Tíminn - 28.05.1986, Blaðsíða 12

Tíminn - 28.05.1986, Blaðsíða 12
12 Tíminn Auglýsing um almenna skoðun ökutækja í Reykjavík 1986 Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar 1986 sem hér segir: 1. Eftirtalin ökutæki sem skráð eru 1985 eða fyrr: a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga. b. Bifreiðir, er flytja mega 8 farþega eða fleiri. c. Leigubifreiðir til mannflutninga. d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu í atvinnu skyni án ökumanns. e. Kennslubifreiðir. f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir. g. Tengi- og festivagnar, sem eru meira en 1500 kg að leyfðri heildarþyngd. 2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1 sem skráðar eru nýjar og í fyrsta sinn 1983 eða fyrr. Sama gildir um bifhjól. Auglýsing um skoðun léttra bifhjóla verður birt síðar. Skoðun fer fram virka daga aðra en laugardaga frá kl. 08.00 til 16.00 hjá bifreiðaeftirliti ríkisins, Bíldshöfða 8, Reykjavík, á tímabilinu frá 2. júní til 10. október. 2. júní-30. júní R-50001 -R-60000 25. ágúst-29. ágúst R-60001-R-62000 1. sept.-30. sept. R-62001 -R-70000 1. okt.-10. okt. R-70001 -R-74000 Við skoðun skulu ökumenn leggja fram gild ökuskírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðarskatts og vottorð um að vátrygging ökutækis sé í gildi. Skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Á leigu- bifreiðum skal var sérstakt merki með bókstafnum L, einnig gjaldmælir sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tíma. I skráningarskírteini skal vera áritun um það að aðalljós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31. júlí 1985. Lögreglustjórinn í Reykjavík. 26. maí 1986. Böðvar Bragason. Auglýsing um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Mánudagur 26. maí R-1 til R-500 Þriðjudagur 27. maí R-501 til R-800 Miðvikudagur 28. maí R-801 til R-1100 Fimmtudagur 29. maí R-1101 til R-1300 Föstudagur 30. maí R-1301 og yfir. Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga við bifreiðaeftirlitið að Bíldshöfða8, kl. 08.00 til 16.00. Sýna ber við skoðun að lögboðin vátrygging sé í gildi. Tryggingargjald ökumanns og skoðunargjald ber að greiða við skoðun. Skoðun hjóla sem eru í notkun í borginni er skrásett eru í öðrum umdæmum fer fram fyrr- nefnda daga. Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. 22. maí 1986. Lögreglustjórinn í Reykjavík. Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd gatnamálastjórans í Reykjavík óskar eftir tilboöum í lagningu holræsa í fyllingu norðan Sætúns milli Höföatúns og Kringlumýrarbrautar. Verk þetta nefnist Sætúnsræsi, 2 áfangi. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama staö þriðjudaginn 3. júní kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frfltirkjuvcgi 3 — Sími 35800 lllllllllllllllllllllllllll Miðvikudagur 28. maí 1986 Umræður um launakjör og af- komu íslenskra launþega í saman- burði við launþega annarra þjóða má oft sjá og heyra bæði í fjölmiðium og ekki síður manna á milli og virðast margir þeirrar skoðunar að almennt stöndum við illa í slíkum samanburði. Fleiri virðast forvitnir um þetta efni en við íslendingar. „Hvernig eru almenn lífskjör Breta í