Tíminn - 28.05.1986, Page 1

Tíminn - 28.05.1986, Page 1
SIGURÞÓR Guðmundsson, fv. aðalbókari Hafskips, hefur verið leystur úr gæsluvarðhaldi hálfum mánuði áður en gæsluvarðhaldsúrskurður hans rann á enda. Rannsókn málsins miðar vel áfram hjá rannsóknarlögreglunni og fer gagna- söfnun fram jafnhliða yfirheyrslum. Enn hefur enginn starfsmaður Útvegsbankans verið kallaður til yfirheyrslu. MAGNÚS JENSEN, skiP Grænlandsverslunarinnar er nú hér á landi í sinni fyrstu reglubundnu flutnings- ferð milli (slands og Grænlands. Skipið mun koma þrisvar sinnum til Islands í sumar á áætlunarferðum sínum, en það siglirá rútunni Grænland, Álaborg, ísland, Grænland . Meðal þess sem skipað var um borð í skipið í gær voru ýmiss konar veiðarfæri, fiskikassar og sement. BÆJARSTJÓRNIN á Akureyri samþykkti á fundi sínum í gær tillögu frá bæjarráði þess efnis að kennurum með kennsluréttindi verði greiddur flutnings- styrkur úr bæjarsjóði og liðkað verði til um húsnæði handa þeim ef þeir flytjist til Akureyrar. Flutningsstyrkurinn nemur kr. 12 þúsund ef viðkomandi kennari flytur innan Norðurlands, en 20 þúsund frá öðrum landshlutum. Jafnframt var ákveð- ið að bærinn auglýsi nú þegar eftir leiguhúsnæði sem síðan veroi framleiat þessum kennurum. Aðspurður sagði Helgi Bergs bæjarstjóri að þetta húsnæði yrði ekki niðurgreitt, en gripið hafði verið til þessa ráðs til að reyna að laða réttindakennara til bæjarins. JON PALL Sigmarsson aflrauna- maður er ekkj lengur í keppnisbanni eins og lyfjanefnd ÍSÍ úrskurðaði hann i, þegar hann mætti ekki í lyfjapróf í fyrra. Bæjar- þing Reykjavíkur úrskurðaði að lyfjanefnd hefði ekki lögsögu yfir meðlimum Kraftlyft- ingasambandsins. Lyfjanefnd hyggst áfrýja úrskurðinum til Hæstaréttar. TRYGGINGASKÓLANUM var nýlega slitið og prófskírteini afhent þeim 43 nemendum sem luku prófi þaðan í vetur. T ryggingaskólinn hefur verið starf- ræktur síðan 1962 og er það Samband íslenskra tryggingafélaga sem starfrækir hann. Fræðslan er veitt í formi námskeiða á sviði vátrygginga og vátryggingarekstr- ar og fræðslufunda um afmörkuð efni. Fjöldi prófskírteina frá því Tryggingaskól- inn var stofnaður er nú orðinn 601. KARLINN í tunglinu heitir nýr skemmtistaður fyrir unglinga sem nýlega var opnaður að Skemmuvegi 34a í Kópa- vogi. Opið verður á föstudögum frá klukk- an 22 og fram eftir nóttu fyrir unglinga á aldrinum 16-20 ára. Eftir dansleiki munu rúturganga í helstu hverfi Reykjavíkurog Kópavogs, svoog í nágrannabyggðalögin ef þörf krefur. LOÐNUVEIÐAR má hefja þann 20. júlí í sumar, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Skipting heildarloðnukvótans verður með sama sniði og undanfarin ár, eða að 67% kvótans skiptist jafnt niður á skipin en 33% verður útdeilt í hlutfalli við burðar- getu þeirra. Fyrst um sinn verða loðnuveiðar bann- aðar sunnan við 68°N, en það er gert til að vernda smáloðnu á svæðinu. Fylgst verður með ástandi á svæðinu og það opnað ef stærð loðnunnar þar leyfir. Loðnukvótinn í sumar veður 800 þúsund tonn, en að loknum frekari rannsóknum í haust verður ákvörðun tekin um viðbótar- kvóta. ABS ÞORSTEINN Pálsson tók nýlega fyrstu skóflustunguna að 190m2 eininga- húsum að Sólheimum í Grímsnesi. f hvoru húsi er rúmgóð vistarvera fyrir 6 vistmenn auk lítiilar starfsmannaíbúðar. Styrktarsjóður Sólheima stendur að bygg- ingu húsanna. Arkitektar eru Árni Friðriks- son og Páll Gunnlaugsson. Reikningar Granda hf.: Ekki lagðir fram fyrir kosningar Borgarstióri