Tíminn - 28.05.1986, Qupperneq 6
Miðvikudagur 28. maí 1986
Eins og skýrt var frá í Tímanum í gær var
aðalfundur Granda hf. haldinn með mikilli leynd
þann 16. maí s.l. Þar voru reikningar félagsins
lagðir fram og samþykktir. Á fundinum var endan-
lega gengið frá fjárskilum og framlögum hluthafa.
Á þessum aðalfundi Granda hf. hefur greinilega
verið tekin sú ákvörðun að þegja í hel, að
aðalfundurinn hafi verið haldinn og fela framlagða
og samþykkta reikninga félagsins fram yfir kosning-
ar.
Þrátt fyrir það kvisaðist út, að aðalfundurinn
hefði verið haldinn. En Ragnar Júlíusson, formað-
ur stjórnar Granda, neitaði aðspurður, að aðal-
fundur Granda hefði verið haldinn. Þröstur Ólafs-
son, sem sæti á í stjórn Granda, skipaður í stjórnina
af Davíð Oddssyni, staðfesti hins vegar, að aðal-
fundurinn hefði verið haldinn 16. maí, en neitaði
að láta reikningana af hendi eða gefa upplýsingar
um þá, þar sem ekki væri búið að kynna þá í
borgarráði.
Á síðasta fundi borgarráðs í gærdag krafðist
Kristján Benediktsson, borgarráðsmaður, þess, að
fá afhenta reikninga félagsins. Davíð Óddsson
borgarstjóri vísaði þeirri kröfu algerlega á bug á
þeirri forsendu, að beiðni um reikningana væri of
seint fram komin. Reikningarnir yrðu afhentir og
ræddir á næsta fundi borgarráðs n.k. þriðjudag,
þ.e. ekki fyrr en eftir kosningar! Þröstur Ólafsson
sagði í fyrradag, að hann gæti ekki gefið upplýsing-
ar um reikningana vegna þess, að þeir hefðu ekki
verið kynntir í borgarráði. Tíminn sneri sér að nýju
til Þrastar Ólafssonar í gær og óskaði upplýsinga
um reikninga Granda hf. Hann neitaði og sagði það
aðeins á færi aðaleiganda félagsins, þ.e. Reykjavík-
urborgar, sem á tæp 80%
Nú er það svo, að Þröstur á einmitt sæti í stjórn
Granda hf. sem fulltrúi Reykjavíkurborgar. Hann
er skipaður í stöðuna af borgarstjóra. Þessi skipun
Þrastar Ólafssonar í stjórn Granda hf. var af
flestum skilin svo, að hann væri í stjórninni til að
gæta hagsmuna minnihlutans í borgarstjórn
Reykjavíkur, ogþar með að tryggja, að minnihluta-
flokkarnir fengju áreiðanlegar upplýsingar um hag
og rekstur þessa nýja fyrirtækis Reykvíkinga.
Af svörum Þrastar Ólafssonar er hins vegar ljóst,
að Þröstur lítur ekki þann veg hlutverk sitt. Það er
enginn að væna Þröst um, að hann hafi tekið skipan
í stjórninni með því skilyrði, að hann þegði yfir því,
sem kynni að misfarast í rekstri fyrirtækisins.
Óneitanlega er þó engu líkara en að hann sé í
eiðsvörnu samsæri með borgarstjóranum um að
þegja og fela reikninga Granda hf. fram yfir
kosningar.
Hvað segja frambjóðendur Alþýðubandalagsins
um þetta mál? Ekkert hefur heyrst frá þeim, þegar
þetta er skrifað. Sigurjón Pétursson þagði þunnu
hljóði TÓorgarráði. Ælíar Þjóðyiljinn og „lýðræðis
kynslóðin“ á þeim bæ að þegja líka?
GARRI
65.3% á móti
ólfusvatnskaupunum!
