Tíminn - 28.05.1986, Qupperneq 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 28. maí 1986
Háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar:
Efast um gildi náms-
brautar á Akureyri
Félag háskólamenntaðra hjúkrun-
arfræðinga hefur lýst áhyggjum sín-
um vegna fyrirhugaðrar námsbraut-
ar í hjúkrunarfræði á háskólastigi á
Akureyri. Á fundi sem félagið hélt í
fyrrakvöld var samþykkt ályktun
þar sem þeirri skoðun er lýst, að
slíkt nám á Akureyri ef af yrði verði
alfarið undir beinni stjórn Náms-
brautar í hjúkrunarfræði í Háskóla
fslands. Þá lagði fundurinn áherslu
á að fagleg umsögn Námsbrautar í
hjúkrunarfræði verði lögð til grund-
valiar varðandi hugsanlcgt hjúkrun-
arfræðinám á Akureyri.
Á fundi hjúkrunarfræðinganna í
fyrrakvöld var flutt erindi, sem
nokkrir háskólamenntaðir hjúkrun-
arfræðingar tóku saman, um hugsan-
lega námsbraut á Akureyri og kcmur
þar fram að þeir telja vafasamt að
unnt verði að veita viðunandi
kennslu á Akureyri þar sem aðstaða
námsbrautarinnar hér í Reykjavík
uppfylli ekki einu sinni þær kröfur
sem gera verður til hennar. í erind-
inu er t.d. bent á, að í dag er einn
kennari fyrir hverja 60 nemendur í
hjúkrunarfræðum, en samkvæmt
staðli alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar á þetta hlutfall að vera 1
kennari á hverja 10 nemendur. Ásta
Thoroddsen, sem sæti átti í undir-
búningsnefnd fundarins og er
stundakennari við námsbrautina
sagði í samtali við Tímann í gær, að
mikilvægt væri að hjúkrunarfræðing-
ar önnuðust sjálfir kennslu í hjúkr-
unarfræðum. Það væri útbreiddur
misskilningur að læknar eða aðrir
gætu gengið inn í kennslu í hjúkrun-
arfræðum og benti hún á, að nú
kenndu hjúkrunarfræðingar um 30
þús. kennslustundir á móti um 3800
stundum sem læknar kenndu. Þetta
sýndi mikilvægi þess að farið yrði
eftir faglegri umsögn hjúkrunar-
fræðinga þegar ákvörðun er tekin
varðandi hjúkrunarfræðinámsbraut
á Akureyri.
-BG
Guðmundur Ólafsson rithöfundur tekur við verðlaunum sínum úr hendi Ólafs
Ragnarssonar útgefanda. Tímamynd Pétur
hraða um bæinn
Götur Reykjavíkurborgar urðu
vettvangur ævintýralegs eltinga-
leikjar seint á mánudagskvöldið.
Upphaf hans var að lögreglan þótt-
ist sjá eitthvað varhugavert við
aksturslag ökumanns á mótorhjóli
vestur á Granda og hugðust lög-
reglumennirnir stöðva ökumann-
inn. En þegar lögreglubíllinn nálg-
aðist knúði ökumaður mótorhjóls-
ins bensíngjöfina í botn og reyndi
að hrista lögreglubifreiðina af sér.
Lögreglan hóf þegar eftirför og
innan tíðar bættust fleiri lögreglu-
bifreiðar í hópinn. Leikurinn barst
niður í kvos og upp í Þingholt og
sinnti ökumaður mótorhjólsins
hvorki stöðvunarskyldu, einstefnu
eða rauðum umferðarljósum og
alltaf fylgdu nokkrir lögreglubílar
á eftir. Leiðin lá síðan niður Eiríks-
götu, yfir Snorrabraut og eftir
Flókagötu. Þegar þarna var komið
sögu voru lögreglubílarnir orðnir
6 eða 7 samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar mældist hraði mótor-
hjólsins þegar mestur var um 140
kílómetrar á klukkustund og hafa
lögreglubifreiðarnar varla verið á
miklu minni ferð.
Eltingarleikurinn endaði síðan
við Bólstaðarhlíð þegar ökumaður
mótorhjólsins ók utan í bílskúrs-
vegg og stöðvaðist stuttu eftir það.
Þegar lögreglan kom á vettvang
var honum þegar varpað inn í
lögreglubíl. Ökumaðurinn reynd-
ist 15 ára piltur, próflaus og á
lánshjóli. Er mikil mildi að ekki fór
ver, einhver þátttakandi í eltingar-
leiknum hefði getað slasast og
sömuleiðis vegfarendur sem leið
áttu um vettvang eftirfararinnar.
-gse
Gjaldþrotaskipti Blóma og ávaxta:
Eignir nema
10% af kröf um
Búnaðarbankinn stærsti kröfuhafinn
Virkar kröfur í gjaldþrotabú
Blóma og ávaxta eru nú orðnar um
Austurrísk vörukynning á Hótel Esju:
24 fyrirtæki kynna vörur
- og leita að umboðsmönnum á Islandi
f dag, hefst austurrísk vörukynn-
ing að Hótcl Esju og stendur hún í
tvo daga frá kl. 10.00 til 18.00.
