Tíminn - 11.07.1986, Blaðsíða 5
Föstudagur 11. júlí 1986
Tíminn 5
UTLÖND
Spánn:
Fundað um framtíð
bandarísks herafla
Samkvæmt blaöafregnum vilja stjórnvöld á Spáni fækka verulega
í herliði Bandaríkjamanna
Madríd-Reuter
Fulltrúar Bandaríkjastjórnar og
stjórnvalda á Spáni hófu viðræður í
Madríd í gær. Viðræðurnar snúast
um fækkun í herafla Bandaríkja-
manna á Spáni og herma heimildir
að spænsk stjórnvöld vilji nánast láta
loka tveimur af fjórum herstöðvum
Bandaríkjamanna á Spáni en þar er
alls 12.500 hermenn.
Viðræðurnar hófust á því að full-
trúar skiptust á skoðanaskjölum
varðandi málið. Spænsku fulltrúarn-
ir bjuggust við að ná fram verulegri
Noröur-írland:
Mikil ólga
í Portadown
- Heimili kaþólikka grýtt - Hin árlega
sigurganga mótmælenda áætluö um helgina
Bclfust-Rcuter
Mótmælendur réðust á heimili
fimm kaþólskra fjölskyldna í gær-
morgun og fylgdu árásirnar í kjölfar-
ið á dauða tveggja breskra hermanna
sem létu lífið í sprengjuárás írska
lýðveldishersins (IRA) á bíl þeirra.
Talsmaður lögreglunnar á Norð-
ur-írlandi sagði hóp mótmælenda
hafa ráðist á heimili fjölskyldnanna
með steinakasti og bensínsprengj-
um. Einnig var bíl velt fyrir utan eitt
heimilið. Atburðir þessir áttu sér
stað í bænum Portadown sem er 48
kílómetra vestur af Belfast.
Mikil ólga ríkir nú í bænum vegna
hinnar árlegu göngu mótmælenda
sem fyrirhuguð er um næstu helgi.
Gangan er farin til að minnast
sigurs mótmælenda yfir kaþólikkum
í bardaganum við Boyne árið 1690.
Á síðasta ári kom til harðra átaka í
Portadown milli mótmælenda og
lögreglu sem kom í veg fyrir að
göngumenn héldu inn í hverfi
kaþólikka.
Hermennirnir tveir sem létu lífið
í fyrradag fórust þegar bílsprengja
sprakk. Atburðurinn átti sér stað í
grennd við Crossmaglen sem er
nálægt landamærunum við Irland.
Alls hafa því 13 hermenn látið lífið
á Norður-Irlandi það sem af er þessu
ári.
Sovétríkin:
Drykkja minni og
heilsufar dafnar
Reagan og Gonzalez ræddu væntanlega fækkun í bandarísku herliði á Spáni þegar þeir hittust í Madríd á síðasta
ári. Nú eru viðræður hafnar fyrir alvöru.
Moskvu-Reuter
Áróðursherferð stjórnvalda í Sov-
étríkjunum gegn óhóflegri drykkju
hefur valdið því að dauðsföllum af
völdum hjartasjúkdóma hefur fækk-
að um rúmlega 100 þúsund á ári.
Petta kom fram í frétt sem dagblaðið
Pradva birti í gær.
Blaðið hafði eftir Igor Ligasjov,
meðlimi framkvæmdastjórnar sov-
éska kommúnistaflokksins, að auk
færri dauðsfalla af völdum hjarta-
sjúkdóma hefði slysum í vinnu og
glæpum sem framdir væru í ölæði
einnig fækkað. Ligasjov staðhæfði
þctta á fundi í bænum Voronezh
sem er sunnan við Moskvu.
„Meginþorri þjóðarinnar styður
hjartanlega þá stefnu flokksins að
draga úr áfengisframleiðslunni,"
sagði Ligasjov og benti á að í kjölfar
minnkandi drykkju hefði „andrúms-
loftið innan fjölskyldna okkar orðið
betra."
Ligasjov sagði dauðsföllum vegna
hjartasjúkdóma hafa fækkað um
rúm hundrað þúsund á tfmabilinu
frá júní 1985 til júní á þessu ári
miðað við tímabilið þar á undan.
Hann sagði lækna þakka þetta
minnkandi áfcngisneyslu. Ekki gaf
Ligasjov upp ncinar ákveðnar tölur
um dauðsföllin.
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi
tilkynnti um takmarkanir á opnun
vínbara og sölu víns og setti aðrar
hömlur á víndrykkju stuttu eftir að
hann tók við völdum í mars árið
1985.
fækkun í herliði Btindaríkjamanna
en ekki fyrr en cftir umfangsmikil
fundarhöld.
Ekki vildu fulltrúarnir láta hafa
neitt eftir sér varðandi frétt spænskra
dagblaða um gífurlega fækkun.
Blaðið El Pais sagði t.d. að herstöðv-
arnar við Torrejon og Zaragoza
yrðu nánast lagðar niður.
Samkvæmt fréttum munu þó
ekki verða settar fram kröfur um
umtalsverða fækkun við Moron ílug-
vallarstöðina og Rota flotastöðina
sem báðar eru á Suður-Spáni.
Embættismcnn sósíalistastjórnar-
innar hafa viðurkennt að Torrejon
herstöðin skammt fyrir utan Madríd
sé efst á lista hvað varðar fækkun
herliðs. Andstæðingar NATO aðild-
ar á Spáni hafa löngum notað þessa
stöð sem helsta skotspón mótmæla
sinna.
