Tíminn - 11.07.1986, Side 11
Tíminn 15
Föstudagur 11. júlí 1986
lllllllHllllllllllll . .............................. ............. ............... ............. ............ ..........I................II.IIIIII......lilll..................................lliilll...........
Dregið í Evrópukeppnunum í knattspyrnu:
VALUR - JUVENTUS
- „Trúi þessu varla“ segir Þorgrímur Þráinsson - Valsmenn svo sannar-
lega í lukkupottinn - Fram óheppið að vanda en Skagamenn mæta góðu liði
- Platini og Laudrup til fslands? - Verður vallarmetið slegið?
Michael Laudrup skærasta stjarna Dana á HM. Hann leikur með Juventus
og mætir sjálfsagt á Laugardalsvöllinn í haust.
Mjólkurbikarkeppni KSÍ:
Hárfínt hjá Val
- þurftu framlengingu til að vinna Grindavík 6-2
Prá Frímanni Ólafssyni í Gríndavik:
„Þetta er frábært. Ég trúi þessu
varla“ sagði landsliösmaðurinn Þor-
grímur Þráinsson hjá Val er honum
voru færð tíðindin góðu að Valur
hefði dregist á móti ítölsku meistur-
unum Juventus í Evrópukeppni
meistaraliða í knattspyrnu. „Nú setj-
um við vallarmet" bætti hann.við.
I gær var dregið í Evrópu-
keppnunum þremur í knattspyrnu
og er víst óhætt að segja að Vals-
menn hafi dottið í lukkupottinn.
Juventus er án efa eitt frægasta
félagslið í Evrópu og margfaldir
Ítalíumeistarar auk þess sem þeir
voru Evrópumeistarar meistaraliða
í fyrra. Sannkallað draumalið.
Hin íslensku liðin sem taka þátt í
Evrópukeppnunum voru ekki eins
„heppin“ með dráttinn. Fram, sem
spilar í Evrópukeppni bikarhafa,
fær að spreyta sig á pólska liðinu
Katowice en Skagamenn fá leik
gegn portúgalska liðinu Sporting
Lissabon í UEFA-keppninni.
Skagamenn voru í potti með Napóli
og vissulega hefði það verið drauma-
liðið með Maradona innanborðs.
Heppnin var þó ekki með Skaga-
mönnum að þessu sinni og Napólí
lenti á móti Toulouse frá Frakklandi.
Evrópukeppni
meistaraliða:
Af þeim liðum sem taka þátt í
Platini - Franski snillingurinn spilar
með Juventus.
meistarakeppninni þá verður Ju-
ventus að teljast draumalið fyrir
Val. Það að fá leikmenn á borð við
Platini, Laudrup, Cabrini, Scirea og
hugsanlega Rush er auðvitað dásam-
legt. „Við gátum varla verið heppn-
ari í þetta sinn. Að leika gegn
stjörnum eins og Platini og Laudrup
er eins og draumur. Þá er þetta
einstakt tækifæri fyrir knattspyrnu-
unnendur á íslandi," sagði Þorgrím-
ur Þráinsson hjá Val er Tíminn
tilkynnti honum um dráttinn. Vals-
menn eiga samkvæmt drættinum að
leika fyrri leikinn á ftalíu þann 17.
september en þann síðari í Reykja-
vík þann 1. október.
Liðin sem leika saman í Evrópu-
keppni meistaraliða eru:
Eindhoven (Hollandi) - Bayern Munchen
(Þýskalandi)
Porto (Portúgal) - Rabat (Möltu)
Beggen (Lúx) - Austria Vín (Austurriki)
Juventus - VALUR
Red Star (Júgósl.) - Panathinaikos (Grikkl.)
Beroe Stara (Búlgar.) - Dinamo Kiev (Sovét.)
Young Boys (Sviss) - Real Madrid (Spáni)
Anderlecht (Belgíu) - Gornik (Póllandi)
Brönby (Danmörku) - Honved (Ungverjal.)
Besiktas (Tyrkl.) - Dynamo Tirana (Alban.)
Apoel (Kýpur) - Helsinki (Finnlandi)
Rosenborg (Noregi) - Linfield (írlandi)
Örgryte (Svíþj.) - Dynamo Berlín
(A-Þýskal.)
Shamrock Rovers (írlandi) - Celtic (Skotl.)
Paris St. Germain (Frakkl.) - Vitkovice
(Tékkó)
Steaua Búkarest (Rúmeníu) situr hjá í fyrstu
umferð.
Evrópukeppni
bikarhafa:
Framarar gátu varla verið óheppn-
ari. Þeir fengu pólska mótherja og
þó ekki sé um stórlið að ræða þá
gætu þeir líklega reynst mjög erfiðir
án þess að draga að fólk. Vonandi
að Fram takist vel upp og vinna
leikina gegn þessu pólska liði. Einn
landsliðsmaður er í liði Katowice.
Sá heitir Jan Furtok og er útherji.
