Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 1
FARSÓTTANEFND hefur ver- ið skipuð af heilbrigðisráðherra og hefur nefndin það hlutverk að fylgjasl með farsóttum og leggja til aðgerðir til að hindra útbreiðslu þeirra. í nefndinni eru Ólafur Ólafsson landlæknir, Ólafur Steingrímsson læknir, Margrét Guðna- dóttir prófessor, Sigurður B. Þorsteinsson læknir, Haraldur Briem læknir, Hrafn Tul- inius prófessor og Skúli G. Johnsen borgarlæknir. VEIÐIMÁLASTJÓRI hefur verið ráðinn frá og með fyrsta júní, Árni ísaksson. Þór Guðjónsson lætur þá af embætti veiðimálastjóra. Árni er menntaður fiski- fræðingur og stundaoi nám í Seattle í Banda- ríkjunum. Hann hefur unnið við stofnunina síðan 1966. SÚPER-BENSÍN er nú á boð- stólum fyrir blikkbeljurnar hjá Olís, á fjórum stöðum í Reykjavík, Garðabæ, Selfossi og á Akureyri. Boðið verður upp á 97 oktan bensín auk hins venjulega 93 oktan bensíns. Super-bensínið verður á sama verði og það 93 oktan. Bensíngerð- irnar verða seldar úr tveimur dælum sem verða merktar þannig að fólk geti valið og viti hvað það er að kaupa, segir í fréttatil- kynningu frá Olís. FERÐAMÁLARÁÐ útskrifaði fyrir skömmu 30 nýja leiðsögumenn. I Félagi leiðsögumanna eru nú starfandi 160 leiðsögumenn, og munu hinir nýju leiðsögumenn bæta úr þeim skorti á þjálfuðum leiðsögumönnum sem verið hefur síðustu ár. Leiðsöguskólinn starfar allan veturinn, frá október til maíloka, og eru reglulegir fyrirlestrar haldnir tvisvar í viku. Ferðamálaráð hefur annast mennt- un og þjálfun leiðsögumanna síðan 1976. Forstöðumaður Leiðsöguskólans er Birna G. Bjarnleifsdóttir. RANNSÓKNAR- LÖGREGLAN vinnur enn að rannsókn svokallaðs Grensásvegsmáls. Yfirheyrslum yfir flestum málsaðilum er lokið, en beðið er eftir því að konan sem legið hefur á sjúkrahúsi nái sér það vel að hægt sé að yfirheyra hana. Fram að því er málið í biostöðu. KJARNORKUVOPNA- LAUST ísland samtökin, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að koma á reglubundnu eftirliti með geislavirkni á íslandi og í hafinu umhverfis landið. Jafnframt vilja samtökin að gengið sér úr skugga um að flugvélar og skip sem komi í íslenska lögsögu beri ekki kjarnorkuvopn eða annan þann bún- að sem ógnað gæti lífríki í hafi, lofti eða á landi. SOVESK stjórnvöld hafa vísað bandarískum stjórnarerindreka úr landi fyrir njósnir. Erik Sites heitir maðurinn og var hann handtekinn þann 7. maí síðast- liðinn. Sovéska fréttastofan Tass skýrði frá því í gær að enginn vafi léki á um njósnastarfsemi Sites sem var handtek- inn á leynifundi með sovéskum borgara. Talsmaður bandaríska sendiráosins sagði Sites þegar vera farinn úr landi. KRUMMI Davíð sér sjálfsagt fyrir sér vígslu Davíðsveitu á Ölfusvatni á aldar- afmæli sínu „Þjóðarátak í vegamálum“: 3-5 krónum dýrara að aka á malarvegi Matthías Bjarnason vill fylla alla íanka vegagerðarinnar af asfalti „Það er ekkert leyndarmál að ég hef flutt um það tillögu í ríkis- stjórninni að framlög til vegamála verði aukin, í ár og næstu tvö ár, með því að auka bensíngjaldið, þó án þess að hækka bensínið, heldur að frysta frckari lækkanir á því. Þetta hefur enn ekki verið afgreitt, en ég á von á því að af því verði bráðlega. Það hefur hinsvegar ekki verið hljómgrunnur fyrir að fara út í útboð á verðbréfunt, þar sent þau væru í samkeppni við annað fjár- magn á lánamarkaðinum og tækju þar af leiðandi fé sem áætlað hefur verið að nota i annað," sagði Matthías Bjarnason, samgöngu- ráðherra, þegarTíminn leitaði álits hans á tilboði Verkfræðingafélags- insum „Þjóðarátak í vegamálunt." Matthías bætti því við að nú væri mjög hagstætt að gera átak í vega- málum þar sem verð á asfalti hefði lækkað úr 195 dollurum tonnið í 100 dollara og þar sem mörg tæki til vegagerðar stæðu verkefnislaus væri hægt að fá góð tilboð í fram- kvæmdirnar. Hann sagðist telja að ríkisstjórnin ætti að grípa gæsina á meðan hún gefst, en ekki bíða með ákvarðanir þar til verðið hækkaði að nýju. Og Matthías bætti því við að hann vildi helst fylla