Tíminn - 28.05.1986, Blaðsíða 10

Tíminn - 28.05.1986, Blaðsíða 10
Hestamenn Hestamannafélagið Geysir heldur félagsmót á Rangárbökkum 7. og 8. júní. Dagskrá: Gæðingakeppni í A og B flokk. Einnig er keppt í unglingaflokkum 12 ára og yngri og 13 til 15 ára. Efstu hestar í hverjum flokki munu öðlast rétttil að keppa fyrir félagið á landsmóti á Hellu 3. til 6. júlí. Kappreiðar verða í öllum helstu keppnisgreinum og er þar kjörið tækifæri til að ná lágmarkstíma fyrir landsmót. Skráning fer fram í símum 99-5525, 99-8269 og 99-8330. Skráningu lýkur að kvöldi þriðjudagsins 3. júní. Laugardagskvöldið 7. júní verður hestamanna- dansleikur að Hvoli. Hljómsveitin Rocket leikur fyrir dansi. Stjórnin. og 'VV/A Sm x VEGAGERÐIN UtDOÖ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í nýbygg ingu vega við Egilsstaði og Fellabæ. (Lengd alls 3,23 km, sprengingar 5.800 m3 fyllingar og burðarlag 55.000 m3). Verkum skal lokið fyrir 1. október 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavíkfráog með29. maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 16. júní 1986. Vegamálastjóri. Ég þakka hjartanlega öllum þeim, sem glöddu mig vegna áttræðisafmælis míns 11. apríl s.l. Sólveig Guðmundsdóttir, frá Snartarstöðum. Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Ókeypis þjónusta Tíminn 18300 Tíminn LATTU Timanri EKKl FLJÚGA FRÁ PÉR ÁSKRIFTARSÍMI 686300 BILALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.91-31815/686915 AKUREYRI:...96-21715/23515 BORGARNES:.........93-7618 BLÖNDUÓS:.....95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: .95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:......96-71489 HÚSAVÍK:....96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...... 97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ..97-8303 interRent TIL SOLU mjög fallegt nýtísku hjóna- rúm, aðeins 5 mánaða gamalt. Uppl í síma 687599. Betra er að fara seinna yfir akbraut en of snemma. 10 Tíminn Miðvikudagur 28. maí 1986 Miðvikudagur 28. maí 1986 Tíminn 11 ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllli Þaö dugir lítið að spila áferðarfallegan fótbolta úti á vellinum og sýna allskonar kúnstir ef allt verður síðan að bráðnu smjöri er nálgast markið. Þetta fengu þeir sárafáu áhorfendur á Laugardalsvelli í gærkvöldi að sjá er írar unnu Tékka með marki - glæsilegu mjög - frá Frank Stapleton. Tékkar spiluöu mjög áferðarfal- legan fótbolta út á vellinum og fóru þar grátt með þunga írana. En er nær dró markinu þá rann nánast allt í eitt smjörlíki hjá Tékkunum. Þeir náðu aldrei að ógna markinu verulega og oftast vildu þeir spila inní markið og út aftur. Það gekk ekki gegn sterkum Irum sem komu öllum „dúkkuspilsboltum“ í burtu. írar fengu fyrsta færið í leiknum og líka það síðasta. Það fyrsta var frábært. Aldridge fékk boltann beint á hausinn innundir markteig en skallaði beint á markvörðinn. Síðasta færið í leiknum gaf mark. Þá óð Frank Stapleton að marki Tékka eftir að hafa unnið boltann á miðjum vellinum. Þegar hann átti ófarna um 20 metra þá lét hann skotið ríða af. Boltinn þeyttist einfaldlega rétt undir slána og í netið - óverjandi fyrir góðan markvörð Tékka. Færi Tékka voru telj- andi á fingrum annarrar handar. Besta færið kom eftir miðjan seinni hálfleik en Knofl- icek komst aleinn í gegn en renndi boltanum framhjá markinu. Þetta var skömmu eftir að írar höfðu fengið gullið tækifæri til að komast yfir er einn Tékk- anna handlék boltann inní vítateig og Óli Ólsen dæmdi víti. Aldridge lét markvörð- inn hinsvegar verja frá sér. Þarna sluppu Tékkar með skrekkinn. Þeir sluppu hins- vegar ekki frá skoti Stapletons á 83. mínútu. Ef litið er á leikinn sem heild þá voru Tékkarnir mun meira með boltann og létu hann ganga mjög vel á milli sín út á vellinum. írarnir bökkuðu hinsvegar vel og vörðust af krafti við vítateig sinn. Sóknir Tékka urðu þannig máttlausar