Það eru 24 austurrísk fyrirtæki
sem sýna þar vörur sem þau óska
eftir að selja umboðsaðilum á ís-
landi. Verslunarfulltrúi Austurríkis
Dr. Wilfried Mayr efndi til blaða-
mannafundar ásamt fulltrúa sínum
sem starfar í Noregi af þessu tilefni
og mun
aöila se
hann aðstoða þá íslensku
n áhuga hafa á að efla
verlsunarviðskipti milli landanna,
hvort heldur um er að ræða inn- eða
útflutning. Mayr sagði á fundinum,
að mjög ánægjulegt væri til þess að
vita hversu margir íslendingar væru
búnir að uppgötva Austurríki sem
ferðamannaland bæði á vetrum og á
sumrin og hann sagðist vona að
umboðsaðilar á íslandi myndu í
auknum mæli uppgötva Austurríki
sem traust viðskiptaland, m.a. vegna
þess hversu gjaldmiðill landsins væri
stöðugur og vegna þess að austur-
rískar vörur væru í háum gæða-
flokki.
Viðskiptasamband íslands og
Austurríkis hefur eflst mikið undan-
farin ár og hefur innflutningur frá
Austurríki verið m.a. vefnaðarvör-
ur, föt, járn- og málmvörur,
sportvörur og vélar ýmiss konar.
Það sem íslendingar hafa flutt út til
Austurríkis hefur aftur á móti verið
fiskur og fiskafurðir, efna- iðnaöar-
vörur og kísilgúr svo eitthvað sé
nefnt. Fyrstu þrjá mánuði ársins
jókst innfluimingur austurrískra vara
til íslands um tæp 21%. -ABS
' þrjátíu milljónir, en þar af eru um
24 milljónir samþykktar kröfur.
Skiptaráðendur búsins telja að eign-
irnar séu rétt undir þremur milljón-
um svo ljóst er að fyrirtækið hefur
ekki átt fyrir nema um 10% af
skuldum sínum. Forgangskröfur,
laun og launatengd gjöld nema rúm-
um sjö hundruð þúsundum kr. svo
ljóst er að þær greiðast að fullu og
að auki um tvær milljónir upp í aðrar
kröfur.
Það telst vera mjög lágt hlutfall að
fyrirtæki eigi ekki eignir nema upp í
10% af lýstum kröfum, þó dæmi
þess þekkist áður. Búnaðarbankinn
á stæsta hlutann af kröfunum í
þrotabúið en hann getur sótt að
ábyrgðarmönnum að þeim lánum.
„Ef ekki verður búið að fangelsa
þá,“ sagði Magnús Nordal, skipta-
ráðandi þrotabús Blóma og ávaxta
þegar Tíminn innti hann eftir því í
gær.
- gse
Eltingarleikurinn endaöi er ökumaöur mótorhjólsins ók á vegg i Bólstaðarhlíð og slapp hann ómeiddur þrátt
fyrir glæfralegan akstur. Timamynd: Svcrrir
Lögreglan veitir ökumanni mótorhjóls eftirför á 6 bílum:
Á140 km/klst.
íslensku barnabókarverðlaunin:
Emil og Skundi
hlaut hnossið
Fyrsta bók höfundar
Guðmundur Ólafsson rithöfundur
og leikari, með meiru, hlaut í gær
fyrstu verðlaun sem veitt eru, úr
Verðlaunasjóði íslenskra barna-
bóka, fyrir bók sína Emil og Skundi.
í dómnefndaráliti segirm.a.: „Sagan
er vel samin og skemmtileg. Per-
sónusköpun er góð, söguhetjan trú-
verðug og bregst við vandamálum á
rökréttan hátt. Söguþráður er
spennandi og umhverfi allt rótfast í
íslenskum veruleik.“
Emil og Skundi er fyrsta bók
höfundar, en Guðmundur sagðist
hafa lesið bókarkafla jafnóðum og
þeir urðu til fyrir börn sín og haldið
verkinu áfram eftir að hafa blessun
þeirra á efninu.
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka var stofnaður á síðasta ári, í
tilefni sjötugsafmælis Ármanns Kr.
Einarssonar rithöfundar. Fjölskylda
Ármanns og Bókaútgáfan Vaka
lögðu fram stofnfé sjóðsins, 200.000
kr., en megintilgangur sjóðsins er að
stuðla að auknu framboði íslensks
úrvals lesefnis fyrir æsku landsins.
Mun sjóðurinn í þeim tilgangi efna
árlega til sagnakeppni.
Fyrstu stjórn Verðlaunasjóðs ís-
lenskra barnabóka skipa Ólafur
Ragnarsson, útgefandi, Ármann Kr.
Einarsson, rithöfundur og Sigrún
Klara Hannesdóttir, lektor. Auk
þess voru valin í dómnefnd Hildur
Hermóðsdóttir, bókmenntafræðing-
ur, Eðvarð Ingólfsson rithöfundur
og Halldóra Jónsdóttir, formaður
nemendafélags Hlíðaskóla. Hún er
fulltrúi lesenda barna- og unglinga-
bóka, en grunnskólar landsins munu
tilnefna fulltrúa í dómnefnd sjóðsins
til skiptis.
phh