Tíminn - 11.07.1986, Side 2
Föstudagur 11. júlí 1986
2 Tíminn'
Fyrstu sex mánuöir ársins:
Heildaraukn-
ing á fiskafla
Fiskafli sem borist hefur á land
það sem af er árinu er um 730
þúsund tonn. Á sama tíma í fyrra
var aflinn 683 þúsund tonn. Hér er
því um 47 þúsund tonna aukningu
að ræða, frá árinu ’85 sem talið var
mjög gott ár.
f júnímánuði í ár var aflinn tæp-
lega 6 þúsund tonnum meiri en í júní
í fyrra og munar þar mest um
botnfiskafla togara, annan en þorsk.
Toluvert meira hefur veiðst af
rækju það sem af er árinu en í fyrra,
eða um 2.300 tonnum meira og af
öðrum tegundum hefur að jafnaði
veiðst meira í ár heldur en á sama
tíma í fyrra.
Vestmannaeyjar hafa tekið á móti
mestum afla það sem af er ári eða
um 107 þúsund tonnum. Næst á eftir
Vestmannaeyjum kemur Eskifjörð-
ur með 40 þúsund tonn. í þessum
tölum vegur loðnuafli þyngst, eða
samtals rúm 345 þúsund tonn. Þar af
hefur loðnulöndun í Vestmannaeyj-
um verið rúm 77 þúsund tonn og á
Eskifirði tæp 35 þúsund tonn.
80 þúsund tonn hafa verið seld
erlendis nú þegar og er það um
helmings aukning frá í fyrra. Af afla
seldum erlendis er loðna um 64
þúsund tonn.
Þótt um heildaraukningu fiskafla
yfir landið sé að ræða þá eru sumar
löndunarstöðvar með minni afla það
sem af er ári í ár heldur en í fyrra.
Má þar nefna Kópasker sem hefur
aðeins landað 9 tonnum af skelfiski
en í fyrra var aflinn 261 tonn. Þar
sem þetta er aðalfiskvinnsla á Kópa-
skeri er um verulegan samdrátt að
ræða.
Kristján Ármannsson fram-
kvæmdastjóri Sæbliks á Kópaskeri
sagði í samtali við Tímann að
skýringin á þvf væri sú að lokað var
fyrir rækjuveiðar í Öxarfirði og eng-
in skip hafa fengist í viðskipti síðasta
ár jafnframt því að ekki hefur fengist
leyfi tii að kaupa skip til Kópaskers.
„Þetta lítur því mjög illa út fyrir
staðinn ef ekki rætist úr.
Rauðinúpur mun fara á rækju-
veiðar bráðlega og verður í mánuð
og við fáum þann afla en annars eru
engar framtíðarhorfur í fiskvinnslu
hér á meðan engin skip leggja hér
upp afla og við fáum ekki skip,“
sagði Kristján.
ABS
Guðmundur Halldórsson tekur við
starfi forstöðumanns Norðurlanda-
deildar.
Eimskip:
Eimskip hefur ákveðið að opna
nýja skrifstofu í Gautaborg í
Svíþjóð. Skrifstofan mun taka til
starfa þann fyrsta október. Kjartan
Jónsson rekstrarhagfræðingur hefur
verið ráðinn forstöðumaður skrif-
stofunnar. Kjartan hefur starfað hjá
Eimskip síðan 1979, og hefur gegnt
starfi forstöðumanns Norðurlanda-
Kjartan Jónsson hefur verið ráðinn
forstöðumaður nýju skrifstofunnar.
deildar Eimskips frá 1982.
Guðmundur Halldórsson við-
skiptafræðingur hefur verið ráðinn
forstöðumaður Norðurlandadeildar
í stað Kjartans. Guðmundur hefur
starfað hjá Eimskip síðan 1969 og
var forstöðumaður Rotterdam skrif-
stofunnar frá áramótum 1985.
Skrifstof a í Gautaborg
Stuðmenn á
faraldsfæti
Stuðmenn eru að leggja upp í
ferðalag nú um helgina. Komið verð-
ur við á sextán stöðum. Ferðaáætl-
unin er sem hér segir: Laugum 11.
júlí, Miðgarði 12. júlí, Akureyri 13.
júlí, Grímsey 15. júlí, Seyðisfirði
17. júlí, Neskaupstað 18. júlí, Fá-
skrúðsfirði 19. júlí, Höfn í Horna-
firði 20. júlí, Dalabúð 24. júlí,
Patreksfirði 25. júlí, Hnífsdal 26.
júlí, Hólmavík 27. júlí, Vestmanna-
eyjar 1.-3. ágúst, Reykjavík 7. ágúst,
Selfoss 8. ágúst og loks Logalandi 9.
