Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 11
Föstudagur 25. júlí 1986
Tíminn 15
Ásbjörn Jónsson
Fæddur 15. júní 1906.
Dáinn 12. júlí 1986.
Tengdafaðir minn, Ásbjörn
Jónsson, lézt í Borgarspítalanum
aðfaranótt laugardagsins 12. júlí eft-
ir stutta en stranga banalegu. Tæp-
um mánuði áður hélt hann upp á
áttræðisafmæli sitt í hópi fjölskyldu
og vina og var hrókur alls fagnaðar.
Mun engan, sem þar var, hafa
grunað, að hann bæri svo bráðafeigð
í brjósti. Og þó kom andlát hans
okkur, sem áttum mest saman við
hann að sælda, ekki með öllu á
óvart. Við vissum, að hann var með
alvarlegan hjartasjúkdóm og oft
mjög þjáður, þó að hann léti lítið á
því bera, væri allajafna glaður og
reifur og gengi dag h vern að störfum,
eins og ekkert hefði ískorizt. Virtist
lífsþróttur hans nær óskertur til
síðustu stunda. í>á hjúkraði eigin-
kona hans honum með dæmafárri
umhyggju eftir að heilsa hans fór að
bila. Átti það mestan þátt í, að
honum auðnaðist að eiga svo langa
og auðnuríka ævi.
Ásbjörn Jónsson var fæddur á
Deildará í Múlasveit í Austur-
Barðastrandarsýslu. Foreldrar hans
voru Jón Jónsson, bóndi þar, og
kona hans, Ástríður Ásbjörnsdóttir
frá Kollsvík. Á Deildará - eins og
víða við Breiðafjörð - var stundaður
hefðbundinn landbúnaður með
hlunnindum af æðarvarpi, selveiði,
lundatekju og sjávarfangi. Verzlun
var sótt til Flateyjar, enda var Múla-
sveit eitt afskekktasta byggðarlag á
landinu um þessar mundir. Þeir
Ásbjörn og Jón, yngri bróðir hans,
sem seinna varð bóndi á Deildará,
höfðu því margt að sýsla á upp-
vaxtarárunum bæði á sjó og landi,
enda urðu þeir báðir harðskeyttir
veiðimenn. Á kreppuárunum var
Ásbjörn fengsæl grenjaskytta. Auk
þess keypti hann yrðlinga, ól þá upp
á Deildará og seldi refaskinn. Kom
hann þannig undir sig fótum fjár-
hagslega. Er þetta dæmi um hagsýni
hans og hugkvæmni.
Þótt Ásbjörn flyttist til Reykjavík-
ur, kvæntist þar, stofnaði heimili og
eignaðist börn, sagði hann ekki skil-
ið við æskustöðvarnar. Um langt
árabil fór fjölskyldan vestur að
Deildará á hverju sumri og dvaldist
þar lengri eða skemmri tíma. Það
var gaman að heimsækja þau hjónin,
þegar þau komu úr þessum ferðum.
Vestfirzk aðalbláber með rjóma
voru þá á borðum. Hafði húsbónd-
inn tínt þau, en berjatínsla var íþrótt
hans og yndi, enda engum fært að
etja þar við hann kappi. Kom honum
til góða að þekkja nánast hverja
þúfu og hvern stein í heimahögun-
um. Hann hefði vel getað tekið
undir með Jóni Helgasyni, þegar
hann segir:
Löngum í æsku ég undi við
angandi hvamminn og gilsins nið,
ómur af fossum og flugastraum
fléttaðist síðan við hvern minn
draum.
Ásbjörn kvæntist 1938 Kristrúnu
Valgerði Jónsdóttur, dóttur Jóns
bónda Jónssonar á Þóroddsstöðum í
Ölfusi, síðar í Reykjavík, og Vigdís-
ar konu hans Eyjólfsdóttur. Festu
þau ungu hjónin kaup á húseigninni
Nýlendugötu 29 í Reykjavík og hafa
búið þar æ síðan. Af Nýlendugötu
29 sér vestur og norður yfir víðfeðm-
an Faxaflóa og siglingarleið til
Reykjavíkurhafnar. Var það útsýni
Ásbirni einkar kært, enda tengdur
sjó frá bernsku.