saman- burði við hinar Efnahagsbandalags- þjóðirnar, nú eftir 13 ára veru f EBE? Þessari spurningu þótti blaða- konu við vikublaðið Woman for- vitnilegt að leita svara við. Og svörin sem hún fékk virðast einnig geta verið fróðleg fyrir okkur. í saman- burðarhóp sinn leitaði blaðakonan uppi fjölskyldur í 6 EBE landanna: Bretlandi, V-Þýskalandi, Spáni, ít- alíu, Belgíu og Frakklandi. Þær áttu það sameiginlegt að eiginmennirnir unnu allir í bílaverksmiðjum í við- komandi löndum og voru á svipuð- um aldri, eða 33-43ja ára. í tekjusamanburðinum er þó mið- að við heildarfjölskyldutekjur, þ.e. að tekjum eiginkvennanna meðtöld- um, sem allar utan ein unnu utan heimilis í 40% til 100% starfi. Reiknað samkvæmt gengi nú í maí er meira en tvöfaldur tekjumun- ur milli fjölskyldnanna. Aftur á móti kemur í ljós að mat þeirra á eigin afkomu var síður en svo í réttu hlutfalli í sumum tilfellum. Þannig virtist þýska fjölskyldan bera sig einna verst, þrátt fyrir hæstu tekj- urnar. Athyglisvert er að sjá hve hús- næðiskostnaður var gífurlega mis- munandi hjá þessum 6 fjölskyldum, eða allt að tífaldur munur í krónum talið. Þótt bresku og frönsku fjöl- skyldurnar virðist t.d. búa í svipuð- um húsum, keyptum á álíka heildar- verði, þarf sú franska að borga yfir fjórum sinnum meira í afborgun og vexti. Fyrir okkur er það líka sér- staklega athyglisvert að fjölskyldur í þessum löndum skuli geta keypt sér nýleg hús fyrir upphæð sem tæpast dugir fyrir 2ja herbergja blokkar- íbúð á „láglauna“ íslandi. Þá eru matarútgjöldin ekki síður mismunandi, hvort sem litið er á upphæð eða sem hlutfall af fjöl- skyldutekjum. Lægst er það 18% hjá belgísku fjölskyldunni en hæst um 45% af tekjum hjá þeirri ítölsku. Til smá samanburðar má geta þess að miðað við framfærsluvísitöluna okkar er matvöruliður „vísitölufjöl- skyldunnar" nú um 19.300 kr. á mánuði, eða um 23% af fjölskyldu- tekjum. Fyrir þann stóra hóp íslendinga sem láta ekki kostnaðarsamar flug- ferðir aftra sér frá sumarleyfisferð- um til annarra Ianda, sem tæpast kostar undir 150-200 þús. krónur með öllu fyrir 4ra manna fjölskyldu, er það kannski athyglisvert að sjá að fæstar þessara evrópsku fjölskyldna virðast hafa komið út fyrir landa- mæri síns heimalands - sem þær gætu þó farið á eigin bíl. Telja sig fæstar hafa efni á slíku. Hvað annan munað snertir kemur í ljós að fæstar þeirra láta eftir sér að fara út að borða á veitingahúsum, fara í leikhús eða slíkt - telja það of dýrt. I þriðja lagi - þrátt fyrir vinnu í bílaverksmiðjum þar sem karlarnir njóta afsláttar af verði nýrra bíla - má segja að engin þessara fjöl- skyldna eigi nema einn bíl, jafnvel gamlar druslur. En lítum nú á hvað þessar 6 evrópsku fjölskyldur höfðu að segja um afkomu sína og lífsstíl: -HEI Þýska fjölskyldan: Eduard Kuerten (33), Anne-Marie (34) og Nadine (4 ára). Tekjur: 67.000 þýsk mörk á ári (102.200 kr. á mán.) fyrir fullt starf og yfirvinnu Eduards, sem er renni- smiður í Ford-verksmiðju þar sem unnið er á vöktum allan sólarhring- inn og fyrir 60% vinnu Anne-Marie sem er ritari í tryggingafyrirtæki. Heimili: Þriggja herbergja leiguíbúð í fjölbýlishúsi fyrir 650 mörk (11.900 kr.) á mánuði. Ódýrasta húsið sem þau