Tíminn - 28.05.1986, Síða 15
Miðvikudagur 28. maí 1986
Tíminn 15
Frá aðalfundi Kf. Rangæinga
Blómlegur iðnaður
- en fjármagnskostnaður þungur í skauti
Hjá Kaupfélagi Rangæinga á
Hvolsvelli gekk reksturinn á margan
hátt vel á síðasta ári, þrátt fyrir mjög
erfiðar ytri aðstæður. Heildarvelta
félagsins varð 441,5 milljónir og
jókst um 81 milljón frá árinu á
undan. Þar af var sala verslunar-
deilda 304 milljónir og sala iðnaðar-
deilda félagsins 110 milljónir.
Frá þessu er skýrt í nýútkomnu
hefti af KR-blaðinu sem félagið
gefur út, og einnig birtar fréttir frá
aðalfundi þess sem haldinn var fyrr í
mánuðinum. Þar segir einnig að hjá
félaginu hafi orðið rekstrarhagnaður
fyrir fjármagnsútgjöld að fjárhæð
um 5 milljónir, samanborið við 3,8
milljónir árið 1984. Eftir fjármagns-
gjöld varð hins vegar rekstrarhalli að
upphæð 8,2 milljónir, og höfðu þá
eignir verið afskrifaðar um 8,4 mill-
jónir. Eigið fé félagsins var hins
vegar 41 milljón við lok síðasta árs,
samanborið við 38,8 milljónir í árs-
lok 1984.
í skýrslu Ólafs Ólafssonar kfstj. til
aðalfundarins kont m.a. fram að
aðalástæðan fyrir rekstrarhallanum
var hinn óbærilega hái fjármagns-
kostnaður sem ríkti á árinu 1985.
Einnig höfðu þeir miklu erfiðleikar,
sem hrjáðu ullariðnaðinn hér á landi
á síðasta ári, slæm áhrif á rekstur
félagsins. Á þessu ári hefur lítið
rofað til í ullariðnaðinum, og er
staða hans enn mikið áhyggjuefni.
Eins og fram hefur komið í fréttum
hefur Kf. Rangæinga byggt upp
mjög góða aðstöðu fyrir ullarverk-
smiðju sína, bæði með byggingu
vandaðs húsnæðis og með auknum
og bættum vélakosti. Þess vegna er
það mikið mál fyrir kaupfélagið, og
raunar mikilvægt atvinnumál á
staðnum, að betri tíð sé framundan
á þessum vettvangi.
Kf. Rangæinga er einnig athafna-
samt í húsgagnaiðnaði, sem átt hefut
í vök að verjast á síðustu árunt, og
hefur félagið fundið verulega fyrir
því. Sala þess á heimilishúsgögnum
dróst saman á síðasta ári. Aftur
gekk sala á sjúkra- og stofnanahús-
gögnum betur, og einnig hefur sala
þeirra aukist greinilega á fyrstu mán-
uðum þessa árs.
Þá gekk reksturinn á vélsmiðju
kaupfélagsins ntjög vel á árinu, og
var mikið að gera jafnt í þjónustu og
framleiðsluverkefnum. Vorið 1985
var lokið við smíði á 100 baggatín-
um, sem allar voru seldar áður en
framleiðslu þeirra lauk. Nú í vor
verða framleiddar 60 baggatínur og
eru söluhorfur góðar. Líka er hafin
framleiðsla á losunarbúnaði úr vot-
heysturnum hjá kaupfélaginu, og
eru vonir bundnar við að þar reynist
vera á ferðinni notadrjúgt tæki fyrir
bændur.
I verslunum félagsins hafa verð-
kannanir sýnt að verðlag þar er
aðeins 1,7% hærra en á Reykjavík-
ursvæðinu, og er sá munur undir
flutningskostnaði. Á síðasta ári var
félagsmönnum greiddur arður í
formi afsláttarkorta, samtals að fjár-
hæð 1,1 milljón króna.
Félagsmenn Kf. Rangæinga eru
nú 775, og fjölgaði þeim á síðasta ári
um 63. Formaður félagsins er Pálmi
Eyjólfsson, en kaupfélagsstjóri er
Ólafur Ólafsson.
- esig.
Hvolsvöllur
Leikfangakastalar
Komin er út ljóðabók eftir Sjón og
nefnist hún Leikfangakastalar sagði hún
það er ekkert til scm heitir leikfangakast-
alar. Útgefandi er einhver djöfullinn eða
Mcdúsa. í bókinnferu tíu-eða ellefu Ijóð.
Hún er gefin út í 300 eintökföölQJgí
prentuð í Stensli í Reykjavík.
