Tíminn - 28.05.1986, Side 5

Tíminn - 28.05.1986, Side 5
Tíminn 5 Miövikudagur 28. maí 1986 Amnesty International 25 ára: Mikið áunnist,margt ógert Mannréttindasamtökin berjast enn af krafti gegn handtökum af stjórnmálalegum ástæðum, pyndingum og aftökum Lundúnir-Reuter Nú eru 25 ár liðin síðan mannrétt- indasamtökin Amnesty Internation- al voru stofnuð og enn reyna samtök- in að framfylgja stefnumörkun sinni sem var að útmá handtökur af stjórn- málaástæðum, pyndingar af hálfu yfirvalda og aftökur. f yfirlýsingu samtakanna, sem birtist í dag, er því fagnað að tekist hefur að beina athygli heimsins að mannréttindamálum. Hins vegar er bent á að mannréttindasamtök um allan heim séu ung að árum og fátæk miðað við ríkisvöld sumra landa þar sem pyndingar, dráp og ógnanir eigi sér langa sögu. Samtökin, sem aðsetur hafa í Lundúnum, halda því fram að í einu af hverjum þremur löndum séu íbú- arnir beittir skipulögðum pynding- um og að í helmingi allra landa séu til samviskufangar. Amnesty voru stofnuð sem svar við dagblaðsgrein breska lögfræð- ingsins Peter Benenson þar sem hann hvatti almenning til eins árs baráttu fyrir frelsun pólitískra fanga. í dag eru í samtökunum rúmlega 500 þúsund manns og stuðningsmenn þeirra má finna í meira en 150 löndum. Samtökunum voru veitt friðarverðlaun Nóbels árið 1977. Þrátt fyrir að samtökin hafi aukist af mannafla og krafti viðurkenna talsmenn þeirra að mikið starf sé óunnið. „Við vitum ekki hvort mannrétt- indi hafi aukist ellegar minnkað á síðustu 25 árum. Við vitum hinsveg- ar að við getum ekki séð inn í öll horn myrkustu fangelsa heims- byggðarinnar," sagði David Laulicht bíaðafulltrúi Amnesty. „Ríkisstjórnir veita gífurlegu fjár- magni í að koma í veg fyrir að fréttir um mannréttindabrot berist út en meiri og meiri upplýsingar eru ávallt að sleppa út,“ sagði Laulicht. Skýrslur Amnesty um brot á mannréttindum hafa oft valdið ríkis- stjórnum verulegum vandræðum. Má í þessu sambandi nefna skýrslu frá árinu 1979, þar sem greint var frá morðum á hundrað skólabörnum í Mið-Afríkulýðveldinu. Sú frétt leiddi til falls Bokassa keisara af valdastóli. Amnesty hefur um 200 rannsókn- arsérfræðinga í vinnu en treystir hinsvegar mest á mátt sjálfboðaliða samtakanna. Samtökin eru sterkust í V-Evrópu og Bandarjkjunum en nýlega hefur orðið talsverð aukning í meðlimafjölda á öðrum svæðum t.d. í Suður-Ameríku.. Sissy Spacek leitar manns síns ásamt Jack Lemmon, tengdaföður sínum í mynd Costa Carves „Missing“. Amnesty Intemational hafa margoft skýrt frá mannréttindabrotum í Chile sem og annars staðar í heimin- um. Sovétríkin: Breytt og betri utanríkisstefna? Því hélt Dobrynin fram í gær-Hvatti Bandaríkjastjórn til aötaka þátt í „nýjum pólitískum hugsanagangi“ Er utanríkisstefna Sovétmanna orðin sveigjanlegri og kröftugri? Því heldur Dobrynin fram. Myndin er frá 27. flokksþingi sovéskra kommúnista fyrr á þessu ári. Hvalveiðar Norömanna í sviösljósinu: Moby Dick á miðin Hamborg-Reuter Moskva-Reuter Anatoly Dobrynin, helsti ráðgjafi Sovétstjórnarinnar í utanríkismál- um, hvatti Bandaríkjastjórn í gær til að taka þátt í „nýjum pólitískum hugsanagangi" og bætti við að sov- ésk stjórnvöld hefðu engan hug á að velta kaptíalisma úr sessi. Dobrynin, sendiherra Sovétríkj- anna í Washington áður en hann snéri heim í síðastliðnum marsmán- uði, fór nokkrum orðum um utanrfk- isstefnu Sovétmanna í ræðu sem hann flutti á vísindaráðstefnu. I ræðunni tók hann undir með Gorbatsjov flokksleiðtoga um yfir- standandi hættu vegna framleiðslu nýrra kjarnorkuvopna og sagði hana neyða bæði austrið og vestrið til að taka upp nýjan hugsunarhátt. „Hinn nýi pólitíski hugsanagangur gerir ráð fyrir ... meiri sveigjanleika í