Hann var valinn efnilegasti leikmað-
ur Póllands árið 1984 og valinn
útherji ársins 1985. Skemmtilega
leikinn leikmaður með 4 landsleiki
að baki. Hann er 24 ára. Framarar
spila fyrri leikinn á Laugardalsvelli
þann 46. september. Annars lítur
drátturinn í Evrópukeppni bikar-
hafa svona út:
Rapid Vin (Austurr.) - Brugge (Belgiu)
Roma (ítaliu) - Real Zaragoza (Spáni)
Benfica (Portúgal) - Lilleström (Noregi)
Nentori (Albaniu) - Dinamo Búkarest
(Rúmeníu)
Aberdeen (Skotlandi) - Sion (Sviss)
Bordeaux (Frakklandi) - Waterford (írlandi)
Malmö (Sviþjóð) - Apollon Limasol (Kýpur)
Bursaspor (Tyrklandi) - Ajax (Hollandi)
Wrexham (Wales) - Zurrieq (Möltu)
Haka (Finnlandi) - Torpedo (Sovótr.)
Olympic Piraeus (Grikkl.) - US Luxemborg
(Lúx)
Stuttgart (V-Þýskal.) - Spartak Trnava
(Tékkó.)
Katowic - FRAM
1903 (Danmörku) - Vitosha (Búlgaríu)
Glentoran (N-írlandi) - Lokomotiv Leipzig
(A-Þýskal)
Vasas (Ungverjal.) - Velez Mostar (Júgósl)
UEFA-kcppnin:
Skagamenn mæta portúgalska lið-
inu Sporting frá Lissabon. Sporting
státar af fimm landsliðsmönnum og
eru tveir þeirra meðal bestu leik-
manna Portúgala. Það eru miðju-
mennirnir Suosa og Pacheco. Það
verður erfiður róður hjá Skaga-
mönnum en þeir hafa þó alltaf staðið
sig vel undir pressu og verða örugg-
lega verðugir mótherjar Sporting.
Liðin sem drógust saman í UEFA-
keppninni eru annars:
Lens (Frakkl.) - Dundee United (Skotl.)
Groingen (Hollandi) - Galway (írlandi)
Sporting - ÍA
At. Bilbao (Spáni) - Magdeburg (A-Þýskal.)
At. Madrid (Spáni) - Werder Bremen (V-
Þýskal.)
Jeunesse (Lúx) - Ghent (Belgíu)
Pecsi (Ungverjal.) - Feyenoord (Hollandi)
Sparta Prag (Tékkóslóvak.) - Vitoria
(Portúgal)
Dukla Prag (Tékkó) - Hearts (Skotl.)
Tórinó (Ítalíu) - Nantes (Frakkl.)
Leverkusen (V-Þýskal.) - Kalmar (Svíþjóð)
Dinamo Minsk (Sovét) - Raba Eto (Ungv.)
Gautaborg (Svíþjóð) - Sigma (Tékkó)
Coleraine (N-írl.) - Brandenb. (A-Þýskal.)
Legía Varsjá (Póll.) - Dnepropetrovsk
(Sovót)
Rangers (Skotlandi) - Tampere (Finnlandi)
Uerdingen (V-Þýskal.) - Carl Zeiss Jena
(A-Þýskal)
Linz (Austurríki) — Widzew Lodz (Póllandi)
Neuchtalen Xamax (Sviss) - Lyngby
(Danmörku)
Beveren (Belgíu) - Valerengens (Noregi)
Crete (Grikklandi) - Hajduk Split (Júgósl.)
Fiamurtari (Albaníu) - Barcelona (Spáni)
Fiorentina (Ítalíu) - Boavista (Portúgal)
Hibernians (Möltu) - Trakia (Búlgaríu)
Swarowski (Austurr.) - Sredetz (Búlgaríu)
Inter Mílanó (Ítalíu) - AEK (Grikklandi)
„Gladbach" (V-Þýskalandi) - Partizan Bel-
grad (Júgósl)
Omonia Nicosia (Kýpur) - Sportul
(Rúmeníu)
Galatasaray (Tyrkl.) - Uni Craiova
(Rúmeníu)
Rijeka (Júgósl) - Liege (Belgíu)
Napóli (Ítalíu) - Toulouse (Frakklandi)
Lucern (Sviss) - Spartak Moskvu (Sovét)
Valsmenn þurftu heldur betur að
taka á honum stóra sínum til að
Knattspyrnuskóli ÚÍA
UÍA heldur um þessar mundir
knattspyrnuskóla að Eiðum. Enn
eru laus pláss í námskeið fyrir 6.
flokk þann 14.-18. júlí og fyrir 4 og 5
flokk 2L-25.júlí. Kennt er á grasi og
eru auk fótboltans video, kvöldvök-
ur, leikir og fleira. Skráning cr í
síma 97-1353. Kennarar eru Ársæll
Hafsteinsson og Grétar Eggertsson.
vinna 3. deildarlið Grindavíkur fyrir
framan fjölda áhorfenda í Grindavík
í gær. Staðan að loknum venjulegum
leiktíma var 2-2 og í fyrri hluta
framlengingarinnar skoraði hvorugt
liðið. I þeim síðari sprungu hinsveg-
ar heimamenn og Valur skoraði
fjórum sinnum.