Vemd-1.tbl.1986
Útgefandi tímaritsins Verndar er
Fangahjálpin og Félagasamtökin Vernd.
I ritstjórnargrein segir Jóna Gróa Sigurð-
ardóttir. sem er ábyrgðarmaður blaðsins
m.a.:
„Félagasamtökin Vernd hafa unnið
mikið starf við að aðstoða þá, sem koma
úr fangelsum og vilja söðla um til betra
lífs. Því starfi skal haldið áfram á meðan
einhverjir gista refsivistarstofnanir
landsins. En leitast verður jafnframt við
að koma í veg fyrir fangelsun með því að
ryðja jákvæðar brautir í öndverðu."
í blaðinu er sagt frá fangavarðanám-
skeiði og rætt við nemendur þar. Einnig er
viðtal við Björk Bjarkadóttur, form.
Fangavarðafélags íslands: Ein vika varð
að 14 árum. Þá eru í ritinu nokkrar '
myndir frá heimili Verndar að Laugateigi
í Reykjavík og smásaga eftir 18 ára fanga
í Síðumúlafangelsi: „Aldrei of seint að
iðrastj" heitir'ságan. Gréin er.þm upp-
færÖslíi'fdftéáVfangélshlh; þti' fýrir mfrrg;r 1
þeirra sé „kerfið" völundarhús.
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eöa útvegum
með stuttum fyrirvaraeftirfarandi:
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeöjur og aöra
undirvagnshluti í allar gerðir
beltavéia.
x Slitstál, skerablöö og
tannarhorn fyrir jaröýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jaröýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
ailar stæröir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aöra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stæröir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeöjurogfæribandakeöjur
fyrir verksmiöjur og
landbúnaöarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöövar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
verðbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP h/f
Sími641045
/ iu6i. 'pi aimovf! iinf
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins
Rauðarárstíg 18
Kosningastjóri er Sigrún Sturludóttir sími 17020
og 24480 skiptiborð. Við hvetjum stuðningsmenn
flokksins til að líta inn og ræða málin. Alltaf heitt á
könnunni. Góðfúslega hafið samband við hverfa-
stjórnir í síma 16209 og 19495.
Sjálfboðaliðar:
Áhugafólk, sem vill taka þátt í kosningastarfi hafi
samband í síma 24480.
Hverfastjórnir
Hverfastjórnir eru að störfum. Hafið góðfúslega
samband í símum 17199 - 19390.
Kjördagsvinna
Þeir sem vilja vinna fyrir flokkinn á kjördag
vinsamlega hafið samband í síma 24480.
Kjörskrá
Við hvetjum stuðningsmenn flokksins til að athuga
hvort þeir eru á kjörskrá. Upplýsingar um kjörskrá
er að fá í síma 24480.
Vinnustaðafundur
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík
eru fúsir til að mæta á vinnustaðafundi og aðra
fundi þar sem borgarmál eru til umræðu. Hafið
samband viðkosningaskrifstofu, síminn er 24480.
Kosningastjóri.
HUSVIKINGAR
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins er í
Garðar. Skrifstofan er opin frá kl. 17.30-19.00 og
20.30-23.00.
Á KJÖRDAG
minnum við stuðningsmenn á að kjósa snemma.
Ef ykkur vantar akstur á kjörstað, hafið samband
í síma 41225.
Bjóðum alla velkomna í kaffi og pönnukökur á
kjördegi í Hornbjargi (gengið inn að norðan).
Stuðningsfólk sýnið áhuga og hafið samband við
skrifstofuna. Frambjóðendur Framsóknarflokksins
verða á kosningaskrifstofunni til viðræðna um
stefnu flokksins í bæjarmálum.
Kosningasíminn er 41225.
XSamtaka nú til sigurs!
FRAMSÓKNARFÉLAG
HÚSAVÍKUR
Utankjörstaðakosning
Opnuð hefur verið skrifstofa vegna utankjörstaöakosningar aö
Rauðarárstíg 18, sími 24480.
Beinir símar fyrir kjördæmin eru:
15467 fyrir Austurland - Noröurland eystra - Norðurland vestra og
Vestfiröi.
15788 fyrir Vesturland - Suöurland - Reykjanes og Reykjavík.
Hafiö samband viö skrifstofuna.
Framsóknarflokkurinn.
Kosningaskrifstofa
Framsóknarfélagsins á Patreksfirði
er opin öll kvöld frá kl. 20.30-22.30 sími 1566. Kosningastjóri er
Sigurður Ingi Guðmundsson.
i Framsóknarfélaq Patreksfiaraar. _____‘