Tíminn - 13.04.1986, Qupperneq 19

Tíminn - 13.04.1986, Qupperneq 19
Sunnudagur 13. apríl 1986 ' Tíminn 19 Falsaðar sígarettur Lögreglan í Shanghai hefur nú brennt yfir 4 þúsund karton af sviknum sígarettum. Þó Kínverjar séu mesta tóbaks- framleiðslu-þjóð í heimi, framleiða helmingi meira af sígarettum en Bandaríkjamenn, þykir Kínverjum erlendar sígarettur mun eftirsóknar- verðari en þær innlendu. Á þessu ætluðu óprúttnir menn að græða stórfé. Þeir keyptu mikið magn af erlendum sígarettum, opnuðu pakk- ana, tóku gæða-sígaretturnar úr og létu venjulegar kínverskar sígarettur í staðinn. Fölsuðu sígarettupakkana seldu þeir síðan á svörtum markaði á uppsprengdu verði. Lögreglan komst síðan í málið og greip þrjótana, svo minna varð úr hagnaðinum en ráð var fyrir gert. Ekki fylgir sögunni hvað hinir óprúttnu falsarar gerðu við erlendu sígaretturnar sem þeir losuðu úr pökkunum. Hláturmildur morðhundur Richard Ramirez, sem játað hefur á sig 14 morð, sprakk úr hlátri í réttarsal í síðustu viku, þegar mál hans var tekið fyrir. Ramirez játaði á sig morð sem hinn svokallaði „nætur-huldumað- ur“ framdi, en hann hélt íbúum Kaliforníu í skelfingu um sex mán- aða skeið. Ramirez hafði verið þögull og eins og út á þekju allt réttarhaldið þar til ung kona bar vitni og sagðist hafa lifað af árás hans fyrir nokkrum mánuðum. Þetta fannst Ramirez fyndið, byrjaði fyrst að glotta, síðan að flissa, gat síðan ekki setið á sér lengur og sprakk úr hlátri. Réttar- vörðurinn varð að leiða hann út úr réttarsalnum, svo það gæti haldið áfram án truflana. Ramirez fékk ekki að fara aftur inn í salinn fyrr en hann hafði jafnað sig af hlátrinum. Honum mun haf þótt það æði- fyndið að einhver teldi að hann slyppi lifandi frá honum. Óvinsæll frambjóðandi látinn Sá maður sem hefur fengið fæst atkvæði í kosningum er nú látinn. Þetta var Bretinn George Boaks, sem fór fram í 28 kosningum, en uppskar ekki nema 1772 atkvæði alls. Boaks sem var liðsforingi á eftir- launum barðist fyrir bættum sam- göngum, betra lofti, þingbundnu einræði og öðrum merkum málefn- um. Hátindurinn á pólitískum ferli hans var árið 1974 þegar hann fékk 240 atkvæði í bæjarstjórnarkosning- um í Wimbledon, en árið 1982 var hann í öldudal og fékk ekki nema 5 atkvæði í kosningum til þingsins er hann bauð sig fram í Glasgow. Boáks setti mikinn svip á umhverfi sitt, ók^um á stóru mótorhjóli sem hann kallaði Baoksmobile og var fús til að ræðá við hvern sem var um stjórnmál. Hann hlaut mikla höfuð- áverka fyrir þremur árum er hann lenti í slysi á Boaksmobilnum. Boaks sagði eitt sinn: „Þið getið kallað mig fífl, fávita eða hvað sem þið viljið, það skiptir ekki máli, svo framarlega sem ég fæ fólk til þess að hugsa.“ Það er algengt að kosningaseðlar í Bretlandi séu fullir af allskyns smá-framboðum, en nú hverfur nafn George Boaks af þeim. TORFÆRUHJÓL AUTFYRm BMX BMX-hjalmar BMX-húfur nuí"!rímfr BMX-treflar BMX-hanskar BMX-sokkar o«í“PeySUr BMX-hnéhlif n«í^U,X.Ur BMX-púðar BMX-jakkar BMX-merki BÚÐÍtí Sendum i póstkröfu. Kreditkortaþjónusta Varahluta- og viðgerðarþjónusta AURKID Ármúla 40 Sími 35320. FRÁ BÚNAÐARDEILD TTVAC Júgurhlífar prufupappír Sparkvamir Mjólkur- sýnikönnur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.