utanríkisstefnunni, vilja til að fall- ast á viðunandi sáttartillögur mótað- ila sinna,“ sagði Dobrynin. Dobrynin sagði hættuna á kjarn- orkufári leiða til þess að baráttan milli kommúnistaríkja og ríkja kapít- alismas gæti aðeins farið friðsam- lega fram og sagði stjórn sína ékki hafa í hyggju að velta kapítalisman- um úr sessi. Dobrynin leiðir nú alþjóðamála- deild kommúnistaflokksins og er af vestrænum stjórnmálaskýrendum talinn vera helsti ráðgjafi Gorbat- sjovs í utanríkismálum. Embætti Dobrynins og skipan Eduards She- vardnadze í embætti utanríkisráð- herra á síðasta ári í stað Andreis Gromyko þykir benda til að flokkur- inn vilji hafa meira að segja í sambandi við utanríkisstefnuna. I ræðu sinni hélt Dobrynin því fram að utanríkisstefna Sovétmanna væri nú orðin kröftugri og sveigjan- legri...“ og jafnvel þeim sem ekkert er gefið um Sovétríkin viðurkenna það,“ sagði utanríkismálaráðgjaf- inn. Grænfriðungasamtökin hafa ákveð- ið að senda skip sitt „Moby Dick“ til móts við norska hvalveiðiflotann til að reyna að trufla hrefnuveiðar Norðmanna. í tilkynningu samtakanna voru áhafnarmeðlimir skipsins, sem nú er í höfn í Hamborg, sagðir ætla að fara í minni báta þegar á miðin kemur og koma sér á milli hvalveiðibátanna og bráðarinnar. Norðmenn eru eina þjóðin sem virt hefur alþjóðabann á hvalveiðar í gróðaskyni að vettugi og var floti þeirra sendur út á miðin á Norð austur Atlantshafi nú í fyrradag. Flotinn hefur veiðikvóta upp á 400 hrefnur sem veiða má næstu þrjá mánuðina. Grænfriðungaskipið ber nafn þess fræga hvíta hvals sem Herman Mel- ville skapaði í sögu sinni um baráttu hvalveiðifangarans Ahab við hinn ósýnilega hvíta hval Moby Dick. Nýja Jórvík: Kona á níræðisaldri hljóp uppi og barði þrítugan töskuþjóf Nýja Jórvík-Reuter Kona, sem lögreglan í Nýju Jórvík lýsti sem enskri hefðarkonu, barði duglega á þjóf þar í borg eftir að hann hafði rænt handtösku hennar. Konan barði manninn með regnhlíf sinni og hélt honum þar til lögreglan kom á vettvang. Sara Tucker, sem er 87 ára gömul og býr á Manhattan, var á göngu nálægt heimili sínu þegar Jose Ramos kom aðvífandi á hjóli sínu og greip af Söru handtöskuna. Jose er þrítugur. Að sögn lögreglunnar elti sú Paraguay: Vestrænn styrkur til handa lýðræðissinnum Blaðið Nýju Jórvíkurtíðindi telur það spurningu um tíma hvenær einræðisstjórnin í Paraguay fellur gamla þjófinn og náði honum við nálæg umferðarljós. Þar hrinti hún honum af hjóli sínu og barði hann með regnhlíf. Lögreglan var kölluð út og fann Jose í hnipri á gangstétt. Hann var handtekinn og ákærður fyrir þjófnað. Jose sagðist ekki geta skilið hvernig sú gamla hefði getað hlaupið hann uppi og var á að hér hefði verið um mjög ákveðna konu að ræða. Sara tók það rólega á heimili sínu eftir átökin sem henni varð ekki meint af. Nýja Jórvík-Reuter Andstæðingar Alfredo Stroessners hershöfðingja og einvalds í Paraguay Utlönd Umsjón: HEIMIR BERGSSON eiga skilinn stuðning og vináttu vest- rænna lýðræðisríkja. Þetta kom fram í ritstjórnargrein Nýju Jórvíkurtíð- inda (New York Times) í gær. í greininni var bent á að raunveru- legt lýðræði hefði aldrei þrifist í 175 ára sögu Paraguay. Nú væri landið hinsvegar orðið umlukið lýðræðis- ríkjum sem Bandaríkin styddu við bakið á, einungis Paraguay og Chile væru „óþægilegar undantekningar". „Núlifandi kynslóð hefur enga aðra stjórnmálalega reynslu en þá að lúta einræðisstjórn Stroessners hershöfðingja,11 sagði í greininni. Nýju Jórvíkurtíðindi sögðu Parag- uaybúa eiga rétt á stjórnmálalegu frelsi eins og nágrannar sínir og bætti við í lokin að kannski væri það einungis orðið spurning um tíma hvenær einræðisstjórn Stroessners yrði velt úr sessi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.