Tíminn - 03.05.1986, Qupperneq 4
• . > ^ V
Langafi hennar var Asquith forsætisráðherra Breta í fyrri heimsstyrjöld-
inni. Helcna Bonliam Cartcr stcndur nú á þröskuldi frægðar sem
kvikmyndaleikkona og þarf ekki lengur að niinna sífellt á hinn fræga
langafa sinn.
Áður var
hún fræg
af lang-
afa sínum
- en nú er
hún fræg af
sjálfri sér!
Langafi hennar var forsætisráð-
herra Bretlands og það hefur nægt
Helenu Bonham Carter til frægðar
hingað til. En nú er hún ágóðri leið
með að verða fræg af sjálfri sér.
Þessi 19 ára gamla fallega stúlka
er afkomandi Herberts Asquith og
hún var nýlega gripin glóðvog í
skóla til að fara með aðalhlutverk
í tveim stórmyndum. í Herbergi
með útsýni fer hún mcð hlutverk
sakleysingja í útlöndum. Sú mynd
hefur þegar verið frumsýnd. En á
næstunni verður sýnd í Bretlandi
önnur mynd sem hún fer líka með
aðalhlutverk í og er það af allt
öðrum toga. Þá leikur hún hina
gæfusnauðu lafði Jane sem lifði
það að vera drottning í 9 daga á
tímum Tudoranna en endaði ævi
sína á höggstokknum eins og svo
margar aðrar drottningar.
Já, hlutirnir hafa gengið hratt
fyrir sig hjá Helenu að undanförnu,
svo hratt að hún segist sjálf vera
hálfringluð. Enda er hún hógvær
stúlka sem alls ekki hafði gert sér
hugmyndir um að hún skytist með
slíkum hraða upp á stjörnuhimin-
inn. Hún segir sjálf að hún hafi
tæpast haft vit á því sem hún var
að gera í myndinni Herbergi með
útsýni. „en aðrir virðast ekki taka
eftir því,“ segir hún.
Þó hlýtur hún að hafa verið
undir það búin að hasla sér völl í
kvikmyndum. Helena var nefni-
lega svo framsýn að verða sér úti
urn umboðsmann strax þegar hún
var ekki nema 14 ára að aldri!
Herbergi með útsýni
þeytti Helenu
Bonham Carter
á stiörnuhimininn
Helena Bonham Carter leikur
ungu saklausu yflrstéttarstúlkuna
sem fellur fyrir lífsglaða, þrótt-
niikla unga nianninuin úr verka-
niannastétt. Hann leikur Julian
Sands.
Kvikmyndin Herbcrgi með út-
sýni (A Room With a Vievv), sem
fyrst vakti athygli á Helenu Bon-
ham Carter, hefur fengið frábæra
dóma beggja vegna Atlantshafsins.
Hún er gerð eftir sögu E.M.
Forster, sem einnig var höfundur
sögunnar Fcrð til Indlands, en
samnefnd mynd var sýnd hér í
kvikmyndahúsi fyrir u.þ.b, ári við
gífurlegar vinsældir.
Haft er eftir Forster sjálfum að
Herbergi með útsýni sé „indælasta
Cecil Day Lewis leikur hrokafulla listasnobbinn sem unga stúlkan á að
giftast. Hann þykir ákaflega fjölhæfur lcikari og leikur m.a....
pönkarann, cockneyinn og homm-
ann Johnny ■ „My Beautiful
Laundrette“, sem hefur hlotið ein-
róma lof.
sagan" hans og það kann að vera
rcttur dómur, svo langt sem hann
nær. Þar segir frá Lucy Honey-
church, ungri stúlku sem nær óaf-
vitandi reynir að brjótast undan
kæfandi þröngsýni bresks þjóðfé-
lags snemma á öldinni þar scm
hverjum og einum var markaður
bás eftir stétt og ætt, og vei þeim
sem þar sveik lit. I Lucy togast á
skylduræknin að giftast unnusta
sínum, Cecil Vyse, hrokafullum
listasnobb, eða gera það sem hana
langar til, hlaupast á brott með
George, þróttmiklum og lífsglöð-
um ungum manni úr verkamanna-
stétt, sem hún kynnist þegar hún er
í fríi á Italíu. Aumingja Lucy gerir
sér ekki grein fyrir að það er ekki
aðeins hamingja hennar sem er í
húl'i, heldur er sálarheill hennar
undir því komin hvora leiðina hún
velur.