I skodaiiakönnuii Félagsvísinda-
stofnunar háskólans. sem fram fór
um síðustu helgi um afstöðu kjós-
enda í Reykjavík til kaupa Reykja-
víkurborgar á Ölfusvatni, er niður-
staðan sú, að 65,3% þcirra, sem
taka afstöðu, eru mótfallnir kaup-
unum.
Kjóscndur í Reykjavík eru vafa-
laust ekki á móti því að Reykja-
víkurborg reyni að tryggja sér
vinnsluréttindi á jarðhita á
skynsamlegum kjörum. En það er
máltilbúnaöur allur og margháttuð
fríðindi seljendanna í 50 ár, sem fólk
fellir sig ekki við. Af þeim þætti
málsins leggur ólykt spiilingar.
Jarðhitaréttinn mátti tryggja borg-
inni, án þess að kaupa jörðina alla
á þeim ótrúlegu kjörum, sem
Davíð samdi um. Þctta sjá lang-
flestir kjósendur í Reykjavík í
hendi sér. Þess vegna eru 65,3%
þeirra andvígir þessu ótrúlega
bruðli á fjárinunum Reykvíkinga.
Reid Mbl. -grein
Davíðs baggamuninn?
f rauninni var það Davíð
Oddsson, öndvert tilgangi lians,
sem lagði til sterkustu röksemdir gegn
þessum jaröakaupum í grein, scm
hann skrifaði í Mbl. í síðustu viku.
Þar birti hann m.a. kort af landi
Ölfusvatns með skýringum. Á
kortinu var sá hluti jarðarinnar,
sem er ineð öllu óbyggilegur eða
„ofan byggðamarka“, skyggður til
aðgreiningar frá hinum hluta jarð-
arinnar þar sem láglcndi er
nokkurt. Þar kemur í Ijós, að hinn
óbyggilegi hluti jarðarinnar er
hvorki meira né minna en tveir
þriðju hlutar landsins. En eins og
Garri hcfur bent á áður, er jarðhita
Ölfusvatnslandsins einungis að
fínna í hinum óbyggilega hluta
jarðarinnar í bröttum hlíðum
Hengilsins.
Jarðhiti Ólfusvatns
er uppi í hiíðum Hengiis
Það er einmitt hinn óbyggilegi
hluti jarðarinnar, sem er áhuga-
verður fyrir Hitaveitu Reykjavíkur
til nýtingar einhvern tíma á næstu
öld. Kaup bitaréttinda á þessum
hluta landsins á sanngjörnu verði
hefðu naumast sætt gagnrýni og
andstööu Reykvíkinga.
Áhugi seljenda jarðarinnar var
og er aðeins bundinn við láglcndi
jarðarinnar við Þingvallavatn og
veiðinni þar. Þar vill Engeyjarætt-
in una í höllum Sumarlandsins.
Þeir hafa engan áhuga á óbyggileg-
um og snarbröttum hlíðum Heng-
ilsins.
„Greiðasemi“
um skör fram
Þess vegna sýnist niönnum rétti-
lega, að „greiðasemin“ hafi gengið
um skör fram við fyrrverandi eig-
endur. Þeir halda öllu því, sem
áhugavert er fyrir þá í 50 ár og fá
60 milljónir á borðið að auki. Það
má með sanni segja að rausnarleg-
ur er Davíð við vini sína þegar
tjármunir Rcykvíkinga eru honum
handbærir!
Akkilesarhællinn
Grein Davíðs í Morgunblaðinu í
fyrri viku, sem Mbl. sagði að væri
svo snjöll, að víst væri, að hefði
þau áhrif, að menn myndu flykkj-
ast fram til að vegsama stjórn-
kænsku og fjármálavit borgarstjór-
ans, hefur einmitt orðið hans Akk-
ilesarhæll. Hún svipti hulunni af
þeirri staðreynd, að jarðhitaréttinn
í hlíðuni Hengilsins mátti tryggja,
án þess að kaupa láglendi jarðar-
innar, hvað þá fyrir það okurverð,
sem um var samið, vegna þess, að
Hitaveita Reykjavíkur mun aldrei
að eilífu hafa nokkur not af þeim
hluta jarðarinnar Ölfusvatns.
