Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 20

Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 20
Sykurlausar Hálstöflur Sveinn Grétar Jónsson skipar 6. sæti á lista Framsóknar- flokksins við borgarstjórnarkosn- ingarnar 31. maí 1986 Stuðningur við íþróttir p skapar heilbrigðaæsku X-D „Stjórnarkreppan" í Þróunarfelaginu: Valdatogstreita innan íhaldsins „Pað var eingöngu fyrir stofnfund- inn að ég féllst á að skipta atkvæðun- um á milli stjórnarflokkanna og það gafst mjög illa, eins og allir vita. Ég tel að það hafi verið mistök, því ríkisvaldið á að tala cinni röddu innan félagsins, en ekki tveimur eða þremur. Én ég ræddi við Þorstein Pálsson og bauð honum samstarf, m.a. að ég greiddi þeim manni, eða mönnum, atkvæði sem hann benti á. Hann hefur, eins og fram hcfur komið opinberlega, ekki viljað skipta sér að málefnum Próunarfé- lagsins. Svo mér finnst það vera dálítið undarlegt að lýsa því yfir annarsvega'r, en vilja hinsvegar ráðskast með helminginn af hluta- fénu. Það gengur nú ekki vel upp,“ sagði Seingrínnir Hcrmannsson, forsætisráðherra, þegarTíminn leit- aði álits lians á yfirlýsingum sjálf- stæðismanna eftir aðalfund Þróunar- félagsins á þriöjudaginn, þegar frest- að var kjöri stjórnar. Heimildarmenn Tímans telja að kreppan innan Þróunarfélagsins sé fyrst og fremst afleiöing valdabar- áttu sjálfstæðismanna. Davíð Schev- ing Thorsteinsson vildi hins vegar ekki viðurkenna það. „Iðnaðar- mafían vill fá sinn forustusauð inní stjórnina og sættir sig ekki við ein- hvern handverksmann. Eins er þjónustan ekki sátt við Björn, þó svo að hann reki endurskoðunar- skrifstofu. Og fiskurinn vill fá inn mann í stað Jóns Ingvasonar." Davíð sagðist hafa skrifað undir ósk um frestun á stjórnarkjöri til að forða félaginu frá meiri illindum en orðin væru og sagðist viss um að tíminn fram að stjórnarkjöri yrði notaður til að sætta alla aðila. Hann kvaðst eiga von á að ný stjórn yrði kosin einróma þcgar þar að kæmi. Aðspurður kvaðst forsætisráðherra ekki hafa hug á að skipta atkvæðun- um á milli stjórnarflokkanna fyrir kosningarnar, enda cfast unt að hann hefði heimild til þess. Hinsveg- ar vonaðist hann eftir samstarfi og taldi rétt að ríkið ætti tvo menn í stjórninni. - gse Þegar skipalestirnar koma að landi munu þcssi stæði og mörg önnur fyllast af glænýjum bílum. 3300 bílar seldir frá því að kjarasamningar voru gerðir: Skipalestir á leiðinni með hundruð bifreiða Náum sennilega Bandaríkjamönnum í bílaeign á þessu ári segirforstöðumaður Bifreiðaeftirlitsins Áburðarkaup svipuð og í fyrra: Bændurekki farnir að beraá tún sín Kuldatíð um að kenna um allt land Pantunir á áburð frá Áburðar- verksmiðju ríkisins eru samtals um 55.200 tonn en í fyrra voru þær um 60.700 tonn. Búið er að afgreiða mest allan áburðinn frá verksmiðju, en nú að undanförnu hafa borist aukapantanir frá bændum á Suðurlandi sem haldið hafa að sér höndum hingað til vegna óvissu um fullvirðisrétt, að sögn Þorsteins Þórðarsonar hjá Áburðarverksmiðjunni. Hann sagði einnig að bændur á Norður- og Austurlandi hefðu pantað um 5000 tonnum minna í ár en í fyrra og stafaði sá samdráttur mcðal annars af því að þeir ættu áburð síðan í fyrra. Svo virðist sem kaupfélögin út um land séu almennt ekki farin að afgreiða áburð til bænda. Ástæður til þess eru margar, m.a. að kuldi hefur ekki gert bændum kleift að byrja á að bera á og þungatakmarkanir hafa verið á vegum. Einnig þurfa kaupfélögin að geta sýnt Áburðarverksmiðj- unni fram á að þau geti staðið í skilum með greiðslur. Þar sem bændur keyra sjálfir áburðinn beint frá verksmiðju er sömu sógu að segja, þeir hafa ekki getað borið á tún hingað til vegna kulda. Bændur í Eyjafirði áttu fyrst kost á því í gær að leysa út áburð sinn og má því búast við að þeir fari nú hver af öðrum að bcra á tún sín. ABS Frá og með deginum í dag hafa verið skráðir 3.300 nýir bílar á íslandi frá því að kjarasamningar voru undirritaðir