í myndinni er mikið stjörnuval.
Auk Helenu Bonham Carter fara
með hlutverk: Maggie Smith sem
fer á kostum sem piparmær sem er
falið að gæta siðsemi Lucy, en er í
reynd á bandi ástríðnanna; Julian
Sands er George; Júdi Dench leik-
ur skáldsöguhöfund með stingandi
augu o.s.frv. En einna mest lof
hlýtur Daniel Day Lewis, sem fer
með hlutverk Cecil Vyse, svo og
hinn gamalkunni Denholni Elliott
í hlutverki klóks og lífsreynds föð-
ur George.
Laugardagur 3. maí 1986
llllllll LJTLÖND llllllllllllllí
FRÉTTAYFIRLIT
OSLO — Ríkisstjórnin í Nor-
egi sagði formlega af sér í gær
og Kári Willoch forsætisráð-
herra benti Ólafi Noregskon-
ungi. áð fá Gro Brundtland
leiðtóga Verkamannaflokksins
til að mynda nýja stjórn.
BANGKOK - Helmut Kohl
kanslari V-Þýskalands sagðist
ætla að krefjast þess að stór-
slysið í Chernobyl kjarnorku-
verinu í Sovétríkjunum yrði
rætt á fundi ráðamanna sjö
helstu iðnaðarríkja heims í
Tokyo. Kohl sagði það nauð-
synlegt til að undirbúningur
gæti hafist á samstartssamn-
ingi ríkjanna í sambandi við
slík slys.
TOKYO — Kydo fréttastofan
sagði nokkra japanska verk-
fræðinga vera nýkomna heim
frá Úkraínu og hefðu þeir allir
orðið fyrir geislavirkni.
víN - Yfirvöld í Rúmeníu
sögðu geislavirkni „miklu hærri
en venjulega" í mörgum hlut-
um landsins og að heilbrigð-
ismálaráðuneytið hefði hafið
aögerðir sem miðuðu að því
að koma joði til fólks undir 18
ára aldri.
TOKYO — Bettino Craxi
forsætisráðherra Ítalíu hvatti
til að alþjóðareglur um kjarn-
orkuöryggi yrðu hertar í kjölfar-
ið á stórslysinu í Chernobyl
kjarnorkuverinu í Sovétríkjun-
um.
HAAG — Áætlanir um mjög
aukna kjarnorkunotkun í Hol-
landi á næsta áratug hefur
verið frestað eftir að ríkisstjórn-
in frestaði þingumræðum um
þær í gær. Kjarnorkuslysið í
Sovétríkjunum hefur leitt til
þess að áætlanirnar munu nær
örugglega ekki komast í gegn
á þessu þinai. Hinsvegar er
ekki víst hvað gerist eftir þing-
kosningarnar sem fram fara
innan þriggja vikna.
BONN — Vestur-þýsk stjórn-
völd hafa dregið úr mjólkur-
flutningum frá þeim svæðum
landsins þar sem geislunin frá
Chernobyl kjarnorkuverinu
mældist hvað mest. Ákvörðun-
in var sögð vera varnarráðstöf-
un gegn langtíma áhrifum
óeðlilegrar geislunar.
WASHINGTON - Að
sögn Vinnumálaráðuneytisins
bandaríska var atvinnuleysi
7,1% í apríl en hafði verið
7,2% í mars.
BANGKOK — Fjölmiðlar í
Thailandi sökuðu suma þing-
menn um að hafa sýnt óheiðar-
leika þegar þeir greiddu at-
kvæði gegn tillögu sem varð til
þess ao ríkisstjórnin sagði af
sér. Lögregla sagðist vera að
rannsaka ásakanir um mútur í
þessu sambandi.