Garri
VÍTTOG BREITT
lllllllllll
ÞETTA SEM HELST
NÚ VARAST VANN
Það er mikið lán fyrir þjóðina að
njóta traustrar leiðsagnar Morgun-
blaðsins um hvernig gera á grein-
armun á réttu og röngu og taka
ábyrga afstöðu til mála. Moggi
hefur t.d. ákveðið að í kosn-
ingabaráttunni vegna borgar-
stjórnarkosninga megi ekki minn-
ast á Hafskipsmálið, ekki kaup-
verðið á Ölfusvatni, né af hverjum
jörðin var keypt og það á ekki að
gagnrýna kaupin á Isbirninum og
hvernig staðið var að stofnun
Granda hf.
Morgunblaðið gefur stundum
öðrum blöðum föðurlegar
áminningar um hvernig þau eiga
að haga skrifum sínum og efnisvali
og vandar um þegar önnur blöð
eða fréttastofur Ríkisútvarpsins
voga sér að viðhafa önnur efnistök
en Moggi getur sætt sig við, og eru
þar með almennt viðurkennd.
Hugrenningar Víkverja eru einn
af hornsteinum Morgunblaðsins.
Víkverji hefur étið af skilnings-
trénu og kann að gera greinarmun
á réttu og röngu.
Víkverji veit hvernig á að kjósa
í borgarstjórnarkosningum og af
hverju. Hann veit líka hvað er
fallegt og hvað ljótt og hvað er
menning og hvað ómenning. Hann
veit að meirihlutastjórnir eru við
völd í Danmörku og Noregi, sbr.
pistilinn 24. maí s.l. og á mörgu,
mörgu fleiru kann Víkverji skil.
I laugardagshugvekjunni er víða
komið við. Listaverk við flugstöð
leiða hugann að atómbombum á
Keflavíkurflugvelli og þaðan beint
að undirlægjuhætti Tímans við
Rússa. Víkverji upplýsir: „Nútalar
enginn lengur um það - að vísu
mátti sjá setningu þess efnis í
Tímanum, málgagni Framsóknar-
flokksins, fyrir rúmri viku, þegar
endurbirt var áróðursfrétt úr
Prövdu, að kannski vissu íslensk
stjðfnVöl'd'''ékk-ort !ýrfti' 'þ'áb', ,1sém'J’
Deilt á Islendinga í málgagni sovéska KommúnLstaflokksins:
„Herskáar öldur leika
'im Islandsstrendur“
u þekktir
1
VARGUDIRNIR I Nonlur-AtUnt.hif. «
rn hrrakáor öldur kh. um þ
- I’uuug brf.I ifrnn. um birtúl «___
máljjagni Kommúnistonokluiinii. 1‘rmxU
hrldur Afram .Þvt m4 starfs við hemaðarsérfræðinjrana i
i fnun mrð réttu að þ»ð Pt-ntagon og hefur itajfhlaðkl Int
nns Atlantshafsbanda ,-mtti„nil Hrrald Tnhun,- lýst
ð venju þrýst.r 4. hrldur þessu sem ným uppRrtvun i No'rð
I ur-Allantshaf. Íslrnska nTussIj.’.m-
svan mrð auknum in hefur 4kveð.ð að auka hlutdeild
trmilum Embættis fulllnia smna i hofuðstuðvum All
ur riiðum Sj4lfsla-ð anuhafsbandalajrsins ujr taka þ4lt
t ekki aðeins bli’Ss- i starfi hemaðamofndar þess Sú
sU-fna kemur sjiinskl fynr sjónir.
ekki sist fýnr það að landið að
Forkólfar Atlanlshafsl>an<lalajrs-
ins njr í Pentajrnn hafa lunjrum 41.1
ið Island ákjósanlejrt ujr kaJlað
landið úsukkvanl.trl nujrmóðursk.p
Bandansk. riðhorrann. L-hman.
