Tíminn - 28.05.1986, Qupperneq 3
Miövikudagur 28. maí 1986
Tírninn 3
Höföum 1.761 milljónar tekjur af erlendum feröamönnum:
Eyddum 3.916 milljónum
á ferðalögum erlendis
Tckjur íslendinga af erlendum
ferðamönnum námu um 1.761
milljón króna á síðasta ári. Það gerir
að meðaltali um 18 þús. krónu
tekjur af hverjum þeirra rösklega 97
þús. útlendinga sem hingað lögðu
leiðsínaárið 1985. Reiknaðámeðal-
gengi ársins 1985 varð 25% aukning
á tekjum af erlendum ferðamönnum
frá árinu 1984, þ.e. mun meiri tekju-
aukning en sem nam fjölgun ferða-
manna.
Þótt fjöldi íslenskra ferðamanna
til útlanda sé nánast sá sami og
erlendra ferðamanna hér á landi
vantar þó mikið á að tekjurnar af
útlendingunum hér standi undir út-
gjöldum af ferða- og dvalarkostnaði
Islendinga erlendis. Samkvæmt töl-
um Seðlabankans um þjónustujöfn-
uð eyddum við Islendingar um 3.916
milljónum króna á ferðalögum okk-
ar erlendis á síðasta ári, sem var um
14% aukning að raungildi milli ára.
Hver þeirra tæplega 96 þús. íslend-
inga sem utan fór hefur því eytt um
41 þús. krónum að meðaltali í út-
löndum.
Þótt tekjur flugfélaganna í milli-
landaflugi hafi aukist um rúmar 904
millj. króna (23%) milli ára - reikn-
að á meðalgengi 1985 - jukust út-
gjöldin þó enn meira eða um 1.156
millj. króna (36%). Niðurstaðan
varð því sú, að nettótekjur flugfélag-
anna urðu 252 milljónum kr. lægri
árið 1985 en árið 1984.
Heildarútgjöld íslendinga vegna
samgangna við útlönd námu 8.695
millj. kr. á árinu 1985 (þar af 4.364
millj. v. flugvél.), en heildartekjurnar
9.974 millj. kr. (þar af 4.865 m. kr.
v. flugfél.). Nettótekjur af samgöng-
um voru því 279 millj. kr., eða 42
millj, kr. minni en 1984.
Þá má geta þess að nettótekjur
íslendinga af varnarliðinu minnkuðu
milli ára úr 3.543 millj. í 3.122 millj.
á síðasta ári, eða um 421 millj.
króna.
- HEI
Rannsókn á fölsuðu
100 dollara
seðlunum:
Seðlarnir
sendir
úttil
rannsóknar
Öðrum manninum
sleppt úr haldi og
óvíst hvort krafist
verður framlengingar
á gæsluvarðhaldi
hins
Annar tveggja manna sem
úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald
vegna rannsóknar á fölsuðum
100 dollaraseðlum hefur nú verið
látinn laus úr haldi. Að sögn
rannsóknarlögreglunnar var hans
þáttur í þessu máli einungis sá að
Utankjörstaðaatkvæöagreiösla:
Þú kýst ekki
eftir á.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla er
nú í fullum gangi. Mikilvægt er að
fólk drífi sig sem allra fyrst að kjósa
því atkvæðin þarf að senda í viðkom-
andi kjördæmi áður en kjörfundi
lýkur. Tíminn hafði samband við
nokkrar kosningaskrifstofur B-list-
ans og spurði hvernig atkvæða-
greiðsla gengi.
f Reykjavík höfðu 1940 manns
kosið á mánudagskvöld og svo virð-
ist sem menn séu að ranka við sér nú
allra síðustu daga að sögn Sigrúnar
Sturludóttur kosningastjóra. Bryn-
dís Garðar'sdóttir í Hafnarfirði sagði
að á mánudag hefðu 300 manns
kosið þar á skrifstofunni. Jón Arn-
þórsson kosningastjóri á Akureyri
sagði að 163 hefðu þegar kosið á
mánudagskvöld og í Kópavogi höfðu
269 manns kosið. í gærkvöldi, að
sögn Katrínar Oddsdóttur kosninga-
stjóra. Hún sagði að á skrifstofunni
væri opið allan daginn fyrir þá sem
vildu koma og spjalla og einnig gætu
menn komið og horft á kosninga-
þáttinn frá því á sunnudaginn s.l. á
videó.
-ABS
Götumynd - ný plata
frá Hálft í hvoru
Gísli Helgason hefur
„Ástarjátningu“
Hálft í hvoru hefur sent frá sér
hljómplötuna Götumynd. Lögin á
plötunni eru flest eftir liðsmenn
hljómsvéitarinnar, en þeir eru Gísli
Helgason, Herdís Hallvarðsdóttir,
Guðmundur Benediktsson og
Hannes Jón Hannesson. Hljóm-
sveitin var stofnuð 1981 og er því 5
ára um þessar mundir.
Á blaðamannafundi þar sem hin
nýja hljómplata var kynnt, afhentu
liðsmenn hljómsveitarinnar Hálft í
hvoru, Gísla Helgasyni gullplötu af
Ástarjátningu, plötu sem Gísli gaf
út í fyrra til styrktar bókaútgáu á
blindraletri hér á landi og hefur nú
selst í um 6000 eintökum. Á þeirri
plötu létu tónlistarmenn vinnu sína
fengið gullplötu fyrir
í té endurgjaldslaust og nú hafa
verið pöntuð tæki til blindraleturs-
bókagerðar fyrir andvirði um einnar
milljónar króna.
