Tíminn - 05.07.1986, Qupperneq 5
Laugardagur 5. júlí 1986'
Tíminn 5
UTLÖND
Pakistan:
Mótmæli sýna styrk
Samkundur skipulagöar víöa um land - Styrkur Benazir og
flokks hennar kemur væntanlega í Ijós
Islamabad-Reuter
Stjórnmálaslagurinn milli Benazir
Bhutto og Mohammad Zia-Ul-Haq
forseta Pakistan mun enn færast í
aukana í dag er fram fara mótmæla-
aðgerðir víðs vegar um landið sem
helsti stjórnarandstöðuflokkurinn
hefur skipulagt.
Samkundurnar eru skipulagðar af
Þjóðarflokki Pakistan (PPP) sem er
flokkur Benazir en í dag eru einmitt
níu ár liðin sfðan Zia leiddi byltingu
gegn föður hennar, Zulifikar Ali
Bhutto.
Dagur þessi hefur verið kallaður
„Svarti dagurinn“ af stjórnarand-
stæðingum sem krefjast munu af-
sagnar Zia. Það var einmitt hann
sem leyfði að Ali Bhutto yrði hengd-
ur árið 1979 eftir að hafa verið
fundinn sekur um að hafa hvatt til
morðs á pólitískum andstæðingi.
Benazir hefur krafist þess að Zia
láti kosningar fara fram í haust en
hann og forsætisráðherra hans, Mo-
hammed Khan Junejo, hafa neitað
að verða við þessari kröfu.
' Þjóðþing var kjörið á síðasta ári
og á það að stjórna landsmálum í
fimm ár. Stjórnmálaflokkum var
ekki leyfð þátttaka í kosningunum
til þingsins.
Leiðrétting:
Leutwilerer
ekki hættur
Zurich-Reutc
Frétt Reuters fréttastofunnar
um að Fritz Leutwiler, sérstakur
samningafulltrúi í viðræðum S-
Afríkustjórnar við fulltrúa al-
1 þjóðabanka sem lána fé til
landsins, hafi sagt upp starti sinu
í mótmælaskyni við stefnu stjórn-
valda í S-Afríku reyndist ekki
rétt. Þessi frétt birtist í Tímanum
í gær.
Það var fyrrum talsmaður
Leutwilers sem gaf út yfirlýsingu
um uppsögn hans en hún reyndist
vera á misskilningi byggð.
Sri Lanka:
Benazir Bhutto fékk góðar viðtökur er hún snéri til síns heima í apríl síðastliðnum. Svarar fólk kalli hennar í dag?
Að sögn vestrænna stjórnarerind-
reka segir fjöldi sá sem mætir á
mótmælasamkundurnar í dag mikið
til um raunverulegan styrk Benazir
Bhutto. Mikill fjöldi kom að vísu til
funda hennar í apríl síðastliðnum er
hún kom til landsins en það gæti eins
hafa stafað af Ijóma þeim sem lék
um nafn hennar og létti vegna af-
náms átta ára gamla herlaga.
Benazir og aðrir leiðtogar PPP
hafa hvatt til þess að fólk hagi sér
friðsamlega á mótmælasamkundun-
um. Benazir mun ekki tala á neinni
af hinum áætluðu samkundum held-
ur lætur öðrum forystumönnum PPP
hljóðnemann eftir.
Brasilískir hvalfangarar:
Vilja veiða í
vísindaskyni
Bettino Craxi sagði af sér forsætisráðherraembættinu í síðustu viku og í
kjölfarið er komin enn ein stjórnarkreppan á Ítalíu.
Ítalía:
Enn reynt að
miðla málum
Fanfani fenginn til að reyna að leysa stjórnarkreppuna
Róm-Reuter
Francesco Cossiga forseti Ítalíu
hefur skipað hinn reynda stjórn-
málaleiðtoga Amintore Fanfani sem
sérlegan samningamann sinn í vænt-
anlegum viðræðuni þar sem haldið
verður áfram að reyna að leysa úr
stjórnarkreppunni á Ítalíu.
Fanfani er forseti öldungadeildar-
innar og hefur verið forsætisráðherra
í alls fimm skipti. Hann er næst
háttsettasti stjórnmálamaðurinn á
Ítalíu á eftir Cossiga forseta.
Ákvörðun Cossiga um að fá Fan-
fani til að reyna að miðla málum
sýnir hversu alvarlegt vandamál hef-
ur skapast í ítölskum stjórnmálum
eftir afsögn Bettino Craxis í sfðustu
viku.
Þrátt fyrir viðræður sem stóðu í
nærri viku tókst ekki að miðla mál-
um milli Sósíalistaflokks Craxis og
Kristilegra demókrata en þessir tveir
flokkar voru þeir öflugustu í fimm
flokka samsteypustjórn Craxis.
Valdatogstreita er á milli leiðtoga
flokkanna tveggja, Kristilegir demó-
kratar vildu ekki að Craxi héldi
forsætisráðherraembættinu fram að
kosningunum árið 1988 og höfðu
upphaflega krafist þess að skipt yrði
um í embættinu í lok þessa árs. Þeir
virðast þó hafa fallið frá þessari
kröfu en hafa í staðinn sett sem
skilyrði að flokkarnir fimm bjóði
fram í einu lagi í næstu kosningum
og Kristilegir demókratar fái forsæt-
isráðherraembættið að þeim lokn-
um. Það hafa sósíalistar ekki viljað
fallast á.
