Tíminn - 28.05.1986, Qupperneq 14

Tíminn - 28.05.1986, Qupperneq 14
14 Tíminn Flensborgarskólinn I Hafnarfiröi FlenSbOrgarSkÓla Flensborgarskólinn í Hafnarfirði erframhaldsskóli, sem starfar eftir Námsvísi fjölbrautaskóla. Þar verða næsta haust teknir inn nýir nemendur á eftirtaldar námsbrautir: EÐ Eðlisfræðibraut, 4ra ára námsbraut til stú- dentsprófs. FÉ Félagsfræðabraut, 4ra ára námsbraut til stú- dentsprófs. F1 Fiskvinnslubraut 1,1 árs nám í tengslum við nám í fiskiðn í Fiskvinnsluskólanum. F2 Fiskvinnslubraut 2, 2ja ára nám í tengslum við fisktækninám í Fiskvinnsluskólanum. HA Hagfræðibraut, 4ra ára námsbraut til stú- dentsprófs. HE Heilsugæslubraut, 2ja ára námsbraut til undir- búnings námi í sjúkraliðaskóla (hluti af sjúkraliðanámi). ÍÞ íþróttabraut, 2ja ára námsbraut MÁ Málabraut, 4ra ára námsbraut til stúdents- prófs. NÁ Náttúrufræðabraut, 4ra ára námsbraut til stúdentsprófs. TÓ Tónlistarbraut, 4ra ára námsbraut til stú- dentsprófs tekin samhliða námi í tónlistar- skóla. TB Tæknabraut, 1 árs nám að loknu iðnnámi til undirbúnings iðntæknanámi í Tækniskóla íslands. TÆ Tæknifræðibraut, 2ja ára nám að loknu iðnnámi til undirbúnings tæknifræðinámi í Tækniskóla íslands. Þessari braut lýkur með tæknistúdentsprófi. UP Uppeldisbraut, 2ja ára nám til undirbúnings fóstrunámi eða skyldu námi. VI Viðskiptabraut, 2ja ára námsbraut sem lýkur með verslunarprófi. Umsóknir nýrra nemenda um skólavist í dag- skólanum á haustönn 1986 þurfa að hafa borist fyrir 6. júní n.k. Innritun í öldungadeild fer fram í ágúst og verður nánar auglýst síðar. Skólameistari. FJÖLBRAUTASKOLINN VIÐ ARMULA 4RMULA 10-12, 105 R SIMI 84022 Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla Innritun ferfram í Miðbæjarskólanum 2. og 3. júní frá kl. 9.00 til 18.00 og á skrifstofu Ármúlaskóla 2. til 6. júní frá kl. 8.00 til 15.00. Skólinn býður upp á nám á eftirtöldum brautum: Heilsugæslubraut, bæði aðfaranám sjúkraliða- skólans og til stúdentsprófs, íþróttabraut, tveggja ára og til stúdentsprófs, Málabraut til stúdents- prófs, Náttúrufræðibraut til stúdentsprófs, Sam- félagsbraut til stúdentsprófs, Uppeldisbraut, aðfaranám fósturskóla og'til stúdentsprófs, Við- skiptabraut til almenns verslunarprófs og stú- dentsprófs. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans s. 84022. Skólameistari. Bændur 12 ára stúlka, dugleg og hefur gott lag á börnum óskar eftir sveitaplássi í sumar. Upplýsingar í síma 92-3716. Miðvikudagur 28. maí 1986 Þjóðleikhúsið: Helgispjöll ettir Peter Nichols. Þýðandi og leikstjóri: Benedikt Árnason. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. í>að fer ekki á milli mála að Peter Njchols er kunnáttusamur leikrita- jiöfundur. Helgispjöll er tæknilega vel skrifað leikrit, athyglisvert hvernig höfundur vinnur úr efniviði sínum á sviðinu. En mér er ómögulegt að sjá að hér sé mikilsháttar leikskáld á ferðinni. Framhjáhaldsstúdían sem boðið er upp á er sannast sagna ósköp hversdagsleg. Þjóðleikhúsið hefur ekki heldur lagt verulega rækt við viðfangsefnið, svo að sýningin er tæpast fullæfð. Það er raunar óafsak- anlcgt því að verkið er kröfuhart og þarf fagmannlegrar snerpu við eigi það að njóta sín. Efnið er framhjáhald, sagði ég. Hér segir sem sé af hjónunum James og Eleanor sem hafa verið lukkulega gift um langt skeið. Svo kemur þar að vinkona þeirra, ung ekkja fer að leggja snörur fyrir karlinn. Hann stenst ekki mátið og leiðist æ lengra út í leikinn svo að hjónabandið bíður óbætanlegan skaða af. Með- ferðin á þessu efni er ósköp þurrleg og rasjónalísk, enda segir um höf- undinn í langri leikskrárgrein að hann sé skarpskyggn í meira lagi:. „Þessi hæfileiki Peter Nichols að sjá í gegn um blekkinguna er ef til vill helsta einkenni hans sem höfundar, því það er jafnan af fullkominni skynsemi og miskunnarlausu raunsæi sem hann