Tíminn - 11.07.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn
Scarlett
O’Hara
50 ára
Vivicn Lcigh í lilutvcrki Scarlctt O'Hara, sem var fíngerð Suðurríkjastúlka
en blönduð írsku bændablóði frá föður sínuni og hafði einnig hans bráöa
skap.
30. maí s.l. varð hún Scarlett
O'Hara 50 ára. Er kannski einhver
sem ekki kannast við dömuna?
A.m.k. þekkja aliir sem eru komn-
ir á rniðjan aldur aðalpersónuna í
Gonc With Thc Wind (Á hverf-
anda hveli), hana Scarlett O'Hara.
Þó að bókin sjálf kæmi ekki út fyrr
en um mánuði seinna, voru nokkur
eintök með dagsetningunni 30. maí
1936. Safnarar gefa mikið fyrir eitt
slíkt eintak.
Margaret Mitchell, höfundur
sögunnar Á hverfanda hveli, hefur
líklega ekki gert sér grein fyrir því
þegar hún gaf út bók sína, að hún
var að setja af stað „stóriðnað"
með þessari spcnnandi fjölskyldu-
sögu úr bandaríska þrælastríöinu.
Enn seljast yfir 1000 eintök af
bókinni daglega í Bandaríkjunum,
og myndir úr kvikmyndinni og
ýmsir minjagripir hafa selst fyrir
óhemju upphæðir.
Þegar kvikmyndafyrirtækið aug-
lýsti eftir leikurum í myndina Á
hverfanda hveli voru hvorki meira
né minna en 90 leikkonur prófaðar
í aðalhlutvcrkið - hana Scarlett
O'Hara -. Það var breska leikkon-
an Vivien Leigh sem varð hlut-
skörpust og varð heimsfræg um
leið, því að myndin fór sigurför um
allan heiminn.
Glæsimennið Rhctt Butler (leikinn
af Clark Gable) biður Scarlctt
O’Hara, scm þarna er nýoröin
ekkja, að giftast sér. Eins og sjá má
tekur ekkjan því vel. Annar eins
koss hafði ckki sést í bíómynd þá,
- enda kallaður KOSSINN.
Larry Hagman, betur þckktur sem JR í Dallas, tókst ekki vel upp þegar
hann vildi stinga Ijósmyndara af. Hér virðist hann vera að biðja þá vægðar.
í skrítnum
feluleik við
Ijósmyndara
ana. En brottförin varð ekki eins
hljóðlát og lítið áberandi og Larry
hafði ætlað sér.
Ósköpin byrjuðu með því að
hann villtist á gírum á bílnum
sínum og fyrr en varði var hann
búinn að bakka af fullum krafti
beint í kassastæðu þar sem geymt
var grænmeti. Auðvitað brá Larry
við þessa uppákomu og skellti nú
bílnum í réttan gír og steig bensín-
ið í botn, enda voru ljósmyndar-
arnir mættir á vettvang og var ekki
seinna vænna að reyna að stinga þá
af. En þá tók ekki betra við. Einn
kassinn hafði fest undir bílnum og
innihaldið rann smám saman út.
Leikur einn var að rekja slóð
Larrys. Það var heldur lúpulegur
Larry sem ljósmyndararnir höfðu
á valdi sínu að leikslokum!
StUNDUM ER gaman að vcra
frægur og vinsæll. en stundum er
það ekki eins gaman. Larry
Hagman, betur þekktur sem JR í
Dallas, er orðinn fórnarlamb vin-
sælda sinna og getur sig ekki hreyft
án þess að vera hundeltur af ljós-
myndurum við hvert fótmál. Auð-
vitað verður Larry leiður á því að
eiga ekkert einkalíf í friði og þess
vegna neytir hann allra bragða til
að leika á ljósmyndarana.
Nú í vor hélt Dallas-gengið upp
á það að vera komið í sumarfrí
með því að hittast á veitingastað
einum og borða saman í rólegheit-
um. Að skemmtun og máltíð lok-
inni ætlaði Larry Hagman að læð-
ast burtu og umfram allt vildi hann
forðast kvalara sína, Ijósmyndar-
Föstudagur 11. júlí 1986
lllllllllllllllllllll! ÚTLÖND lllllllllllllllllll!
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Francois Mitter-
rand Frakklandsforseti sagði
eftir viðræður sínar við Mikhail
Gorbatsjov Sovétleiðtoga að
enn væru torfærur í veginum
fyrir að halda ráðstefnu milli
stórveldanna tveggja og að
hann gæti ekki sagt fyrir um
hvenær að ráðstefnunni gæti
orðið. Bresk stjórnvöld sögðust
vera reiðubúin til að svara
ákalli Mitterrands um að bæta
samskipti sín við sovésk
stjórnvöld. Eduard Shevard-
nadze utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna kemur í heimsókn til
Bretlands í næstu viku.
TEL AVIV — Talsmaður
hersins sagði tvo ísraelska
hermenn hafa látið llfið þegar
hermenn úr landher og sjóher
felldu arabískan skæruliðahóp
á suðurströnd Líbanons, rétt
norður af landamærum ísra-
els. I Damascus sagði tals-
maður palestínsku skæru-
liðasamtakanna „Framvarðar-
sveit fyrir frelsun Palestínu" að
menn samtakanna hefðu árás
frá sjó.
HARARE — Sir Geoffrey
Howe utanríkisráðherra Bret-
lands átti viðræður við Robert
Mugabe forsætisráðherra
Zimbabvye um málefni Suður-
Afríku. Á sama tíma íhuguðu
íþróttamálayfirvöld I Zimb-
abwe hvort senda ætti íþrótta-
lið frá landinu á Samveldisleik-
ana I Edinborg. Afrískur sendi-
ráðsmaður sagði I Lundúnum
að hann byggist við að flestar
stjórnir þeirra Afríkuríkja sem I
Samveldisbandalaginu eru
myndu fara að dæmi Nígeríu-
stjórnar og Ghanastjórnar og
senda ekki lið á leikana.
STRASSBORG - Á Evr
ópuþinginu var allt tilbúið til að
samþykkja fjárhagsáætlun
Evrópubandalagsins fyrir árið
1986. Með samþykktinni er
endi bundinn á lögfræðilegar
deilur Evrópuþingsins og
stjórna hinna tólf ríkja Evrópu-
bandalagsins.
PARÍS — Háttsettir franskir
embættismenn lögreglunnar
fordæmdu sprengjuárásina
sem varð einum manni að
bana og særði að minnsta
kosti tuttugu aðra. Sprengjan
sprakk I höfuðstöðvum París-
arlögreglunnar.
LUNDÚNIR — Hersveitir
írana drápu eða særðu 500
írakska hermenn og réðust
lengra inn á írakst yfirráða-
svæði suðuraf víglínu ríkjanna
tveggja við Persaflóann. Þetta
var haft eftir írönsku fréttastof-
unni IRNA.
OSLÓ — Stjórnvöld í Noregi
og Danmörku hafa beðið
sænsk stjórnvöld um skýringar
á fréttum um að kjarnaofnar í
sænsku kjarnorkuveri séu nær
ónýtir vegna ryðs og málm-
þreytu.
BEIRÚT — Hundruð krist-
inna manna og múslima í Líba-
non fóru í tveggja klukku-
stunda setuverkfall til að mót-
mæla hinu ellefu ára borgara-
stríði og efnahagskreppu.