Tíminn - 13.04.1986, Qupperneq 24
Þessi náungi
heitir Aljesja.
Hann er átta
ára og er hér að
skýra skák fyrir
bekkjarfé-
lögunuin.
Skákkennsla
í skólum
Rússa
Skákin er nú sem oftar ofarlega á
baugi hérlendis, og kannske verður
að lcita ullt austur til Sovét, til þcss
að finna jafn almennan áliuga á
þessari íþrótt, scm sumir vilja mcira
að segja kalla listgrein. Þar er nú
meira að segja farið að kcnna hana
í skólum.
Tilraunakcnnsla í skák fer nú
fram í fyrstu fjórum bekkjum skóla
nr. 45 í Volgograd ásamt kcnnslu í
hefðbundnu námsefni.
„Kostir þessa nýja námsefnis cru
hafnir yfir allan vafa. Börnin læra
rökhugsun, og þroska ímyndunarafl
sitt, einbeittni og viljastyrk. Stærð-
fræðileg hugsun þcirra þroskast og
75 prósent þeirra fá einkunina gott
eða ágætt í stærðfræöi," segir V..
Ujasov, skólastjóri.
Hinn kunni sovéski uppeldis-
fræðingur V. Sukjkamlinskí (1918-
70) segir í bók sinni „Ég ann
börnum": „Skákkennslu ætti að taka
upp á námsskrá barnaskóla sem lið
í andlegri fræðslu."
Skákkennsla fer nú fram í mörg-
um skólum í Volgogradhéraði.
Skólaárið 1983-4 var 700 ncmendum
kennd þessi nýja námsgrein, sem
einnig hefur verið tekin upp í
námsskrá kcnnaraháskólans í
Volgograd.
í safni skóla nr. 45 í Volgograd cr
bréf frá heimsmeistaranum í skák,
A. Karpov, þar sem hann scgir:
„Kæru piltar og stúlkur. Mér fannst
mjög ánægjulegt að fá fréttir af
hinum frábæra skóla ykkar. Ég óska
ykkur góðs gengis, hamingju og
heilbrigðis."
Tilrauninni hafa fylgt ýmsir erfið-
leikar, sem brátt vcrður áreiðanlega
unninn bugur á fyrir tilstilli skák-
áhugamanna.
Bannað samlífi við
eiginkonu sína
íranskur námsmaður í Bretlandi
má nú allt eins búast við því að
þarlend stjórnvöld banni honum
samlífi við eiginkonu sína.
Mikið írafár hcfur verið í Bret-
landi síðustu vikur þegar mál náms-
mannsins varð opinbert. Hann sjálf-
ur er 27 ára gamall en brúður hans
er ekki nema tólf ára. Bretum þykir
sem Mohsen Nikbaht, en svo heitir
námsmaðurinn, brjóti nteð þessu
athæfi sínu bresk lög sem banna
kynferðisleg atlot við börn yngri en
16 ára.
Mál Nikbaht hefur verið tckið
upp á þingi og er búist viö aö það
breyti innflytjendalögunum og banni
innflutning á yngri eiginkonum cn
16 ára.
Hartz
Okeypis hjó í Danmörku
• Ókeypis vegakort/bók
• Tölvuútskrift með leiðbeiningum um stystu
leiðir til þeirra áfangastaða sem þú hefur
valið þér.
• Afsláttarbók sem veitir margs konar afslátt á
veitingastöðum, gististöðum, skemmtistöð-
um, leikhúsum, skemmtigörðum og víðar.
Afsláttarbókin getur hæglega sparað þér
margar þúsundir króna.
• Handhæg taska fyrir léttan farangur - fram-
tíðareign sem alltaf kallar á góðar ferða-
minningar.
Hertz
...býður betur!
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727
Prófnðu flug og Herbz bíl
íDunmöHoi
ÞAÐER
• •• að vera á nýjum eða nýlegum bíl, traustum
og skemmtilegum og líða eftir hinum full-
komnu akvegum Evrópu.
••• að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af
kílómetragjaldi, lélegum merkingum eða
bilunum.
• •• að geta skotist á stuttum tíma til spennandi
áfangastaða um alla álfuna; borga, bæja,
skemmtigarða, veitingastaða, baðstranda -
hvert sem er.
••• að skipta um veður, menningu, þjóðtungur,
eftir því sem hentar hverju sinni.
••• að vera í Kaupmannahöfn í dag og Rínar-
dalnum á morgun.
••• að njóta aðstoðar SL-veganestisins, (Euro-
guide bókarinnar) þar sem þú hefur ógrynni
upplýsinga um fallegar ökuleiðir og athygl-
isverða staði, borgakort, gististaðaskrár og
fleira og fleira.
••• að borga aðeins krónur 15.900,- fyrir flug og
Ford Escort í 2 vikur, svo dæmi sé tekið.
• •• að borga ekkert fyrir þriðju vikuna þegar fjórir
eðafimm eru í bilnum.