Halldór Rafnar formaður Blindra-
félagsins tók við gullplötunni fyrir
hönd Blindrafélagsins og þakkaði
hann Gísla gott starf, sagði þetta
dæmi um að hann tæki upp á furðu-
legustu hlutum, plötuna hefði hann
gefið um leið og hann gifti sig og
stofnaði bú en þá þyrftu menn
yfirleitt á peningum að halda fyrir
sjálfa sig. Nú síðast væri Gísli svo
tekinn upp á því að sjá, en bað hann
blessaðan að fara ekki að sjá svo vel
að hann yrði rekinn úr félaginu.
ABS
Gísli Helgason tekur hér við gullplötu Ástarjátningar úr hendi Guðmundar
Benediktssonar. (Tímamynd: Pétur)
dreifa seðlunum hérlendis gegn
þóknun. Hinn maðurinn situr
enn í gæsluvarðhaldi og vildi
rannsóknarlögreglan ekki gefa
upp þátt hans í málinu.
Falsaðir 100 dollara seðlar sem
komið hafa fram hérlendis hafa
verið sendir utan til rannsóknar
og er verið að ganga úr skugga
um hvort þeir séu sömu gerðar og
hliðstæðir falsaðis seðlar erlend-
is. Niðurstöðu þeirrarrannsókn-
ar er að vænta innan tíðar.
Gæsluvarðhald mannsins sem
enn situr í haldi rennur út í dag
og mun rannsóknarlögreglan
taka ákvörðun um hvort hún
krefst framlengingar varðhalds-
ins seinna í dag. - gse
Sólin
sleikt í
laugunum
Sóldýrkendur, sem margir hverjir
höfðu lagt sundskýluna á hilluna
síðasta haust, geta nú farið að
dusta rykið af sólbaðsgallanum,
því sumarið er komið.
Tímamynd: Gísli Egill.
Hæstiréttur kveður upp dóm í Grettisgötumálinu:
Dæmdur fyrir að hafa
orði manni að bana
Kona dæmd fyrir að hafa ekki leitað þolanda hjálpar
Hæstiréttur kvað upp dóm í svo-
kölluðu Grettisgötumáli stuttu fyrir
helgi. Þar var Viðar Björnsson, 38
ára gamall heimilisfastur að Ferju-
bakka 10, fundinn sekur um að hafa
orðið valdur að dauða Sigurðar
Breiðfjörðs Ólafssonar og gert að
sæta fimm ára fangelsisvist. Einnig
var kveðinn upp dómur yfir Sólrúnu
Elísdóttur, 30 ára gamalli til heimilis
að Ferjubakka 10, og var hún fundin
sek um að hafa ekki leitað Sigurði
hjálpar og gert að sæta þriggja
mánaða fangelsisvist. Til frádráttar
fangelsisvist kemur gæsluvarð-
haldsvist Viðars frá 24. febrúar 1985
og tíu daga gæsluvarðhald Sólrúnar.
Forsaga þessa máls er að þann 22.
febrúar 1985 sátu þau Viðar, Sólrún
og Sigurður að drykkju að heimili
Sigurðar að Grettisgötu 19b, en þar
höfðu Viðar og Sólrún haft aðsetur
um nokkurn tíma. Er líða tók á
kvöldið grunaði þau Viðar og Sól-
rúnu að Sigurður hefði falið fyrir
þeim áfengisflösku og veitist þá
Viðar að Sigurði með hrottalegum
hætti.í fyrstu var Sigurður uppistand-
andi en féll undan atlögu Viðars upp
að vegg í rúm sitt. Þar sló Viðar
Sigurð mörg þung högg í andlit, á
enni, nef, kinn og höku, svo Sigurð-
ur hlaut opin kjálkabrot beggja
megin, alvarlega höfuðáverka og
meðvitundarleysi.
í millitíðinni hafði Sólrún fundið
áfengisflöskuna og ákváðu þau Við-
ar að hafa sig á brott, án ráðstafana
til bjargar Sigurði. Þau hcldu til húss
við Laugaveg þar sem þau héldu
áfram drykkju.
Um hádegi næsta dag fóru þau
síðan aftur á Grettisgötu 19b og
komu þá að Sigurði í sömu stelling-
um og þau höfðu skilið við hann
kvöldið áður. Þau reyndu að fá hann
til að drekka kardimommudropa og
gáfu honum asmalyf og hjartatöflur,
en það gekk ekki. Þau reyndu einnig
að nudda Sigurð og hlusta en hann
reyndist kaldur viðkomu.
Þau héldu nú aftur í íbúðina við
Laugaveginn og að einhverjum tíma
liðnum hringdi Sólrún í sjúkrabíl og
tilkynnti um fársjúkan mann í íbúð
við Grettisgötu.
Þegar sjúkraflutningamenn komu
að Sigurði reyndist hann látinn og
rannsóknarlögreglan var látin vita
um grunsamlegt dauðsfall.
Daginn eftir voru Viðar og Sólrún
handtekin á slysavarðstofu Borgar-
spítalans og færð til yfirheyrslu hjá
rannsóknarlögreglunni.
Dómur í málinu var kveðinn upp
í sakadómi 6. nóvember 1985 og
síðan skotið til Hæstaréttar.
-gse