Tíminn - 11.07.1986, Side 16
VALSSTÚLKURNAR héldu áfram sigur-
göngu sinni í 1. deild [slandsmótsins í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Þá lögöu þær íslandsmeist-
ara Skagamanna aö velli á Valbjarnarvelli meö
einu marki gegn engu. Þaö var markamaskínan
s Kristín Arnþórsdóttir sem skoraöi markiö eina
snemma í leiknum. Þá spiluöu Grindvíkingar og
I Valsmenn í bikarkeppninni og sigruðu Valsmenn
eftir framlengoan leik. Valur er þar með kominn
í 8-liða úrslit ásamtFram, KR, IBK, UBK, FH, ÍA
og Víkingi.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra:
Kjaradómur hætti
að dæma um laun
- Háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn boðuðu
forföll frá vinnu í gær
„Ég tel niðurstöðu Kjaradóms sýna
það, að það sé útilokað fyrir ríkis-
valdið að semja um hluta af launum
opinberra starfsmanna í frjálsum
samningum en vera háð dómi með
annan hluta,“ sagði Þorsteinn Páls-
son fjármálaráðherra um ákvörðun
Kjaradómsum laun BHMR manna.
Þorsteinn sagði ennfremur að
dómur Kjaradóms gengi nokkuð á
svig við þá launamálastefnu sem
mörkuð hefur verið, og hann sagðist
ekki hafa átt von á því að Kjaradóm-
ur færi að mæla almenna launahækk-
un til háskólamenntaðra starfs-'
manna umfram það scm almennt.
verkafólk hefur fengið.
„Ég ræddi það á ríkisstjórnarfundi
í morgun í framhaldi af Kjaradóms-
ákvörðuninni, að taka verði launa-
ákvarðanir frá Kjaradómi og að þær
verði ákveðnar að öllu leyti í frjáls-
um samningum. Að mínu mati gefur
skýrslan um kjarasamanburð há-
skólamenntaðra starfsmanna hjá
ríkinu við aðra á almennum markaði
ekki tilefni til almennra launahækk-
ana og í skýrslunni kemur augljós-
lega fram að erfitt er að bera saman
laun á almennum markaði og opin-
berum markaði. í reynd eru það
heildarkjör sem skipta máli. Þessi
skýrsla er heldur ekki í neinni
nálægð við þær kröfur sem BHMR
hefur sett fram,“ sagði Þorsteinn.
í sératkvæði Stefáns Ólafssonar
kemur fram að á Kjaradómi hvíli sú
lagalega skylda að dæma BHMR
sambærileg laun og tíðkast á al-
mennum markaði. Þar sem miklar
rannsóknir hafi leitt í Ijós að 61%
munur hafi verið á dagvinnulaunum
hópanna, þá veki furðu að Kjara-
dómur haldi uppi málflutningi um
að enginn munur sé á launum hjá
ríkinu og á almennum markaði. Ef
Kjaradómur dæmi ríkisstarfsmönn-
um of litla leiðréttigu, leiði það til
frekari spillingar á launakerfi margra
ríkisstofnana sem geta ekki haldið
starfsfólki sínu nema borga því hálf
dagvinnulaun og gefa því síðan kost
á aukavöktum til að ná upp launum,
eða greiði óunnar eftirvinnustundir
með dagvinnukaupi. Þetta sýni það,
að ekki sé allt með felldu í launamál-
un þeirra starfsmanna sem Kjara-
dómur sé að fjalla um.
Nokkur röskun varð á starfsemi
opinberra stofnana í gær sökum
óánægju háskólamenntaðra manna
sem vinna hjá ríkinu. Margir til-
kynntu veikindaforföll, t.d.
hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfar-
ar, sálfræðingar og félagsráðgjafar á
Landspítalanum. ABS
ístungan er % til 9/io að þéttleika, færist innar í Húnaflóann en bráðnar.
Þríhyrningarnir merkja hurgarísjaka, sem þó eru smáir.
Hafísinn lætur
á sér kræla
Hafísinn fyrir norðan land berst
hægt inn Húnaflóann, en hlýindi og
sólbráð þíða hann jafnt og þétt.
Tveir borgarísjakar berast nær
landi, eru litlir en varasamir.
1 gær fengust upplýsingar úr
könnunarflugi Landhelgisgæslunnar
um ísröndina úti fyrir Horni og inn
Húnaflóa. Þar er lagís og besta
siglingaleiðin virðist vera frá Horni
innan við Óðinsboða úti fyrir Geir-
ólfsgnúp og inn undir Antdrupsboða
og þaðan á Skaga. Fyrir minni báta
er þó æskilegt að fara innan við
Óðinsboða, suður undir Gjögur og
þar yfir flóann. í gær var þokuslæð-
ingur yfir svæðinu.
Syðsti endi hafístungunnar inn
Húnaflóa var á 65°56'N og 20°52'V
(sjá kort). í samtali við Þór Jakobs-
son, veðurfræðing, í gær sagði hann
að skip mættu tilkynna honum frekar
um stöðu íssins. Hann biður skip-
stjórnarmenn á hafísslóðum ein-
dregið að senda Veðurstofunni upp-
lýsingar um hafís, sem þeir sigla um
eða verða varir við. Landhelgisgæsl-
an mun þó kortleggja ísröndina að
nýju í dag.