alla tanka vegagerðarinnar af asfalti hið fyrsta. Samkvæmt könnunum sem gerð- ar hafa verið er 3-5 kr. dýrara að aka hvern kílómetra á góðum mal- arvegi en á vegi með bundnu slitlagi. í dag fer unt 40% af allri umferð á fslandi fram á malarveg- um, og því cr enn mikið verk og þarflegt framundan í vegamálum og það verður að öllum líkindum fjármagnað með bensíngjaldi. Fyrir hverja krónu sem tekin er af bensínverðinu fæst á ársgrundvelli urn 100 milljónir króna. Pálmi Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Verktakafélagsins, sagði að það væru sér vonbrigði ef ríkisstjórnin gengi ekki að tilboði félagsins, cn þaö væri viss sigur ef ríkið hygðist nota vegafram- kvæmdir til að eyða þeim holskefl- um sem verið hefðu í framkvæmd- um hér á landi. - gse Aflakóngur þriðja árið í röð „Við reynum bara að gera eins og við getum og þetta er árangur- inn,“ sagði Sigurður Georgsson, skipstjóri á Suðurey VE, sem hefur nú orðið aflakóngur á vetrarvertíð 3. árið í röð. Suðurey landaði í gær 22 tonnum og var þá komin með 1.430 tonna afla á vertíðinni, en nú tíðkast að miða lokin við 15. maí. „Jú, þetta er ægilegt púl, það ntá segja að þetta sé 15-18 tíma vinna á hverjum einasta degi,“ sagði Sigurður þegar hann var spurður hvort ekki væri ntikið fyrir þessu haft. Hásetahluturinn á Suðurey á vertíðinni varð um 600 þús. kr. og sagði Sigurður að það væri í raun- inni ótrúlega lítið og hann öfundaði ekki þá sem væru á bátum sem væru með þetta 400-500 tonn. Suðurey fékk 1.300 tonna kvóta, en útgerðarmaðurinn hefur keypt viöbótarkvóta, svo báturinn heldur áfram veiðum eitthvað fram eftir. Kaup Reykjavíkurborgar á Ölfusvatnslandi. Verður ekki virkjað þar fyrr en um miðja næstu öld? Aðrir staðir álitlegri til að leysa Nesjavallavirkjun af hólmi að mati Valdimars K. Jónssonar prófessors Nýtist jarðhitinn í landi Ölf- usvatns, sem Reykjavíkurborg keypti nýverið fyrir 72 milljónir króna á núvirði, ekki Hitaveitu Reykjavíkur fyrr en um miðja næstu öld? Samkvæmt spá hita- veitustjóra nýtist orkan frá Nesja- völlum til aldamóta, en niðurstöð- ur Orkuspárnefndar sem starfar á vegum Þjóðhagsstofnunar gefa tii kynna, að orkan þaðan geti enst mun lengur, eða til 2020. En að því tímabili liðnu kunna að verða aðrir staðir mun hagkvæmari til heita- vatnsöflunar en Ölfusvatnsland. Tíminn sneri sér f gær til Valdi- mars K. Jónssonar prófessors í vélaverkfræði við Háskóla íslands, sem sagði, að ýmislegt benti til þess að spá Orkuspárnefndar væri trúverðugri, a.m.k. teldi hann ástæðu til að ætla að þróunin yrði nær því sem hún gerði ráð fyrir. Valdimar sagði, að hversu lengi sem Nesjavallavirkjunin entist Reykvíkingum, væri mjög vafa- samt að slá því föstu að varmavirkj- un í landi Ölfusvatns verði besti kosturinn næst á eftir henni. „Benda má á,“ sagði Valdimar, „að á Kolviðarhóli hafa verið gerð- ar tilraunaboranir, sem lofa góðu. Sá staður er mun nær Reykjavík, og auk þess er landið þar þegar í eiguTleykjavíkurborgar." Valdimar sagði, að fleiri kostir væru fyrir hendi sem eðlilegt væri að skoða á undan Ölfusvatni. Þar nefndi hann jarðhitasvæðin á Álftanesi, Korpuósi í landi Korp- úlfsstaða, sem er í eigu Reykjavík- urborgar og í Kjósarskarði. Öll þessi svæði eru nær Reykjavík en Ölfusvatn og þótt tvö þeirra séu ekki í eigu Reykjavíkurborgarætti að vera auðvelt að semja um nýtingu þeirra við nágrannasveitar- félög. Þarna gæti verið um að ræða nægilegt heitt vatn fram til ársins 2050. Var þá engin þörf á kaupunum á Ölfusvatnslandi? „Það má spyrja sig þeirrar spurn- ingar hvort eðlilegt sé að núlifandi kynslóð sé að kaupa það land, auk þess sem engar tilraunaboranir hafa farið þar fram svo að við vitum ekki hvort við erum að kaupa köttinn í sekknum. Og ef við framreiknum kaupverð með vöxtum áratugi fram í tímann, þá komumst við auðvitað að því að raunverulegt kaupverð Ölfusvatns er langtum hærra en það sem upp er gefið,“ sagði Valdimar K. Jónsson. -JGK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.