gætu keypt kostar um 300.000 mörk (5,5 millj.) sem þýddi um 31. þús króna greiðslu á mnauði. Þau hafa sjónvarp, video, hljómflutn- ingstæki, þvottavél og frysti- kistu. Eru ekki með afborgunar- greiðslur. Bfll: Ford Fiesta sem kostaði um 189 þús. fyrir rúmu ári. Matur: Matarkostnaðurinn er um 1.750 mörk (32 þús. kr.) á mánuði (kjöt nærri daglega, en oft hakkað þar sem annað er dýrt). Eduard borðar oft á vinnustað. Mánaðarlega kaupa þau tilbúinn mat til að borða heima og bjóða vinum heim í mat annan hvern mánuð. Frístundir: Hjónin reykja bæði. Hann drekkur bjór heima, en hún vín. Hann er steingervingasafnari, hún prjónar og bæði eru tónlistarunn- endur. Dótturinni eru gefin mörg ieikföng. Sumarfrí: Fjölskyldan .hefur ekki haft efni á að fara að heiman í sumarfrí síðustu tvö árin. Eii áðúr voru þau vön að keyra til Ungverja- lands eða Júgóslavíu. Ýinislegt: Hjónin nota um 100 mörk til kaupaá jólagjöf handadótturinni. Eduard sagði: „Við mundum ekki komast þetta vel af án þess að vinna bæði úti. Lífskjör í Þýskalandi eru ekki betri en meðal nágrannaþjóða, bara öðruvísi." Anne-Marie bætti við: „Við höfum ekki efni á neinu utan daglegra þarfa. Komi eitthvað óvænt upp á verðum við blönk. Ég held að sumir Suður-Evrópubúar komist jafnvel betur af en við.“. Belgíska fjölskyldan: Julia (40) og Andre Hesse (43) og Michel (11 ára). Tekjur: 1.170.000 belgískir frankar á ári (87.400 kr. á mán.) fyrir fulla vinnu og yfirvinnu Andre, sem er verkamaður á færibandi í Volkswag- en bílaverksmiðju í Brussel og fullt starf Julíu í fjölskyldufyrirtæki. Þau sögu reyna að safna um 5.000 kr. á mánuði. Heimili: Þriggja herbergja leiguíbúð í úthverfi Brussel. Leigan er um 7.400 á mánuði. Þau eru ekki með neina drauma um kaup á eigin íbúð. Þau hafa sjónvarp, hljómflutnings- tæki og þvottavél og eru að hugleiða kaup á heimilistölvu fyrir soninn. Bfll: Audi 100, keyptur með afslætti frá verksmiðjunrii' fyrir 243. þús. ‘kr.. Þau eru einnig að kaupa húsvagn með afborgunum. Matur: Um 17.200 b. frankar (15.500 kr.) á mánuði. Þau segjast hafa góðan mat og fá sér vínflösku með um helgar. Þau borða aldrei úti á veitingastöðum - „of dýrt“ sögðu hjónin. Frístundir: Mesta ánægju hafa þau af að fara í styttri ferðir með hús- vagninn - helst um hverja helgi. Leikhúsferðir sögðu þau of dýrar, en þau færu stöku sinnum í bíó. Andre reykir sígarettupakka á dag. Sumarfrí: Þau fara á hverju sumri með húsvagninn til Suður- Frakklands. Heildarkostnaðurinn af ferðinni áætla þau um 58 þús. krónur. Draumurinn er að komast einhverntíma í langa ferð, t.d. til Ástralíu. Ýmislegt: Hjónin sögðust alltaf kaupa góð og vönduð föt þótt þau á hinn bóginn eltu ekki beinlínis tísk- una. Sonurinn væri ekki frekur á vasapeninga. Andre sagði: „Starfs- menn bílaverskmiðju í öðrum lönd- um hafa kannski hærri laun, en þeir hafa líka hærri útgjöld. Við njótum mun betri lífsafkomu heldur en starfsbræður mínir í Frakklandi og Englandi. Flesta langar í eitthvað meira en þeir hafa, en við höfum svo sem ekki yfir neinu að kvarta.“ Franska fjölskyldan: Odile (33) og Alain Tomassi (35), Deline (13) og Jiipírrýt'(li ‘álrá)' , ‘

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.