Tíminn - 05.07.1986, Page 8
Sveitarstjóri
Staða sveitarstjóra Stokkseyrarhrepps er laus til
umsóknar. Nánari upplýsingar veita sveitarstjóri í
síma 99-3267 og oddviti í síma 99-3244. Umsókn-
arfrestur er til 15. júlí n.k.
Hreppsnefnd Stokkseyrarhrepps
Útboð
Tilboð óskast í gerð sökkla fyrir 2. áfanga Hjalla-
skóla í Kópavogi. Verkið er gröftur og uppsteypa
sökkulveggja. Útboðsgögn verða afhent á tækni-
deild Kópavogs, Fannborg 2, 3. h. gegn 3000 kr.
skilatryggingu. Jilboðum skal skilað miðvikudag-
inn 16. júlí 1986 kl. 11 á sama stað og verða þá
opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs
VEGAGERÐIN
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Snæfelis-
nesveg í Helgafellssveit:
(Lengd 10,5 km. fylling og burðarlag 150.000 m3).
Verki skal lokið 1. júlí 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Borgarnesi og í Reykjavík (Aðalgjaldkera) frá og
með 8. júlí 1986.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 21. júlí 1986.
Vegamálastjóri
Ensku- og
þýskukennarar
Samvinnuskólinn á Bifröst auglýsir kennarastörf í
ensku og þýsku. Störfin geta vel hentað hjónum
saman. Fjölskylduíbúð fylgir og möguleikar á
aukastörfum.
Umsóknir með upplýsingum sendist skólastjóra
Samvinnuskólans á Bifröst (póstfang: 311 Borg-
arnes) og hann veitir upplýsingar (sími: 93-5001).
Bókari
Óskum eftir að ráða í bókhaldsstarf á P.C. tölvu
prentsmIdjan
é^dda HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
filllAUSARSTÖÐURHJÁ
m REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Fóstra eða aðrir með uppeldisfræðilega
menntun óskast frá og með 13. ágúst að skóla-
dagheimili Breiðagerðisskóla.
Starfsmaður óskast einnig á sama stað frá sama
tíma. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
84558.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð fyrir
kl. 16.00 mánudaginn 28. júlí.
'Laugardagur 5. júlí 1986
8 Tíminn
Þrjú listaverk eftir Steinunni Marteinsdóttur voru alhjúpuð 27. júní í biðstofu lcitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands
að Skógarhlíð 8, en þá átti Krabbameinsfélag íslands 35 ára afmæli. Listaverkin voru gerð fyrir fé úr minningarsjóði
um Guðmund Jóhannesson sem var yfirlæknir leitarstöðvarinnar frá 1971 til 1981, er hann lést af slysförum. Á
myndinni er listamaðurinn, Steinunn Marteinsdóttir, fyrir miðju ásamt þremur af börnum Guðmundar, þeim
Jóhannesi, Þorgerði og Guðmundi og Guðrúnu Þorkelsdóttur, ekkju Guðmundar Jóhannessonar, en hún afhjúpaði
listaverkin.
Krabbameinsfélagiö:
Áhersla lögð á rannsóknir,
sjúkdómaleit og aðstod
við sjúklinga
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hefur fallist á að gerast verndari
Krabbameinsfélags Islands. Jafnframt hefur hún verið kjörin, fyrst allra, í
heiðursráð Krabbameinsfélagsins. Gunnlaugur Snædal formaður Krabbam-
einsfélagsins afhenti Vigdísi skjal, þessu til staðfestingar, á 35 ára afmæli
félagsins, 27. júní sl. Fyrir miðri mynd er Almar Grímsson sem á sæti í stjórn
Krabbameinsfélagsins.
Á fundi framkvæmdastjórnar
Krabbameinsfélags íslands á 35 ára
afmæli félagsins, 27. júní, var sam-
þykkt í meginatriðum ráðstöfun
þeirra 27 milljóna króna sem söfnuð-
ust í apríl á vegum „Þjóðarátaks
gegn krabbameini.“
I ályktun stjórnarinnar segir að
Krabbameinsfélag íslands vilji af
alhug þakka íslensku þjóðinni stuðn-
ing hennar frá upphafi. Sérstaklega
vill félagið koma á framfæri þakklæti
fyrir þá rausn sem þjóðin sýndi við
söfnunina í vor og þakkað er fórnfúst
starf félagasamtaka og einstaklinga
sem framkvæmd átaksins hvíldi á.
Nú hafa skapast möguleikar til
eflingar á þremur megin þáttum,
sem félagið mun vinna að næstu
fimm árin, en það eru krabbameins-
rannsóknir, krabbameinsleit, og að-
stoð við krabbameinssjúklinga og
aðstandendur þeirra.
Komið verður upp aðstöðu til
grunnrannsókna til að afla nýrrar
þekkinar á orsökum og eðli krabba-
meina. Á jarðhæð í húsi Krabba-
meinsfélagsins verður innréttuð
rannsóknastofa og hún búin tækjum
til söfnunar og geymslu á lífrænum
efnivið og til rannsókna í frumulíf-
fræði. Á 35 ára starfsferli sínum
hefur Krabbameinsfélagið safnað
mikilvægum upplýsingum sem leggja
munu grunninn að skipulagningu
þessarar vísindavinnu.
Krabbameinsfélagið hefur í rúma
tvo áratugi haft forgöngu um leit að
krabbameini og forstigum þess í
grindarholslíffærum kvenna, og í
brjóstum kvenna síðastliðinn ára-
tug. Árangur þessa starfs er mark-
verður og hefur skipað fslendingum
meðal fremstu þjóða heims á þessu
sviði. Með aukinni þekkingu og
framförum við sjúkdómsgreiningu
skapast forsendur til leitar að
krabbameinum í fleiri líffærum hjá
konum jafnt sem körlum. Þessar
forsendur mun Krabbameinsfélagið
nú nýta með því að stuðla að enn
víðtækari krabbameinsleit. Á síð-
ustu árum hafa orðið miklar framfar-
ir á sviði krabbameinslækninga. Nú
læknast fjórir af hverjum tíu sem
sjúkdóminn fá. Með auknum for-
vörnum og bættri leit er unnt að
hækka þetta hlutfall.
Fjöldi krabbameina sem greind
eru ár hvert hér á landi hefur
tvöfaldast síðastliðin 30 ár. Haldi
sama þróun áfram er búist við að um
1200 manns muni greinast með
krabbamein árið 2000. Nú eru á
fjórða þúsund manns á lífi, sem
greinst hafa með krabbamein og
fengið meðferð. Talið er að um
næstu aldamót verði að minnsta
kosti helmingi fleiri krabbameins-
sjúklingar á lífi. Jafnframt því sem
takmarkið er að fækka dauðsföllum
af völdum krabbameins mun
Krabbameinsfélagið vinna að því að
bæta hag þeirra sem ekki verða
læknaðir og veita þeim stuðning.
Félagið undirbýr nú upplýsingaþjón-
ustu um krabbamein fyrir almenn-
ing, aukna aðstoð við fyrrverandi
krabbameinssjúklinga og aðstoð við
sjúklinga í heimahúsum, í samvinnu
við sveitarfélög og heilbrigðisyfir-
völd.