Tíminn - 03.05.1986, Qupperneq 8
BÆNDUR
Graskögglarnir eru góður kostur,
ódýrt og kjarnmikið íslenskt fóður
Vekjum sérstaka athygli á graskögglum
blönduðum innlendum fóðurefnum,
svo sem meltu, fiskimjöli og byggi
Leitið nánari upplýsinga
í verksmiðjunum og hjá söluaðilum
GRASKOGGLAVERKSMIÐJAN FLATEY
Mýrarhreppi
Sími: 97-8592
* FÓÐUR OG FRÆ
Gunnarsholti
Sími: 99-5089
STOROLFSVALLARBUIE
Hvolhreppi
Sími: 99-8163
FÓÐURIÐJAN
Ólafsdal
Dalasýslu
Sími: 93-4954
Orðsending frá Lífeyrissjóði
verzlunarmanna
Þessi auglýsing er birt til þess að kynna sjóðfélögum Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna áhrif nýsamþykktra laga um Húsnæðisstofnun ríkisins á
lánsrétt þeirra hjá sjóðnum og Húsnæðisstofnun.
Stjórn sjóðsins hefur tekið þá ákvörðun að verja 55% af ráðstöfunarfé sjóðsins til
kaupa á skuldabréfum Húsnæðisstofnunar frá 1. janúar 1987. Þessi ráðstöfun mun
tryggja sjóðsfélögum hæsta mögulega lánsrétt hjá Húsnæðisstofnun frá og með
næstu áramótum.
Vakin er athygli á að ekki er unnt að tryggja jafnháan lánsrétt á tímabilinu 1.
september 1986 til 31. desember 1986, eins og frá 1. janúar 1987, en frá þeim
tíma er fullur lánsréttur tryggður. Því bendir stjórn sjóðsins væntanlegum
lántakendum, sem hyggjast fá hámarkslán, á að fresta lántöku fram yfir nk. áramót.
Til þess að tryggja sjóðfélögum hámarkslánsrétt hjá Húsnæðisstofnun var ekki hjá
því komist að endurskoða lánareglur sjóðsins
Eftirfarandi lánareglur munu því gilda frá og með 1. maí 1986:
1. Lánsupphæð kr. 150.000
2. Lánstími 3-5 ár að vali lántakanda
3. Tveir gjalddagar pr. ár.
LÁNTOKUSKILYRÐI:
4. Þriggja ára greiðslur til lífeyrissjóðs.
5. Fimm ár liðin frá síðustu lántöku.
6. Ekki um lánsrétt að ræða hjá Húsnæðisstofnun.
Þeir aðilar sem lagt hafa inn lánbeiðni hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna fyrir 1. maí
1986 fá hana afgreidda samkvæmt eldri lánareglum óski þeir þess.
Upplýsingar og aðstoð við þá sjóðfélaga sem hyggja á lántöku hjá Húsnæðisstofnun
verða veittar á skrifstofu sjóðsins á 4. hæð í Húsi verzlunarinnar.
8 Tíminn Laugardagur 3. maí 1986
llllllllllllllllllllllllllil POPP lllllllllllllllllillllllllllllllll
Hljómsveitin
Einstúrzende
Naubauten
væntanleg
til landsins
“ýska kuldarokksveitin Einsturz-
ende Naubauten er væntanleg hing-
að til lands og mun skemmta í
veitingahúsinu Roxzy þann 19. maí
næstkomandi.
Einstúrzende Naubauten var
stofnuð í Berlín árið 1980 af Blixa
Bargeld söngvara og gítarleikara
N.U. Unruh ásláttarleikara, Gudrun
Gut söngvara og ásláttarleikara og
Beate Bartel bassaleikara. Hljóm-
sveitin var ekki langlíf í þessari
mynd, Gudrun Gut og Beate Bartel
hættu í hljómsveitinni og stofnuðu
hljómsveitina Malaría. Hinir sem
eftir voru í Einstúrzende Neubauten
fengu þá til liðs við sig hljómborðs-
leikarann F.M. Einheit og bassa-
leikarann Marc Churg, en þeir voru
báðir í hljómsveitinni Abwárts. 1
þessari mynd starfaði hljómsveitin
um hríð, eða þangað til hljómborðs-
leikarinn Alexander von Borsig
bættist í hópinn.
Tónlist Einstúrzende Naubauten
þykir afskaplega nýstárleg og fram-
andi. Auk hefðbundinna rokkhljóð-
færa nota hljómsveitarmeðlimirnir
tól, sem hingað til hafa flokkast sem
verkfæri og vinnutæki, frekar en
hljóðfæri. Má í því sambandi ncfna
lofthamra, vélsagir, sleggjur og stór-
ar málmplötur. Af þessum sökum er
tónlist þeirra frekar kölluð stórborg-
ar- eða iðnaðarrokk frekar en hefð-
bundið rokk.
Hljómsveitin Einstúrzende Nau-
bauten er vel þekkt um alla Evrópu
og fær alla jafna mikla umfjöllun í
bresku popppressunni. Hljómsveitin
er einnig töluvert þekkt í Bandaríkj-
unum, einkanlega fyrir það að
bandaríska tónlistarkonan Lydia
Lunch hefur mikið unnið með
hljómsveitinni meðal annars á
hljómplötum.
Ugglaust muna margir eftir þátta-
röð um Einstúrzende Naubauten
sem íslenska sjónvarpið sýndi í
fyrra, en þáttaröðin hét Músík og
myndlist.
Það er hljómplötuverslunin
Gramm sem stendur fyrir hingað-
komu hljómsveitarinnar.