Tíminn - 28.05.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
ið sífettt
er kipp‘
Staupa-
steinn
búinn
að vera!
Díana hætt
^Djónvarpsframhaldsflokkurinn Staupa-
steinn (Cheers), sent íslendingum er aö góðu
kunnur, hefur notið mikilla og sívaxandi
vinsælda í heimalandi sínu Bandaríkjunum.
En nú virðast dagar þessarar framhaldsmyndar
taldir.
Shelley Long setti stóran svip á þættina í
hlutverki Díönu og það er erfitt að sjá hvernig
Staupasteinn gæti haldið lífi án hennar. En það
er einmitt hún, sem hefur nú gengið úr skaftinu
og sagt skilið við þáttinn, þrátt fyrir að
framleiðendurnir hafi boðið henni gull og
græna skóga fyrir áframhaldandi þátttöku, eða
nánar tiltekið hálfrar milljón dollara launa-
hækkun á ári. úr 1,1 milljón í 1,6 milljón
dollara árslaun.
Shelley er nýbökuð móðir og setur móður-
hlutverkið ofar öllu þessa dagana. Hún segir
að ekkert fái haggað þeirri ákvörðun sinni að
vera heima og sinna barninu og eiginmannin-
um á næstunni. Framleiðendur Staupasteins
rífa hins vegar hár sitt í örvæntingu og reyna
að finna mótleik.
Það má segja um þá sem setjast í þessa
sérkennilcgu stóla, að þeirséu í góðum höndum.
Ef einhver hefur áhuga á að prófa að sitja í
stórum steinlófa og láta fara vel um sig, þá er
þessa stóla að finna í spænskum almennings-
garði, nánari tiltekið í Laredo á Spáni.
Þessi Ijóshærða kona gæti alveg eins verið
Spánverji, þrátt fyrir háralitinn, því hann er nú
svo breytilegur á þessuirx síðustu tímum. Henni
veitir greinilega ckki af að hvíla sig, á banda-
skónt með svona pinnaháum hælum.
Eins og fyrri daginn er vinkona Dudleys
Moore höfðinu hærri en hann, en það
þykir ekkert fréttnæmt. Hann er sjálfur
með lágvaxnari mönnum, - en hefur alltaf
helst hrifist af stórum stúlkum.
Dudley
vill stórar
stelpur
Einu sinni enn hefur leikarinn Dudley
Moore fengið sér nýja vinkonu, Brogan
Lane heitir hún og sópar að þessu glæsi-
kvendi hvar sem hún fer. Hún þykir
nokkuð „pönkaraleg", og fylgdi mynda-
textanum í ensku blaði, að hún væri með
alla vega Iitt hár, m.a. eplagrænt!
Hvað um það, - Dudley segir að þetta
sé stóra ástin í lífi sínu, og má það vel vera.
Að minnsta kosti er hún stór....
Miðvikudagur 28. maí 1986
illlllllllllllllllli ÚTLÖND llllllllllllllllillll
FRÉTTAYFIRLIT
AUSTUR-BERLÍN - I
gær bárust fréttir um að
Bandaríkin, Bretland og Frakk-
land hefðu í hyggju að slíta
stjórnmálasambandi við A-
Þýskaland vegna kröfu um að
stjórnarerindrekar ríkjanna
þriggja sýni vegabréf þar sem
borginni er skipt. Samkvæmt
heimildum í Bonn hafa, ríkis-
stjórnir landanna þó ekki rætt
saman um möguleikann á
stjórnmálaslitum og varla þykir
líklegtað slíkt skref verði tekið.
JERÚSALEM - Margaret
Thatcher forsætisráðherra
Bretlands hvatti til, \ lok heim-
sóknar sinnar til ísraels, að
Palestínuarabar á herteknu
svæðunum við Vesturbakkann
og Gaza fengu aö kjósa sér
fulltrúa sem færu með mál
þeirra í friðarviðræðum.
DACCA — Björgunarsveitir
notuðu fiskinet til að ná rúm-
lega 200 líkum á land eftir
verstaferjuslysið í Bangladesh
þar sem um 600 manns voru
taldir hafa farist. Ferjan Samia
fórst síðastliðinn sunnudag á
Maghnaánni með um þúsund
manns innanborðs. Ofsaveður
geisaði þá á þessum slóðum.
HELSINKI — Deila sem leit
út fyrir að valda falli sam-
steypustjórnarinnar í Finnlandi
er úti að sinni eftir að einn
stjórnarflokkanna hætti við til-
löguflutning sem hefði getað
valdið afsögn Kalevi Sorsa
forsætisráðherra. Hinirsautján
þingmenn Dreifbýlisflokksins
hafa hætt við að berja fram
tillögu á þingi sem gerir ráð
fyrir að kjarnorkunotkun í land-
inu verði úr sögunni fyrir árið
2000.
MOSKVA - Mikhail Gorbat-
sjov leiðtogi Sovétríkjanna átti
viðræður við Abdel Salam Jal-
loud, næst æðsta valdamanninn
í Líbýu á eftir Muammar Gadd-
afi. Jalloud er fyrsti háttsetti
líbýski embættismaðurinn sem
kemur til Moskvu eftir árás
Bandaríkjamanna . í Líbýu í
síðasta mánuði.
BANKOK - Forsætisráð-
herra hinnar borgaralegu
stjórnar í Thailandi rak yfir-
mann hersins úr starfi sínu og í
gærmorgun bárust fréttir um
yfirvofandi valdatöku hersins.
Arthit Kamlang-Ek hershöfð-
ingi dró þó úr spennunni sjálfur
þegar hann sagðist ætla að
taka skipaninni og lýsti yfir
hollustu sinni við Bhumibol
Adulyadej konung.
AMMAN — Að sögn vest-
rænna stjórnarerindreka reynir
Hussein Jórdaníukonungur nú
að koma á sáttarviðræðum
milli forseta Sýrlands og íraks
í því skyni að hægt sé að halda
ráðstefnu arabaríkjanna á
næstunni.
TOKYO — Japan tók við af
Bretlandi á síðasta ári sem
heimsins stærsti skuldareig-
andi og útvegar nú Bandaríkja-
stjórn mest af því fjármagni
sem hún þarfnast.