldin sýning á þeim ljósmyndum sem fengu ljósmyndurum sínum verðlaunin í hendur, en sú kvöð liggur á sýningunni, að áður en hún er send úr landi verður að sýna hana víðs vegar um Bandaríkin í tvö ár. Sýning sú sem nú er á Kjarvalsstöð- um ér þess vegna frá 1983 og var sú fertugasta í röðinni frá upphafi, en keppnin var sett á stofn í forsetatíð Warren G. Harding, árið 1921. 595 Ijósmyndir voru lagðar fram til mats árið 1983 og hlutu 55 þcirra verðlaun. Allar verðlaunamyndirnar hanga nú uppi í sýningarsal Kjar- valsstaða, en hér á síðunum má taka út eilítið forskot á sæluna. Sýningunni lýkur 27. apríl n.k.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.