Spánverjar samþykktu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í mars síðastliðnum
að halda áfram að vera aðilar að
NATO en skilyrðin fyrir samþykkt-
inni voru rneðal annars þau að fækka
í bandarísku herliði og leyfa ekki
kjarnorkuvopn á spænskri grundu.
Stefnt er að því af báðum aðilum
að Spánverjar taki yfir flestar þær
skyldur sem bandarísku her-
mennirnir hafa að gegna, þjóðirnar
komust að þessu samkomulagi í
fyrra þegar Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti heimsótti Spán.
Spænsk stjórnvöld hafa gefið í
skyn að þau búist við að samkomulag
liafi náðst áður cn hinn hefðbundni
hersamningur ríkjanna tveggja komi
að nýju til endurskoðunar. Samning-
ur þessi hcfur verið undirritaður á
fimm ára fresti frá árinu 1953 og
kemurtilendurskoðunar í maí 1988.
Italía:
Ævilangt fangelsi til
handa þeim fjarstöddu
Gcnou-Reutcr
ítalskur dómstóll dæmdi í gær
þrjá Palestínumenn, þar á meðal
skæruliðaleiðtogann Ábu Abbas, í
lífstíðarfangelsi fyrir þátttöku
þeirra í ráninu á skemmtiferða-
skipinu Achille Lauro á síðasta ári.
Hvorki Abbas, sem ítölsk yfir-
völd létu reyndar laus eftir ránið,
né hinir tveir nánu samstarfsmenn
hans eru í haldi á ftglíu.
Dómstóllinn dæmdi þá þrjá
menn sem í haldi eru á Ítalíu vegna
ránsins til fangelsisvistunar allt frá
fimmtán til þrjátíu árum. Foringi
hópsins, Magied A1 Molqi sem er
23 ára, hlaut þyngsta dóminn.
Alls voru fjórir þeirra sem
ákærðir voru vegna ránsins á
skemmtiferðaskipinu sýknaðir en
dómstóllinn dæmdi fimm aðra í
fangelsi sem hljóðaði frá sex mán-
uðum til sjö og hálfs árs.
Kína:
Vélmenni
á markað
Hon}> Kong-Reuter
Kínverjar hafa hafið framleiðslu á
vélmennum. Framleiðslan er bundin
við verksmiðju í borginni Shenyang
sem er í norðaustur hluta landsins.
Frétt þessa efnis birtist í dagblaði í
Hong Kong sem er hlynnt stjórn-
völdum í Peking.
Dagblaðið Wen Wei Po sagði að
bæði alhliða vélmenni svo og vél-
menni sem gætu starfað t.d. neðan-
sjávar yrðu framleidd í kínversku
verksmiðjunni.
Blaðið hafði eftir Song Jian, yfir-
manni hins ríkisskipaða vísinda- og
tækniráðs, að þörf væri á að hraða
sjállvirkni allskonar og auka fram-
leiðni. Song sagði þetta við opnun
verksmiðjunnar.
„Sumir halda að við þurfum ekki
á vélmennum að halda vegna þess
hve mikill mannfjöldi býr í landinu.
Við verðum að gera allt sem hægt er
til að auka framleiðni okkar,“ sagði
Song.
VIÐ SELJUM
ALLABÍLA
Láttu skrá
bílinn strax
BILASALAN
Vélar og
vagnar
LANDSBYGGÐAR-
ÞJÓNUSTAN
Sími 99-1504-1506
Eyrarvegi 15 Selfossi
Japan:
Lífseigt fólk
Tokyo-Reuter
Japanar, sem segjast lifa einna
lengst af fólki í heiminum, geta nú
búist við að lifa dulítið lengur.
Meðalaldur Japana lengdist upp í
80,46 ár fyrir konur og 74,84 ár fyrir
karlmenn. Þetta kom fram í tilkynn-
ingu frá heilbrigðis- og velferðar-
málaráðuneyti landsins sem birt var
í gær.
Lenging meðalaldurs er aðallega
að þakka færri dauðatilfellum af
völdum hjartaslags. Lengingin þýðir
að japanskir karlmenn geta nú búist
við að lifa í fjóra mánuði í viðbót,
japanskar konur í þrjá.
Krabbamein, hjartasjúkdómar og
hjartaslag eru aðaldauðaorsakirnar
í Japan.
Samkvæmt tölum frá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni (WHO)
og Sameinuðu þjóðunum geta konur
á íslandi og Sviss búist við að lifa
lengur en japanskar konur en enginn
slær japönskum karlmönnum við.
Á timabilinu 1. mai til 30. sept. Atimabilinu 1. juni til 31. ágúst
Mánudaga: Frá Stykkisholmi kl. 09.00 Fra Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk Þriðjudaga: ^ Fra Stykkisholmi kl 14.00 eftir komu rútu Frá Brjánslæk kl. 18.00 Til Stykkishólms kl. 21.30
Fimmtudaga Fostudaga Samatimataflaog mánudaga. Frá Stykkishólmi kl 14,00. eftir komu rutu. Laugardaga. Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suðureyiar. Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00
Viðkoma i inneyjum. A timabilinu 1. juli til 31. ágúst
Fra Brjánslæk kl 19 30 Til Stykkishólms kl 23.00 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00. fyrir brottför rútu.
Viðkoma er ávallt i Flatey á báðum leiðum.
Bílaflutninga er nauösynlegt að panta með fyrirvara.
Frá Stykkisholmi:
Hja afgreiðslu Ðaldurs
Stykkishólmi, s.: 93-8120
Fra Brjanslæk:
Hjá Ragnari Guömundssyni
Brjanslæk, $.: 94-2020.