meðhöndlarefniviðsinn." Þetta er allt rétt: Helgispjöll er klárt og kvitt verk. En ef við lítum á það sem könnun á sálrænum áhrifum ótryggðar á hjón verður ekki mikið úr því. Eiginlega var manni nokkuð sama um þetta hjónaband þegar á leikinn var hofft. Það er tæknibragð höfundar, og verður nokkuð skemmtilegt í leikn- um, að hann skiptir persónum hjón- anna í tvennt og lætur innri manninn koma fram þegar úti er um trúnaðar- traustið. Þetta verður til þess að setja áhorfanda einkar skýrt fyrir sjónir hvernig hjónunum líður. Á hinn bóginn hefur það í för með sér að höfundurinn tyggur alla hluti í áhorfandann. Hann er þannig svipt- ur færi á innlifun í hugarheim hjón- anna, ekkert er ímyndunaraflinu eftir skilið. Ég verð að gera þá játningu að slík skáldverk höfða lítt til mín. Benedikt Árnason er þrautreynd- ur leikstjóri og ber sýningin þess að ýmsu glöggt vitni: Sviðið nýtir hann vel, staðsetningar vel útfærðar og gangur leiksins sæmilega greiður. Enda byggist ekki lítið á því. Textinn er svo þétt spunninn að engu má skeika í hraða tilsvaranna. Leifði raunar ekki af að leikararnir héldu uppi dampinum. Um textann er annars það að segja að hann er býsna klúr að nútímahætti. En hið blautlega tal var oftar en ekki vand- ræðalegt í munni leikaranna. Klám- fenginn texti bætir" því miður ekki upp á ástríðuskort höfundarins að baki verksins. Það fannst mér sann- ast á Helgispjöllum. Þjóðleikhúsið teflir fram þraut- reyndu liði í sýningunni. Róbert Arnfinnsson fer með hlutverk James og á létt með að draga upp mynd þessa gæflynda heimilisföður sem víxlsporið ruglar í ríminu. Margrét Guðmundsdóttir leikur Eleanor og er vel valin í það hlutverk. Jim, innri maður James er Bessi Bjarnason og naut sín vel, án þess að sýna nýja hlið á leik sínum, - og má raunar segja hið sama um aðra leikendur: Nell, hinn partur Eleanor, er í höndum Þórunnar Magneu Magnús- dóttur, og Anna Kristín Arngríms- dóttir leikur Kate sem veldur öllu bölvi, dæmalaust frökk og ágeng þegar hún fær James til við sig. Áleitni Kate gengur raunar úr hófi fram, er það enn eitt dæmi um ofurskýrleika höfundar sem leik- stjóri gerir lítið til að tempra. Vin- konan Agnes er einna skemmtileg- ust persóna leiksins og fór Sigurveig Jónsdóttir með það hlutverk af ör- yggi og skörungsskap. Gaman að sjá þessa leikkonu og mætti oftar gerast. Aðrir leikendur eru í þöglum hlut- verkum og ástæðulaust að þylja nöfn þeirra. Hvers vegna heitir þetta natúral- íska leikrit svo Helgispjöll? Því er svarað í leikskrá: Það heitir sem sé á enskunni „Passion Play“. Og pass- ion þýðir á nútímamáli ástríða eins og kunnugt er, en eldri notkun órðsins vísaði til píslarsögunnar, passíunn- ar. Þessu tengist þad aö tleanor syngur í kór sem flytur kirkjutónlist, passíur, og James gerir við skemmd málverk, einkum Kristsmyndir. - Allt er þetta gott og blessað, en auðvitað ofætlun að slíkum skír- skotunum verði skilað í íslenskri þýðingu. Hafi leikritið hins vegar átt að miðla píslarsögu hjóna sem bíða skipbrot í hjúskap sínum tókst það ekki með (reim hætti að ýtti við áhorfandanum. Sú var að minnsta kosti mín reynsla. Að öllu samanlögðu verður ekki sagt að risið á þessu leikári Þjóðleikhússins hafi vaxið með síð- asta verkefninu. Gunnar Stefánsson. Fagna bankakortum Stjórn Sambands veitinga- og gistihúsa fagnar því samkomulagi sem bankar og sparisjóðir hafa ný- verið gert með sér að gefa út banka- kort til viðskiptamanna sinna. Útgáfa innistæðulausra tékka og fölsun hefur um langt skeið verið mikið vandamál hér á landi, og hafa móttakendur borið alla ábyrgð. Það er því fagnaðarefni þegar reiknings- bankar taka á sig ábyrgð á tékkum þótt með takmörkunum sé, og Ijóst að almenn notkun slíkra bankakorta mun óhjákvæmilega tryggja mun betur er nú er öryggi í tékkavið- skiptum. ‘JA | I:

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.