Tíminn - 22.06.1986, Qupperneq 9
Sunnudagur 22. júní 1986
Tíminn 9
Götumynd frá Juchitán í Oaxaca-fyíki, þar sem vinstri menn
náðu meirihluta í kosningum.
statt miðað við önnur lönd í
róniönsku Ameríku? Ef við not-
um mælikvarða eins og heils-
ugæslu, læsi, menntunarstig og
svo almenna afkomu?
„í stórum dráttum er efna-
hagsástand í Mexíkó svipað og í
öðrum löndum róinönsku Ame-
ríku.
Síðustu áratugina hefur fólk
verið að flykkjast úr sveitunum
í borgirnar í von um betri af-
komu sem hefur viljað láta á sér
standa, enda hafa Mexíkanar
orðið fyrir miklum efnahagsá-
föllum. Þeir söfnuðu ntiklum
erlendum skuldunt og af því
leiddi mikið fall gjaldmiðilsins,
pesosins. Síðar kom til sögunnar
verðhrun á olíunni, sem var
helsta von Mexíkana um betri
framtíð og skuldasöfnunin var
réttlætt með uppbyggingu olíu-
iðnaðarins.
Núna eru hlutföllin þannig,
að um 60% þjóðarinnar búa í
borgum en 40% í sveitum. Þetta
fólk sem flust hefur milljónum
saman í borgirnar býr þar í
fátæktarbælum við ólýsanlega
eymd. Inn í verstu fátækrahverf-
in í Mexíkóborg fara engir utan-
aðkomandi. Lögreglan ferþang-
að ekki nema að degi til og þá
með alvæpni. Þetta fólk lifir
aðallega á ránum og betli. í
sveitunum getur fólk þó ræktað
upp í sig og er ótrúlega nægju-
samt. Sumsstaðar lifir fólk næst-
um eingöngu á maís, salti og
baunum. Við sjóinn er ástandið
mun skárra, þar getur fólk veitt
fisk sér til matar. Ég veitti því
athygli í Oaxaca að fólk hafði
miklu betra viðurværi í fiski-
þorpunum en uppi í sveit. En
það er engin verslun með fisk frá
fiskimannaþorpunum upp í
sveitaþorpin. Ég kom í indíána-
þorp aðeins 10 kílómetra frá
ströndinni og þar bragðaði fólk
aldrei fisk allan ársins hring, það
hafði einfaldlega enga peninga
til að kaupa hann fyrir. Við
færðum fólkinu þarna nokkrum
sinnum fisk og það var eins og
ég hefði boðiö því til herlegrar
veislu.
Því var spáð að efnahagserfið-
leikarnir mundu leiða til þjóð-
félagslegrar ólgu meðal fátæk-
asta hluta þjóðarinnar, en það
hefur ekki gerst. Og skýringin á
því er tiltölulega einföld, hann
lifir ekki í sama hagkerfi og
hinir. Fyrir þá sem lifa af betli
eða vasaþjófnaði eða rækta uppí
sig til að draga fram lífið skipta
viðskiptakjörin eða staða pesos-
ins engu máii, slíkir hlutir hafa
ekki áhrif á þeirra framfærslu.
Það eru frekar hinir sem finna
fyrir kreppunni og þá einkum
fátækari hluti millistéttanna,
sem hefur verið háður innflutt-
um vörum til að halda uppi
sínum lífsstíl. Kreppan hefur
bitnað verst á því fólki, en það
rís ekki upp með kjaft, það þorir
það ekki af ótta við þá sem eru
enn neðar í stiganum. Frekar
bíður það í von um að stjórnvöld
færi hlutina til betri vegar.
Þeir sem mest döngun er í
hafa leitað norður fyrir landa-
mærin i leit að atvinnu og af-
komu fyrir sig og sína. Undan-
farin ár hefur gríðarlegur fjöldi
Mexíkana farið til Bandaríkj-
anna, einkum eru það ungir
karlmenn með nógu mikla döng-
un og framtakssemi til að neita
að sætta sig við það líf sem þeim
er búið heima fyrir. Þetta gerist
með þegjandi samþykki beggja
ríkjanna. Mexíkönsk stjórnvöld
losna við þá sem helst væru
líklegir til að verða þeim til
vandræða heima fyrir, í staðinn
afla þeir gjaldeyristekna, þeir
vinna fyrir fjórföldum launum á
við það sem þeir gætu haft
heima hjá sér og senda pening-
ana heim og framfleyta fjöl-
skyldum sínum þar. Bandaríkja-
menn eru ánægðir með að fá
ódýrt vinnuafl. Hins vegar skap-
ar þetta ákveðin vandamál hjá
þeim. í mörgum borgum í Suð-
Vesturríkjunum eru heil hverfi
þar sem einvörðungu búa Mex-
íkanar. í Mexíkó er spaugað
með þetta og sagt, „Nú hefnist
þeim fyrir allt sem þeir höfðu af
okkur, við leggjum þá undir
okkur smátt og smátt.“ Reyndar
er ótrúlegur fjöldi spænskumæl-
andi fólks í Bandaríkjunum,
það eru til dæmis ekki allir sem
vita að 50% íbúa Los Angeles
tala spænsku.
