Tíminn - 22.06.1986, Side 2
2 Tíminn
Sunnudagur 22. júní 1986
HOLLUSTU-
HORNIÐ
Svanfríður Hagwaag
Adalréttir úr
jurtaríkinu
Aðalréttir eru venjulega helsta uppspretta þeirrar eggjahvítu sem við
neytum þó það þurfi ekki að vera algild regla.
Eggjahvíta í matvælum er byggð upp af mörgum aminósýrum sem eru
nauðsynlegar til að halda heilsu. Líkaminn verður að fá allar helstu
aminósýrurnar í réttum hlutföllum á sama tíma svo honum notist þær að
fullu. f>að eru til mismunandi aðferðir til að ná jafnvægi í aminósýrunum.
Venjulegast er að blanda saman tveimur eða þremur mismunandi
tegundum af jurtaeggjahvítu. Þá blandast aminósýrurnar og jafnvægi
fæst. Önnur aðferð er að blanda jurtaeggjahvítu saman við eggjahvítu úr
dýraríkinu eins og mjólk, egg og ost. Hver kannast ekki við gamla góða
hrísgrjónagrautinn.
Með því að nota eggjahvítu úr jurtaríkinu fáum við ódýra eggjahvítu í
háum gæðaflokki. Hnetur og baunir eru þar í háum gæðaflokki þar sem
þær innihalda mikið magn af eggjahvítu og þar standa sojabaunir fremstar
í flokki. Hér á eftir koma tvær uppskriftir sem innihalda hnetur og
sojabaunir.
Lúxushnetuhleifur
3 msk matarolía
1 meðailaukur, fínsaxaður
1 græn paprika, söxuð
1/3 bolli tómatar, saxaðir, síaðir
2. msk. söxuð steinselja
1 bolli soðin brún hrísgrjón
1/3 bolli rasp
1 bolli saxaðar valhnetur
1 egg, þeytt
3/4 tsk. sjávarsalt
1/4 tsk. paprika
1 tsk. rifinn sítrónubörkur
1 1/2 bolli marðar kartöflur
Skraut:
steinselja
tómatar
Hitið pönnu við meðalhita og látið síðan út á hana matarolíuna. Bætið
út í lauknum og paprikunni og steikið þangað til hvorttveggja er íarið að
mýkjast. Blandið steikta grænmetinu saman við næstu 9 atriði. Látið
deigið í smurt ofnfast mót sem tekur um það bil 1 lítra og bakið við
160-170°C í um það bil 30 mínútur. Takið úr ofninum. Þekið með
krydduðum mörðum kartöflum, stráið aðeins papriku yfir og bakið í
ofninum þangað til kartöflurnar eru farnar að brúnast eða um það bil 15
mínútur. Skreytið með saxaðri steinselju og tómatsneiðum. Berið fram
með rauðrófum og góðu grænu salati.
Sojabaunahleifur
2 bollar sojabaunir
3 msk. matarolía
2 sellerístilkar, fínsaxaðir
1/2 bolli saxaður laukur
1 1/2 bolli rasp
1 egg
1 tsk. sage
2 msk. hunang
2 tsk. sjávarsalt
2 hvítlauksbátar
1/4 tsk. cayennepipar
1 bolli heimatilbúin tómatsósa
Látið sojabaunirnar liggja í bleyti yfir nótt og sjóðið þær síðan þangað
til þær eru meyrar. Látið renna af þeim. Geymið soðið og notið í súpur
og sósur. Látið baunirnar í blandara 1/3 bolla í einu og malið eða notið
kvörn. Það er líka hægt að hakka baunirnar. Hitið stóra steikarpönnu.
Látið á hana olíuna og sojabaunirnar. Steikið þangað til baunirnar eru
byrjaðar að brúnast. Bætið út í afganginum af efnunum nema um það bil
1/4 bolla af tómatsósunni. Hrærið létt saman. Mótið í hleif og látið í smurt
brauðform. Bakið í 1 klukkustund við 170°C. Hellið afganginum af
tómatsósunni yfir hleifinn og bakið í nokkrar mínútur í viðbót. Það er
líka hægt að strá rifnum osti yfir og baka þangað til hann er bráðnaður.
Berið fram með tómatsósu eða brúnni sósu.
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
1,1 " 1 1-
Okeypis þjónusta
^TTV •
J ímmn
Reykholtsdælingar á léttu skeiði til messu.
Þjóðhátíð
í Reykholtsdal
17. júní var haldinn hátíðleg-
ur í Reykholtsdal, svipað og
undanfarin ár. Þó hófust hátíða-
höldin öðruvísi að þessu sinni,
þ.e. að efnt var til hópreiðar, til
messu í Reykholtskirkju kl.
11.00, að morgni. Um 30 manns
komu ríðandi til messu. Fána-
beri í broddi fylkingar var Sigfús
Jónsson í Skrúð. Kl. 15.00 hóf-
ust hátíðahöld í Logalandi.
Byrjað var á að fara í ýmsa leiki,
með þátttöku bæði barna og
fullorðinna. M.a. fór nýkjörin
hreppsnefnd sveitarinnar í reip-
tog við fráfarandi hreppsnefnd
og fóru leikar þannig að gamla
hreppsnefndin reyndist sterkari,
bæði upp og niður brekkuna.
Að loknum leikjum var farið inn
og þar hélt fjallkonan ræðu og
Jón Þórisson flutti ræðu dagsins.
Kaffiveitingar voru síðan á
boðstólum. Um kvöldið var
Unglingadansleikur í Loga-
landi.
Magnús Magnússon, fréttaritari Tímans í Borg-
arfirði.
Fjallkonur í Reykholtsdal. Helstu flokkadráttum er lokið en núverandi hreppsnefnd lætur
þá eldri draga sig upp og niður brekkur.
Tímaritið TURBO.
Enn eitt
bflablaðið
á markað
Út er komið 1. tölublað tíma-
ritsins TURBO. Ritstjórar eru
stórhuga ungir menn, Árni
Björgvinsson og Karl Gunn-
laugsson.
Tímaritið TURBO er alhliða
tímarit um bíla, vélhjól, vél-
sleða, jeppa og allt það sem
viðkemur akstursíþróttum
innanlands sem utan, segir í
fréttatilkynningu frá útgáfu-
mönnum.
Efni 1. tölublaðs er m.a. Bíla-
naustrallý ’86, torfærukeppni
Bílaklúbbs Akureyrar, trukka-
kappakstur í Englandi, kvart-
mílukeppni í Bandaríkjunum og
heimsmeistarakeppni í Formúla
1 - rallakstri og vélhjólakapp-
akstri. Þá er og lagður dómur á
ýmis tryllitæki og í miðopnu er
glæsilegt veggspjald í litum. í
blaðinu er urmull litmynda og
sagt er frá mikilli bílasýningu
Forsíða tímaritsins nýja.
sem ritstjórar TURBO stóðu
fyrir á dögunum.
Ráðgert er að koma blaðinu
út með fimm vikna millibili í
sumar og er næsta tölublað vænt-
anlegt 20. júlí nk. Tímaritinu er
dreift í bóka- og blaðsölustaði
um land allt.
Útgefandi blaðsins TURBO
er fyrirtækið Hugsýn sf. til
heimilis að Goðatúni 2 í Garð-
abæ, s: 651501.