Tíminn - 11.07.1986, Page 3
Föstudagur 11. júlí 1986
Tíminn 3
Rauði kross íslands:
30 tonn af fatnaði
til Mosambique
- sem safnaðist
hér s.l. haust
Rauði kross Islands sendi nýlega
30 tonn af fötum til Mosambique.
Petta eru föt sem safnað var hér á
landi s.l. haust en hafa si'ðan verið í
flokkun í Danmörku, en þar hafa
einnig farið fram viðgerðir og hreins-
anir á fatnaðinum. Ennþá eru eftir
um 20 tonn af þeim 70 tonnum af
fötum sem safnaðist í haust. Verið
er að vinna að frágangi á þeim áður
en þau verða send þeim sem þörf
fyrir þau hafa. Undanfarandi mán-
uði hefur RKÍ borist fatnaður sem
sendur verður til Danmerkur til
flokkunar. í haust ráðgerir RKÍ að
efna til fatasöfnunar líkri þeirri sem
haldin var síðastliðið haust.
ABS
Fatasöfnun Rauða kross íslands haustið 1985.
British Midland:
Samningur íslands og
Bretlands heimilar flug
Eins og skýrt var frá í forsíðufrétt
í Tímanum síðastliðinn miðvikudag,
hefur breska flugfélagið British Mid-
land hug á að hefja ferðir til íslands.
Samkvæmt heimildum úr sam-
gönguráðuneytinu, liggur það Ijóst
fyrir að fái félagið leyfi breskra
yfirvalda til Ougsins, er í gildi samn-
ingur milli Islands og Bretlands sem
heimilar sjálfkrafa leyfisveitingu til
flugs hingað til lands.
Þar sem heimildir Tímans töldu
miklar líkur á að British Midland
fengju flugleyfi í Bretlandi, virðist
fátt því til fyrirstöðu að félagið hefji
flug hingað til lands. jafnvel strax í
haust.
phh
Grjótkast og rúðubrot
Klæöning hefur verið lögð á þjóðveg eitt, á sandskeiði. Talsverð hætta er á grjótkasti og geta rúðubrot fylgt í
kjölfarið á því í nokkra daga. Fari mcnn hinsvegar eftir merkjununi og aki á leyfileguin hraða og ekki allir í
sömu hjólförum verður þetta ástand ekki jafn hættulegt og ella.
Tímamynd Gísli Kgill
Skoöanakönnun ríkisútvarps:
Fréttamenn
trúverðugri
en blaðamenn
- eru niöurstööur Hagvangs
íslendingar virðast ekki hafa
mikla tiltrú á fréttaskrifum dag-
blaðanna. Hinsvegar virðist megin-
þorri almennings telja fréttir frá
ríkisfjölmiðlunum, útvarpi og
sjónvarpi, mjög ábyrgar og trú-
verðugar eða frekar ábyrgar og
trúverðugar. Þetta kemur fram í
skoðanakönnun sem Hagvangur
framkvæmdi fyrir ríkisútvarpið á
síðustu dögum. Úrtakið var þús-
und manns, á aldrinum 18-67 ára.
Tæp 25 prósent þeirra sem
spurðir voru töldu að fréttaflutn-
ingur útvarps væri mjög ábyrgurog
trúverðugur, og rúmlega 51 prós-
ent sagði hann frekar ábyrgar og
trúverðugan. Umsjónvarpiðsögðu
18 prósent að þar væri fréttaflutn-
ingur mjög ábyrgur og trúverðug-
ur. Frekar ábyrgur og trúverðugur
sögðu ríflega 53 prósent.
Önnur afstaða var uppi á ten-
ingnum þegar spurt var um frétta-
flutning dagblaðanna. Einungis2,8
prósent telja fréttaflutning þeirra
vera nijög ábyrgan og trúverðugan
og ekki voru nema 18 prósent sem
töldu fréttaflutning vera frekar
ábyrgan.