Mexíkanar hafa 6 ára skóla-
skyldu, sem illa hefur gengið að
framfylgja, einkum upp til
sveita. Börnin eru einfaldlega
tekin úr skólunum, þegar þörf
er á vinnuafli þeirra. Þessu hafa
yfirvöld svarað á býsna sniðugan
hátt, þau gera miklar kröfur
fyrstu tvö skólaárin og að þeim
loknum eiga allir nemendur að
vera orðnir læsir og skrifandi.
Þau vita sem er að skólagangan
verður ekki lengri hjá fjöldanum
öllum af nemendum. Ég hugsa
að þetta séu þyngri kröfur en
gerðar eru til nemenda í byrjun
barnaskóla hérlendis.
Svo koma þarna til erfiðleikar
vegna tungumálanna. Það er
áætlað að 85% Mexíkana hafi
spænsku að móðurmáli, 3 millj-
ónir tali gamla Aztekamálið og
ein milljón Majamálið. Stærri
Indíánamállýskurnar hafa eigið
ritmál, en önnur ekki. En sumt
af því fólki sem af yfirvöldum
er flokkað tvítyngt talar mjög
litla spænsku."
Er þá haldið uppi útgáfu og
kennslu á öðruni málum en
spænsku?
„Nei, yfirleitt fer öll kennsla
fram á spænsku. I Aztekaþorpi,
sem við þekktum vel til þegar
við dvöldumst þarna, töluðu
konur yfirleitt enga spænsku,
ungir karlmenn einhverja
spænsku og aðrir bara sitt az-
tekamál. Þarna var skóli, sem
hafði verið komið á fót nýlega
og þar kunni kennarinn ekkert
tungumál annað en spænsku.
Börnin verða því að læra eitt-
hvað í henni í skólanum, en tala
hana yfirleitt ekkert þar fyrir
utan.
Það er mjög umdeilt hvernig
á að bregðast við þessu tungu-
málavandamáli. Ríkisvaldið
segir; við verðum að kenna öll-
um spænsku, annars náum við
aldrei til þeirra með áróðurfyrir
framförum í heilbrigðismálum,
menntun og öðru þess háttar.
Svo eru aðrir sem eru á þveröf-
ugri skoðun og segja það vera
vísustu leiðina til að drepa niður
öll menningarleg séreinkenni,
sem fólkið sjálft vill varðveita.
Um þetta er rifist heiftarlega.
Raunar eru nokkrar mállýskur
nú þegar að deyja út, það eru til
indíánamál, sem aðeins nokkur
hundruð manns tala.
En þótt allir töluðu spænsku
þá leysti það ekki öll vandamál.
Alþýða manna hefur það víða
ekkert betra en indíánarnir,
kjörin eru ósköp áþekk. Og ég
sé ekki nein teikn á lofti um að
það breytist, kannski frekar hið
gagnstæða."
Heilbrigðismál...?
„Þau eru í jafn hroðalegu
horfi eins og annarsstaðar í álf-
unni. Til dæmis er ungbarna-
dauði einna mestur í Mexíkó af
löndum rómönsku Ameríku. Þá
er það ógnvekjandi staðreynd
að yfir 20% allra dauðsfalla
stafa af bráðasýkingum, yfirleitt
er þar um að ræða maga- eða
lungnasýkingar. Það hefur verið
í fréttum að leikmenn í heims-
meistarakeppninni hafi verið
þungt haldnir af magakveisum
fyrstu dagana í Mexíkó og sumir
ófærir um að leika. Þetta kemur
engum á óvart sem til þekkir,
flestir útlendingar sem koma til
Mexíkó eiga við þessi vandamál
að stríða. Innfæddir kalla þetta
fyrirbæri hefnd Moctezuma.
Lungnasýkingarnar kunna að
eiga rót sín að rekja til hæðar-
mismunarins í landinu að ein-
hverju leyti og magasýkingarnar
til hins landlæga sóðaskapar hjá
alþýðu manna, þótt það skýri
ekki allt.“
Nú kemur fram í skýrslunni
frá Amnesty International sem
við minntumst á áðan, að stjórn-
völd hafi verið mjög samvinnu-
þýð, greitt fyrir rannsókninni og
raunar nýlega sett lög sem eigi
að tryggja mannréttindi og
hindra að menn séu teknir hönd-
um og settir inn eða drepnir án
dóms og laga?