Guðni Bergsson skoraði 0-1 fyrir
Val eftir 46 sekúndur eftir horn og
voru Valsmenn betri í fyrri hálfleik.
Sigurjón Kristjánsson kom þeim í
2-0 í byrjun síðari háltleiks en þá fóru
heimamenn í gang og Steinþór
Helgason og Guðlaugur Jónsson
jöfnuðu leikinn. Grindvíkingar voru
síst verri í síðari hálfleik.
Krístín Arnþórsdóttir var stöðugur ógnvaldur í A-varnarinnar og hún skoraði
eina mark lciksins. Tímamynd Pétur
íslandsmótiö í knattspyrnu - 1. deild kvanna:
Valsstúlkurnar
eru ósigrandi
- Unnu í gær íslandsmeistara ÍA
Valsstúlkurnar héldu áfram sig-
urgöngu sinni í 1. deild kvenna á
íslandsmótinu í gær. Liðið sigraði
sjálfa íslandsmeistarana af Skagan-
um á Valbjarnarvelli með einu marki
gegn engu. Þar með eru stúlkurnar
Tindastóll efstur
Tindastóll skaust í efsta sætið í
B-riðli 3. deildar í knattspyrnu í
fyrradag með 4-1 sigri á Magna á
meðan að Leiftur frá Olafsfirði
tapaði fyrir Reyni Á 0-1. Þeir
bræður Eyjólfur og Eiríkur
Sverrissynir skoruðu tvívegis
hvor fyrir Tindastól en Friðbjörn
Pétursson skoraði fyrir Magna
rétt fyrir leikslok.
Kristján Sigurðsson skoraði
sigurmark Reynis gegn Leiftri á
Árskógsströndinni. Tindastóll
hefur nú 18 stig en Leiftur 17 og
Þróttur Nes 16.
ÖÞ
frá Hlíðarenda komnar með að
minnsta kosti nokkra fingur á ís-
landsbikarinn en búast má við að
úrslitaleikurinn um þann grip verði
næsta föstudag er Valur og Breiða-
blik eigast við.
Það var markamaskínan Kristín
Arnþórsdóttir sem tryggði Val sigur-
inn í gær. Hún slapp laus snemma í
leiknum og stakk ÍA vörnina af og
skoraði örugglega eins og henni er
Iagið. Annars var leikurinn í jafn-
vægi lengstum og mátti ekki á milli
sjá. Tækifærin voru þó af heldur
skornum skammti en þó átti Karitas
Jónsdóttir ein þrjú góð færi til að
jafna leikinn fyrir ÍA. Kristín ógnaði
einnig og átti m.a. í fyrri hálfleik
skot í slá eftir glæsilegan einleik.
Þegar líða tók á leikinn þá bökkuðu
Valsstúlkurnar heldur og Kristín var
m.a. færð aftar á völlinn. Þetta
hleypti Skagastúlkunum þó ekki
mikið framar heldur var úr eitt
allsherjar hnoð. Sigurinn var þó sæt-
ur fyrir þær rauðklæddu og fögnuður
niikill.
í framlengingunni sem fylgdi var
jafnræði með liðunum til að byrja
með en í síðari hlutanum sprungu
heimamenn og Valur Valsson, Jón
Grétar 2 og Hilmar Sigurgíslason
bættu við mörkum og tryggðu ís-
landsmeisturunum sigur á baráttu-
glöðum Grindvíkingum.
■ Hinu fræga og gamalgróna
enska knattspyrnuliði, Úlfunum,
var bjargað frá gjaldþrotaskipt-
um í að minnsta kosti þrjár vikur
enn í fyrradag. Þá dæmdi undir-
réttur að liðið hefði nú þrjár
vikur enn til að koma málum
sínum á hreint. Úlfarnir verða þó
að vera búnir að gera upp við
skuldunauta sína fyrir 18. ágúst
því þá hefst deildarkeppnin og
þeir fá ekki að vera með ef allt er
í ólagi hjá þeim samkvæmt nýjum
reglum deildarfélaganna.
■ Vinstri bakvörður Brasilíu-
manna í HM í knattspyrnu,
Branco, var í fyrradag keyptur til
ítalska liðsins Brescia sem mun
spila í 1. deild á næsta keppnis-
tímabili. Branco, sem spilaði vel
■ HM, gerði þriggja ára samning.
■ Fyrstudeildarliðið Atlanta á
Ítalíu keypti fyrrum enska lands-
liðsmanninn Trevor Francis
frá Sampdoria. Samningurinn er
aðeins til eins árs. Francis er nú
um þrítugt.