Rió de Janeiró-Reuter.
Eina hvalveiðifyrirtækið sem
fyrirfinnst í Brasilíu hefur lagt fram
beiðni til ríkisstjórnarinnar um að fá
að veiða hvali í vísindaskyni. Þetta
var haft eftir talsmanni fyrirtækisins
og er beiðnin lögð fram þrátt fyrir að
fimm ára bann hafi verið lagt við
hvalveiðum á síðasta ári.
Guilherme Rabay, framkvæmda-
stjóri hvalveiðifyrirtækisins Copes-
bra, sagði hann ogfjölda stjórnmála-
manna frá héraðinu Paraiba í Norð-
austur Brasilíu hafa farið fram á við
stjórnvöld að fá að veiða hvali á
tímabilinu september til nóvember á
þessu ári.
Búist er við að ákvörðun um
leyfið verði tekin í þessum mánuði.
Hrefnur koma á ári hverju frá
Suðurskautinu norður til heitari
sjávar út af Paraiba til að para sig.
Tímabil þetta stendur yfir frá júlí til
desember og í fyrra veiddi eina
hvalveiðiskip Copesbra fyrirtækis-
ins heila 598 hvali eða allan sinn
kvóta.
Rabay sagði bannið hafa þýtt að
segja varð upp 160 starfsmönnum
fyrirtækisins og hætta væri á að um
þúsund aðrir misstu störf sín í hérað-
inu vegna þessa.
Tebardagi
tamila og
sinhalesa
Colombo-Reuter
Kveikt var í einum fjörutíu húsum
og verslunum í helsta teræktunar-
héraði Sri Lanka í fyrrinótt en þar
hafa skærur rnilli andstæðra fylkinga
tamila og sinhalesa staðið yfir
undanfarna daga.
Háttsettur lögreglumaður í hérað-
inu sagði í samtali við fréttamann
Rcuters að spenna væri enn mikjl og
líklega myndi útgöngubann verða
sett á yfir nóttina.
Vandræðin hófust fyrir tveimur
dögurn í bænum Pundaluoya þegar
sumir íbúanna, flestir úr hópi sinha-
lesa, réðust á tcverkamenn úr hópi
tamila vegna einkaviðskipta.
Skærurnar leiddu til þess að um tíu
þúsund verkamenn fóru í verkfall og
kröfðust þess að árásarmennirnir
sættu refsingu.
Refsing kom hinsvegar ekki til
hcldur breiddust átökin út með ýmis-
konar spellvirkjum á báða bóga.
Verkamenn á teræktarsvæðum
cyjunnar eru yfirleitt tamilarog hafa
þeir oft átt í útistöðum við
meirihlutahóp sinhalesa á svæðinu.
Astralía:
Nýtt eldsneyti
fullt af vatni
Melbournc-Reuter.
Arangursríkar tilraunir með nýtt
eldsneyti gerðu úr blöndu af
kolum, olíu og vatni hafa verið
gerðar af áströlsku fyrirtæki og
gæti nýja eldsneytið átt eftir að
draga verulega úr olíunotkun í
orkuverum.
Sir Peter Derham, formaður
fyrirtækisins Coaltech, sagði í yfir-
lýsingu að tilraunir með nýja elds-
neytið í bandarískum brennsluofni
hefðu komið mjög vel út. Eldsneyt-
ið samanstendur af 59% kolum,
21% vatni og 20% olíu.
„í fyrsta skipti geta nú ríkis-
stjórnir, stór samsteypufyrirtæki
og stórfyrirtæki dregið úr þeirri olíu
sem notuð er til að knýja áfram
orkuver og notað þess í stað vatn
og kol,“ sagði Derham.
Derham sagði fyrirtæki sitt von-
ast til að næla sér í rúmlega 20
milljónir dollara vegna útflutnings á
nýja eldsneytinu á næsta fjárhags-
ári.
Aðeins óverulegra breytinga er
þörf á olíubrennsluofnum til að
geta brennt nýja eldsneytið.
Hjúskaparbrot í Índónesíu:
Borgað með múrsteinum
Djakarta-Reuter.
Maður einn sem býr á austurhluta
Jövu hefur verið sektaður um 4000
múrsteina vegna hjúskaparbrots.
Maðurinn átti við konu nágranna
síns. Frétt þessi birtist í dagblaðinu
Djakarta Post sem kemur út á ensku.
Það var höfðingi þorpsins Selok-
ajang, Marwoto að nafni, sem ákvað
sekt þessa. Marwoto hefur hótað
svipuðum sektum fyrir hvern þann
mann sem daðrar við aðrar konur en
sína eigin og gerir hann þetta til að
bæta efnahag þorpsins.
Þorpsbúinn sem sektaður var átti
að vísu einungis þúsund múrsteina
en Marwoto sagði í samtali við
Djakarta Post að sá seki fengi að
greiða afganginn með afborg-
unarskilmálum.
Reiðhjól hins seka var einnig
tekið af honum svo hann gæti ekki
átt við konur í nágrannabyggðunum.