Tíminn - 03.05.1986, Síða 15

Tíminn - 03.05.1986, Síða 15
Þórarinn Sigþórsson og Þorlákur Jónsson, nýbakaðir íslandsmeistarar í tvímenning, að spila við Val Sigurðsson og Aðalstein Jörgensen. Timamynd Svcrrir Laugardagur 3. maí 1986 Tíminn 19 BRIDGE llllllllilll lllllllllllll lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilli íslandsmótið í tvímenning: Þórarinn og Þorlákur öruggir sigurvegarar Þórarinn Sigþórsson og Þorlákur Jónsson unnu íslandsmótið í tví- menning nokkuð örugglega um síð- ustu helgi. Þeir höfðu forystuna nær alit mótið ef undan er skilinn smá tími um miðbik mótsins þegar Guð- laugur Jóhannsson og Örn Arnþórs- son skutust á toppinn. Þeir Guðlaug- ur og Örn urðu í 2. sæti en þriðja sæti náðu Reykjavíkurmeistararnir í tvímenning, þeir Karl Logason og Svavar Björnsson. Þórarinn og Þorlákur fengu að launum flugmiða til Miami á heims- meistaramótið í tvímenning í haust, sem Flugleiðir gáfu, og tvö næstu pörin fengu einnig rétt til að keppa á þessu móti. Alls á ísland rétt á að senda 5 pör á mótið, og geta pör sótt um að fá að fara, fyrir 15. maí. Þó að Þórarinn og Þorlákur héldu forustunni svona lengi var alltaf Guðmundur Hermannsson. FRÉTTASTJÓRI .mJMrJj talsverð spenna í loftinu, því bilið var aldrei mjöc mikið milli þeirra og næstu para. A tímabili gerðu Jón Baldursson og Sigurður Sverrisson harða hríð að efsta sætinu en tókst ekki að ná því og í lokin skorti þá greinilega örendið og þeir hröpuðu niður í 7. sæti. Jón Baldursson hefur ekki orðið svona neðarlega í íslands- tvímenningnum í tæpan áratug! Efstu pör voru þessi: Þorlákur Jónsson - Þórarinn Sigþórsson Guðlaugur Jóhannsson - 175 Örn Arnþórsson Svavar Björnsson - 135 Karl Logason Jón Þorvarðarson - 133 Þórir Sigursteinsson Ragnar Magnússon - 106 Valgarð Bjöndar Ingvar Hauksson - 83 Sverrir Kristinsson Jón Baldursson - 82 Sigurður Sverrisson Guðmundur Pétursson - 69 Jaqui McGreal Rúnar Magnússon - 68 Stefán Pálsson Stefán Guðjohnsen - 68 Þórir Sigurðsson 36 Frá Bridgesambandi íslands Bikarkeppni Bridgesambands íslands 1986 hefst í næsta mánuði. Spilatími hverrar umferðar verður sem hér segir: 1. umferð skal vera lokið fyrir 18. júlí 1986 (undankeppninni) 2. umferð (32 sveita úrslit) skal vera lokið fyrir 16. júlí 1986. 3. umferð (16 sveita úrslit) skal vera lokið fyrir 13. ágúst 1986. 4. umferð (8 sveita úrslit) skal vera lokið fyrir 31. ágúst 1986. 5. umferð (undanúrslit 4 sveita) verður spiluð laugardaginn 6. september og úr- slitaleikurinn verður daginn eftir, 7. sept- ember 1986. Spilamennska hefst báða dagana kl. 10 árdegis, en í undanúrslitum eru spiluð 49 spil milli sveita og 64 spil í úrslitaleiknum. í öllum öðrum umferðum, eru spiluð 40 spil milli sveita. Þátttökugjald pr. sveit verður kr. 4.000, sem greiðist til Bridge- sambands Islands í upphafi keppni. Greiðslu skal fylgja nöfn spilara, nafn- númer og heimilisfang. Spilað er um gullstig í hverri umferð. Áríðandi er að fyrirliðar tilgreini þann spilafjölda sem hver einstakur spilari spilar í hverri umferð (séu fleiri en 4 spilarar ísveitinni). Bregðist þetta, má búast við að stig fyrir þann leik verði ekki skráð. f bikarkeppnum er dregið í hverri umferð. Þeirri sveit, sem fær heimaleik, ber skylda til að aðstoða gesti hvað varðar uppihald og