Tíminn - 03.05.1986, Blaðsíða 19

Tíminn - 03.05.1986, Blaðsíða 19
Tíminn 23 Laugardagur 3. maí 1986 Sjónvarplaugardagkl. 18.15: Sjónvarp og útvarp laugardag kl. 19 Utvarp laugardag kl. 11. Sjónvarp sunnudag kl. 22.40 og mánudag kl. 21.50: FRÉTTIR Athygli sjónvarpsáhorfenda skal vakin á því að vegna beinnar útsendingar frá úrslitum Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva á laugardag sem hefst kl. 19, færist fréttatíminn til. Fréttir í sjónvarpi verða því kl. 18.15. GLEÐIBANKINN Þó að ótrúlegt sé að einhver hafi gleymt því að Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í kvöld og bein útsending frá henni hefst kl. 19 bæði í sjónvarpi og útvarpi, þykir okkur vissara að minna enn einu sinni á þann mikla atburð. Og ekki sakar heldur að minna á að óska íslensku þátttakendunum allra heilla í keppninni. Frá útlöndum: Nýr þáttur í um* sjá Páls Heiðars Frá útlöndum nefnist þáttur um erlend málefni í umsjón Páls Heið- ars Jónssonar sem er á dagskrá útvarps kl. 11 á laugardögum í sumar. í þætti þessum er ætlunin að blanda saman beinum frásögnum og pistlum um hin margvíslegustu efni - önnur en þau sem oftast nær fá umfjöllun í fréttatímum og teljast til svokallaðra heimsfrétta. Verk Jökuls Jakobssonar: KERAMIK OG VANDARHÖGG Annað kvöld kl. 22.40 sýnir Sjónvarpið leikrit Jökuls Jakobs- sonar, Keramik, en það var frum- sýnt í Sjónvarpi á páskum árið 1976. Leikstjóri er Hrafn Gunn- laugsson og leikendur eru Sigurður Karlsson, Hrönn Steingrímsdóttir, Halla Guðmundsdóttir og Björn Gunnlaugsson. Tónlist annast Spil- verk þjóðanna og upptöku stjórnar Egill Eðvarðsson. Ungur lögfræðingur hefur náð langt á veraldarvísu. Hann ólst upp í fátækt og er stoltur yfir velgengninni sem kemur m.a. fram í heimili hans og húsbúnaði, þar sem ekkert skortir á að sé lýtalaust og vel ætti að fara um konu hans og son þeirra. En ekki er allt sem sýnist. Kona hans er óánægð með tilveruna og þegar önnur kona Vandarhögg er síðasta verk Jök- uls sem Sjónvarpið endursýnir í þetta sinn. Það verður á dagskrá á mánudagskvöld kl. 21.50, en var frumsýnt í Sjónvarpinu 1980. Leik- stjóri er Hrafn Gunnlaugsson og leikendur Benedikt Arnason, Björg Jónsdóttir, Bryndís Péturs- dóttir og Árni Pétur Guðjónsson. Um tónlist sér Gunnar Þórðarson. Frægur ljósmyndari, Lárus kemur heim til íslands til að vera við útför móður sinnar. Með honum kemur eiginkona hans, sem er meira en tuttugu árum yngri en hann. Við heimkomuna rifjast upp atriði úr æsku Lárusar og eiginkona unga verður þess fljótlega vör að ekki er allt með felldu. Vandarhögg er ekki við hæfi barna. í Vandarhöggi spilar þessi litla stúlka á fiðlu. En Vandarhögg er samt sem áður alls ekki við hæfi barna. skýtur upp kollinum leiðic það til óvæntra atvika. Laugardagur 3. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morgunteygjur. 7.30 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurtregnir. Tónleikar. 8.30 Lesið úr forustugreinum dagblað- anna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Step- hensen kynnir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áöur sem Örn Ólafsson flytur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, framhald. 11.00 Frá útlöndum - þáttur um erlend málefni Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú Fréttaþáttur i vikulokin. 15.00 Tónlistarmenn á Listahátíð 1986 Cecile Licad, Katia Ricciarelli og „The New Music Consort". Kynnir: Ýr Berlels- dóttir. 15.50 islenskt mál Ásgeir Blöndal Magnus- son flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Listagrip Þáttur um listir og menn- ingarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. 17.00 „Geturðu notað höfuðið betur?“ Ýmislegt um það að lesa undir próf. Umsjónarmenn: Bryndis Jónsdóttir og Ólafur Magnús Magnússon. 17.40 Karlakórinn Þrestir syngur íslensk og erlend lög Stjórnandi: John Speight. (Hljóðritun frá tónleikum kórsins i Hafn- arfjarðarbiói 26. maí 1984). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1986 Bein útsending frá Björgvin í Noregi þar sem þessi árlega keppni fer nú fram j 31. sinn með þáttlöku 20 þjóða. Þorgeir Ástvaldsson lýsir keppninni. 21.35 „Ég var skilinn eftir á bryggjunni" Pétur Pétursson ræðir við Svein Ás- mundsson um vertíðir i Vestmannaeyj- um og leigubílaakstur í Reykjavík. (Hljóð- ritað skömmu fyrir lát Sveins). (Aður útvarpað 11. mars sl.) 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 ( hnotskurn Umsjón: Valgarður Ste- fánsson. Lesari með honum: Signý Páls- dóttir. (Frá Akureyri). 23.00 Harmoníkuþáttur Umsjón: Sigurður Alfonsson. 