Þriðjungur þeirra sem spurðir
voru sagði að fréttaflutningur dag-
blaðanna væri bæði og, ábyrgur og
ekki. Rúm þrjátíu prósent taldi
hann ekki ábyrgan og trúverðugan
og sex prósent alls ekki. Um sex
prósent úrtaksins sögðust ekki lesa
dagblöð.
I sömu könnun var einnig spurt
hvort viðkomandi þætti breytt
fyrirkomulag á fréttum sjónvarps
til hins betra eða verra. 85 prósent
þeirra sem svöruðu sögðu breyting-
arnar mjög jákvæðar eða fremur
jákvæðar.
- ES
Islandsmót í
svifflugi 1986
Laugardaginn 12. júlí n.k. mun
Flugmálafélag íslands gangast fyrir
fslandsmóti í svifflugi á Hellu-flug-
velli. Mótið mun standa í 9 daga og
Ijúka sunnudaginn 20.júli.
Ellefu keppendur og svifflugur
verða í keppninni en auk þeirra eru
í hverju keppnisliði einn til þrír
aðstoðarmenn.
Fimm sviffluganna eru í eigu Svif-
fiugfélags íslands og ein cr eign
Svifflugfélags Akureyrar. Hinar
fimni eru í einkaeign og eru þrjár
þeirra smíðaðar úr trefjaplasti.
Dráttarflugvélar draga svif-
flugurnar á loft í 600 metra flughæð
þar sem svifflugan sleppir dráttar-
tauginrú. St'ðan niunu keppendur
rcyna að fljúga þá kcppnisleið scnt
mótsstjórn ákveður hverju sinni.
Aðallega verður keppt í hraðflugi,
t.d. á 100 km þríhyrningslciðum
eða á leiðum að tilteknum stöðum
og til baka að Helluflugvelli. Kepp-
endur sanna flug sitt urn slíka staði
með því að Ijósmynda þá úr lofti
samkvæmt alþjóðlegum flug-
keppnisreglum.
NÁL
„Brjótum múrana“ er heiti á
verkefni Norrænu ráðherra-
nefndarinnar sem miðar að því að
auka starfsval kvenna á vinnu-
markaði. Grundvöllur þessa verk-
efnis er sá að jafnvel þó atvinnu-
þátttaka kvenna hafi stóraukist á
undanförnum árum. að þá er fjöl-
breytni í störfum þeirra lítil.
Kvennastarfsgreinar eru fáar 25-
Brjótum múrana:
Stefnt að jafnrétti
30, og eru flestar framhald þeirra
starfa sem konur vinna innan
veggja heimilanna. Þá standa kon-
ur höllum fæti hvað varðar mennt-
un sé miðað við karla og störf
þeirra eru yfirleitt verr launuð.
Sem tilraun til að ráða bót á
þessu hefur nú verið komið af stað
tilraunaverkefnum á afmörkuðum
svæðum á hverju hinna fimm
Norðurlanda. Hér á landi var
ákveðið að gera Akureyri að
tilraunasvæði og er reynt að vinna
á mörgum sviðum samtímis svo að
sem bestur árangur náist.
Fyrsta árið verður þó lögð
áhersla á skólana og liggja þegar
fyrir áætlanir um starfsfræðslu og
jafnréttisfræðslu í efri bekkjum
grunnskóla. í framhaldsskólunum
verður komið á undirbúningsnám-
skeiðum svo sem í tölvufræðslu og
verkstæðis- og vélavinnu. Sérstök-
um stuðningshópum verður komið
upp fyrir konur í karlagreinum,
konur í stjórnunarstörfum og þær
konur sem stofna eigin fyrirtæki.
Verða haldin tvö námskeið fyrir
tvo síðasttöldu hópana í tengslum
við Iðntæknistofnun og fleiri aðila.
Þá eru áætlaðar aðgerðir sem eiga
að bæta stöðu einstæðra mæðra.
Skipst verður á upplýsingum
milli Norðurlandanna þau fjögur
ár sem verkefnið er ráðgert og er
vonandi að það starf skili árangri.
Verkefnisstjóri á íslandi er Val-
gerður Bjarnadóttir.
phh