Tíminn - 13.04.1986, Blaðsíða 14

Tíminn - 13.04.1986, Blaðsíða 14
14 Tíminn Sunnudagur 13. apríl 1986 MANNI FANNST ÞETTA ALVEG OFBOÐSLEGT! Áttatíu og fimm ára með langafadótturinni Bjarnveigu. Hún elst upp við kjör ólík þeim sem Guðmundur þekkti í bernsku. Guðmundur Guðnason rifjar upp er fyrstu vélarnar voru settar í báta við Djúp og segir frá sjósókn í Álftafirði vestra eftir aldamótin „ÉG VAR SEX ÁRA OG VAR AÐ KOMA ÚR FYRSTU FERÐINNI MINNI FRÁ FÆTI INN Á ÍSAFJÖRÐ. FRÁ ÍSAFIRÐI VAR FARIÐ MEÐ MÓTOR- BÁT OG MAÐUR HAFÐI ALREI SÉÐ SVONA FYRR. ÞAÐ VAR SVO MAKALAUST AÐ SJÁ ÞEGAR ÞETTA BYRJAÐI AÐ SNÚAST ALLT SAMAN! MAÐUR ÞORÐI EKKI AÐ KOMA NÁLÆGT ÞESSU. MANNI FANNST ÞETTA ALVEG OFBOÐSLEGT! ÞÁ ÁKVAÐ ÉG AÐ VERÐA SJÓMAÐUR OG AUÐVITAÐ Á MÓTORBÁT." Þetta segir Guðmundur Guðna- son sjómaður sem í sjötíu ár bjó í Álftafirði við Djúp vestra, en hann er einn af fáum sem mím þegar fyrstu vélarnar komu í íslenska báta. Átvikið sem hann hér segir frá er frá árinu 1906, en þá voru aðeins fjögur ár frá því fyrsta einstrokka glóðar- hausvélin var sett í bát á íslandi en það var á ísafirði 1902. í þessu viðtali rifjar Guðmundur upp ævi og kjör sjómanna í Súðavík í byrjun ‘aídarinnar og minnist báta og sjó- sóknara í heimabyggð sinni. Hann fæddist árið 1900 í Hattardal í botni Álftafjarðar og ólst upp á Fæti og á Seljalandi, en hóf snemma lífsbar- áttuna sem vestfirskur sjómaður og var það oft hörð barátta. „Þegar ég var barn var minna róið frá Súðavík," segir Guðmundur, „heldur var útræði frá Höfnum, sem eru undir Súðavíkurhlíð innan við Arnarncshamarinn, þar sem fyrstu vegajarðgöngin hér á landi voru gerð, en þau kannast nú margir við hvar eru. Þarna voru nokkrar ver- búðir og svo sem þrjátíu manns á vorin, þegar ég man eftir, en höfðu verið miklu fleiri áður. Þarna hafði verið útræði öldum saman. Þetta voru kænur, skektur, eins og við Vestfirðingar segjum, sem reru þarna og oftast þrír eða fjórir á hverjum bát. Þetta voru 16-18 bátar þarna. En þar með er ekki sagt að stærri skip hafi ekki verið gerð út frá Álftafirði. Jón Guðmundsson eign- aðist tvær skútur fyrir aldamótin, sem hétu Guðríður og Prósíon, kölluð „Prósa“. Ég man ekkert eftir Guðríði, því það var búið að selja hana þegar ég man eftir, en hana hafði Jón í Eyrardal átt með nafna sínum Jónssyni. Prósa var aftur á móti til fram til 1910 eða svo, þegar hún var seld burtu. Það voru um 13 manns á þessum skútum sem líklega hafa verið 25-30 lestir og þær lágu lengi úti, allt upp í hálfan mánuð til þrjár vikur. Enginn hafði skipstjórn- arréttindi á þessi skip og því fékk Jón lepp að sunnan, Jón Gíslason, sem svo settist að i Súðavík. Jón Jónsson var sjalfur með Guðrtði, en skipstjórinn á Prósa var Jón Pétursson, Sunnlendingur. Já, Jón í Eyrardal var merkilegur maður og talinn einn ríkasti maður- inn við Djúp. Hann var með mikið skegg og gekk í jakkafötum þegar ég sá hann, sem ekki var algengt. í Eyrardal rak hann verslun í mörg ár og þar fékkst allt mögulegt, allt niður í smáspegla og barnaglingur. Þar mátti versla talsvert, ætti maður tíu aura. Hann afgreiddi þarna sjálf- ur með aðstoð gamals manns, sem hét Jón Magnússon. í Höfnum Fimmtán ára gamall fór ég að róa með pabba mínum, úr Höfnum, en hann var Guðni Einarsson. Móðir mt'n var Bjarnveig Guðmundsdóttir. Já, ég er fæddur í Hattardal árið 1900, en fór sjö ára gamall að Guðmundur Guðnason á unga aldri. Seljalandi og ólst þar upp, nema hvað fimm og sex ára var ég í uppeldi á Fæti. Þarna í Höfnum voru bátarnir hér og þar að úr Djúpinu, svo sem úr Seyðisfirði, frá Fæti og víðar. Allt voru þetta áraskip og þrír eða fjórir á. Farið var skömmu eftir páska í Hafnirnar og verið fram í júní, enda var þetta besta vertíðin. Þarna reri ég vorin 1915-17. Menn höfðust við í verbúðum og var sú stærsta Sæm- undarbúð sem þrír bræður, Sæ- mundur, Jón og Magnús áttu og höfðu þeir annan endann á henni. Aðrar búðir, voru Uppsalabúð Seyð- firðingabúð, Kleifabúð, Eyrarbúð og svo lítil búð sem kölluð var Sara og hana held ég að Guðmundur Pálsson frá Hlíð hafi átt. Vistin var ekki skemmtileg í þess- um búðum. Ef þær voru með lofti var beitt niðri, en sofið og etið uppi og loftið inni var oft skelfilegt. Maturinn var skrínukostur og skrína við rúmstokk hvers og eins með smjöri brauði og öðru, en annars var soðningin uppistaðan í fæðinu. Þeg- ar verið var að beita á nóttinni var svo svart kaffi helsta hressingin. Þar sem þrír voru á bát og formað- urinn átti skipið var aflanum skipt í fimm hluti og átti útgerðin þrjá, en tvo fengu hásetarnir. Þetta mun hafa verið algengt. í vertíðarlok kom svo skip frá Ásgeirsverslun að sækja aflann, sem allur varsaltaður. Skipið hafði pramma í eftirdragi, sem gat lagst þarna við klappirnar og síðan dreginn út á ísafjörð. Það þótti ákaflega gott ef maður hafði 300 krónur í hlut, en það var hámark og heldur sjaldgæft. Þarna var ekki farið með nein veiðarfæri önnur en línu og allt voru þetta vélarlausir bátar, eins og ég áður sagði. Á þessum árum voru t.d. færaveiðar alveg aflagðar í Álftafirði eftir að Jón í Eyrardal gerði út skúturnar og engin veiðarfæri tíðkuð nema ef telja ætti kúfiskplóg, sem sumir notuðu til að afla beitu. Seljaland. Hér lá hafísinn úti fyrir firðinum, oft vikum og mánuðum saman.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.