í lok febrúar. Flest bílaumboð hafa selt ársskammtinn nú þegar og af samtölum við sölu- menn hinna ýmsu bílaumboða má ráða að stórar skipalestir eru á leið til landsins drekkhlaðnar af hinum ýmsu bílategundum. „Ég býst við því að við förum fram úr Bandaríkjamönnum hvað snertir bílaeign miðað við höfðatölu á þessu ári. Þá hcfur ekki borið á því að mikið sé um afskráningar á gömlum bílum," sagði Guðni Karlsson for- stöðumaður Bifreiðaeftirlitsins í samtali við Tímann. Hann sagði að í gær hefðu unt hundrað nýir bílar verið skráðir og talsvert fleiri yrðu skráðir f dag. „Markaðurinn er eng- an veginn mcttaður. Skip eru á lcið til landsins með mikinn fjölda bíla og ég á von á því að nýskráningar aukist frekar en hitt,“ sagði Guðni. Það er víst að ntikið er á leiðinni af bílum. Skip kom á ytri höfnina í gær með 300 Lada bíla og eru flestir þeirra seldir. 210 Subaru bifreiðir koma til landsins í þessum mánuði og hafa þær allar verið seldar. Von er á rúmlega hundrað slíkum í viðbót í næsta mánuði og hafa þær einnig verið seldar. Stór Subaru sending er síðan væntanleg í næsta mánuði. „Þetta er líkast sturlun," sagði framkvæmdastjóri Jöfurs, Eyjólfur Brynjólfsson sem selur m.a. Skoda. „Við vorum búnir að selja 32 bíla fyrir lækkunina en höfum núna af- hent um 300 bíla. Það er okkar ársskammtur. Við höfum gert ráð- stafanir og eigum von á ntiklum fjölda bíla á næstunni. Þetta er líkast því að útsölu-manía hafi gripið fólk,“ sagði Eyjólfur. Hann sagði að fólk virtist hafa næga peninga handa á milli. „Fólk staðgreiðir mikið hjá okkur og það hefur komið fyrir að menn hafa keypt jafnvel tvo bíla.“ Bílasalar telja að þessi mikla sala muni hafa áhrif á sölu næsta árs, eða eins og Eyjólfur vildi orða það „Líklega verður öll þjóðin með timburmenn eftir þetta ár.“ Ekki er vitað hversu margir bílar munu koma til iandsins á næstu mánuðum en ljóst er að nú stefnir í mun betra ár fyrir bílainnflytjendur heldur en í fyrra. Afhentir hafa verið 3300 bílar, en allt árið í fyrra seldust rúmlega 5600 fólksbílar. Á tveimur og hálfum mánuði höfum við því keypt éúmlega helmingi fleiri fólksbíla en allt árið í fyrra. _ ES Slökkvilið Reykjavíkurflugvallar: Þarf daglega að reka fólk af flugbrautum Yfir sumarmánuðina er það dag- legur viðburður að Slökkvilið Reykjavíkurflugvallar þurfi að fjarlægja fólk sem tekur sér göngu- ferðir á og yfir flugbrautirnar á vellinum, sem tæpast nokkur ætti að vera í vafa um að er stórhættu- legt athæfi. Alls var t.d. um 44 slík tilvik að ræða í júlímánuði s.l. og yfir 30 í maí og júní, samkvæmt ársskýrslu slökkviliðsins. Alls voru tilvikin 213 á árinu, en einstakl- ingarnir a.m.k. helmingi fleiri. í slíkar hættuferðir leggja bæði ís- lendingar og útlendingar, börn og fullorðnir og hefur oft munað litlu að slys hlytust af að sögn slökkvi- liðsstjóra. Starf flugvallarslökkviliðsins er margþætt og hlutverk þess mun víðtækara en algengast er hjá slík- um slökkviliðum annarsstaðar, að sögn Péturs Einarssonar flugmála- stjóra, sem nýlega sagði á frétta- mannafundi að sér leiddist ákaf- lega öll sú gagnrýni sem slökkvilið- ið hefur legið undir. Auk daglegrar þjálfunar sér slökkviliðið um flugbrautar- skoðanir, bremsumælingar (sem gerðar voru 902 sinnum á síðasta ári), eftirlitsferðir um flugvallar- svæðið oft á hverjunt sólarhring, framkvæmd snjómoksturs, minni- háttar viðhald slökkvibíla og björg- unarbáts. Þá þjálfa slökkviliðs- menn hina ýmsu starfshópa sem starfa við flug, í eldvörnum og meðferð slökkvitækja. Sem dæmi um útköll á síðasta ári má nefna: 44 vegna flugvéla sem lenda bilaðar, 23 vegna elds í flugvélum og 15 útköll á neyðar- kerfi. í slökkviliðinu eru 17 manns sem vinna á fjórskiptum vöktum, 4 á hverri vakt. Tækjakostur er nt.a. 3 slökkvibílar, bíll með tækjum til hálkumælinga og gúmmíbjörgun- arbátur sem notaður hefur verið við björgun fólks úr Nauthólsvík. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.