Þj-
(Tímamynd-Pétur)
Meistaraflokkur markaðsnefndarinnar kynnir Fjallalambið utan við Hagahúðina.
Kynning markaösnefndar:
Fjallalambið um víðan völl
Kynning markaðsnefndar á Fjalla-
Iambi er nú hálfnuð, en undanfarið
hafa svokallaðir Meistaraflokkar
ferðast á milli matvöruverslana og
stórmarkaða með útigrill og leyft
viðskiptavinum að bragða Ijúffenga
rétti, auk þess sern þeir hafa dreift
auglýsingabæklingum.
I hverri meistarasveit eru mat-
reiðslumenn, kjötiðnaðarmenn og
húsmæður, sent kynna bestu nýtingu
heilla skrokka, - allt frá hlutun hans
þar til hinir ýmsu partar eru komnir
ofan í pott eða á grillið.
„Þessi herferð okkar hefur mælst
mjög vel fyrir og hún hefur hlotið
góðar viðtökur," sagði Sigurður
Garðarsson, nieistaraflokksmaður,
er blaðamaður haföi tal af honum,
er hann var við að grilla Fjallalamb
utan við Hagabúðina. „Við ráðleggj-
um fólki hvernig best sé að með-
höndla kjötið og framreiða það og
svo bendum við á ýmsar nýjungar,
en fólk er dálítið staðnað hvað
varðar matargerð með kindakjöt.
Við verðum að gera okkur grein
fyrir að Fjallalambið, sem er vöru-
merkið, er villibráð og af því fæst
betri matur en af öldum skepnum.
Við leggjum mikla áherslu á
geymslu afurðarinnar og innkaup
hcnnar í kynningu okkar, en ýmsar
uppskriftir má finna í kynningar-
bæklingnum.
í þessari meistaraflokksherferð
okkar leggjum við mikið upp úr því
að menn athugi að þeir séu að
meðhöndla hreina náttúruafurð.“
Markaðsnefndin mun kynna
Fjallalambið um land allt og á næstu
dögum má finna meistaraflokka í
helstu stórmörkuðum í Reykjavík.
Þj
Juventus mótherjar Vals í Evrópukeppni:
Valsmenn duttu
í lukkupottinn
-fjöldi leikmanna úr HM leikur með Juventus
Valsmenn duttu heldur betur í
lukkupottinn í gærdag, þegar dregið
var um hvaða lið leika saman í
Evrópukeppni meistaraliða sem
hefst í haust. Valur fékk ekki óverð-
ugri mótherja en Juventus frá Ítalíu.
Sem dæmi um þekkta leikmenn
sem spila með liðinu, er hægt að
nefna Laudrup hinn danska, Serena
hinn ítalska og Platini hinn franska.
Þessir menn ættu að vera íslending-
um að góðu kunnir eftir útsendingar
frá heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu.
„Við erum í skýjunum" sagði
Svanbjörn Thoroddsen fram-
kvæmdastjóri Vals í samtali við
Tímann nokkrum mínútum eftir að
kunngert var í fréttaskeytum að
Valur hafði dregist á móti hinu
sterka ítalska liði.
Sem framkvæmdastjóri hugsaði
Svanbjörn að sjálfsögðu um
peningahliðina og benti á að þetta
gæti orðið mikil lyftistöng fyrir félag-
ið, bæði sem kynning á því og eins
gæti fjárhagslegur ávinningur vcrið
talsverður fyrir félagið, bæði vegna
sölu á aðgangseyri og í sölu auglýs-
inga í leikskrá og á búninga þegar
leikið verður erlendis.
Samkvæmt reglum Evrópusam-
bandsins eiga Valsmenn að leika
fyrri leikinn suður á Ítalíu, en tals-
verðir hagsmunir eru í húfi fyrir Val
að fá að leika fyrri leikinn hér heima
og voru tveir menn frá félaginu á
rökstólum í Sviss, þarsem drátturinn
fór fram, og taldi Svanbjörn fram-
kvæmdastjóri að líkur væru góðar á
því að Valsmenn fengju leikjaröðun
breytt.
Þrátt fyrir bjartsýni sagði Svan-
björn ekki vilja lofa öðru Benfica
ævintýri, þegar vallarmet var sett á
Laugardalsvellinum og átján þúsund
manns sáu leik Vals og Benfica. „En
við búumst við góðri aðsókn."
Sjá íþróttir bls. 15.
- ES
Byggðastofnun:
Stofnuð
Byggðastofnun ákvað á stjórn-
arfundi sínum, að efla þjónustu
stofnunarinnar við landsbyggðina
og lýsti sig reiðubúna til að undir-
búa starfsemi umboða Byggða-
stofnunar í hverju kjördæmi.
Stefán Guðmundsson formað-
ur stjórnar Byggðastofnunar
sagði í samtali við Tímann, að
þessi ákvörðun stofnunarinnar
væri miklu hagstæðari fyrir Iands-
byggðina, vegna þess að þá væri
stofnunin í reynd á miklu fleiri
stöðum á landinu, en ef um
einhliða flutning hennar hefði
verið að ræða til Akureyrar.