ágúst.
Á skemmtunum þeim sent haldnar
verða verður boðið upp á blöndu af
gömlu og nýju efni, en uppistaða
dagskrárinnar verður sú sama og í
nýafstaðinni Kínaferð hljómsveitar-
innar.
- ES
Tveir hjúkrunarfræðingar utan:
Hjálparstarf í
Súdan og Thaiiandi
Tveir íslenskir hjúkrunar-
fræðingar eru nú á förum til hjálp-
arstarfa á vegum Rauða krossins.
Sigríður Guðmundsdóttir fer til
Súdan þar sem hún mun starfa við
kannanir á næringarástandi meðul
íbúa Darfur-héraðs. Ætlunin er að
gera áætlun um fæðugjafir í sam-
vinnu við Rauða hálfmánann sem
er starfandi þar í landi í samvinnu
með Alþjóða Rauða krossinum.
Sigríður mun verða í Súdan í fjóra
mánuði til að byrja með.
Pálína Ásgeirsdóttir fer til Thai-
lands og mun starfa á sjúkrahúsi í
flóttamannabúðum við landamæri
Thailands og Kampútseu. Pálína
mun verða í Thailandi næstu sex
mánuði og taka við af Lilju Stein-
grímsdóttur, en alls hafa átján
sendifulltrúar RKÍ starfað í flótta-
mannabúðum í Thailandi síðan
árið 1979. ABS
Landþörf virkjana og umhverfis þeirra:
1.100 ferkm. undir
virkjanir landsins
Virkjanir geta haft áhrif á búsetu í landinu
í skýrslu landbúnaðarráðuneytis-
ins um landnýtingu, sem Tíminn
hefur áður skýrt frá í meginatriðum,
kemur fram áætluð landþörf þeirra
virkjunarkosta sem eru á athugunar-
eða undirbúningsstigum. Þar kemur
fram að 1% af flatarmáli landsins
mun fara undir virkjanir og umhverfi
þeirra, eða um 1.100 ferkílómetrar
lands. Fjögur hundruð ferkílómetrar
eru gróið land og 300 ferkílómetrar
eru í vötnum og farvegum. Helming-
ur þessa gróna lands færi undir
Jökullón við virkjun Jökulsánna á
Fjöllum og í Dal.
Bein landþörf vegna háspennulína
takmarkast við staurastæðurnar, en
undir línum og meðfram þeim er
önnur landnýting bönnuð, t.d. eru
engar byggingar leyfðar á tilteknu
svæði undir línunum. Samtals er
áætlað að meginflutningslínur raf-
orkukerfisins takmarki 320 ferkíló-
metra lands en núverandi línukerfi
ásamt áætluðum línum takmarka
um 120 ferkílómetra.
Lega byggðarlína eða annarra
meiriháttar stofnlína getur ráðið
miklu um atvinnuuppbyggingu og
búsetu á stórum svæðum nálægt
línunum. Lagning hringlínu um
landið og samtenging landshlutanna
hefur nú þegar jafnað raforkuverð
og átt sinn þátt í því að stuðla að
jafnvægi í byggð.
í skýrslunni er talið ólíklegt að
ráðist verði í stórvirkjanafram-
kvæmdir nema í tengslum við stór-
iðjufyrirtæki, t.d. er talið ólíklegt að
af virkjunarframkvæmdum verði á
Fljótsdalsvirkjun á næstu árum
nema til komi stóriðjufyrirtæki á
Norður - eða Austurlandi.
Um 80% húsnæðis landsmanna er
hitað upp með jarðvarma og 4,5%
raforku er framleidd i jarðgufu-
stöðvum. Jarðhiti leggur til 28% af
hráorkunotkun landsmanna. Búast
má við að jarðhiti verði nýttur í
auknum mæli á þeim stöðum sem
hann finnst til uppbyggingar iðnað-
ar, ylræktar og fiskeldis.
ABS
Sæ-túr-
istar
Þeir fengu ekki amalcgt veður
túristarnar á skemmtiferðaskip-
inu Funchal. í íslandsdvöl sinni.
Skipið kom í gær tii Reykjavíkur,
eftir viðkomu á Akureyri. Það
lagðist að Sundahöfn og
streymdu túristarnir úr því og
flestir lögðu leið sína í Ramma-
gerðina að venju að kaupa hinn
hefðbundna lopafatnað túrist-
anna. Tímamynd-Gísli