neitaði borgarráðsmanni um reikningana á fundi borgarráðs í gær - Þröstur Ólafsson þegir líka Á borgarráðsfundi í gær neitaði Davíð Oddsson borgarstjóri Kristjáni Benediktssyni borgar- ráðsmanni um að fá reikninga Granda hf. fyrir þann tíma, sem fyrirtækið starfaði á síðasta ári. Sagði borgarstjóri beiðnina of seint fram komna og lýsti jafnframt yfir að reikningarnir yrðu lagðir fram á næsta borgarráðsfundi, sem verður haldinn á þriðjudaginn kemur, eft- ir kosningar. Eins og fram kom í Tímanum í gær var aðalfundur Granda hf. haldinn 16. maí s.l., en ekkert hafði verið greint frá honum í fjölmiðlum fyrr, og stjórnarfor- maður Granda hf., Ragnar Júlíusson, hafði neitað að staðfesta það við blaðamann Tímans, og einnig Kristján Benediktsson, að fundurinn hefði verið haldinn. Kristján Benediktsson lagði fram bókun þar sem hann mót- mælti ákvörðun borgarstjóra. Borgarstjóri lýsti því yfir að fram- kvæmdastjóri Granda hf. myndi skýra reikningana fyrir borgarráðs- mönnunt á þriðjudaginn, en hann er nú staddur erlendis. „Ef fulltrúar eigenda vilja ekki gefa út upplýsingar, þá er það á þeirra ábyrgð, ég tel það ekki vera mitt hlutvcrk," sagði Þröstur Ólafsson stjórnarmaður í Granda hf. í gær. JGK Davíð Oddsson borgarstjóri neit- aði Kristjáni Benediktssyni um reikninga Granda. Borgarfulltrúar fá ekki að skoða þá fyrir kosningar. Tímamynd Sverrir Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar H.Í.: Steingrímur vinsælastur sem forsætisráðherra - þegar 1116 manns voru spurðir hver úr hópi íslenskra stjórnmálamanna ætti að vera forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson nýtur mikils trausts sem forsætisráðherra, ef marka má þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar. Borin var fram spurningin „Hver úr hópi íslenskra stjórnmálamanna vildir þú helst að væri forsætisráðherra?" 29,4% prósent af þeim sem tóku afstöðu vildu Steingrím helstan sem forsætisráðherra. 18,3% vildu Jón Baldvin fékk atkvæði 9,8% þeirra sem afstöðu tóku. Þorstein Pálsson helst sem forsætis- ráðherra. 9,8% vildu Jón Baldvin Hannibalsson. Aðrir stjórnmála- menn fengu minna fylgi. Úrtakið var 1500 manns á aldrin- um 18-80 ára, en þar af svöruðu 1116. „Veit ekki“ sögðu 390 eða 34,9%. „Enginn" sögðu 90 eða 8,1%. „Neita að svara“ sögðu 57 eða 5,1%. Þorsteinn Pálsson fékk atkvæði 18,3% þeirra sem afstöðu tóku í þjóömálakönnuninni. Þegar litið er til kynskiptingar, meðal þeirra sem tók afstöðu, kemur í Ijós að Steingrímur hefur mikið fylgi meðal kvenna. 36% kvenna vilja Steingrím Hermanns- son helst sem forsætisráðherra og; 25% karla. Þorstein Pálsson vildu I 15% kvenna og 21% karla. Jón Baldvin Hannibalsson og aðrir voru með minna fylgi. Við aldursskiptingu kemur í ljós að Steingrímur Hermannsson nýt- ur mests fylgir meðal yngsta hóps kjósenda, eða 32% þeirra sem tóku afstöðu á aldrinum 18-24 ára. Þessu var þveröfugt farið með Þorstein Pálsson, en hans fylgi er mest meðal elstu hópa kjósenda,, frá 45 ára til áttrætts. Meðal þeirra sem tóku afstöðu, | hlaut Steingrímur áberandi meira1 fylgi úti á landsbyggðinni en í Reykjavík og Reykjanesi, eða 37% úti á landi á móti 21% í Reykjavík og 31% á Reykjanesi. í Reykjavík voru jafn margir sem vildu Steingrím Hermannsson og Þorstein Pálsson sem forsætisráð-( herra eða 21% þeirra sem tóku afstöðu. - ES/BG Flestir þeirra sem tóku afstöðu vilja Steingrím sem forsætisráð- herra, eða 29,4%.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.