og hefðu þeir gjarnan mátt skjóta á markið í eitt til tvö skipti eða gefa boltann fyrir til tilbreytingar frá stutta spilinu inn undir teig. Irar eru þar með sigurvegarar á Reykja- víkurleikunum og íslendingar og Tékkar berjast um annað sætið á morgun, fimmtu- dag, kl. 19:00 á Laugardalsvellinum. NM fatlaðra í boccia: ísland í fjórða sæti Um síðustu helgi fór fram í Kaup- mannahöfn Norðurlandamót fatlaðra í boccia. Alls tóku sex íslenskir þátttakend- ur þátt í mótinu og kepptu þeir allir í einstaklmgs- og sveitakeppnL í sveitakeppninni tóku alls þátt 14 sveitir þar af 2 íslenskar. Var þeim skipt í tvo sjö sveitariðla. Önnur íslenska sveitin sigraði í sínum riðli og komst þannig í úrslit ásamt 6 öðrum sveitum. I úrslita- keppninni lenti íslenska svcitin í fjórða sæti á eftir þremur dönskum sveitum. Alls spilaði þessi sveit 11 leiki á mótinu. Hún sigraði í 6 leikjum, gerði 1 jafntefli og tapaði 4 Ieikjum. Hin íslenska sveitin hafnaði í fimmta sæti í sínum riðli og komst ekki í úrslit. f einstaklingskeppninni voru keppend- ur 27 talsins og var þeim skipt í 7 fjögurra manna riðla. Tveir keppendur úr hverjum riðli komust í milliriðla og tókst þremur íslendingum þeim Sigurði Björnssyni, Tryggva Haraldssyni og Hauki Gunnars- syni að tryggja sér sæti í milliriðlum. Aðeins Sigurði tókst að komast alla leið í úrslit og að lokum hafnaði hann í 6. sæti. Júlíus Hafstein afhendir hér Jóni Hjaltalín Magnússyni nýjan bikar til keppni á fslandsmótinu í handknattleik. Bikarinn gefur Reykjavíkurborg í tilefni af 200 ára afmæli sínu. Jón Hjaltalín var endurkjörinn formaður HSÍ á þingi sambandsins um helgina. Tímamynd Pélur Paul McGrath á hér þrumuskot að tékkneska markinu sem Miklosko markvörður varði mjög vel. Hann varði einnig vítaspymu frá Aldridge í leiknum. Tímamynd Pétur Reykjavíkurleikarnir í knattspyrnu, Írland-Tékkóslóvakía: Glæsimark Stap færði írum sigurinn - Tékkar spiluöu vel úti á vellinum en ógnuðu lítiö og írar sáu um eina mark leiksins - þar meö er Reykjavíkurbikarinn þeirra Úrslitakeppni bandaríska körfuknattleiksins: Boston byrjar vel Reynslan færöi liðinu góöan sigur á Rockets í fyrsta leik liöanna Boston Celtics sigruðu Houston Rockets í fyrstu viðureign liðanna um bandaríska meistaratitilinn í körfu- knattleik. Leikurinn fór fram í Bost- on Gardens í Boston og endaði 112-110. Boston hafa unnið 45 leiki í The Gardens á þessu tímabili en aðeins tapað einu sinni. Vendipunkturinn í leiknum að- faranótt mánudagsins var í lok þriðju lotu er Akeem „The Dream'" Olajuwon fékk sína fimmtu villu og var rekinn útaf. Þá skildu aðeins fimm stig liðin en eftir það var eftirleikurinn auðveldur hjá Boston. Robert Parish varð stigahæstur hjá Celtics með 23 stig en Bird og McHale skoruðu 21 stig. Þá gerði varasenterinn Bill Walton 10 stig en hann hefur aukið mjög á breiddina í liði Celtics á þessu tímabili. Hjá Rockets var Olajuwon langstigahæst- ur með 33 stig en hann er talinn sá efnilegasti í NBA-deildinni um þess- ar mundir, aðens 23 ára gamall. Reynsla Celtics-leikmanna vóg þungt á metunum í leiknum en allir, fyrir utan Walton, tóku þátt í úrslita- keppninni í fyrra þegar Celtics töp- uðu fyrir L.A. Lakers. Sú skemmti- lega tilviljun kom upp í þessari keppni Celtics og Houston að þálfari Houston er Bill Fitch sem þjálfaði Celtics er þeir unnu meistaratitilinn árið 1981 enþávoruandstæðingarnir einmitt Houston Rockets. Næsti leikur liðanna er annað kvöld. Hópfimleikar: Pardusarnir unnu Laugardaginn 24. maí fór fram í fyrsta sinn á íslandi keppni hópa í fimleikum. Keppni í þessari grein fimleika hefur verið stunduð oft hjá nágrannaþjóðum okkar og verið haldið Norðuriandamót 3 sinnum. 