Tíminn - 22.06.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Sunnudagur 22. júní 1986
3
upS'S:3°ðiS'Þv‘aa h-"
er skömmu eftfr kristnitöku Y°gnu£j®,kanna
-færist fjör í persónur mestu sagnar ís-
lendinga. Leikgerð Njálu færð upp
undir berum himni í hrauni við Kald-
ársel.
karphéöinn kemur
vápnið.
LLA hefur þú launat mér goðorðit, er ek
fekk þér í hendr, at fara svá ómannliga með. Vil ek, at
launir þeim því, at þeim dragi öllum til bana. En þat
er til þess, at þú rægir þá saman ok drepi synir Njáls
Höskuld. En þar eru margir til eftirmáls, ok munu þá
Njálssynir af þeim sökum drepnir verða.“
Svo lagði Valgarður inn grái til ráðin, er hann vandaði
um fyrir syni sínum, Merði, er misst hafði alla menn úr
þingi til goðorðs Höskuldar í Hvítanesi. Tókst Merði
rógurinn með slíkum ágætum að enn eru ósannsöglir
menn kallaðir lyga Merðir og Njálssynir voru allir
drepnir.
A laun fyrir Njáli sjálfuin lögðu Mörður og Njálssynir
á ráðin um aðför að Höskuldi Hvítanessgoða í Ossabæ.
Mæltist víg hans illa fyrir og sagði Njáll, að þau tíðindi
væru hörinuleg og að svo félli sér þetta nær um trega,
að honum hefði þótt betra að hafa látið tvo sonu sína
og lifði Höskuldur.
En í hrauninu við Kaldársel kviknar Höskuldur
til sögunnar og mun ar j-jVjtanesSgoöi aftur, Njáll gamli inn skegglausi röltir
enn um íslensk héruð og hörmungaratburðir og hefndar-
víg úr sögu hans eru endurvakin af leikhópi Sögu-
leikjanna, undir stjórn Helgu Bachman og Helga
Skúlasonar, en frumsýning var í gær.
Helga og Helgi hafa samið nýja leikgerð Njálu og
stuðst við leikrit Jóhanns Sigurjónssonar, Mörð Val-
garðsson, og að sjálfsögðu einnig við Njálssögu sjálfa.
Leikurinn er fluttur undir beru lofti um helgar í sumar
en aðgangsmiða að Söguleikjunum má fá hjá Faranda
og Kynnisferðum auk allra hótela. Miðapöntun er í
síma 622666.
-ÞJ
y<
sinum og heimtar að hann
Njalssyni gegn Höskuldi Hvfta
Persónur og leikendur:
Njáll
Bergþóra, kona hans
Skarphéðinn
Grímur
Kári
Höskuldur Hvítanessgoði
Hildigunnur, konahans
Flosi, föðurbróðir hennar
Valgarður inn grái
MörðurValgarðsson
Þórkatla, konahans
Þerna
Þræll
Erlingur Gíslason
Ásdís Skúladóttir
Valdimar Flygenring
ÞrösturLeóGunnarsson
Skúli Gautason
Jakob ÞórEinarsson
Bryndís Petra Bragadóttir
Rúrík Haraldsson
Rúrik Haraldsson
Aðalsteinn Bergdal
Guðrún Þórðardóttir
Helga Vala Helgadóttir
Eiríkur Guðmundsson