Ásbjörn og Kristrún eignuðust
tvö börn:
Jón, heildsala og fiskúttlytjanda í
Reykjavík. Kona hans er Halla Dan-
íelsdóttir og börn þeirra tvö, Ás-
björn og Ásdís; Fríðu Valgerði,
húsmæðrakennara, sem er gift
undirrituðum. Synir okkar eru
Baldur, Héðinn og Gunnar.
í Reykjavík fékkst Ásbjörn við
margt. Var sjómaður um skeið, rak
refa- og minkabú og seinna svínabú,
þar sem nú er Garðabær, keypti
og verkaði grásleppuhrogn til út -
flutnings o.fl.Síðustu árin keypti
hann fisk af bátum, gerði að honum
og seldi siðan í mötuneyti og til
fisksala. Hann líktist Bjarti í Sumar-
húsum að því leyti, að það var
honum afar mikils virði að starfa
sjálfstætt og vera frjáls og öðrum
óháður. Ég held, að honum hafi
látið betur að vinna verkin sjálfur en
að hafa fólk í vinnu. Hann var
hamhleypa við öll störf, en þó vand-
virkur. Hann reis jafnan árla úr
rekkju og var oft búinn að skila
dagsverki, þegar þorri borgarbúa var
að skreiðast á fætur. Hann var mjög
orðheldinn og áreiðanlegur í öllum
viðskiptum. Ásbjörn efnaðist vel og
hafði oft á lífsleiðinni talsvert fé
handa á milli. Var það honum mikils
virði. Hann hafði þó enga löngun til
að safna auði. Hins vegar þótti
honum gaman að geta veitt ættingj-
um og vinum, sem þurftu á hjálp að
halda, fjárhagslega aðstoð.
Framan af ævi spilaði Ásbjörn
mikið bridge í tómstundum sínum.
Tók hann oft þátt í keppni, og var
sveit hans sigursæl. Ber fjöldi verð-
launabikara á heimili hans því glöggt
vitni. Á síðari árum las hann mikið,
einkum bækur um mannlíf, atvinnu-
hætti og sjómennsku við Breiða-
fjörð. Atti hann gott safn slíkra
bóka og auk þess mörg öndvegisrit
íslenzkra bókmennta. Ásbjörn og
Kristrún tóku alla tíð mikinn þátt í
starfsemi Breiðfirðingafélagsins í
Reykjavík og báru hag þess mjög
fyrir brjósti.
Ég kynntist Ásbirni nokkru eftir
Á timabilinu 1. mai til 30. sept.
að ég fór að vera með dóttur hans.
Hafði ég þó séð hann álengdar, en
fannst maðurinn ekki árennilegur og
forðaðist í lengstu lög að hitta hann.
Þegar fundum okkar bar loks saman,
varð mér ljóst, að ótti minn var
algerlega ástæðulaus. Hann tók mér
með mikilli vinsemd, og skynjaði ég
strax hjartahlýjuna, sem mér fannst
þá og æ síðan ríkasti þátturinn í eðli
hans. Hann bjó yfir ótrúlega miklum
persónutöfrum, og öllum leið vel í
návist hans. Ég held, að það hafi
stafað af því, að hann var alltaf fyrst
og fremst sveitapiltur að vestan, þó
að hann byggi í áratugi í Reýkjavík.
Hann kom ævinlega til dyra eins og
hann var klæddur, og öll sýndar-
mennska var honum víðs fjarri.
Þegar synir ntínir uxu úr grasi,
varð það eitt helzta tilhlökkunarefni
þeirra að fá að gista hjá afa og ömmu
á Nýlendugötu. Þar voru þeir um-
vafðir hlýju og kærleika.
Að leiðarlokum þakka ég tengda-
föður mínum innilega fyrir sam-
fylgdina. Þar var hann nær alltaf
gefandi, en ég þiggjandi. Ég kveð
hann svo með tveimur síðustu erind-
unum úr kvæði Tómasar Guðmunds-
sonar f VESTURBÆNUM, en þar
hafa tengdaforeldrar mínir búið í
hartnær hálfa öld:
En þó að þagni hver kliður
og þó að draumró og friður
leggist um allt og alla,
ber hjarta manns svip af sænum,
sem sefur framundan bænum
með öldur, sem óralangt falla.