23.30 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marinósson. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00. 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi Sigurður Blöndal. 12.00 HLÉ 14.00 Laugardagur til lukku Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00 Listapopp i umsjá Gunnars Salvars- sonar. 17.00 Hringborðið Erna Arnardóttir stjórn- ar umræðuþætti um tónlist. 18.00 HLÉ. 20.00 Línur Stjórnandi: Heiðbjört Jóhann- esdóttir. 21.00 Milli striða Jón Gröndal kynnirdæg- urlög frá árunum 1920-1940. 22.00 Bárujárn Þáttur um þungarokk í umsjá Sigurðar Sverrissonar. 23.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur- jónsson. 24.00 Á næturvakt með Ólafi Má Björnssyni. 03.00 Dagskrárlok. Laugardagur 3. maí 16.00 (þróttir. UmsjónarmaðurBjarni Felix- son. 17.45 Búrabyggð (Fraggle Rock) Sextándi þáttur. Brúðumyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.10 Fréttaágrip á táknmáli. 18.15 Fréttir og veður. 18.45 Auglýsingar og dagskrá. 19.00 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1986. Bein útsending frá Grieg- höllinni í Björgvin þar sem þessi árlega kepþni er haldin i 31. sinn með þátttöku 20 þjóða. Islendingar taka nú þátt í keþpninni í fyrsta sinn með laginu „Gleði- bankinn" eftir Magnús Eiríksson. Kynnir: Áse Kleveland. Þorgeir Ástvaldsson lýsir keppninni sem einnig er útvarpað á Rás 1. (Évróvision - norska sjónvarpið). 21.45 Dagbókin hans Dadda (The Secret Diary of Adrian Mole Aged 13 3/4) Sjötti þáttur. Breskur myndaflokkur í sjö þáttum, gerður eftir bók Sue Townsends. Leikstjóri: Peter Sasdy. Aðalhlutverk Gian Sanmarco, Julie Walters, Stephen Moore og Beryl Reid. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.15 Reykur og Bófi (Smokey and the Bandit) Bandarísk bíómynd frá 1977. Leikstjóri Hal Needham. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Sally Field, Jackie Gleason og Jerry Reed. Harðsnúinn ökuþór tekur að sér að sækja vafasaman bjórtarm á mettíma. „Bófinn" þverbrýtur löglegan hámarkshraða og treður auk þess um tær lögreglustjóra sem veitir honum vægðarlausa eftirför. Þýðadi Ólaf- ur B. Guðnason. 23.50 Söngvakeppnin - Viðtal við sígur- vegarana. 00.10 Dagskráriok. Tilkynning um breyttan vinnutíma. Frá 1. maí til 30. september verður vinnutíma á skrifstofu Verslunardeildar Sambandsins í Holta- görðum hagað þannig: Opið frá kl. 8.30 til 17 mánudaga og þriðjudaga, til kl. 16.30 miðvikudaga og fimmtudaga og til kl. 15.30 föstudaga Samband ísl. samvinnufélaga Verslunardeild Holtagöröum Rvík Sími 81266 Atvinna Tvítug stúlka óskar eftir skrifstofuvinnu. Hef fjögurra ára reynslu sem ritari. Get byrjað strax. Óska eftir framtíðarstarfi. Upplýsingar í síma 77860 allan daginn. Lausar stöður Auglýstar eru til umsóknar eftirtaldar stöður starfsmanna á nýju sambýli fyrir fatlað fólk í Reykjavík. 1. Þroskaþjálfi. Fullt starf 2. Meðferðarfulltrúi. Fullt starf 3. Meðferðarfulltrúi. Hlutastarf Ráðgert er að heimilið taki til starfa þann 1. júlí nk. Unnið er á vöktum. Laun samkvæmt launakjörum opinberra starfs- manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist fyrir 15. maí nk. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Hátúni 10, 105 Reykjavík Dvöl í orlofshúsum Iðju Iðjufélagar sem óska eftir að dvelja í orlofshúsum félagsins í Svignaskarði, sumarið 1986, verða að hafa sótt um hús eigi síðar en fimmtudaginn 15. maí n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg 16. Einnig er hægt að sækja um símleiðis (símar 13082 og 12537). Dregið verður úr umsóknum á skrifstofu félagsins, föstudag- inn 16. maí kl. 16.00 og hafa umsækjendur rétt til að vera viðstaddir. Þeir Iðjufélagar, sem dvalist hafa í húsunum á undanförnum 3 árum, koma aðeins til greina ef ekki er fullbókað. Leigugjald verður kr. 3.000,- á viku. Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt hús til ráðstöfunar handa Iðjufélög- um, sem eru frá vinnu vegna veikinda eöa fötlunar, og verður það leigt án endurgjalds gegn framvísun læknisvottorðs. Stjórn Iðju. Styrkir til tónleikahalds utan Reykjavíkur 1986-87 Að tilhlutan Félags ísl. tónlistarmanna (FÍT) hefur mennta- málaráðuneytið veitt fé til stuðnings tónleikahaldi á lands- byggðinni veturinn 1986-87. Styrktir verða einleikarar/söngvarar eða kammerhópar, enda sé a.m.k. einn þátttakandi félagi í FÍT. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást hjá: Félag íslenskra tónlistarmanna b.t. Tónverks sf. Garðastræti 17-101 Reykjavík Umsóknir skal senda þangað fyrir 1. september 1986. -----------—----------------------------------1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.