10 hópar tóku þátt í keppninni að þessu sinni og var mikil ánægja hjá þátttakendum sem komu frá Glímu- félaginu Ármanni, Iþróttafélaginu Fylki, íþróttafélaginu Gerplu, Fim- leikafélaginu Björk, Stjörnunni í Garðabæ, og hópur frá íþrótta- bandalagi Vestmannaeyja. Dómarar gáfu stig eftir reglum sem dæmt er eftir á Norðurlöndum. Hópur Stjörnunnar í Garðabæ sem kallar sig Pardusana fékk flest stigin, þær fengu til eignar bikar sem Puma umboðið gaf til keppninnar. Pardusarnir eru 19 stúlkur undir stjórn þjálfara Önnu Borg, þær voru án vafa best æfði hópurinn og sýndu M0LAR ■ Þjálfari Sovétmanna í knatt- spyrnu, Valery Lobanovsky, hef- ur látið í Ijós þá skoðun sína að rétt væri fyrir Sovétmenn að taka upp atvinnumennsku í knatt- spymu. Hann sagði að það myndi efla íþróttina og væri hvort eð er ekki mikil breyting vegna þess að allir leikmenn sem eitthvað geta væru atvinnumcnn hvort eð er þó þeir væru stimplaðir áhugamenn. Hann vill að liðin fái að stjórna sínum gerðum meira en nú er og sjá um sín fjármál einnig en þau eru nú rekin með styrkjum frá ríkisíþróttamaskínunni í Sovét. ■ Franska liðið Marseilles hef- ur gert samning við frönsku lands- liðsmennina Bemard Genghini og Albert Rust um að leika með félaginu næsta keppnistímabil. Þetta eru ekki fyrstu kaup Mar- seilles á leikmönnum því áður hafði Jean-Pierra Papin verið keyptur svo og þjálfarinn Ban- ide og framkvæmdastjórinn Mic- hel Hidalgo, sá er sá um franska landsliðið áður. ■ Liðið Hapoel frá Tel Aviv tryggði sér deildarmcistaratitil í ísrael með sigri á Haifa Maccabi 1-0 í lokaumferð deildarkeppn- innar um helgina. Það var Gil Landau sem skoraði eina mark leiksins rétt fyrir leikslok. ■ PSV tókst aðeins að ná jafn- tefli í holiensku deildarkeppninni um helgina en skoraði þó eitt mark í leiknum gegn Utrecht og var það 100. mark liðsins á keppnistímabilinu. PSV er þegar búið að vinna meistaratitilinn þar í landi. Þrátt fyrir að liðið sé búið að skora 100 mörk þá hefur Ajax gert betur í deildinni með því að skora 120 mörk í 34 leikjum. ■ Knattspyrnuliðið Nígería Bank sem er styrkt af samnefnd- um banka hefur fengið skipun frá yfirvöldum bankans um að vinna næsta leik eða missa helming af launum ella. Liðið, sem varð meistari í Nígeríu í fyrra, hefur aðeins unnið einn leik af 13 á nýbyrjuðu keppnistímabili í Níg- mikla leikgleði, og sannast á að áhorfendur sem voru fjölmargir völdu Pardusana vinsælasta hópinn, og fengu þær bangsa í verðlaun. Það er von okkar að þessi keppni verði árviss viðburður og að ekki líði á löngu að við getum tekið þátt í Norðurlandakeppni í hópfimleik- Mjólkurbikarinn Nokkrir leikir voru í Mjólkur- bikarkeppni KSI í knattspyrnu í gærkvöldi. Tíminn hafði upp á tvennum úrslitum en tveimur leikj- um seinkaði mjög og ekki náðist í aðra. Nú Austrí vann Hött a Egilsstöðum með marki Kristjáns Svavarssonar og Þróttur vann Huginn í Neskaupstað með 3 mörkum Sigurðar Fríðjónssonar gegn tveimur frá Seyðfirðingum. Hattarmenn kváðu hafa verið betri í leiknum við Austra en Þróttarar komust í 3-1 áður en Seyðfirðingar skoruðu úr víti á lokamínútunni. Theódór endurráðinn Þeir eru kátir í kampinn Ainge, Bird og Johnson hjá Celtics eftir sigurinn á Rockets. Theódór Sigurðsson fyrrverandi leikmaður úr FH hefur verið endur- ráðinn sem þjálfari handknattleiks- liðs ÍBK sem vann sig upp í 2. deild undir hans stjórn sl. tímabil. Eins og kunnugt er var þetta fyrsta tímabil hans með ÍBK og gekk það vonum framar, því liðið tapaði aðeins þrem leikjum af 24 yfir tímabilið í íslands- mótinu og er það mjög góður árang- ur. Reikna má með að ÍBK komi sterkir til leiks næstk. tímabil því þeir missa engan leikmann og fá einhverja í viðbót eftir áreiðanlegum heimildum. Leikir í kvöld í kvöld hefst keppni í 1. deild kvenna á Íslandsmótinu í knatt- spyrnu með leik UBK og Vals í Kópavogi kl. 20.00. Þá verður spilað í 2. deild kvenna og í Mjólkurbikarkeppni KSÍ. Þæreru meiriháttargóðarnýju Goðapylsumar á grillið eð’í pottinn og svo og bragðið þaðhrífur já minnamánúsjá. á WU Pl<& WtUiRNM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.