Pví særinn er veraIdarsærinn,
og sjálfur er vesturbærinn
heimur, sem kynslóðir hlóðu,
með sálir, sem syrgja og gleðjast,
og sálir, sem hittast og kvedjast
á strönd hinnar miklu móðu.
Steingrímur Baldursson
vantar
/ eftirtalin hverfi.
Blaðberar óskast frá 1.
ágúst.
Melabraut, Skólabraut
Ármúla, Síðumúla
Bólstaðarhlíð, Skafta-
hlíð, Leitin
Afleysingar:
Háaleitisbraut,
Blönduhlíð, Drápuhlíð
Borgarholtsbraut,
Skólagerði og víðs-
vegar um borgina.
Hefur það
bjargað þér /T
_____
Utibú í kringum landið
REYKJAVÍK:... 91-31815/686915
AKUREYRI:......96-21715/23515
BORGARNES:............93-7618
BLÖNDUÓS:........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:...... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:........96-71489
HÚSAVÍK:.......96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ........ 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:... 97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .... 97-8303
interRent
Á timabilinu 1. júni til 31. ágúst
Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Þriðjudaga Frá Stykkisholmi kl. 14.00
Frá Brjánslæk kl. 14.00 eftir komu rútu
Til Stykkishólms kl. 18.00 Fra Brjánslæk kl 18 00
fyrir brottför rútútil Rvk .Til Stykkishólms kl. 21.30
Fimmtudaga Samatimatafla og Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
mánudaga Sigling um suðureyjar
Föstudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00. eftirkomu rútu Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00
Viðkoma í inneyjum Á tímabilinu 1. júli til 31. áqúst
Frá Brjánslæk kl. 19.30 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Til Stykkishólms kl. 23.00 Frá Brjánslæk kl. 14 00 Til Stykkishólms kl. 18 00. fyrir brottför rútu
Viðkoma er ávallt i Flatey á baðum leiðum.
Bilaflutninga er nauðsynlegt að panta með tyrirvara.
Tímlnn
SIÐUMÚLA 15
686300
IED
TVÍMÆLALAUST
HAGSTÆÐUSTU KAUPIN
Besta verðið - Bestu kjörin
Lang ódýrasta
dráttarvélin
á markaðnum
Velaborg
Bútækni hf. Simi 686655/686680
Ertu kennari?
Viltu breyta til?
Hvernig væri þá að athuga alla möguleika á því að gerast kennari í
Grundarfiröi?
Grunnskólinn í Grundarfirði er að stærstum hluta í nýlegu húsnæði.
Hann er ágætlega búinn tækjum, með góðri vinnuaðstöðu kennara
ásamt góðu skólasafni. Bekkjadeildir eru að viðráðanlegri stærð
(12-14 nem.) en heildarfjöldi nemenda er 150. Sértu að hugsa um
að slá til þá vantar kennara í almenna bekkjarkennslu og til kennslu
I raungreinum, tungumálum og handmennt. Ennfremur til kennslu á
skólasafni (hálft starf á móti hálfu starfi á almenningssafni).
Grundarfjörður er í fögru umhverfi í um það bil 250 km fjarlægð frá
Reykjavík. Þangað eru daglegar ferðir með áætlunarbílum og flug
þrisvar í viku. Viljir þú kynna þér málið þá sláðu á þráðinn.
Skólastjórinn Gunnar Kristjánsson sími 93-8802, og varaformaður
skólanefndar, Sólrún Kristinsdóttir sími 93-8716, gefa allar nánari
upplýsingar.
Skólanefnd.
Frá Stykkishólmi:
Hjá afgreiðslu Baldurs
Stykkishólmi, s.: 93-8120
Frá Brjánslæk:
Hjá Ragnari Guðmundssyni
Brjánslæk, s.: 94-2020.
Frá Menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru lausartil umsóknarkennara-
stöður í handavinnu tré- og málmgreina, tölvufræðum, viðskiptafræð-
um og 1/2 staða tónmenntakennara. Umsóknir skulu sendar til
Menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 10.
ágúst.
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður I stærðfræði og
þýsku við Menntaskólann á Akureyri framlengist til 10. ágúst.
Menntamálaráðuneytið