„Já, já, en spurningin er frek-
ar um það hverju ríkisvaldið
kemur til leiðar en um góðan
vilja þess. Þá komum við aftur
að því mikla valdi, sem héraðs-
stjórnir og landeigendur hafa í
krafti aðstöðu sinnar innan Bylt-
ingarflokksins.
Flest uppþot eiga sér stað úti
á landsbyggðinni og manndráp
og fangelsanir án dóms og laga
eiga rætur að rekja til átaka
bænda og landeigenda. Bænd-
urnir eru þá oft ekki að fara
fram á annað en að fá að nýta
það land, sem þeir eiga sam-
kvæmt lögum. Þá hefur Bylting-
arflokkurinn alla upplýsinga-
miðlun í greip sinni. Það má
heita að aðeins eitt blað hafi
stundað gagnrýna blaða-
mennsku og birt fréttir af svona
átökum, en það eru takmörk
fyrir því hvað það má ganga
langt. Satt að segja undraðist ég
oft hvað það komst upp með.
Sumir landeigendur og hér-
aðshöfðingjar hafa einkalög-
reglu undir sinni stjórn og af
völdum slíkra „löggæslumanna“
hafa leiðtogar bænda týnst eða
fundist dauðir úti í skurðum án
þess að það hefði frekari eftir-
mál. Ég get sagt þér eina kosn-
ingasögu, sem sýnir vel hvernig
þessir aðilar beita sér, ef völdum
þeirra er ógnað. Það gerðist
meðan við dvöldumst í Mexíkó
í bæ einum, að sameinaðir
vinstri flokkar unnu kosningar
til bæjarstjórnar og Byltingar-
flokkurinn viðurkenndi ósigur
sinn. En kosningarnar voru
varla afstaðnar þegar bærinn var
kominn í nokkurs konar umsát-
ursástand, fylkisstjórnin sendi
hreinlega her á vettvang og
bæjarfulltrúar fóru að týna töl-
unni. Sjálfur varð bæjarstjórinn
að hafa um sig tuga manna
einkalífvörð. Éggerði ítrekaðar
tilraunir til að hitta og fá viðtal
við þennan mann, en tókst það
ekki. Ég hef ekki haft neinar
fregnir af því hvernig honum
hefur reitt af.“
Engu að síður hefur Mexíkó
notið ákveðinnar virðingar út á
við?
„Það er rétt og að sumu leyti
verðskuldað. Þeir hafa vissulega
af ýmsu að státa umfram ná-
granna sína, og þeir hafa komið
á ýmsum umbótum í krafti þessa
sterka ríkisvalds síns, þótt verk-
efnið sé tröllauknara en svo að
búast megi við skjótum breyt-
ingum. Þær gerast ekki nema á
löngum tíma að mínu mati.
Þrátt fyrir allt líta önnur ríki í
rómönsku Ameríku á Mexíkó
sem fyrirmynd. Mexíkó hefur
ávallt haft uppi ákveðna sjálf-
stæðistilburði a.m.k. í orði gagn-
vart grannanum í norðri og talað
þar máli rómönsku ríkjanna í
álfunni gegn stóra bróður. Mex-
íkó og Miguel de la Madrid
forseti hafa verið í forustu fyrir
Contadora ríkjunum í friðarum-
leitunum í Mið-Ameríku.
Það var áreiðanlega djarft til-
tæki að halda heimsmeistara-
keppnina í Mexíkó. Það má
ekki mikið út af bera til að upp
úr sjóði. Alþýða manna í Mex-
íkó hefur ekki efni á að kaupa
sig inn á leikvangana og það
hefur verið komið upp sjón-
varpsskermum á götum úti þar
sent fólk getur komið saman og
fylgst með. Þarna sýnist manni
teflt á tæpasta vað. 1968 voru
haldnir Olympíuleikar í Mex-
íkó, þá var róttæknibylgjan í
hámarki, eins og annars staðar
og það voru hreinlega fram-
kvæmdar hreinsanir fyrir leik-
ana til að ekki félli bletlur á, yfir
500 manns hurfu og hefur aldrei
verið gerð grein fyrir þeim. En
hingað til hefur ekki frést að
neitt slíkt hafi hent.
Mexíkönum er í mun að efla
virðingu sína í heiminum og
knattspyrnan er nærtæk þegar
bjóða á þegnunum upp á brauð
og leiki, að hætti Rómverja
hinna fornu. Gallinn er sá að
það vill fara lítið fyrir brauð-
inu.“
Litlir, skítugir betlarar i Mexíkóborg.