sajrð. ný-v.Tið a,' Handahkin þyrflu
að hafa sljum a hafinu milli ísiands
.■jr Niwvjrs
Ban.1ahkjam.-nn haf. -naraukv'
h,-nuðarumsvif ,ín 4 -vas'inu I
hersUAnn. . K.-flavik haf.. F-1
omislu spn-njouflujnélar u-kk'
við af h.num .-Idn t 1 -y þar hefur
venð komið fynr A" Ai -flupsélum
Tvær mnViovar fvnr hlerunarkerf.
sjóhers Bandankjamanna neðan
s.,iv,.r eru e.nnqr staðseliar 4 Is
v-;, ovic dæmdur
■s-;r;:-5:Tiða.fyrir
iomstóli
Við hér á Tímanum berum mikla
virðingu fyrir Víkverja, eins og
öðrum þungaviktarskribentum
Þrss. hemaðammsv.f eru v.ssu
l.-jra aýnu me.n en þorf er 4 t.l
vanur laland. ojr þjóna i raun ein-
vörðunjru - hemaðarstefnu Aliants-
hafshandalajrsuiv ,y Bandankja
Ihm. jriojori vilni Það ,-r enmn
væri að finna á Keflavíkurflugvelli.
Víkverji hélt, að dylgjur af þessu
tagi heyrðu sögunni til. Ekki er að
efa að þær hafa glatt þá, sem
standa að Prövdu.“
Víst hafa dylgjurnar í Tímanum
glatt þá hjá Pravda. En hvílík
ofsagleði hlýtur ekki að hafa gripið
um sig á þeim bæ þegar Morgun-
blaðið málgagn Sjáifstæðisflokks-
ins birti orðrétta fréttina úr mál-
gagni Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna.
Tíminn birti smáfrétt um grein-
ina neðst á síðu. Morgunblaðið
gleypti hana alla og sló upp með
tveim fyrirsögnum efst á síðu.
Grein þessi var þýdd í sovéska
sendiráðinu í Reykjavík og send
blöðunum. Tímanum þótti ekki
ástæða til að birta hana orðrétta,
en telur samt fréttnæmt þegar grein
birtist um íslensk málefni í stórbi-
aði í útlöndum, sem hlutfallslega
hefur eins mikla útbreiðslu og áhrif
í Sovétríkjunum og Morgunblaðið
á íslandi. Því var getið lítillega um
Pravdagreinina. En Morgunblaðið
brást ekki upplýsingaskyldu sinni
og kýl'di boðskapnum öflum í síha
mórgU'-og dyggu lesértdtWLaíi01 u'r Kjril
Moggans, og viljum gjarna njóta
leiðsagnar þeirra og óbilandi dóm-
greindar um hvað má skrifa og
hvað ekki. En nú hefur Víkverji
sett okkur í vanda. Það sem er
endurbirt áróðursfrétt úr Pravda
og dylgjur, sem gleðja ráðamenn í
Moskva, þegar efnið birtist mikið
stytt í Tímanum, er allt í góðu lagi
þegar Moggi gerir sama efni marg-
falt betri skil.
Hér er komið upp vandamál sem
við ráðum ekki við, og treystum
okkur því ekki til að taka
áminningar Morgunblaðsins alvar-
lega og enn síður að láta það
segja okkur fyrir verkum.
En þótt Víkverji sé margfróður
og óskeikull í dómum verður hann
þó að sætta sig við að sjálfur
Mogginn getur brugðist honum og
við á Tímanum tökum undir með
sálmaskáldinu góða:
„Petta sem helst nú varast
vann
varð þó að koma yfir hann. “
OO
íegtn! cjíub 6iv muji:v ivfi .unnivm.
6 Timinn
Tírnirm
MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog
Framsóknarfélögin í Reykjavik
Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason
Ritstjóri: NíelsÁrni Lund
Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson
Fréttastjóri: GuðmundurHermannsson
Aðstoðarf réttastjóri: Eggert Skúlason
Auglýsingastjóri: Steingrímur G íslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.-