viðurgjörning meðan á leik stendur, enda myndu gestgjafar njóta þess hið sama yrðu þeir á útivelli. Fyrirlið- ar skulu koma sér saman um leiktíma. Að öllu óbreyttu, gildir auglýstur spilatími Bridgesambandsins í hverri umferð. Skráning sveita til Bridgesambands ís- lands er hér með hafin. Henni lýkur miðvikudaginn 21. maí n.k. kl. 16. Strax á eftir verður svo dregið í 1. umferð keppninnar. Skráningum skal komið til Ólafs Lárus- sonar eingöngu, hjá BSÍ og heima: 91- 16533. Sigurvegarar öðlast rétt til þátttöku í Evrópubikarkeppni eða sambærilegri keppni, á þeim kjörum sem Evrópusam- bandið býður. Frá Bridgesambandi íslands: Bridgesambandið minnir félög á síðari hluta árgjalda, sem er 15. júlí 1986. Nú þegar, í lok keppnistímabilsins eru síðari hluta greiðslur farnar að berast skrifstofu BSÍ. Gjaldið hækkaði í 20 kr. pr. spilara pr. spilakvöld eftir áramót ’85-'86. Bridgesambandið býður velkomið í sambandið nýtt bridgefélag. Það eru Neskaupstaðarmenn sem gengið hafa í landssamtök bridgefélaga. Alls eru þá félög innan vébanda BSIorðin 47 og hafa aldrei áður verið fleiri. Talsmaður þeirra austanmanna er ína Gísladóttir. Send hafa verið til allra félaga utan Reykjavíkur, gjafabréf sem prentuð hafa verið í tilefni stofnunar Guðmundarsjóðs, húsakaupasjóð Bridgesambands íslands. Einnig hefur verið opnaður reikningur í Útvegsbanka Islands, hlaupareikningur nr. 5005, þar sem hægt er að leggja inn gjafafé til sjóðsins. Markmiðið er að kljúfa þbssi kaup, en hlutur okkar bridge- manna er yfir fimm milljónir króna. Vegna þessa, verðum við að taka á með Guðmundi Kr. Sigurðssyni. Allar nánari upplýsingar um sjóðinn og framkvæmd þessa söfnunar eru veittar á skrifstofu sambandsins s: 91-18350 (Ólafur). Frá Bridgeféiagi Tálknafjarter Eftir tvær umferðir af fjórum í firma/ einmenningskeppni félagsins, er staða efstu firma/spilara þessi: Þórsberg, sp. Heiðar Jóhannsson 246 Ríkisskip, sp. Guðlaug Friðriksd. 242 RagnarJónsson. verktaki, sp. Ólafur Magnúss. 242 Fiskv. Ólafs Þórðars., spilari Ævar Jónsson 242 Bjarnabúð, spilari Jón H. Gíslason 238 Vélsm. Tálknafj., spilari Kristín Ársælsd. 234 Frá Skagfirðingum Reykjavík: 34 pör mættu til leik í eins kvölds tvímenningskeppni s.l. þriðjudag. Spilað var að venju eftir Mitchell-fyrirkomulagi. Úrslit urðu þessi (efstu pör): N/S: Esther Jakobsdóttir-Valgerður Kristjónsdóttir 396 Guðrún Hinriksdóttir-Haukur Hannesson 354 Guðmundur Aronsson-Jóhann Jóelsson 351 Bjöm Hermannsson-Lárus Hermannsson 346 Andrés Þóraripsson-Halldór Þórólfsson 342 A/V: Júlíus Sigurjónsson-Matthías Þon’aldsson 379 Eyjólfur Bergþórsson-Jakob Ragnarsson 375 Steingrímur Steingrímsson-Öm Scheving 351 Hðgni Torfason-Stígur Herlufsen 336 Ari Konráðsson-Kjartan Ingvarsson 330 Og næstu tvo þriðjudaga verða á dagskrá eins kvölds tvímenningskeppnir, þar sem öllu spilaáhugafólki er velkomin þátttaka meðan húsrúm leyfir. Þriðjudag- inn 20. maí hefst svo Sumarbridge í Borgartúni 18 (húsi Sparisjóðsins) en spilað verður tvisvar í viku þar, á þriðju- dögum í umsjón þeirra Hermanns Lárus- sonar og Ólafs Lárussonar og Sumarbri- dge á fimmtudögum á vegum Reykjavík- ursambandsins, sem hefst í sömu viku, 22. maí. Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Vorhugur er nú kominn í Gaflara og er spilamennska B.H. á starfsárinu því lokið. Síðasta keppni félagsins var board a match keppni (með saldo) með þátttöku 8 sveita. Þessar urðu efstar. Bjarni Jóhannsson 145 Sigurður Lárusson 126 Þröstur Sveinsson 119 Erla Sigurjónsdóttir 105 Síðla starfsársins var keppt við 3 önnur félög, Bridgefélag kvenna, Bridgeklúbb Akraness og BridgefélagSelfoss, og unnu Hafnfirðingar öll þessi félög með tölu- verðum mun. Viðureignin við Selfoss var sú fertugasta á 40 árum og er því væntan- lega elsta samfellda bæjarkeppni f íþrótt- um hér á landi. Spilað var á Selfossi að þessu sinni og senda spilarar B.H. þeim Selfyssingum bestu þakkir fyrir frábærar móttökur. í lok starfsársins var haldin sagnkeppni með gömlum spilum úr erlendum og íslenskum blöðum. í öðrum hópnumnáðu þau hjón Erla Sigurjónsdóttir og Krist- mundur Þorsteinsson bestum árangri í 20 spilum eða 118 stigum. í hinum hópnum urðu þeir Ásgeir Ásbjörnsson og Frið- þjófur Einarsson langefstir með 141 stig. Úr seinni 10 spilunum fengu þeir hvorki meira né minna en 86 stig. Þau spil voru úr Bridge(blaðinu) í febrúar 1976 en þar náðu þeir Þórarinn Sigþórsson og Hörður Arnþórsson 75 stigum, sem talið var „afburða skor“. Kerfi þeirra Ásgeirs og Friðþjófs mun vera mjög sérstætt, enda botnuðu engir í sögnum þeirra. Aðalfundur B.H.verður haldinn föstu- daginn 23. maí í Hraunbyrgi, húsi Skáta- félagsins við Reykjavíkurveg, og hefst kl. 20. Dagskrá fundarins verður auglýsl síðar. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMULA 3 108 REYKJAVIK SÍMI (91)681411 Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Lada 1500 árgerð 1986 Ford Escort árgerð 1984 Honda Accord árgerð 1983 Fíat Panda árgerð 1983 Saab 99 árgerð 1982 BMW 528 árgerð 1977 Lada 1600 árgerð 1979 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, mánu- daginn 5. maí kl. 12-16. Á sama tíma: Á Hofsósi: Citroen CX Reflex árgerð 1982 Subaru 1600 4x4 árgerð 1980 A Sauðárkróki: Skoda 120 L árgerð 1985 A Blönduósi: Mazda 818 árgerð 1974 A Húsavík: Kranabifreið UNIC K 250 árgerð 1973 m/skemmda bómu. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna á stöðunum fyrir kl. 12, þriðjudaginn 6. maí 1986. VEGAGERÐIN Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í klæðingar í Skagafirði 1986 (150.000 m2) og Miðfjarðarveg 1986 (2 km, 6.500 m3). Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 20. maí 1986. Vegamálastjóri. St. Jósepsspítali Landakoti Staða aðstoðarlæknis á svæfingu er laus til umsóknar. Staðan veitist til 6 mánaða frá 1. júlí 1986. Umsóknarfrestur rennur út 1. júní 1986. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf skal senda til yfirlæknis svæfingadeildar. Reykjaví 30.4.1986. I Hafnarfjörður - matjurtagarðar Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er bent á að síðustu forvöð að greiða leiguna eru föstudag- inn 9. maí n.k. Eftir þann tíma verða garðarnir leigðir öðrum. Bæjarverkfræðingur Gagnfræðaskólinn í Mosfellssveit auglýsir lausar kennarastöður næsta skólaár. Kennslugreinar: íslenska, stærðfræði, erlend mál, samfélagsfræði, raungreinar, handmenntir, versl- unargreinar. Upplýsingar gefa Gylfi Pálsson skólastjóri, símar 666586 - 666153 og Einar Georg Einarsson yfirkennari, símar 666186 - 30457.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.